Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 2. JANIJAR 1989. 5 Fréttir Gjaldþrot Helga Þórs Jónssonar: Krttf uhafar vilja riftun samn- inga og bókhaldsskoðun - Helga Þór meinaður aðgangur að fimdi 'Forgangskröfuhafar og þeir sem eiga kröfur í lausafé á Hótel Örk héldu með sér fund hjá embætti sýslumanns Árnessýslu á fimmtu- dag. Helga Þór Jónssyni og lög- manni hans var meinaður aðgang- ur að fundinum. Fundarmenn sögðu fundinn óformlegan, þar sem fundirinn gæti ekki tekið bindandi ákvarðanir fyrir þrotabúið, og því ætti Helgi Þór ekki rétt á að sitja fundinn. Allt öðru gegnir ef um formlegan skiptafund er að ræða þar sem hugsanlega eru teknar bindandi ákvarðanir fyrir þrota- búið og hagsmunir Helga Þórs því ótvíræðir. Kröfuhafar voru flestir sama sinnis um að nauðsynlegt sé að rifta ýmsum samningum sem Helgi Þór hefur gert. Eins var almennur vilji til að draga til baka áfrýjun, sem Helgi Þór hefur sent til Hæsta- réttar, vegna uppboðsins á Hótel Örk. Þá voru fundarmenn sam- mála um að nauðsynlegt sé að gera rannsókn á bókhaldi Helga Þórs Jónssonar. Þá var vilji á fundinum að uppboð á lausafjármunum fari fram. Þá vilja kröfuhafar fá skýrari svör frá Helga Þór Jónssyni um einstök atriöi. Þetta töldu fundar- menn nauðsynlegt svo hægt verði að meta stöðu þrotabúsins á ný. „Við töldum að um almennan skiptafund væri að ræða og mætt- um því hjá sýslumanni. Þegar við komum var okkur meinaöur að- gangur að fundinum. Ég er með ljósrit af fundarboðinu og þar. stendur að um skiptafund sé aö ræða. Fundarboðið var sent til for- gangskröfuhafa og eins þeirra sem eiga fjárnámskröfur í lausafé," sagðiHelgiÞór Jónsson. -sme Póstkassar sprengdir: Dæmi um þjófnað á pósti - töluvert um slíkt á þessum árstíma Á þessum árstíma er töluvert um að almennir póstkassar séu sprengd- ir upp. Töluvert er um að póstur skemmist og eins að verðmætum sé stolið úr póstinum. í Mosfellsbæ var nýlega sprengdur upp póstkassi og meðal annars var ávísun úr einu bréfanna stolið. Hjá Pósti og síma fengust þau svör að töluvert væri um skemmdir á póstkössum og pósti á þessum árs- tíma. Helst eru það unglingar sem setja rakettur eöa annað sprengiefni í póstkassana. Oft kemur fyrir að póstur skemmist af þessu sökum - en sjaldnar er um póstrán að ræða. Þó kemur það fyrir. Sjómannablaðið Víkingur átti með- al annarra póst í póstkassanum sem sprengdur var í Mosfellsbæ. Eitt umslag frá Sjómannablaöinu Víkingi hafði verið opnað og úr því tekin ávísun og tilkynning um jólaball sett í umslagið - í stað ávísunarinnar. -sme Hluti af pósti Sjómannablaðsins Víkings. Þessi ávísun var látin óhreyfð - enda skemmd eftir bruna. Önnur ávísun var tekin - hún var yfirstrikuð og ætti þvi að vera erfitt að fá henni skipt. DV-mynd KAE SÉR- TILBOÐ Citroen CX 25 GTI, árg. '84, beinsk. Verð 580.000. Lada Sport, árg. '86, 5 gira, létt- stýri, ekinn 37.000. Verð 345.000. Bein sala. Honda Accord EX, árg. '87, sjálfsk., ekinn 22.000. Verð 880.000. Saab 900 GLE, árg. '82, sjálfskiptlng léleg en annað ástand gott. Verð 270.000. Mikið úrval af notuðum bílum á hagstæðu verði. ■■■■■■■■■■■■■■ Öllum notuðum bílum fylgir einn gangur af nýjum vetrar- dekkjum. «••••••••••••••••••• Allt að 18 mánaða óverðtryggð greiðslukjör Opið virka daga 9-18, laugardaga 13-17. Peugeot 505, dísil, árg. '85, sjálfsk. Verð 450.000. u JÖFUR HF Nýbýlavegi 2. Sími 42600. NOTAÐIR BÍLAR Á LÆGRA VERÐI Besta verðið í bænum Gleðilegt nýtt ár Toyota Tercel, árg. '82, 4ra dyra. Verð 175.000. Dodge Daytona, árg. '87, kraftmikill ameriskur sportbíll, ekinn aðeins 5000, ýmsir aukahlutir. Verð 1.000.000. Mercury Topaz GS, árg. '87, sjálfsk., vökvast., ekinn 11.000. Verð 750.000. Peugeot 309 GL, árg. '87, 5 dyra, beinsk. Verð 490.000. Ford Sierra 1,6, árg. '84, 3ja dyra, ekinn 68.000. Verð 400.000. Alfa Romeo 4x4 st., árg. '87. Verð 500.000. Peugeot 305 GR, árg. '85, 4ra dyra, ekinn 30.000. Verð 370.000. Toyota Camry, árg. '86, sjálfskiptur, sportfelgur, ekinn 48.000. Verð 680.000. VW Golf C, árg. '86, hvitur, ekinn 40.000. Verð 450.000. Chevrolet Monza, árg. '86,3ja dyra, ekinn 38.000. Verð 450.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.