Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 2. JANUAR 1989. 27 X>1&. tn ,g aofOAŒJWÁM Afmæli Ragnheiður Sæmundsson Ragnheiður Sæmundsson hús- móðir, Suðurgötu 16, Siglufirði, er sjötíu og fimm ára i dag. Ragnheiður er fædd á Hallgilsstööum í Hörgár- dal og ólst þar upp. Hún stundaði nám í sinni heimabyggð og síðan framhaldsnám í Reykjavík. Hún hefur tekið dijúgan þátt í félags- störfum á Siglufirði, m.a. leikið með Leikfélagi Siglufjarðar, sungið með Kirkjukór Siglufjarðarkirkju, unnið með Slysavarnafélaginu Vöm, auk þess sem hún var einn af stofnend- um Kvenfélags Sjúkrahúss Siglu- fiarðar og sat í stjórn þess félags í tuttijgu og fimm ár. Ragnheiður gift- ist 8. júní 1935 Sigurjóni Sæmunds- syni, prentsmiðjustjóra og fyrrv. bæjarstjóra á Siglufirði. Foreldrar Sigurjóns voru Sæmundur Jón Kristjánsson, útvegsb. í Lambanesi og á Laugalandi í Fljótum, og kona hans, Herdís Jónasdóttir. Sæmund- ur er annars vegar kominn af Djúpadalsætt í Skagafirði en hins vegar af ættum Þorláks dbrm. frá Skriðu í Hörgárdal. Herdís er komin af Fljótaættum en langafi hennar var Jón á Brúnastöðum, langafi Davíðs skálds frá Fagraskógi. Börn Ragnheiðar og Sigurjóns eru Stella Margrét, f. 3. desember 1935, tannfræðingur, gift Ingvari Jónas- syni, fiðluleikara frá ísafirði, og Jón Sæmundur, f. 25. nóvember 1941, alþingismaður, kvæntur Birgit Hen- riksen frá Siglufirði. Ragnheiður og Sigurjón eiga fiögur barnabörn. Þau eru Sigurjón Ragnar, f. 8. apríl 1957, prentari; Vigfús, f. 15. júlí 1958, tæknimaður, Anna, f. 26. nóvember 1964, tónhstarnemi; Ragnheiður, f. 10. febrúar 1968, læknanemi (al- nafna afmælisbamsins), og síðan tvö barnabarnabörn: Ingvar, f. 29. apríl 1981, og Dóra Lind, f. 9. janúar 1985. Systkini Ragnheiðar voru sex: Unndór, fyrrv. bókari hjá Ríkisend- urskoðun, faðir Jóns glímukóngs og afi Einar Vilhjálmssonar spjótkast- ara, en kona Unndórs var Guðrún Símonardóttir frá Stokkseyri; Pét- ur, framkvæmdastjóri vöruflutn- ingabíla á Akureyri; Valdimar, verslunarmaður á Akureyri, kvæntur Guðbjörgu Valdimarsdótt- ur frá Dalvík; Stefán, verkamaður á Akureyri, kvæntur Þóm Jónsdóttur frá Sauðárkróki; Dýrleif, iðnverka- kona á Akureyri, gift Ólafi Þor- bergssyni úr Eyjafirði; Eggert, bif- reiöastjóri á Akureyri, kvæntur Rögnu Jóhannesdóttur úr Eyjafirði. Foreldrar Ragnheiðar voru Jón St. Melstaö, b. á Hallgilsstöðum í Hörgárdal, og kona hans, Albína Pétursdóttir. Föðursystkini Ragn- heiðar voru Eggert fyrrv. slökkvi- liðsstjóri á Akureyri, afi Köru Guð- rúnar, konu Alfreðs Gíslasonar handknattleiksmanns; Halldór, læknir á ísafirði og í Rvík, faðir Skúla tónskálds og afi Magnúsar arkitekts; Guðrún Sigurlaug, amma Ólafs Dýrmundssonar ráðunautar; Jósefína Antonía er giftist dönskum klæðskera, Viggo Öfiord, og Egill, faðir Jóhannesar sem rekur Egils- síld á Siglufirði. Jón Melstað var sonur Stefáns, b. á Fossi í Vesturhópi, Jónassonar, b. í Múla í V-Húnavatnssýslu, Sig- urðssonar. Móðir Jóns var Margrét Eggertsdóttir, smiðs og b. á Fossi, bróður Helgu, langömmu Björgvins, fóður Bryndísar og Ellerts Schram. Eggert var sonur Halldórs, prófasts á Melstað, Ámundasonar, smiðs og málara í Syðra-Langholti, Jónsson- ar, fööur Guörúnar, langömmu Jó- hanns Hjartarsonar stórmeistara. Móðir Margrétar var Ragnheiður Jónsdóttir, sem afmælisbarnið heit- ir eftir, b. og stúdents á Leirá, Árna- sonar. Móðir Jóns stúdents var Ragnheiður Sæmundsson. Halldóra Kolbeinsdóttir, prests og skálds í Miðdal, Þorsteinssonar, langafa Péturs Sigurgeirssonar biskups. Foreldrar Albínu voru Pétur Þor- kell Hallgrímsson, b. á Svertings- stöðum í Kaupangssveit, og kona hans.-Dýrleif Randversdóttir, af Randversættinni. Helgi Héðinsson Helgi Héðinsson, sjómaður og út- gerðarmaður, Garðarsbraut 38, Húsavík, varð sextugur á gamlárs- dag. Helgi er fæddur á Húsavík og hefur átt þar heima alla tíð. Hann hefur stundað sjómennsku frá unga aldri og var í fiöldamörg ár sjómað- ur á bátum frá Húsavík. Frá 1956 hefur Helgi róið á eigin trillu og verið með afbrigðum fengsæll. Hann er landsfrægur fyrir einstaka veiðisnilli og er þá sama hvort hann rennir fyrir lax í Laxá eða er á Skjálfanda. Hefur Helgi einatt meiri feng og fiölbreyttari en títt er um veiðimenn. Börn Helga með fyrri konu hans, Maríu Guðmundsdóttur frá Tungu í Tálknafirði, eru Héðinn, f. 11. maí 1957; Kristinn, f. 16. apríl 1958, lát- inn; Guðmundur, f. 23. ágúst 1959, sem einnig er látinn; Kristín, f. 21. janúar 1961; Helga og Maríus, f. 8. janúar 1964; Bjarki, f. 8. desember 1971, og Guðmundur, f. 28. mars 1976. Seinni kona Helga er Bryn- hildur Bjarnadóttir ljósmóðir frá Hvoli í Aðaldal. Systkini Helga eru: Kristbjörg, f. 2. september 1922, hús- móðir; Maríus, f. 21. október 1923, skipstjóri; Guðrún, f. 20. janúar 1925, húsmóðir; Jón Ármann, f. 21. júní 1927, forstjóri; Pálmi, f. 18. júlí 1930, skipstjóri; Þórunn, f. 8. nóvember 1933, húsmóðir; Benedikt, f. 4. des- ember 1934, sjómaður, og Sigurður, f. 5. apríl 1937, skipstjóri, Foreldrar Helga eru Héðinn Mar- íusson, sjómaður á Húsavík, og • kona hans, Helga Jónsdóttir. Héð- inn var sonur Maríusar, sjómanns á Húsavík, Benediktssonar, b. á Sultum í Kelduhverfi, Benedikts- sonar. Móðir Héðins var Helga, syst- ir Guðrúnar, ömmu Stefáns Har- aldssonar yfirlæknis. Helga var dóttir Þorgríms, b. í Hraunkoti í Aðaldal, Halldórssonar, b. á Bjam- arstöðum í Bárðardal, Þorgrímsson- ar, b. í Hraunkoti, Marteinssonar. Móðir Þorgríms Halldórssonar var Guðrún Jónsdóttir, b. í Haga í Að- aldal, Árnasonar, og konu hans, Helgu Jónsdóttur, systur Jóns, afa skáldanna Guðmundar á Sandi og Sigurjóns á Laugum og langafa Ind- riöa Indriðasonar ættfræðings. Móðir Halldórs var Vigdís Hall- grímsdóttir, b. í Hraunkoti, Helga- sonar, ættföður Hraunkotsættar- innar. Helga var dóttir Jóns Ármanns á Fossi á Húsavík Árnasonar, b. á Fljótsbakka í Bárðardal, Árnasonar, b. í Hólsgerði í Kinn, Indriðasonar, b. í Heiðarbót, Árnasonar, b. á Sig- ríðarstöðum í Ljósavatnsskarði, Indriðasonar, b. á Sigríðarstöðum, Jónssonar, b. á Draflastööum, Sig- urðssonar, föður Jóns, langafa Guð- laugs, langafa Halldórs, föður Krist- ínar alþingismanns. Móðir Jóns Ármanns var Helga Jensdóttir Buch, b. á Ingjaldsstöðum, Nikulás- Helgi Héðinsson. sonar Buch, b. á Laxamýri, ættföður Buchættarinnar, föður Björns, langafa Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra. Móðir Jens var Karen Björnsdóttir Thorlacius, kaupmanns á Húsavík, Halldórs- sonar, biskups á Hólum, Brynjólfs- sonar. Móðir Björns var Þóra Björnsdóttir, prófasts í Görðum á Álftanesi, Jónssonar, sýslumanns á Berunesi, Þorlákssonar, biskups á Hólum, Skúlasonar, ættföður Thorlaciusættarinnar. Móðir Helgu var Kristbjörg Sigurðardóttir, b. í Brúnagerði í Fnjóskadal, Guð- mundssonar. Ingi Björn Ivarsson Ingi Björn ívarsson sjómaður, til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík, verður áttræður á morgun, 3.1. Ingi Björn fæddist á Djúpavogi og ólst þar upp. Hann stundaði sjó- mennsku á Djúpavogi en flutti til Reykjavíkur 1963 og vann þar í byggingavinnu þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir 1979. Ingi átti sex systkini og á nú eina systur á lífi sem búsett er i Hafnar- firði. Foreldrar Inga Björns voru ívar Halldórsson, beykir á Djúpavogi, f. 1872, og kona hans, Anna Margrét Jónasdóttir, f. 1872. Ingi Björn tekur á móti gestum í Furugerði 1 þann 7.1. nk. klukkan 15-19.00. Ingi Björn Ivarsson, Leiðréttingar Guðrún Árnadóttir, Erla Wigelund, Espigerði 4, Reykjavík, varð áttatíu Laugarnesvegi 74 A, Reykjavík, og fimm ára á Þorláksmessu. varð sextug á gamlársdag. Ættfræðisíða DV vill kaupa Vestur-Skaftfellinga 1703-1966,1. bindi, eftir Björn Magnússon og Lögfræðingatal, útgefið 1 976, eftir Agnar Kl. Jónsson. Upplýsingar hjá ættfræðideild DV í síma 27022. Anna Guðmonsdóttir Anna Guðmonsdóttir húsfreyja, til heimilis aö Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, er níræð í dag. Anna fæddist að Kaldrananesi í Strandasýslu. Hún giftist 28.12.1928, Árna Sigur- jóni Ingvarssyni sjómanni, f. 10.3. 1906, en þau áttu einmitt 60 ára brúðkaupsafmæli 28.12. sl. Foreldr- ar Árna voru Sigurlaug Árnadóttir og Ingvar Pétursson frá ísafirði. Anna og Árni hófu sinn búskap á Fiskinesi við Steingrímsfiörð. Eftir nokkurra ára dvöl þar fluttu þau sig um set að Sólheimum í landi Hafn- arhóla í sömu sveit. Anna og Árni fluttu síðan suður á Akranes 1946 og hafa búið þar síðan. Anna og Árni eiga fiögur börn. Þau eru: GuðmundurLúðvík, f. 4.4. 1930, kvæntur Elínu Lúðvíksdóttur, en þau eru búsett á Sauðárkróki og eiga fimm böm og fiögur barnaböm; Sveinsína Andrea, f. 22.9.1931, gift Sigurði N. Elíassyni, en þau eru búsett á Akranesi og eiga fiögur börn og sjö barnabörn; Sigurlaug Inga, f. 19.9.1937, gift Árna Erling Sigurðssyni, en þau eru búsett á Akranesi og eiga fimm börn og fiög- ur barnabörn, og Auður Minny, f. 19.9.1937, gift Bjarna Hannesi Ás- grímssyni, en þau eru búsett á Suð- ureyri við Súgandafiörð og eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Anna átti fióra bræður og eina systur, auk uppeldissystur, en á nú einn bróður á lífi og uppeldissystur sína. Systkini Önnu: Guömundur, f. 10.4.1893, d. 1909; Árni, f. 20.9.1895, d. 1948, en kona hans vár Halla Júl- íusdóttir, f. 4.5.1897, d. 1980; Ingi, f. 18.5.1902, búsettur í Reykjavík, átti Guðrúnu Guðlaugsdóttur, f. 23.3. 1904, d. 17.2.1971; Sigurður Kristján, f. 2.4.1904, d. 5.8.1981, átti Hall- björgu Jónsdóttur, f. 9.5.1909, og Ingunn Guðbjörg, f. 10.11.1907, d. 1987, átti Kalmann Sigurðsson, f. 1905, d. 1980. Uppeldissystir Önnu er Hansína Guðmundsdóttir, f. 11.5. 1917. Foreldrar Önnu voru Guðmon Guönason, b. að Brúará og í Kol- beinsvík í Ámeshreppi, f. 17.10.1866, d. 4.6.1946, og kona hans Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 8.3.1867, d. 5.9.1946. Föðurforeldrar Önnu voru Guöni Jónatansson, b. í Goðdal og á Brú- ará, og kona hans Monika Einars- dóttir frá Víðivöllum Jónatansson- ar, en hún var hálfbróðurdóttir Guðna. Guðni var sonur Jónatans Anna Guðmonsdóttir. Hálfdanssonar í Ásmundarnesi og seinni konu hans Guðnýjar Jóns- dóttur frá Fagradalstungu Bjarna- sonar. Foreldrar Jónatans voru Hálfdán Bjarnason i Þurranesi í Saurbæ og kona hans Kristín Þor- steinsdóttir frá Kvenhóli Illugason- ar. Anna tekur á móti gestum á Hótel Akranesi á milli klukkan 14 og 17 á afmælisdaginn. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstand- endur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfs- sögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síð- asta lagi þremur dögum fyrir afmælið Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.