Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Qupperneq 28
 MAMUDAGUR 2. JANUAR 1989. > Andlát Helga Sigurborg Bjarnadóttir, Stíflu- seli 6, lést af slysforum 29. desember. Jóhanna Gísladóttir lést 30. desem- ber. Jardarfarir Gunnar Steindórsson, fyrrverandi tollþjónn, Vesturgötu 19, Keflavík, sem andaðist 22. desember, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 3. janúar kl. 14. Útför Emils Ásgeirssonar bónda, Gröf, Hrunamannahreppi, fer fram frá Hrunakirkju 4. janúar kl. 14. Bíl- ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.30 með viökomu í Guðmundur H. Hermannsson, er andaðist 17. desember, hefur verið. jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk. Ernst Gíslason yfirflugumferðar- stjóri, Ásenda 16, lést í Borgarspítal- anum miðvikudaginn 21. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Ólafía Þ. Pálsdóttir, Reynimel 80, sem lést 28. des., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni 3. janúar 1989 kl. 13.30. Maria Magnúsdóttir frá Syðri- Löngumýri, Depluhólum 3, síðast til heimilis í Hátúni lOb, er andaðist 19. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. jan- úar kl. 13.30. Fossnesti. Ólafur Gunnarsson sálfræðingur frá Vík í Lóni lést í sjúkradeild Hrafnistu á jóládag. Jaröarförin verður gerð frá Áskirkju þriðjudaginn 3. janúar kl. 15. Elínborg Guðmundsdóttir, Skjaldar- vík, Glæsibæjarhreppi, sem andaðist í Fjóröungssjúkrahúsinu Akureyri 22. desember sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 3. janúar kl. 13.30. Tilkyimingar Fræðsluvarp og Bréfa- skólinn hefja samstarf i dag, 2. janúar, hefst þýskukennsla fyrir byrjendur á rás 2 í Ríkisútvarpinu. Bréfa- skólinn og Fræðsluvarp standa að þessu námskeiöi þar sem bréfanám og útvarps- kennsla fléttast saman. Þetta verða 20 mínútna þættir, 14 talsins, á hverju mánudagskvöldi kl. 21.30 og endurteknir á sama tíma á föstudagskvöldum. í út- varpsþáttunum fá þátttakendur æfmgu í aö skilja talaða þýsku og að mynda setn- ingar á þýsku. Ennfremur verður um miðbik hvers þáttar sagt frá menningu og mannlífi meðal þýskumælandi þjóða. Námsgögn fást í Bréfaskólanum, Suður- landsbraut 32, 128 Reykjavík, sími 91- 689750, og eru einnig send í póstkröfu um land allt. Módelnámskeið - 7 vikur ' Sviðsframkoma, göngulag ' Hreyfingar, iikamsbeiting * Snyrting fyrir sviðs- og Ijósmyndir * Hárgreiðsla, fatnaður o.fl. * Likamsstaða, göngulag * Fótaburður, fata- og litaval * Andlits- og handsnyrting * Hárgreiðsla og mataræði ' Borðsiðir, almennframkoma o.fl. Alnienn námskeió - 6 vikur Hanna Frímannsdóttir Innritun alla daga frá kl. 16-20 i síma 38126 Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Strand- götu 31, Hafnarfirði, á neðan- greindum tíma. Álfaskeið 84, 2.h.t.v., Hafiiarfirði, þingl. eig. Guðmundur H. Ákason, 090137-3799, þriðjudaginn 3. janúar nk. kl. 13.10. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Haiharfírði. Bæjarfógetinn í Hafoarfirði, Garðakaupstað og á Seltjamamesi. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Strandgötu 31, Hafn- arfirði, á neðangreindum tíma. Hraðastaðir, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigríður Halldórsdóttir, 260551-3969, þriðjudaginn 3. janúar nk. kl. 13.00. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Lands- banka íslands. Bæjarfógetinn í Hafiiarfirði, Garðakaupstað og á Seltjamamesi. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum Selholt, MosfeUsbæ, þingl. eig. Þórar- inn Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. janúar nk. kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Eggert Ólafs- son hdl. og Öm Höskuldsson hdl. Álfaskeið 90, 3.h.t.v., Hafharfirði, þingl. eig. Hörður Jónsson, 021033- 3839, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. janúar nk. kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Á. Jóns- son hdl. Bæjarfógetinn í Hafiiarfirði, Gaiðakaupstað og á Seltjamamesi. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Meimmg____________ Fjölmiðlagrín Áramótaskaup Sjónvarpsins, 1988. Umsjón Gísli Snær Erlingsson. Áramótaskaup Sjónvarpsins er fyrir löngu orðið órjúfanlegur hluti aj gamlárskvöldi, rétt eins og rak- etturnar og stjömuljósin. Formið er tiltölulega heföbundiö og það hefur ekki mælst neitt sér- lega vel fyrir þegar tilraunir hafa verið gerðar til þess að breyta ofur- lítið til við gerð skaupsins. Skaupið um þessi áramót fylgdi í öllum meginatriðum formúlunni. Helstu skotspænirnir voru stjómmálamenn og svo auðvitað sjónvarpsmennirnir sjálfir. Eftir- minnilegir atburðir úr pólitíkinni voru uppistaðan en á milli voru einhvers konar milliþættir sem þjónuðu heldur óljósum tilgangi og heföu þess vegna mátt missa sig, eins og t.d. lyftugrín, sem var harla ófyndið, og grínfriðungaþættir sömuleiðis. Handritsgerðinni var eitthvað ábótavant, það var til dæmis mikill munur á hvað miklu betur tókst til með kaflana þar sem hægt var aö byggja á raunverulegum atburðum og sjónvarpsviðtölum og spinna svo gríniö út frá þeim heldur en þegar efnið var alveg frumsamið. Slyngar eftirhermur gegndu stóru hlutverki í skaupinu eins og oft áður og tæknihliðin var í góðu lagi. Þaö orkar hins vegar tvímælis að hafa eingöngu lítt þekkta og jafnvel óreynda leikara í hlutverkum og komust þeir sannast sagna mis- jafnlega frá þessari þraut. Betra hefði verið að hafa hópinn blandað- an. En sumir stóðu sig vel, meira að segja mjög vel og ég held aö ekki sé á neinn hallað þó að sagt sé að Jóhannes Kristjánsson eftirherma hafi verið stjarna kvöldsins. Hann brá sér í „allra kvikinda líki“ og Úr áramótaskaupi Sjónvarpsins. Leiklist Auður Eydal náði málhreimi, töktum og kækj- um þjóðkunnra persóna svo vel að haft var á oröi að hann væri betri en Steingrímur sjálfur. Allt var þetta landslýð til ágætrar skemmtunar. Vonandi hafa þeir sem hermt var eftir líka skemmt sér ekki síður en aðrir því að mest var þetta græskulaust gaman eins og vera ber. Höfundar héldu sig óþarflega mikið við skjáinn og gerðu grín að því sem í sjónvarpinu sést en hættu sér ekki út í mörg atriði þar sem tekiö var á öllum þeim spaugilegu uppákomum sem veröa í þjóðfélag- inu á heilu ári. Þó voru gerðar smátilraunir til þess, eins og til dæmis atriði sem sýndi heimkomu eiginkonu af kvennaráðstefnunni í Osló, en þær runnu meira og minna út í sandinn. Svo voru þarna inn á milli þættir sem voru hreint afbragð eins og ein dæmigerð sykurhjúpuð dömu- bindaauglýsing sem allir þekkja, færö i dálítið annan búning en venjulega og útkoman varð eitt besta atriði kvöldsins. íþróttafréttir frá ÓL í „Söl“ voru óþarflega fyrirferðarmiklar en handboltagrínið var ágætt. Gísli Snær Erlingsson hafði með höndum umsjón með skaupinu og var leikstjóri en Hjálmar Hjálmars- son, Grétar Skúlason, Jörundur Guðmundsson, Eggert Guðmunds- son og fleiri komu fram, að ógleymdum Jóhannesi Kristjáns- syni en frammistaða hans nægði til að gera heldur rýrt handrit að hinu ágætasta skaupi. AE og tveir fengu orðu Tuttugu Forseti íslands hefur samkvæmt tillögu orðunefndar sæmt eftirtalda íslendinga heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu: Birgittu Spur, safnstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu högg- myndalistar. Björgvin Frederiksen, iðnrekanda, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu iðnaöarins. Bryndísi Víglundsdóttur, skóla- stjóra, Garöabæ, riddarakrossi fyrir störf í þágu þroskaheftra. Egil Ólafsson, bónda, Hnjóti, Örlygs- höfn, Barðastrandarsýslu, riddara- krossi fyrir söfnun og vörslu sögu- legra minja. Elísabetu G.K. Þórólfsdóttur, hús- freyju, Arnarbæli, Fellsströnd, Dala- sýslu, riddarakrossi fyrir húsmóður- og uppeldisstörf. Guðjón Magnússon, formann Rauða kross íslands, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf aö líknarmálum. Guörúnu Magnússon, sendiherrafrú, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Herstein Pálsson, fv. ritstjóra, Selt- jarnarnesi, riddarakrossi fyrir rit- störf. Hörö Sigurgestsson, 'förstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að samgöngumálum. Jóhannes Stefánsson, fv. forseta bæj- arstjórnar, Neskaupstaö, riddara- krossi fyrir störf að bæjar- og at- vinnumálum. Jón Þórarinsson, tónskáld, Reykja- vík, stórriddarakrossi fyrir störf aö tónlistarmálum. Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu landbúnaðarins. Jórunni Viöar, tónskáld, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf aö tónhstar- málum. Kjartan Guönason, formann Sam- bands íslenskra berkla- og brjóst- holssjúklinga, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf að félags- og trygg- ingamálum. Margréti Guðnadóttur, prófessor, Reykjavík, riddarakrossi fyrir kennslu- og vísindastörf. Pál Flygenring, ' ráðuneytisstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Sigurð J. Briem, deildarstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Sigurlín Gunnarsdóttur, hjúkruna- „rfræðing, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu sjúkra. Skapta Áskelsson, skipasmið, Akur- eyri, riddarakrossi fyrir brautryðj- andastarf í skipasmíöum. Vilhjálm Jónsson, forstjóra, Reykja- vík, riddarakrossi fyrir störf að at- vinnumálum. . Séra Þorstein Jóhannesson, fv. próf- ast, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf aö kirkjumálum. Tónleikar Tónleikar í íslensku óperunni Nýi músíkhópurinn mun halda tónleika í Islensku óperunni þriöjudagskvöldið 3. janúar 1989 kl. 20.30. Þar verða frumflutt í Reykjavík fjögur íslensk tónverk, Milli- spil fyrir sjö eftir Atla Ingólfsson, Sjö- skeytla eftir Hilmar Þórðarson - en bæði þessi verk eru skrifuð fyrir hópinn - Jarðardreki eftir Snorra Sigfús Birgisson (frumflutt af Jónasi Ingimundarsyni á Sigluflrði sl. sumar, heyrist nú í fyrsta sinn í flutningi höfundar) og raftónverkið Resonance eftir Kjartan Ólafsson, samið úr íslenskum hverahljóðum í tilrauna- stúdíói finnska útvarpsins. Þá verða einnig flutt verkin Márchenbilder eftir danska tónskáldið Hans Abrahamsen og Dialogue entre Metopes eftir ítalann Po- etro Borradori. Þetta eru þriðju tónleikar Nýja músíkhópsins. Að þessu sinni koma fram 18 hljóðfæraleikarar sem starfa á Íslandi, í Noregi, Þýskalandi, Hollandi, Sviss og Bandaríkjunum. Stjórnendur verða tveir, Guðmundur Óli Gunnarsson og Hákon Leifsson. BROSUMI alltgengurbetur *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.