Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. Fréttir Forstjóri Samábyrgðar íslands á fiskiskipum andvígur söluhugmyndum ráðherra: Getur ekki selt það sem einhver annar á ,3e væri ekki tilbúinn til þess að selja bíl sem einhver annar á. Samábyrgð íslands á fiskiskipum er sjálfseignarstofhun og hefur ver- ið byggð upp af þeim sem hafa greitt iögjöld til hennar. Þetta kem- ur mér því þannig fyrir sijónir að þeir 'sem hafa gert stofnunina aö því sem hún er í dag hljóti að eiga hana," sagði Páll Sigurösson, for- stjóri Samábyrgöar Islands á fiski- skipum. í hugmyndum Halidórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráöherra um nýjan úreldingarsjóð fiskiskipa er meðal annars gert ráð fyrir að Samábyrgðin verði seld til að afla sjóðnum tekna. Af ummælum for- stjóra fyrirtækisins má hins vegar sjá aö hann telur ráðherra ekkert umboð hafa til að selja það þar sem ríkið eigi þaö alls ekki. Lögum samkvæmt er skylt að tryggja öll fiskiskip, sem eru minni en 100 tonn, hjá Samábyrgð íslands á fiskiskipum. Vátryggingarverð þessara 599 báta er í dag um 7,5 miUjarðar króna. Auk þessa eru strandferðaskip og skip Hafrann- sóknastofnunar tryggð hjá fyrir- tækinu. Þar ofan á bætast síöan endurtryggingar á 60 fiskiskipum sem eru stærri en 100 tonn og ekki skylt samkvæmt lögum að tryggja hjá Samábyrgðinni. Vátryggingar- verð þessara skipa er nú um 4,5 milljaröar. Eigiö fé Samábyrgðarinnar var f árslok 1987 294 milljónir króna. Tekjur fyrirtækisins af iðgjöldum voru á þvf ári um 311 miHjónir. - Væri ekki auðvelt að selja þenn- an rekstur? „Ef ég ætti fjármagn vildi ég gjarnan kaupa hann. Eg er ekki í nokkrum vafa um að það fengjust einhverjir til þess aö greiða háar fjárhæðir fyrir þennan rekstur," sagði Páll Sigurðsson. I sfjóm Samábyrgðarinnar eru tveir fulltrúar Landssambands út- vegsmanna: Finnur Jónsson frá Stykkishólmi og Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, sem er formaöur stjórnarinnar. Tveir fúlltrúar eru frá bátaábyrgð- arfélögunum, Egill Þorfinnsson frá Keflavík og Hjálmar Styrkársson frá Reykjavik. Sjávarútvegsráð- herra skipar einn stjómarmanna og er sá faðír ráðherrans, Ásgrím- ur Halldórsson frá Höfh. „Ég tjái mig ekkert um þetta fyrr eri búið er að ræða máhð á stjórnar- fundi,“ sagði Ásgrímur. „Það er nóg af blöðrurum f þjóðfélaginu allt upp í ráðherra.“ -gse Engin af breytingartillögum stjórnarandstöðunnar við fjárlögin var sam- þykkt á Alþingi í gaer en hér má sjá Steingrím Hermannsson forsætisráð- herra geispa þegar ein af tillögunum var borin undir atkvæði. DV-mynd GVA Deilt um heiöurslaun viö fjárlagaafgreiðslu: Eiga bara að fá fálkaorðuna - sagöi Guðni Ágústsson Yfirmaður Eldvamareftirlitsins: Gerðum athuga- semdir við gatið á veggnum Réttarhálsbruninn: Húsiðeittaftíu í burðarþols- skýrslunni Húsið aö Réttarhálsi 2 var eitt tíu húsa sem rannsökuð voru sérstaklega með tilhti til burðar- þols og birt var skýrsla um, hin margumtalaða burðarþols- skýrsla. I skýrslunni segir meðal annars svo um Réttarháls 2: „Ef litið er á byggingaráfangana sem tvær sjálfstæðar byggingar er annar áfanginn of veikburða til að standast lárétta jarðskjálfta- krafta... Stöðugleika hússins gegn láréttu álagi er áfátt, hvort sem litið er á húsið sem heild eöa litið er á það sem tvær sjálfstæðar einingar." Ennfremur segir að teikningum hafi verið verulega áfátt. Að sögn verkfræðinga mun burðarþol hússins ekki hafa skipt verulegu máh í brunanum. Þó benti einn á að athyglisvert yrði að reikna út það lárétta álag sem varð á súlum er hrundu undan stálbitum, sem héldu þakinu uppi, og bera saman við jarð- skjálftakrafta. Væri þá mögulega hægt að komast nærri um hvort burðarþolsskýrslan væri rétt hvað húsiö varðaði eða ekki. Hafsteinn Pálsson verkfræð- ingur er faglega ábyrgur fyrir skýrslunni sem var gerð af Rann- sóknastofnun byggingariðnaðar- ins fyrir félagsmálaráðherra. Hafsteinn vildi ekki tjá sig neitt um málið þegar DV hafði sam- band við hann þar sem það er á rannsóknarstigi. -hlh Bruninn í borgarráði Borgarráð ræddi stórbrunann aö Réttarhálsi 2 á fundi sínum í gær. Slökkviliðsstjóri og vara- slökkviliðsstjóri mættu á fundinn og gerðu grein fyrir slökkvistarf- inu og svöruðu fjölda spurninga varðandi brunann. Eins og fram kom í DV í gær er brunabótamat alls hússins 310 milljónir. Tión mun vera á bilinu 75-90 prósent og því nema bæt- umar vegna bmnans milli 210 og 270 milljónum. Húsatryggingar era með endurtryggingu og er reiknaö með að endurtryggingar- aðihnn greiði um 150 milljónir og Reykjavíkurborg allt að 120 millj- ónir. -hlh Til snarpra umræðna kom við af- greiðslu fjárlaga þegar kom að heiö- urslaunum listamanna. Var farið fram á nafnakall og sagði Guðni Ágústsson þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu að hann liti á þetta sem ranga aðferö við að heiðra aldr- aða listamenn enda væm margir sem þar kæmust aldrei að þó verðugir væra. Sagði hann að nóg væri að veita þessum hstamönnum fálkaorð- una. Hann var eini þingmaðurinn af þeim sem viðstaddir voru sem veitti málinu ekki jáyrði sitt. Sat hann hjá. Fjárlög fyrir árið 1989 voru af- greidd frá Alþingi seinnipartinn í gær með 30 samhljóða atkvæðum við heldur misjafnar undirtektir hjá stjórnarandstöðunni. Sjálfstæðis- flokkurinn hundsaði að mestu leyti atkvæðagreiðsluna og aðeins ein breytingartillaga kom frá þeim. Þor- steinn Pálsson sagði að hér væri um að ræða pappírsgagn en ekki eigin- legt frumvarp að fjárlögum. Kvenna- listinn flutti nokkrar breytingartil- lögur en þær voru allar felldar, svo og allar aörar breytingartillögur stj ómarandstöðunnar. -SMJ „Við höfðum gert athugasemdir við gat á brunavamaveggnum milli húsanna við skoðun á húsinu á síð- asta ári. Þeir segjast hafa verið á leið- inni að setja hurð í gatið en það var ekki komið lengra en svo að veggur- inn var nær gagnslaus sem bmna- vöm,“ sagöi Gunnar Ólason, yfir- maður Eldvamareftirhtsins, við DV. - Genguð þið ekki eftir því að þetta yrðilagað? „Nei það gerðum viö ekki. Það er „Byggingaraðili á að tilkynna til slökkviliösstjóra um tilhögun á frá- gangi byggingar og þegar henni er lokiö á að kalla slökkviliðsstjóra til og fá samþykki hans. í þessu tilfelli hefði slökkviliðsstjóri átt að fylgjast með framkvæmdum þar sem breyt- ingar urðu á teikningum og allar for- sendur breyttust,“ sagði Guðgeir Pétursson, skrifstofustjóri hjá bygg- ingarfúlltrúa Reykjavíkurborgar, við DV. Á teikningum að húsinu aö Réttar- hálsi 2 er stimpill þar sem stendur: „Frágangur háður samþykki „Þessi uppákoma öll saman er skólabókardæmi um hvernig hlut- irnir eiga ekki að vera. Húsið aö Réttarhálsi átti, eins og þaö var þegar upp var staðið, burt séð frá fyrri byggingastigum, að vera sent hingað til bmnamálastofnunar og það tekið fyrir sérstaklega. Vegna stærðar þess og þeirra hætta sem felast í starfseminni átti þaö skilyrðislaust að vera hannað sérstaklega meö til- liti til brunavama. Athugasemdir Eldvamareftirhts em ekki annað en fálm í þessu sambandi,” sagði Berg- þannig að við veitum aðeins áminn- ingar og menn komast lengi upp með aö yppa öxlum. Virkt eftirlit fæh það í sér að við gætum lokað staðnum með innsigli en svo er ekki. Hús þetta var upprunalega ætlað undir bíla- verkstæði en var breytt í gúmmí- vinnustofu sem fékk sífellt stærri lager. Við munum líta á önnur hús af svipuðu tagi en þau eru ekki fleiri eins og þetta. slökkvihðsstjóra". „Þessi stimpill er til að vara menn við svo þeir passi sig.“ Hrólfur Jónsson varaslökkviliðs- stjóri segir að slökkviliðið geti ekki verið með 60 manns í stöðugu eftir- liti en ljóst sé að göt séu í þessu eftir- litskerfi. „Ef maður frá okkur hefði fylgst með byggingunni á öllum stig- um hefði þetta aldrei farið svona. Við verðum að beina okkur að rótinni og treysta á að menn fari eftir lögum. Þar verður bara misbrestur á.“ steinn Gizurarson brunamálastjóri viöDV. „Húsið fól í sér gífurlega eldhættu og ekkert var gert í málinu. Eld- varnareftirlitið átti að sjá til þess að hlutimir yrðu gerðir þannig að frá- gangur væri fullnægjandi eða senda málið til okkar vegna eðlis bygging- arinnar. Samkvæmt lögum um brunav£irnir bera sveitarstjórnir og slökkviliðsstjóri á hverjum stað ábyrgð á brunavömum." -hlh Byggingarfulltrúi: Slökkviliðsstjóri átti að fylgjast með byggingunni -hlh Bergsteinn Gizurarson brunamálastjóri: Athugasemdir Eldvarnar eftirlits aðeins fálm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.