Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 5
LAÚGARDAGÚR 7. jÁtíÚA^R Í98Ó.
í
Fréttir
Bifreiðaskoðun íslands neytendum dýr:
Gjöldin allt
að þrisvar
sinnum hærri
Öll gjöld eru til muna hærri hjá
Bifreiöaskoöun íslands en var hjá
Bifreiðaeftirliti ríkisins. Nú er tekinn
söluskattur af allri þjónustu - en það
var ekki gert þegar Bifreiðaeftirlitið
veitti þessa þjónsutu. Þessi þjónusta
er bifreiðaeigendum til muna dýrari
nú en áður var. Fyrst í stað breytist
þjónustan ekki neitt. Þó hefur skoð-
unarstöðvum verið fækkað.
Mest hefur skoðun á sérútbúnum
bifreiðum hækkað. Til áramóta kost-
aði skoðun á þannig ökutæki þrjú
þúsund krónur. Eftir áramót hækk-
aði gjaldið í tíu þúsund. Þar af er
hlutur Bifreiðaskoðunar 8.000. Af-
gangurinn er söluskattur. Hækkunin
er 233,5 prósent.
Skoðun á bifreiðum sem eru fimm
tonn eða meira á þyngd - hækkaði
úr tólf hundruð krónum í 3.800. Hlut-
ur Bifreiðaskoðunar er 3.040 krónur.
Hækkunin er 217 prósent.
Fyrsta skoðun á inníluttri notaðri
bifreið var 1.500 krónur - en er 4.500
krónur. Hlutur Bifreiðaskoðunar er
3.600 krónur. Hækkunin er 200 pró-
sent. Þaö sama gildir yfir bifreiðar
sem eru endurskráðar.
Númeragjald hækkar einnig veru-
lega. Áður kostuöu venjuleg númer
1.500 krónur. Númer með endurskini
kostuðu 2.700 krónur. Öll nýju núm-
erin eru með endurskini. Þau kosta
nú 3.800 krónur. Þar af er hlutur
Bifreiðaskoðunar 3.040 krónur.
Mesta hækkun er því 153 prósent.
Venjulegt skoðunargjald og endur-
skoðun hækkar um 58 prósent hvort
gjald. Venjuleg skoðun kostaði áður
1.200 krónur - en kostar nú 1.900
krónur. Hlutur hins nýja fyrirtækis
er 1.520 krónur. Endurskoðun hækk- ■
aöi úr 600 krónum í 950 krónur. Hlut-
ur Bifreiðaskoðunar af því gjaldi er
720krónur. -sme
Á súluritunum má sjá þær gjaldbreytingar sem urðu við tilkomu Bifreiöa-
skoðunar íslands. Þess skal getið að söluskattur er nú innheimtur af gjöldun-
um. Það var ekki gert í tið Bifreiðaeftirlitsins. Bifreiðaeigendur þurfa að
greiða mun meira, og allt að þrisvar sinnum meira, fyrir þjónustu eftir breyt-
ingarnar. Eins og sjá má varð hækkunin mest á skoðun á sérútbúnum bil-
um - eða 233 prósent. Hækkunin á númeragjaldinu er mest 153 prósent.
Ef miðað er við endurskinsnúmer er hækkunin 41 prósent.
NYJUSTU FRETTIR
AF METSÖLUBÓKINNI
í LANDSBANKANUM:
RAUNÁVÖXTUN KJÖRBÓKAR
VAR FRÁ 8,57%
Á ÁRINU 1988
Já, það kemurmörgum á óvartað óbundin ávöxtunarleið
eins og Kjörbók skuli bera slíka raunávöxtun.
En ástæðan er samt einföld.
Kjörbókin er sveigjanleg í allar áttir og höfundar hennar
í Landsbankanum taka sífellt með í reikninginn
breytilegar aðstæður. Þannig ber Kjörbók
háa grunnvexti, ávöxtunin er reglulega borin saman
við verðtryggða reikninga og þeir sem eiga lengi inni
eru verðlaunaðir sérstaklega með afturvirkum
vaxtaþrepum eftir 16 og 24 mánuði.
Raunávöxtun Kjörbókar árið 1988 var 8,57%.
Þeirsem átt höfðu innstæðu óhreyfða í 16 mánuði fengu
9,92% raunávöxtun á árinu og 24 mánaða óhreyfð
innstæða gaf 10,49%) raunávöxtun á sama tfma.
Þér er óhætt að leggja traust þitt og sparifé
á Kjörbókina strax. Hún bregst ekki frekar en fyrri daginn.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna