Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989. Utlönd DV Shultz fær auk- inn stuðning George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tókst í gær að fá Kanadamenn og Egypta til aö styðja ásakanir hans á hendur Líbýumönn- um um að þeir hafi reist efnavopna- verksmiðju. „Við erum ekki í vafa. Við trúum því að geta til að framleiða efnavopn þarna sé fyrir hendi," sagði Joe Clark, utanríkisráðherra Kanada, eftir fund með Shultz í gær. „Kanadamenn vona að hægt verði að leysa þetta mál án þess að ofbeldi veröi beitt," bætti hann viö. Bandaríkjamenn hafa ekki útilok- að sprengjuárás á verksmiðjuna sem er við Rabta, um fimmtíu kílómetra frá Trípolí. Shultz átti einnig fund með Roland Dumas, utanrikisráðherra Frakk- lands. Dumas fékk að sjá myndband sem sýnir líbýsku MIG-þoturnar sem skotnar voru niður á miðvikudag. Bandaríkjamenn segja að mynd- bandið sanni að þoturnar hafi verið vopnaðar, öfugt við það sem Líbýu- menn segja. Dumas sagði að sýning- unni lokinni aö myndbandið væri ákaílega áhrifaríkt. Frakkar hafa hingað til ekki viljað lýsa því ákveðið yfir að þeir trúi þeirri skýringu Bandaríkjamanna að líbýsku þotumar hafi verið skotnar niður í sjálfsvörn. Taliö er líklegt að Frakkar óttist að hryðjuverk muni beinast gegn þeim ef þeir lýsa of af- dráttarlausum stuðningi við Banda- ríkjamenn. Reuter Enginn árangur viðræðna Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 2-4 Lb Sparireikningar 3jamán. uppsogn 2-4,5 Lb 6mán. uppsógn 2-4,5 Sb 12 mán. uppsögn 3,5-5 Lb 18mán. uppsbgn 8 Ib Tékkareikningar, alm 0,5-1 Allir nema Vb Sértékkareikningar 0,5-4,0 Ab Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsbgn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlánmeð sérkjörum 3,5-7 Lb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7,5-8,5 Ub.Bb,- Vb.lb Sterlingspund 11-12,25 Úb Vestur-þýsk mórk 3,75-5 Ab Danskar krónur 6,75-8 Vb.Sb,- Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 11-12 Lb Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almenn skuldabréf 12-12,5 Vb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(vfirdr.) 14,5-17 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 8-8,75 Vb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 12-12,5 Lb.Sb,- Bb.Ob SDR 9.5 Allir Bandarikjadalir 11-11,5 Úb Sterlingspund 14,50- allir 14,75 nema Úb Vestur-þýsk mork 7,25-7,5 allir nema Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán. MEÐALVEXTIR óverötr.jan. 88 12,2 Verötr. jan 88 8.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitalajan. 2279 stig Byggingavísitalajan. 399,5 stig Byggingavísitalajan. !25,4stig Húsaleiguvisitala Engin hækkun Verð- stöðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóóa Einingabréf 1 3,436 Einingabréf 2 1,933 Einingabréf 3 2,231 Fjölþjóóabréf 1,268 Gengisbréf 1,586 Kjarabréf 3.417 Lífeyrisbréf 1.727 Skammtímabréf 1.195 Markbréf 1,813 Skyndibréf 1,045 Sjóösbréf 1 1,644 Sjóósbréf 2 1,381 Sjóösbréf 3 1,168 Tekjubréf 1,545 HLUTABREF Söluverö aó lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 380 kr. Flugleiðir 288 kr. Hampiöjan 155 kr. Hlutabréfasjóður 151 kr. lönaöarbankinn 177 kr. Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 126 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýslngar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. Engar niðurstöður fengust úr vlð- ræðum Sovétmanna og afganskra skæruliða í Islamabad í Pakistan í gær. Viöræðuaðilar reyndu aö kom- ast aö samkomulagi um samsetningu ríkisstjórnar í Afganistan eftir að sovéski herinn er allur á brott en ekkert miðaði áfram. Fulltrúar skæruliða sögöu að ekk- ert samkomulag hefði náðst. Sögöu þeir að ekkert samkomulag myndi nást fyrr en rót vandans og ófriöar- ins í Afganistan, sovéska herliðið, væri á brott og leppstjórnin í Kabúl farin frá. Yuli Vorontsov, sendiherra Sovét- ríkjanna í Kabúl, sem stjómaöi viö- ræðunum fyrir hönd þeirra, sagðist Síkharnir tveir, sem í gær vom hengdir fyrir morðið á Indiru Gand- hi, fyrrum forsætisráðherra Ind- lands, dóu með heróp uppreisnar- gjarnra síkha á vörunum. „Blessaður sé hann sem segir að sannleikurinn sé Guö,“ öskruöu þeir Satwant Singh, tuttugu og fjögurra ára, og Kehar Singh, fimmtíu og fjög- urra ára, þegar böðlar í Tiharfang- elsinu í Nýju Delhi settu svartar hett- ur yfir höfuð þeirra. Þeir voru báðir settir í gálgann um leið. Lögreglan í Punjab sagði að tvær ósprungnar sprengjur hefðu fundist ekkert vilja tjá sig um þetta mál fyrr en á blaðamannafundi í dag áður en hann fer frá Islamabad. Viðræðurnar í gær fóru fram í ró- legheitum en fyrirfram var ekki búist við miklum árangri af þeim, meðal annars vegna þess að ekki vom allir leiðtogar skæruhða við- staddir. Skæruliðar eru ekki einhuga um allar kröfur sínar en um þær veiga- mestu er ekki ágreiningur. Þær eru að núverandi stjórnarflokkur skuli ekki njóta neinna forréttinda eftir að Sovétmenn eru á brott og að Sovét- menn þurfi að hypja sig áöur en sam- ið er um nokkurn skapaðan hlut. Reuter í msh í borginni Ludhiana. Kveikt var í þremur fólksflutningabifreið- um og aö minnsta kosti fjórir létu lífiö í átökum. Þetta þykir rólegur dagur í Punjab þar sem tvö þúsund og fimm hundr- uð manns létu lífið í óeirðum í fyrra. Kalt og blautt veður kann að hafa komið í veg fyrir að hefndaraðgerðir vegna aftökunnar yrðu mjög öflugar, enn sem komið er að minnsta kosti. Síkhar höfðu heitið því aö hefna grimmilega fyrir aftökuna í gær. Reuter Trilok Singh, faðir Satwants Singh sem myrti Indiru Gandhi, gengur burt eftir að lögregla hafði meinað honum að fara til fangelsisins þar sem son- ur hans var hengdur í gær. Simamynd Reuter Veður hamlar hefndum George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, horfir út um gluggann á kaffihúsi í París meðan hann bíður eftir að Roland Dumas, utanrikisráð- herra Frakka, komi. Þeir snæddu hádegisverð á kaffihúsinu í gær. Símamynd Reuter Keisarinn að dauða kominn Heilsa Hirohitos Japanskeisara versnaði til mmia í gær eftir að blóðþrýstingur hans lækkaði mikið á fmuntudag, að sögn embættis- manna í keisarahöllinni i Tókíó. „Hraður andardráttur hans í morgun bendir tíl þess að honum hafi hrakaö og að máttur hans þverri," sagöi einn embættismaður í gær. Síðdegis í gær virtist sem hinn áttatíu og sjö ára gamli keisari ætti auöveldara með að anda en um morguninn en ástand hans var ekki orðiö stöðugt. Hirohito hefur verið lengur við völd en allir aðrir þjóöhöfðingjar. Hann hefur verið alvarlega sjúkur síöan hann veiktist illa 19. septem- ber síðastliðinn. Blóðþrýstingur- inn er mjög lágur og blóðgjafir hafa sífellt minni áhrif. Embættismenn báru til baka orð- róm um að keisarinn lægi i dái. „Hans hátign er enn með meðvit- und,“ sagöi hann. Hins vegar var skýrt frá því að nýru keisarans væru hætt að starfa vegna lágs blóðþrýstíngs. í gær var talið líklegt aö keisar- inn ætti mjög skammt eftir ólifað, jafnvel einungis örfáar klukku- stundir. Reuter Madonna sækir um skilnað Söngkonan Madonna sótti á legan ágreining þeirra hjóna. fimmtudag um skilnaö frá manni Þau hafa verið gift frá því 1985. sínum, leikaranum Sean Penn. Reuter Ástæðuna sagði hún vera ósættan- Myndin var tekin af þeim Madonnu og Sean Penn í samkvæmi sem haldið var fyrir hnefaleikabardaga þeirra Tysons og Spinks þann 27. júní á síðasta ári. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.