Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. Fyrirsætan Andrea Brabin heima á Islandi í jólafríinu. Ljósmyndari DV hafði á orði að það væri frábært að mynda stúlku sem vissi nákvæmlega hvernig ætti að bera sig að. DV-mynd Brynjar Gauti verið á réttum stað á réttum tíma. Ég hef aðallega unnið fyrir frönsku blöðin en það er ekki mikla peninga að hafa frá þeim. Hins vegar þénar maður miklu meira í New York og ég lifi ennþá á þeim peningum sem ég fékk þar. í New York getur maður lent í verkefni þar sem himinháar greiðslur eru í boði.“ Þegar Andrea er spurð hvort hún hafi orðið vör við mikla fíkniefna- neyslu í starfi sínu segir hún það ekki vera. „Ég veit að það er talsvert í London, eitthvað í París en ég sá aldrei neitt slíkt í New York,“ segir hún. „Ameríkanar eru orðnir mjög meðvitaðir um allt óheilbrigði og leggja mikið upp úr heilbrigðu líf- erni.“ Frægtfólk í matarboðum í gegnum starf sitt hefur Andrea hitt margt frægt fólk. „Yfirleitt verð- ur maöur fyrir vonbrigðum er maður hittir svokallað frægt fólk. Aðallega sér maður þetta fólk í matarboðum og það talar venjulega ekki mikið við aðra. Mér finnst auðvitað spennandi að hitta þetta fólk en það er lokað og nennir ekki að tala við mann. Ég hef hitt Roman Polanski nokkrum sinnum og kærustu hans. Ég hitti Sting um daginn og hann var einn af fáum sem ég hef hitt af þessu fræga fólki sem var vingjarnlegur. Ég hef auk þess stundum borðað með fræg- um tískuhönnuðum en þá sér maður ekki í tískuhúsunum." Ótrúleg reynsla iUídrea segir aö fyrir • nokkrum árum, er hún starfaði á bensínstöð, hefði hún aldrei látið sér detta í hug að líf hennar ætti eftir að breytast jafnmikið og raun ber vitni. „Ég átti alls ekki von á að þetta myndi allt saman gerast og hefði sjálfsagt ekki trúað því ef einhver hefði sagt mér það. Þaö kemur líka fyrir mig stund- um, er ég geng inn í stúdíó að morgni, að ég fer að hugsa út í þetta starf mitt. Og mér finnst þetta oft óraun- verulegt. En mjög skemmtilegt. Það kemur auðvitað stundum yfir mig heimþrá þegar ég er á löngum og erfiðum ferðalögum en mig hefur aldrei langað til að hætta þessu starfi. Mér finnst líka að þar sem ég er komin í þetta starf þá eigi ég ekki að hætta fyrr en ég hef safnað mér einhverjum peningum." Ford-sigurvegari á uppleið: Hin mörgu andlit Andreu Brabin Andrea Brabin, sigurvegari í Ford keppninni 1986, hefur getið sér góðan orðstír á erlendri grundu sem fyrir- sæta. Andrea Brabin starfaði sem afgreiðslustúlka á bensínstöð er hún ákvað að senda myndir af sér í Ford- keppnina, sem þá var á vegum Vik- unnar hér á landi. Hún bar sigur úr býtum það árið ásamt Valgerði Back- man. Andrea tók þátt í keppninni Sup- ermodel of the World, sem haldin er á vegum Ford Models, sumarið 1987 og hafnaöi þá meðal sex efstu stúlkn- anna. Sá árangur tryggði henni starfssamning við Ford Models. Andrea var þá aöeins sautján ára og síðan hefur ýmislegt gerst í lífi henn- ar. Fyrsta árið sitt flakkaði hún um Bandaríkin sem fyrirsæta, starfaði um átta mánaöa skeið í London og síðan í París. Andrea Brabin kom heim til ís- lands í jólaleyfi, meðai annars til að halda upp á tvítugsafmæli sitt á jóla- dag. Hún kom hingað frá París þar sem hún hefur starfað undanfarið en þaðan hefur hún flogið út um allan heim í myndatökur. Til dæmis fór hún í myndatökur til Afríku í nokkra daga. Ástralía, draumaheimur „Þetta hefur veriö viðburðaríkt ár hjá mér,“ sagði Andrea er hún leit inn á ritstjóm DV milli jóla og ný- árs. „Ég starfaði um tveggja mánaða skeið í Sidney í Ástralíu. Það var mikil lífsreynsla að kynnast Áströl- um. Þó að ég væri aðallega að vinna í Sidney þá fór ég í ferðalög út í eyði- mörkina, til Melbourne og víðar. Þetta er draumaland. í Sidney er fyr- irsætuheimurinn ekki eins harður og í Evrópu enda miklu minni mark- aður. Þó vorum við talsvert margar sem fórum þangað í janúar og febrú- ar því þá var kaldur vetur annars staðar." Komin í ákveðna hringiðu Andrea er komin með ákveðna reynslu í fyrirsætustarfinu og segist vera komin inn í ákveðna hringiðu. Það tekur venjulega nokkur ár að komast inn í þá hringiðu en Andrea var heppin að komast það strax. Hún þakkar það velgengni sinni í keppn- inni um supermódelin. „Ég er auðvitað enn að safna myndum. Maður er alltaf að safna sér góöum myndum og skiptir þá um ef maður fær einhverja sem er betri en önnur. Ég þarf hins vegar ekki að kaupa mér myndir í bækurnar og labba síðan með bókina umboðs- skrifstofa á milli. Ég slapp alveg við það enda hef ég alltaf nóg að gera,“segir Andrea. Gengið vel í París Eftir dvölina í Sydney fórhúnaftur til Parísar. „Mér hefur gengið mjög vel í París, Ætli ég hafi ekki bara Stöðug ferðalög Andrea segist í raun ekki eiga neinn fastan samastað þó að hún sé með íbúð í París. „Umboösskrifstof- an útvegaði með leiguíbúð en ég er bara alltaf á mjög miklum ferðalög- um. Ég er oft kölluð yfir til Ítalíu í myndatökur.“ Andrea á unnusta, Jeff Louis, sem búsettur er í Chicago. Þau kynntust árið 1986 er Andrea fór fyrst til Bandaríkjanna. „Þótt við séum enn- þá saman þá búum við sitt í hvorri heimsálfunni en hittumst þó oft því ég fer oft yfir til Bandaríkjanna að vinna, yfirleitt einu sinni í mánuði.“ Andrea ætlar að heimsækja kærast- ann nú 1 janúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.