Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 9
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. r w » r * » m t • - 9 Ford Models leitar að nýjum fyrirsætum: Tíu milljónir standa til boða Ellert Schram, ritstjóri DV, óskar hér móður Ágústu Ernu til hamingju með sigur dótturinnar. Stúlkurnar sex sem valdar voru til úrslita af Eileen Ford hér á landi sl. vor. Myndin var tekin á spennustund eins og sjá má á svip stúlknanna. Þær heita, frá vinstri: Herdís Dröfn Eðvarðsdóttir, Sigriður Stefánsdótt- ir, Soffía S. Sigurgeirsdóttir, Ágústa Erna Hilmarsdóttir, Þórdís Hadda Yngvadóttir og Sjöfn Evertsdóttir. Ford Models er bakhjarl Nú er sá tími runninn upp að DV óskar eftir stúlkum sem áhuga hafa á að komast í fyrirsætustörf hjá Ford Models. Andrea segir að hún hefði aldrei náð jafnlangt ef hún hefði ekki haft Ford á bak við sig. „Þetta er allt saman ein klíka,“ segir hún. „Maður þarf að hafa einhvern við bakið á sér í þessu starfi. Eileen Ford fylgist allt- af með mér. Hringir í mig annað slag- inn til að spyija hvernig gangi og hefur samband við umboðsskrifstofu mína. Ef henni fmnst ég ekki fá nógu mikið að gera þá rífst hún og heldur öllu gangandi." Andrea segir að hún vinni með mismunandi ljósmyndurum frá degi til dags. „Sumir eru frekir og óþolin- móðir og maður þarf aö sætta sig við í þessu starfi að sýna þolinmæði og vera undir það búinn að vinna með mismunandi fólki. Um daginn vann ég til dæmis með ljósmyndara sem tók myndir af Marilyn Monroe á sín- um tíma. Það var skemmtileg tilfinn- ing að vinna með þeim manni sem hafði slíka reynslu. Ég hef starfað mikið fyrir franska tímaritið Marie Claire undanfarið. Einnig vann ég í fyrsta skipti um daginn fyrir amer- íska Vogue-blaðið. Það kemur fyrir að maður vinnur fyrir ákveðið blað og ef ljósmyndar- inn er ekki ánægður með myndina getur honum dottið í hug að fá aðra fyrirsætu. Maður veit því aldrei hvort það er mynd af manni sjálfum sem á endanum birtist í blaðinu," segir Andrea. „í þessu starfi er það heppnin sem ræður.“ Vinna í Afríku Andrea segir að starfið geti verið mjög erfitt. „Það er mjög misjafnt en það getur verið erfitt. Fyrir mánuði fór ég til Afríku, flaug í þrettán tíma, var komin klukkan sex að kvöldi og byrjaði að vinna klukkan íjögur um nóttina og vann samfleytt til sex um kvöldið. Eg var þarna í fjóra daga og allir dagarnir voru eins, samfelld vinna frá fjögur að morgni til kvölds. Þar að auki var verið að mynda vetr- arföt í steikjandi hita. Það voru erfið- ir dagar,“ segir Andrea. Agústa Erna Hilmarsdóttir var valin Ford-stúlkan 1988. Hún tók þátt i keppninni Supermodel of the World sem fram fór síðastliðið sumar. Ágústa mun væntanlega krýna arftaka sinn i april nk. DV-myndir GVA Fordborgar leiklistarnám Andrea Brabin á mörg andlit eins og sést á meðfylgjandi myndum. í bandarískum sjónvarpsþætti, sem sýndur var nýlega, sagði Eileen Ford að hún væri viss um að Andrea Brab- in væri verðandi kvikmyndastjarna með sitt margbreytilega andlit. „Ég er tilbúin til að greiða fyrir hana nám í leiklistarskóla ef hún vfil,“ sagði Eileen Ford. Andrea segist hafa áhuga á að mennta sig þótt það verði ekki alveg strax. „Hver veit nema ég þiggi boð Eileen Ford,“ sagði hún. Ef einhver furðar sig á nafni Andreu Brabin er rétt að geta þess að faðir hennar er Englendingur. Hún ólst þó ekki upp hjá honum heldur móður sinni sem er íslensk. Andrea lítur því fyrst og fremst á sig sem íslending. „Þaö er auðveldara fyrir fólk aö muna nafn mitt heldur en ef það heföi verið alíslenskt. Væntanlega eigum við eftir aö heyra meira frá Andreu Brabin í framtíðinni því að stúlkan sú er á mikfili uppleið í hinum harða heimi fyrirsætunnar. -ELA Fyrirsætustörf á erlendum vett- vangi heilla margar ungar stúlkur. Það getur hins vegar verið erfið- leikum háð að komast áfram á þeirri braut án hjálpar. Ford Mod- els í New York hefur þess vegna leitað að nýjum andlitum ár hvert, bæði til að koma stúlkunum á framfæri og ekki síður til að hjálpa þeim að fóta sig í þeim harða heimi sem starfinu fylgir. DV hefur nú annað árið í röð tek- ið að sér að finna stúlkur fyrir Ford Models. Blaðið tekur á móti mynd- um frá þeim stúlkum sem áhuga hafa og kemur þeim til umboðs- skrifstofu Efieen Ford. Það er síðan á hennar valdi að velja stúlkur úr þeim hópi sem taka munu þátt í úrslitakeppni hér á landi. Sigurvegari úr þeim hópi fær tækifæri til að taka þátt í keppn- inni Face of the 80’s - Supermodel of the World, sem fram fer næsta sumar. Sú sem hlýtur sigur í þeirri keppni þarf ekki að kvíða framtíð- inni. Verðlaunin eru um tíu millj- ónir íslenskra króna auk samnings við Ford Models. Keppnin er ekki í anda fegurðar- samkeppni og stúlkurnar þurfa ekki að koma fram á sundbolum. Þess í stað eru tækifærin á hverju strái því keppninni er sjónvarpað um öll Bandaríkin. Þær stúlkur, sem áhuga hafa á að vera með í keppninni í ár, þurfa að senda mynd af sér hingað til DV fyrir 10. febrúar næstkomandi. Stúlkurnar þurfa að senda skýra og góða mynd því að myndirnar skipta öllu máli. Lágmarkshæð er 170-172 sm og að sjálfsögðu er ætl- ast til að stúlkurnar séu grann- vaxnar. Myndirnar þurfa að vera vel merktar með nafni, heimilis- fangi og símanúmeri. Setjið myndina í umslag merkt: Ford-keppnin, Helgarblað DV, Þverholti 11, Pósthólf 5380, 125 Reykjavík. -ELA Strax 2. janúar hélt hún tfi New York þar sem hún ætlaði að vera í tvo daga hjá vinkonu sinni. Síðan lá leiðin til Chigago þar sem hún ætlar að dvelja í tvær til þrjár vikur. „Ég hef fengið tfiboð frá Vogue á Ítalíu. Ef af því verður styttist dvöl mín í Chigago því engin fyrirsæta sleppir tilboði frá Vogue. Þá er ég bókuð til Mexíkó 21. janúar og verð þar í nokkrar vikur. Síðan fer ég aftur til Parísar. Ég veit aldrei fyrirfram hvað bíður mín. Það er kannski búið að bóka mig einhvers staðar á ákveðn- um degi en síðan getur þaö breyst. Ef tilboðið frá Vogue stendur enn, fer ég til Grikklands 15. janúar. Þessir menn eru alltaf að plana eitthvað og alltaf aö breyta líka.“ Andrea var sautján ára þegar hún fór út í fyrsta skipti og henni fannst það ekki of snemmt. „Ég hef aldrei lent í neinu slæniu. Sumar stúlkur hafa lent í mönnum sem hafa reynt að tæla þær en ég hef bara verið mjög heppin," segir hún. Pwre Geniuj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.