Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. 13 og Bretlandi eru kannski tíu stöðvar á markaðnum með mismimandi hlustun en það er auglýst í þeim í samræmi við þá hlustun sem þær hafa. Auglýsingaverðið fer eftir vin- sældum. Stöðvamir spila líka inn á ákveðna markaði. Ein sérhæfir sig fyrir unglinga, önnur fyrir eldra fólk og sú þriðja fyrir annan hóp, svo eitt- hvað sé nefnt. Hér höfum við ekki efni á slíkri breidd því við erum allt- af með stefnu á toppsætið." Sameining heppilegust - Þýðir nokkuð fyrir þessar tvær stöðvar að berjast um þennan litla markað? „Fyrir hlustendur er þetta ágætt fyrirkomulag vegna samkeppninnar. Rekstrarlega séð er þetta ekkert sniðugt til lengdar. Það er dýrt að tapa og oft sársaukafullt því upp- sagnir fylgja í kjölfarið. Að öllu leyti væri skynsamlegast að eitt fyrirtæki ræki Stjörnuna og Bylgjuna. Þá er ég ekki að tala um eina útvarpsrás heldur tvær. Fréttastofa, auglýsinga- deild og tæknivinna gæti verið undir einum hatti. Þetta eru hlutir sem forráðamenn þessara stöðva hafa rætt um en strandar á mismunandi afstöðu manna til eignarhalds og hvemig ber að meta stöðvamar í þessu sameiginlega fyrirtæki. Menn greinir á um hvort meta eigi stöðv- amar eftir efnahagsreikningum en hin hliðin álítur að ársreikningar segi ekki aUt um verðmæti stöðv- anna, því hvor stöðin haldi hinni niðri fjárhagslega þannig að þeirra ávinningin- væri að sameinast á helmingaskipta grundvelli. Menn hafa ekki náð saman vegna þessa og það er aðalmálið. Svona til framtíðar litið þá verða stöðvamar í hörku- samkeppni og ég held að ef Þorgeir og félagar geti byijað með hreint borð þá muni þeir ná ágætis ár- angri. Frá mínum bæjardymm séð er komin þreyta í Bylgjuna. Þar á bæ hafa menn verið að reyna fyrir sér með ákveðna dagskrá en hér er verið að byija á fersku og nýju. Mað- ur sér það samt í hendi sér að þessar tvær stöðvar með fjögurra manna íréttastofu hvor hafa ekki roð við þijátíu manna fréttastofu Ríkisút- varpsins. Allt veltur þetta á peningum. Á meðan Ríkisútvarpið hefur skatt- peninga almennings höfum við ein- göngu auglýsingatekjur sem sveifl- ast til og ffá eftir vinsældum stöðv- anna. Af þeim tekjum okkar þurfum við að borga 25% söluskatt sem aðrir fjölmiðlar þurfa ekki. Samkeppnis- staða okkar er því mjög erfið.“ Mikill skuldahali - Nú er spáð miklum samdrætti á auglýsingamarkaðnum sem þegar hefur sýnt sig. Geta báðar útvarps- stöðvamar lifað ef hrun verður á þeim markaði? „Þar sem þetta er einkarekstur þá hefur hann alla möguleika á að draga úr kostnaði og það hafa báðar stöðv- amar verið að gera í mannahaldi. Það hefur verið talað um að minnka launakostnað um fjömtíu prósenL Það hefur okkur tekist hér. Ýmis annar kostnaður hefur verið skorinn niður. Því miður em þessar stöðvar með mikinn skuldahala á bakinu af öllum sínum tækjum og tólum vegna þess hversu stutt er síðan þær kom- ust á legg. Ef það væri ekki yrði þetta aUt miklu viðráðanlegra. Þröskuldur okkar er því annars vegar Póstur og sími, sem selur sig fimadýrt, og hins vegar STEF-gjöld sem em okkur þungur baggL Þau em sett á stöðina í samræmi við hvað hún hugsanlega nær mörgum eyrum en í engu sam- ræmi við mögulegar tekjur. Stöðin þarf að borga um fjórar miHjónir á ári í STEF-gjöld og mér verður stund- um hugsað til Hljóðbylgjunnar sem nýlega fór að senda út á Reykjavíkur- svæðinu þvi hún er að nálgast þessa upphæð lika. Ég vona að þeir hjá Stefi muni taka tillit til aðstæðna í komandi samningum." - Nú skuldar Stjaman menningar- sjóði margar miUjónir. Getur hún borgað? „Það var ákveðið mál hjá mér að borga ekki í menningarsjóð meðan Jón Ólafsson hjá Bylgjunni sæti í Stjóminni. Þar sem Jón var svo ósmekklegur að neita að víkja úr stjóminni þá fannst mér við fóma meiri hagsmunum en minni með því að upplýsa Jón um hvemig sam- keppnisstaða okkar væri. Við skuld- um menningarsjóði en það má líka horfa á það að þetta em okkar eigin peningar því menningarsjóður út- hlutar þeim aftur til stöðvanna. Ég og Þorgeir Ástvaldsson emm búnir að skrifa bréf til næstu stjórnar menningarsjóðs, sem tekur við fljót- lega, og bjóðast til að gera upp og leita samninga með hvaða hætti þau skil geti farið fram. Ég kvíði ekki neinum menningarsjóði." Ringulreið í dagskrárstefnu - Fijálsu stöðvamar hafa valið óreynt, ungt og oft illa talandi fólk í dagskrána hjá sér. Fólk sem vinnur við útvarp fremur ánægjunnar vegna en að fá sæmileg laun. Kemur það ekki fram í gæðum dagskrár og þá minnkandi hlustun þegar fram í sækir? „Það er hrikaleg ringulreið. í dag- skrárstefnu beggja stöðvanna. Rykið er að setjast á og menn em að átta sig á því hvað það er sem skiptir máh og hvað ekki. Ég held að menn átti sig á því í leiðinni að það þýðir ekkert að vera að bjóða hlustendum upp á illa talandi og illa upplýsta dagskrárgerðarmenn. Það verður ekki framtíðarstefnan.“ - Vinna á útvarpsstöðvunum virðist vera mjög ótrygg og stöðugar upp- sagnir og breytingar. Verður ekki erfitt að fa sæmilega gott fólk? „Það er alveg ljósL Gífurlega mikl- ar sveiflur era í gangi og viss tauga- veiklun hjá stjómendum. Það er horft á kannanir og mannabreyting- ar verða þeim samfara. Eftir fimm ár verður þetta orðið aUt öðravísi, eins og á dagblöðum, viss stöðugleiki og öryggi. Það er líka spuming, vegna þess hversu miklu erfiðara það er fyrir fjölmiðlamenn að-fá vinnu en var áður, hvort ekki skap- ast ákveðið jafnvægi og menn fari að leggja sig meira fram til þess ein- faldlega að halda sinni vinnu. Þessi óstöðugleiki hefur oft verið vegna þess að menn hafa ekki staðið sig nógu veL“ Getan takmörkuð - Hvað sérðu fyrir þér á næstunni? „Ég sé fyrir mér að vegna óstöðug- leika á auglýsingamarkaðnum þá verði geta Bylgjunnar og Stjömunn- ar takmörkuð. Um leið og uppsveifla komi á ný þá nái þær sér á strik aft- ur með betri dagskrá og um leið skapist þá meira jafnvægi milh þeirra og Ríkisútvarpsins. Þá verður reynslan komin á reksturinn og þá geti einkastöðvamar sýnt að þær geta þetta miklu betur en ríkið. Ég hef þá bjargföstu trú að hvort sem þessar tvær stöðvár sjái um sinn rekstur hvor í sínu lagi eða í einu öflugu fyrirtæki þá verði það einka- aðilar sem muni taka við útvarpi yfirhöfuð á íslandi.“ - Telurþúaðhægtværiaðgeraeina sterka stöð í dag með samruna Bylgj- unnar og Stjömunnar? „Ég er ekki í vafa um það. Það er alveg vist að ef þær sameinast þá yrði það eigendum beggja stöðvanna til góðs. Þá færi dæmið fyrst að ganga upp fjárhagslega. Þá yrðu þær með eina öfluga fréttastofu og gætu bætt við hlustunarsvæðum. Eiginlega er leiðinlegt til þess að hugsa að þama skuh vera tvær stöðvar að bíta hvor aðra á barkann í stað þess að snúa bökum saman að sínum aðalkeppi- nauti. Eins og staðan er í dag munu þær aldrei hafa neitt roð við Ríkisút- varpinu. Hins vegar era þær miklu vinsæhi, þrátt fyrir ahar takmarkan- ir einkastöðvanna.“ -ELA Uppáhaldsmatur á suimudegi allir bráðdrepandi - segir meistarakokkurinn Flosi Ólafsson „Mér finnst enginn matur reglu- lega góður nema hann sé forboð- inn,“ segir Flosi Ólafsson meistara- kokkur sem leggur að þessu sinn til uppskriftir að uppáhaldsréttunum sínum. „Það sem mér er bannað að borða finnst mér best. Það er hnakkaspik, augun úr sauökindinni og síðubitamir sem ég vh helst að séu þverhandarþykkir. Sérstaklega vil ég hafa saltket mjög feitL Mér finnst það sem í dag er kallað úr- gangsket vera besL Það var áður kahað gæðaket en er nú úrgangur og fer í O-flokk. Sömuleiðis held ég mikið upp á sætindi, kökur og vínarbrauð með kaldri mjólk. Þetta er mér aht bann- að að borða enda er ég ekki ahtaf í góðu skapL Skepnufóður Tilhugsunin um þessa nýju frönsku matarlínu finnst mér heh martröð. Konan min er mikið fyrir ahs slags svoleiðis delikatesur og allraþjóða- kvikindamaL Hún er ahtaf að reyna að koma ofan í mig grænmeti og ahs konar skrautL Grænmetið minnir mig helst á skepnufóður. Mér finnst ekkert varið í það. Þessar tilraunir í matargerð henta mér ekkL Mér finnst ahtof mikið gert að þvi að matreiða einhverjar prentvihur upp úr bókum en hver verður að hafa sinn smekk. Fólki finnst mörgu voðalega gaman og gott að éta skrýt- inn maL Eg vh bara hafa þetta stað- gott og verða saddur. Á minu heimili elda ég aldrei mat. Ég get þó útbúið kornfleksgraut og ég get búið til kaffi. Ég kann það og ég get sett eldavélina í gang ef búið er að setja kartöflumar í pottinn en þá þarf einhver að koma á réttum tima og slökkva undir. SmásteikFlosa Ég hef aðeins einu sinni búið th maL Þá var konan nún í útlöndum og ég einn heima. Þá hugkvæmdist mér að búa th eftirlætisréttinn minn sem er ket, kartöflur, sósa og sultu- tau. Uppskriftin er svona: Maöur fer í ketverslun og kaupir þijú kíló af súpuketi, fer með það th móðursystur sinnar og biður hana að búa til úr þessu smásteik í 10 lítra potti. Síðan kemur maður eftir 3 til 4 klukkutima og sækir pottinn og fer með hann heim og borðar upp úr honum. í þennan rétt er notað ket kartöflur sósa . sultutau sem minnst af öðru með Réttinn notaði ég í veislu og bauð nokkrum góðum vinum mínum. Þeir voru allir á einu máh um að ég væri einhver albesti kokkur sem þeir hefðu borðað hjá. Þetta er leyndar- máhð um það af hverju ég er svona nafntogaður kokkur." Skötuplumm Líki mönnum ekki ketréttur Flosa gettn: hann einnig boðið upp á fisk- rétt sem hann heldur mikið upp á og amma hans eldaði í gamla daga. „Þegar ég var bam þótti mér og þyk- ir enn ákaflega gott það sem kahað var skötuplumm. Það var skata sem hafði verið á borðum í hádeginu en matreidd að nýju um kvöldið. Þá pih- aði amma mín brjóskið úr skötunni og hitaði hana upp með kartöflunum í hangiketsfloti. Með þessu var haft rúgbrauð, smér á þykkt við sneiðina og mjólk. Þetta var það besta sem ég gat hugsað mér. Skatan má meira að segja brenna svolítið þegar hún er hituð upp í pottinum og þá kemur af henni extrabragð. Allur svona matur er forboðinn á minu heimih i dag vegna þess að það þykir ekki við hæfi aö hafa skötulykt í.híbýlum manna. Mér finnst skata ákaflega góð en ég er á þvi að th sé betri lykt í húsum en þegar verið er að sjóða skötu vestan af fjörðum. Þennan mat fæ ég nú bara einu sinni á ári.“ Bráddrepandi réttir Með þeim réttum, sem hér er boðið upp á, telur Flosi nauðsynlegt að hafa bæði forrétt og eftirrétL I for- rétt mælir hann með kaffi með ijóma og vindlL „Þessi foriéttur er bráð- drepandi. Mínir eftirlætisiéttir eru flestir bráðdrepandL“ í eftirrétt vhl Flosi hafa ís. „Ég er ákaflega sólginn í skafís með súkku- laðibitum og þá má gjaman hella út á súkkulaðidruhi fiá Herseys og hafa rjóma með. Jafnvel má hafa með þessu svolítið af niðursoðnum jarð- arberjum. Þetta smakkast ákaflega vel en er iha þokkað af lækninum mínum. Hann segir að ef ég hætti ekki þessum matarvenjum þá muni ég enda lífið með því að deyja,“ sagði Flosi Ólafsson. -GK Smásteik í 10 lítra potti er i uppáhaldi hjá Flosa Olafssyni. DV-mynd GVA Eftirlætisréttimir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.