Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Page 19
Vísnaþáttiir
19
T.AUGARDAGUR i. JANÚAR 1989.
Svöl er næturkylja
Auðunn Bragi hefur safnað í eina
bók helstu ljóðum og vísum föður
síns, Sveins frá Elivogum, en á næsta
ári er aldarafmæli hans. Hann var
þjóðkunnur hagyrðingur og kom
kveðskapur hans út í smákverum.
Ég hef birt öðru hvoru vísur eftir
Svein en alltaf ætlað að gera honum
betri skil. Rósberg G. Snædal ritaði
bók og gaf út 1973, sem hann kenndi
við Svein. Og nú skrifar Auðunn
Bragi formála fyrir Ijóðasafninu.
Fyrsta vísan, sem hann birtir þar,
er raunar eftir móður Sveins, varð
hún þegar landfleyg. Henni mun
snemma hafa þótt ástæða til að beina
til sonar síns þessum orðum:
Gættu þess, að Guð er einn
gáfuna sem léði.
Ef þú yrkir svona, Sveinn,
sál þín er í veði.
En margir skapmikhr og viðkvæm-
ir hagyrðingar hafa tekið Bólu-
Hjálmar til fyrirmyndar og Sveinn
hélt sínu striki. En jafningi meistar-
ans varð hann aldrei og því ekki fyr-
irgefið jafnmikið og honum.
Ég læt duga að sinni að fletta for-
mála sonarins og taka þaðan vísur.
Seinna bæti ég um betur. Eftir fjár-
skaða 1935, í hörðustu kreppunni,
yrkir Sveinn:
Ennþá drýgi ég óðaskraf
amafrí og kátur,
þó að flygju í feigðarhaf
fjörutíu skjátur.
Skáldbúskapur
En þetta mun hafa verið þriðjungur
fjáreignarinnar, segir Auðunn. En
sama ár hlaut Sveinn 500 krónur í
skáldalaun og fékk hann þau hvorki
fyrr né síðar. Fyrir þau gat hann
keypt nokkrar loðnar og lembdar
ær næsta vor og haldið áfram að
búa. Honum þótti að sjálfsögðu vænt
um viðurkenninguna. Hann sagði:
Vel þó kynni ei karlsins ljóð
kerlingin hún Samtíð,
á þau minnir aftur þjóð
ungmærin hún Framtíð.
Sveinn lést á þokkalega góðum
aldri, árið 1945, fæddur 1889. Hér eru
tvær vísur til viðbótar úr formálan-
um:
Brésti lengi ljós og yl,
lamast strengjatakið.
Það sem gengur grafar til
getur enginn vakið.
í Laxárdal vildi hann lifa og deyja.
Honum varð að ósk sinni:
Oft þó fellin fölni á kjól
fyrir svellastrokum,
Vísnaþáttur
hér í elli hef ég skjól,
hérna fell að lokum.
Fróðlegt er að bera saman gengi
listamannalauna 1935 og nú. Nú eru
heiðurslaun örfárra valinna manna
kr. 500.000. Við lesum í blöðum að
það þyki nú ekki nema hófleg mánað-
arlaun embættismanna, hafnar-
verkamenn fái fyrir allmikla vinnu
rúm hundrað þúsund krónur á mán-
uði. Heiðursmennirnir verða því að
treysta á eftirlaun og aukavinnu eftir
sem áður. Ungir hstamenn, sem eyða
miklum tíma í menningarstörf, lesa
svo fram á elliár ramakvein í les-
endadálkum dagblaðanna hafi þeir
fengið öðru hvoru úr landsjóði nokk-
urra kjötskrokka virði. - Sumir fá
aldr'ei neitt.
En höldum áfram með vísurnar.
r
I
draumi eðavöku
Næst koma drauma- og draugavísur.
Maður getur sér þess th að hagmælt-
ir menn hafi ort þær í fullu fjöri dott-
andi í rúmi sínu eða jafnvel á stöðu
yfir kindum, oft kannski i döprum
þönkum konur sem átt hafa áð vaka
yfir sjúkum eða beðið í ofvæni eftir
væntanlegum komumanni þegar tví-
sýnt ferðaveður eða myrkur var úti:
1.
Er á ferðum engin töf,
ekki er gott að skhja.
Sigli ég yfir sohin höf,
svöl er næturkylja.
2.
Djúpum ofar hættuhyl
hlaðinn þungum vanda.
Samt ég horfi sjónum til
sólarfegri stranda.
3.
Er ég á hoti út við sker,
öll er þrotin vörnin.
Báran vota vaggar mér,
veist hve notalegt það er.
4.
Undir þvölum unnarstein
hl er dvöl um nætur.
Sífeld kvöhn söm og ein
að sjá þú böl þitt grætur.
5.
Kólgu vafinn kroppur mmn
hvhir á votum beði,
í ljósaskiptunum leita ég inn
og langar í horfna gleði.
Stökusinna
Við sjáum hér að lokum stökur úr
ýmsum áttum. Fyrst haglega gerð
vísa eftir Sigurð Gíslason frá
Skarðsá, lengi kennara á Akureyri,
hagyrðing og ötulan vísnasafnara.
Hann er nú fahinn frá. Ég hef
kannski birt hana áður. En það er
svo gaman að henni og hún vel ort
að hún er ein af þeim vísum sem
sjaldan er of oft kveðin. Þetta er þrí-'
henda. Fyrsta línan er löng og þess-
vegna brýt ég hana á hepphegum
stað. Hún er svona:
Þótt ég geri stöku stöku
stöku sinni,
lítt ég því að sinni sinni,
sinni bara vinnu minni.
Þá er ein af formannsvísum Gísla
gamla Konráðssonar fræðimanns.
Hann var lengst af Skagfirðingur en
seinustu árin í Flatey á Breiðafirði:
Heyrast skölhn há og snjöll,
hvín í föllum boðinn.
Súgs á völlum svignar öh
Sigurðar Tröha gnoðin.
Afsökun
í síðasta þætti mínum gerði ég Braga
Björnsson, Austfirðing, að öldungi „á
fallandi fæti“. Hann er fæddur 1929,
um sextugt og því e.t.v. tólf árum
yngri en undirritaður. En hann mun
hafa átt við heilsuleysi að stríða og
því hætt búskap. Hnupla í leiðinni
einni vísu til viðbótar frá honum:
Vakan kallar, ljómar loft,
ljóðaspjallið hylh.
Stakan snjalla ómar oft
íslandsfjalla á mhh.
Jón úr Vör
Fannborg 7
Kópavogi
fslenski myndbandaklúbburinn að gæðum. Best eru böndin um skrítið að ekki skuh sýnt nema á
hefur gehð út fjögur myndbönd um Miðfjarðará og Vatnsdalsá. Mynd- neðstu svæðum árinnar. Hvar er
Miðfjarðará, Vatnsdalsá, Laxá í bandið um Laxá í Dölum er heldur öll fegujðin uppi í gljúfrum Laxár
Dölum og Laxá í Kjós. Er þetta kraftlaust en þó bregður fyrir í Kjós? ‘
framtak fslenska myndbanda- þokkalegum töktum. Laxá í Kjós Eftár stendur þó að veiöimönnum
klúbbsins mjög þarft og styttir er síst og minnir bandið helst á er þaö nauðsyn að eiga þessi bönd
veiðimönnumbiöinaeftirsumrinu. góðan skuttogara á köflum í öllu - þau eru „hvalreki“ í svartasta
Myndböndin eru þó æði misjöfn laxamokinu. Þykir mér það líka skammdeginu. -G.Bender
Veiðieyrað
Þótt ennþá sé vetur sitja veiðimenn
víða um land ekki auðum höndum
og segja veiðisögur heldur hnýta þeir
flugur og æfa fluguköst og sumir eru
farnir að dorga víða á vötnum lands-
ins.
Það að hafa eitthvað fyrir stafni stytt-
ir biðina fyrir „veiðisjúka" veiði-
menn sem era bíða eftir vorinu og
sumrinu.
Ármenn hafa verið iðnir við kolann
í vetur og í félagsheimih þeirra hefur
verið ýmislegt gert í vetur. Þeir hafa
hnýtt flugur og kennt mönnum hin
réttu handtök.
Opið hús hefur verið hjá Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur og er það far-
ið að undirbúa árshátíð sína sem
haldin verður í byrjun febrúar. Höf-
um við frétt að hún verði óvenjulega
glæsileg þetta árið enda félagið 50
ára.
Tvær veiðiár eru í útboðum þessa
dagana, Flekkudalsá og Ket'linga-
dalsá og Vatnsá. Höfum við heyrt að
ýmsir hafi áhuga á þessum veiðiám
og höfum heyrt nöfn eins og Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur, Árni Bald-
ursson, Stangaveiðifélag Akraness
og Stangaveiðifélagið Stakkur, Vík.
Verður spennandi að sjá hver hrepp-
ir hnossið með þessar ár.
-G.Bender
Ármenn hafa verið iðnir í vetur og
víst búnir að hnýta þúsundir af flug-
um sem þeir selja fyrir félagsstarf
sitt. Á myndinni sést Stefán Hjalte-
sted raða flugum fyrir nokkrum dög-
um.
Ja,hver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur í ícvöld!
Þreföld ástæða
til að vera með!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
SJÁUMST
ENDURSKINI!
tíx
IFERÐAR
ENDURSKMS-
MERKI fósti
apótekum
ogviter.