Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 23
LAUUARUAtiiUK: !7J JA.VÚAK 1089. 23 Vísindi Ströng megrun kemur að sama gagni við að lækna hjartasjúkdóma og sterk lyf. Kröftug megran getur læknað hj artasjúkdóma Hjartasérfræðingar í Bandaríkjun- um halda því nú fram að mjög kröft- ug megrun geti komið í veg fyrir hjartasjúkdóma hjá mönnum sem annars hefðu orðið að gangast undir aðgerð. Talið er að megrunin geti einnig komið í staöinn fyrir mörg þau lyf sem nú eru notuð í sama til- gangi. Það eru sérfræðingar við Borgar- sjúkrahúsið í Boston sem færa mönnum þessar fréttir þegar barátt- an við eftirköst jólaátsins er að hefj- ast. „Niðurstöður okkar eiga trúlega eftir aö fá marga hjartasérfræðinga til að hugsa málin upp á nýtt,“ er haft eftir Alexander Leaf, lækni sem stjórnaði rannsókninni. Hann vill þó taka fram að niður- staðan sé fengin eftir tilraun á fá- mennum hópi manna. Frekari rann- sóknir gætu leitt ýmislegt nýtt í ljós. Niðurstaðan, sem þegar er fengin, bendir hins vegar til að koma megi á síðustu stundu í veg fyrir suma hjartasjúkdóma með einföldum að- ferðum. „Tilgangurinn var að sýna fram á að hægt sé koma í veg fyrir krans- æðasjúkdóma með því einu að breyta neysluvenjum fólks og án þess aö nota nokkur lyf,“ segir Alexander Leaf. Til þessa hefur verið talið að sterk lyf eða hjartaaðgerðir séu eina leiðin til að draga úr kölkun krans- æða eftir að hún er komin á alvar- legt stig. „Ef framhald rannsóknarinnar gefur sömu niðurstöðu hljóta læknar að hugsa til þess að hættulegar hjartaaðgerðir gætu reynst óþarfar í mörgum tilvikum," segir Alexander Leaf. Við fyrstu rannsóknina var valinn hópur fimmtíu manna sem allir áttu á hættu að fá kransæðastíflu. Hópn- um var skipt í tvennt og fékk annar hlutinn venjulega meðferð en hinn var settur í stranga megrun og lík- amsæfmgar. Síðari hópurinn fékk mun skjótari bata og eftir ár var munurinn verulegur. Rauðvín veldur mígreni Hópur lækna í Lundúnum hefur fundið efni í rauðvíni sem valdið get- ur mígreni. Til skamms tíma var tal- ið að mígren stafaöi af efni sem kall- að er týramín en nýjustu rannsóknir sýna að sjúkdóminn má rekja til efn- is sem heitir flavanoider. Það er sama efnið og gefur rauðvíninu rauða litinn. í tilraun læknanna voru mígreni- sjúklingar látnir drekka tvo ólíka drykki. Nokkrum sjúklinganna var gefið ungt og óþroskað rauðvín en hinir fengu blöndu af vodka og sóda- vatni. Þessir drykkir voru bornir fram kaldir í myrkvuðu herbergi og voru báðir meö svipuðu bragði. Þátt- takendurnir vissu því ekki hvorn drykkinn þeir voru að drekka. Níu af þeim ellefu sem drukku rauðvínið fengu mígreniskast eftir drykkjuna en enginn þeirra sem drakk vodkablöndna kenndi sér meins á eftir. í fyrstu leituðu lækn- arnir að týramíni í rauðvíninu en fundu lítið og minna en er í mörgum algengum matvörum. Þeir hófu því leit að öðru efni. Grunurinn beindist þá að flavano- idunum sem mikið er af í rauðvíni. Það efni á þátt i að brjóta niður vín- anda. í því formi blandast vínandinn blóðinu betur en áður og þannig berst hann snögglega til heilans. Þá hefur einnig komið í ljós að mígreni- sjúklingar hafa litið af ensýmum sem eyða vínanda. Flavanoidin geta líka verið orsök þess að menn verða timbraðir eftir drykkju. Þetta efni er í ríkum mæli í ungu og óþroskuðu rauðvíni en margir drykkjumenn telja að slíkt vín valdi meiri timburmönnum en aðrir drykkir. Ný fiskisaga Fiskifræðingar, sem starfa á eyj- unni Madagaskar, virða þessa dag- ana undrandi fyrir sér lítinn silfurlit- an fisk. Fiskurinn er um tíu sentí- metra langur og var veiddur í vatni þar á eyjunni nú fyrir skömmu. Sá stutti hefur ekkert nafn því áður var ekki vitað að fiskar af þessum stofni væru tfi. Hann tilheyrir þó ættkvísl sem kölluð er silfurmagar og er al- geng í löndum hitabeltisins. Fiskar af þessum áður óþekkta stofni hafa verið fluttir til Bandaríkj- anna þar sem fiskifræðingar hafa rannsakað þá nákvæmlega. Þar er staðfest að þessi fisktegund sé hvergi til á skrá og hefur aldrei áður verið rannsökuð af vísindamönnum. Það sem vekur einna mesta undrun er að fiskurínn virðist skyldur fisk- um sem kallaðir eru bedotia og eru útdauðir fyrir löngu. Hér gæti því verið kominn týndur hlekkur í þró- unarsögu lífs á jörðinni. Nýi fiskurinn heldur sig í fersku vatni á Madagaskar og finnst aðeins þar sem seinustu leifar regnskóga eru á eyjunni. Frændur hans af ætt silfurmaga lifa allir í sjó. Á Madaga- skar hafa fleiri dýrategundir ein- angrast og orðið eftir í þróuninni. Þessi fiskur virðist í þróuninni vera mitt á milli silfurmaganna, sem eru alþekktir, oglöngu horfinna forfeðra þeirra. Það eru því ekki bara fiskifræðing- ar sem eru himinlifandi yfir að hafa veitt áöur óþekktan fisk heldur þykj- ast áhugamenn um þróun lífs á jörð- inni einnig hafa himin höndum tekið. Þessi fiskur er af tegund sem enginn vissi að væri enn á ferli. M o 1 Ógnvaldur falsaranna Bandaríkjamenn hafa miklar áhyggjur af fólsuðtnn peningum enda hafa margir óráðvandir menn þar í landi drýgt tekjurnar með eigin prentun á seðlum. Til þessa hefur einkum orðið að treysta á skarp- skyggni peningamanna við að greina heimagerða seðla frá þeim löglegu. En nú hefur fyrirtæki í New York ftmdið upp einfalt tæki öl að frnna falsaða seðla. Seölunum er rennt í tækið og það lætur vita með rauðu ljósi ef seðillinn er falsaður. Tækinu má breyta þannig að það meðtaki seðla frá hvaða landi sem er og gæti þvi komið aö notum hér ef einhverjir vilja keppa viö Seðlabankann um seðlaprentun. í Bandaríkjunum er það selt á 150 ófalsaöa dali. ■fgz* í. ^ - m Með þessu tæki má finna falsaða seðla. Nýttráð ívetrarófærð Stundum getur vetrarfærðin orð- ið svo slæm að bíleigendur verði að setja keðjur undir vagna sína. Keðjurnar hafa hins vegar þann leiða galla þeim fylgir mikill hávaði og þær geta valdið skemmdum á bílunum. Vestur í Bandaríkjunum hafa menn ráð við öllum vanda og þar hefur hugvitsmaður nokkur fundið upp gúmmíkeðjur sem eru alger- lega hávaðalausar og valda engum skemmdum. Gúmmíkeðjurnar eru mjög einfaldar í notkun og duga engu síður í ófærð en hefðbundinn útbúnaður. a r Gúmmikeðjurnar eiga að koma f staðinn fyrir hefðbundnar keðjur. Vatn utan úrgeimmim Stjarnfræðingar hafa lengi velt því fyrir sér hvaðan vatniö á jörð- inni er komið. Meðan hnötturinn okkar var brennheitur hlýtur allt vatn aö hafa gufað upp ef það hefur eitthvað verið fyrir. Ein tilgátan um uppruna vatns- ins á jöröinni er að það hafi borist með halastjörnum sem eru að mestu saman settar úr ís. Fyrir fjórum til fimm milljörðum ára lenti jörðin í miklu regni hala- stjama og loftsteina. Reiknað hefur verið út að allt vatn á jörðinni gæti hafa borist lringað með þessum hætti. Þessar vangaveltur hafa líka orð- ið til þess styrkja hugmyndir um að líf hafi borist til jarðarinnar með þessu sama vatni. Fyrstu lifverum- ar hafa þá komið hjúpfrystar til jarðarinnar með halastjömum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.