Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 28
40
LAUtíARbÁGUR 7. JANÚAR 1989.
Handknattleikur unglinga
Jólamót Hauka og Eldborgar
FH og Grótta sigurvegarar
Hið árlega jólamót Kiwanisklúbbs-
ins Eldborgar og Handknattleiks-
deildar Hauka var haldið helgina ,17.
og 18. desember síðastliðinn. Mótið
var haldið í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Keppt var í tveimur ald-
ursílokkum, 5. ílokki kvenna og 6.
flokki karla. Alls tóku 18 lið þátt í
keppninni, 9 lið í 5. flokki kvenna og
10 lið í 6. flokki karla. Keppt var í
tveimur riðlum í hvorum flokki.
FH varö meistari
í a-riðli 6. flokks karla voru FH-
ingar með nokkra yflrburði, þeir
unnu leiki sína nokkuð örugglega.
einna helst voru það UBK sem veitti
þeim einhverja keppni en FH sigraði
í þeim leik. 5-4. UBK varð í öðru
sæti, Valur í því þriðja, Stjarnan varð
í fjórða sæti og Grótta í fimmta sæti.
í b-riðlinum var keppnin mun
harðari og meira spennandi. HK
tókst að sigra í þeim riðli, vann alla
leiki sína nema einn, en Fram gerði
sér lítið fyrir og vann HK 4-1. KR
varð í öðru sæti en Fram í þriðja
sæti. Haukar lentu í fjórða sæti og
UMFG í því fimmta. Það vakti at-
• Þorgils Ottar Mathiesen lands-
liðsfyrirliði afhenti sigurvegurum
verðlaunin.
• FH sigraði í 6. flokki karla, vann HK í úrslitaleik, 6-4.
• Hér hefur einn KR-ingur sloppið í gegnum vörn UBK og skorar af miklu
öryggi.
hygli blaðamanna að 6. flokkur karla
hjá KR var þjálfaralaus og var eng-
inn forsvarsmaður frá félaginu með
hðið á sunnudeginum. Svona fram-
koma nær ekki neinni átt og vonandi
taka KR-ingar sér tak og láta slíkt
ekki henda framar.
í úrslitum um þriðja til fjórða sæti
léku UBK og KR. KR sigraði í leikn-
um, 6-4. í úrslitaleiknum voru það
FH-ingar sem unnu HK með 6 mörk-
um gegn 4. Það er því FH sem er
Kiwanismeistari árið 1988 í 6. flokki
karla.
Grótta sigraði
í a-riðli 5. flokks kvenna vann
Grótta alla leiki sína mjög örugglega í öðru sæti, FH fékk 2 stig og Fram
og fékk 6 stig, UBK fékk 3 stig og lenti lenti fjórða sæti með 1 stig.
• Grótta varð Kiwanismeistari í 5. flokki kvenna, hér eru stúlkurnar ásamt þjálfara sínum.
• KR-ingar stóðu sig ágætlega á
mótinu þótt enginn þjálfari hefði
mætt annan daginn, þeir lentu í
þriðja sæti.
í b-riðlinum varð Stjarnan öruggur
sigurvegari. Stjarnan vann alla leiki
sína með miklum yfirburðum. í öðru
sæti varð UMFG með 4 stig. Haukar
fengu 2 stig og KR ekkert stig.
Um þriðja sætið léku því lið UBK
og UMFG. UBK sigraði nokkuð ör-
ugglega í þeim leik, 8-5. En til úrslita
léku Grótta og Stjarnan. Leikur þess-
ara liða var hörkuspennandi og
skemmtilegur og verður að teljast
leikur mótsins. Eftir venjulegan leik-
tíma var staðan jöfn, 3-3. Nokkuð var
um mistök á báða bóga en varnirnar
voru mjög sterkar. í framlenging-
unni tókst íslandsmeisturum Gróttu
aö knýja fram sigur, 6-5. Grótta varð
Kiwanismeistari annað árið i röð.
En það verður gaman að fylgjast með
þessum liðum í úrslitunum í vor því
ljóst er að Grótta þarf að taka á öllu
sínu til þess að verja titilinn þetta
árið.
Það var Þorgils Óttar Mathiesen
landsliðsfyrirliði sem afhenti verð-
launin en allir þátttakendur fengu
merki mótsins að gjöf. Það er Kiwan-
isklúbburinn Eldborg sem gaf alla
verðlaunagripina en framkvæmdin
var í höndum Hauka og stóöu þeir
sig í alla staði mjög vel.