Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 29
Iy^UQARDAGUR 7. .JAKpAR, 198Q. 41 pv___________________________________________________________Handknattleikur unglinga Mót B-liða fimm félaga: Skemmtileg keppni í yngstu flokkunum Þó að keppni í íslandsmóti yngri flokka lægi niðri um áramótin var mikið um að vera á handknattleiks- sviðinu, Haukar héldu veglegt jóla- mót í 5. flokki kvenna og 6. flokki karla eins og skýrt er frá hér á síð- unni. Þá var haldið mót fyrir 4. flokk kvenna í Hafnarfirði sem FH vann eftir úrslitcdeik gegn Fram og kom sigur FH-stúlknanna á mótinu nokk- uð á óvart þar sem þær hafa leikið í neðri deildum framan af vetri. Sigur þeirra var þó verðskuldaður þar sem þær lögðu meðal annars tvöfalda deildarmeistara Breiðabliks að velli á ieið í úrslitin. Að undirlagi Framara var síðan haldið mót fyrir þá leikmenn sem ekki komast að í A-liðum félaga sinna og er hér um reglulega þarft framtak að ræða því sinna verður þörfum Eillra þeirra sem leggja stund á hand- knattleik. Samvinna tókst með Fram, Gróttu, Stjörnunni, Víkingi og KR um að halda mót B-liða í kringum áramótin fyrir 4. og 5. flokk kvenna og 4., 5. og 6. flokk karla og tók hvert félag að sér umsjón í einum flokki. Hörkukeppni á Nesinu Keppni í þessu móti B-liða hófst á Seltjarnarnesi með leikjum í 5. flokki karla. Leikin var tvöfóld umferð og báru KR-ingar sigur úr býtum eftir harða baráttu við Stjörnuna og Fram. KR-ingar töpuðu aðeins öðr- um leiknum gegn Fram og gerðu jafntefli við Víking og Stjörnuna en aðra leiki unnu þeir. Baráttan um 2. sætið var geysilega hörö og spennandi og áttust þar við lið Stjörnunnar og Fram. Liðin urðu jöfn að stigum, þrátt fyrir að Fram tapaði báðum leikjum sínum gegn Stjörnunni, en Stjarnan hreppti 2. sætið vegna innbyrðisviðureignar við Fram. Grótta varð í 4. sæti, vann báða leiki sína gegn Víkingi og gerði jafn- tefli við Fram og Stjömuna. Víkingar hlutu aðeins tvö stig að þessu sinni eftir jafntefli við Fram og KR en í þessu tveimur leikjum náðu þeir að leika reglulega vel. Víkingar sigruðu í 6. flokki Víkingar náðu að hefna fyrir útreið 5. flokks en þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu alla andstæðingana nokk- uðu örugglega. Stjarnan varð í 2. sæti, sigraði Fram, 7-4, og Gróttu, 13-4. Framarar sigruðu síðan Gróttu- piltana öruggglega í leik um 3. sætið, 10-2, og varð því Grótta að gera sér 4. sætið að góðu. KR-ingar mættu ekki til leiks í 6. flokki karla og var aðeins leikin ein umferð. Stjarnan sigraði í Ásgarði I Ásgarði í Garðabæ fór fram keppni í 5. flokki kvenna og börðust Stjörnustúlkur og Framarar um efsta sætið að þessu sinni. Stjaman var með forustu eftir fyrri umferð- ina, hafði þá unnið alla leiki sína en Framarar voru í 2. sæti, töpuðu að- eins fyrir Stjörnunni. Stjarnan tryggði sér síðan sigur í 5. flokki kvenna með því að halda uppteknum hætti í seinni umferðinni og vinna alla leiki sína örugglega nema leikinn gegn Fram sem endaði með eins marks sigri Stjörnunnar. Framarar urðu í 2. sæti, töpuðu aðeins fyrir Stjörnunni en sigruðu aðra andstæðinga sína nokkuð ör- ugglega. Víkingar tryggðu sér 3. sætiö með því að sigra lið Gróttu sem varð í 4. sæti en KR-ingar mættu ekki til leiks. KR sigraði í 4. flokki kvenna Grótta mætti ekki til leiks í 4. flokki kvenna er leikið var í Álftamýri. KR tryggði sér sigur að þessu sinni með því að sigra alla andstæðinga sína og það voru helst Framarar sem veittu þeim einhverja mótspyrnu. Framara voru yfir í fyrri hálfleik en KR-ingar tóku leikinn í sínar hendur í seinni hálfleik og unnu verðskuld- aö. Fram varö í 2. sæti eftir sigur á Stjörnunni og Víkingi en Stjarnan tryggði sér 3. sætið með því aö sigra Víking. Keppni í 4. flokki karla átti að vera í KR-húsinu en af henni hefur ekki orðið og verður því ieikið í íþrótta- húsinu í Álftamýri í dag. Keppnin í þeim flokkum, sem leikiö var í, var mjög skemmtileg og er ljóst að breiðari og betri hópur hand- knattleiksmanna myndi líta dagsins ljós ef öllum þeim er stunda hand- knattleik í ýngri flokkunum yrði sinnt af alvöru. Framtak þessara fimm liða - að efna til keppni fyrir B-liðin - er til mikillar fyrirmyndar og er gleöilegt til þess að vita að ekki er aðeins hugs- að um þá er leika í fremstu víglínu. Það er vonandi að HSÍ taki sig síðan saman í andlitinu og fylgi góðu for- dæmi þessara félaga með því að halda mót B-liða eins og þeim ber. íslandsmót um helgina: Iif að færast í Frá leik Þórs og FH í 3. fflokki karla fyrr í vetur en bæöi þessi lið eiga orugglega efftir að berjast hraustlega í leikjum sínum um helgina. landsliðsmálin? Eins og fram hefur komið á Ungl- ingasiðunni fyrr í vetur viröist lítil sem engin starfsemi hafa verið í gangi í kríngum unglingalandslið- in. Engin æfing hefur verið hjá 16 ára landsliði pilta eftir að þeir gérðu sér lítið fyrir og sigruðu tvöf- alt á Fiugleiðamótinu og það sem meira er - ekki hefur verið haldið úti æfingum um jólin. Ekki virðist hafa verið meira líf í stúlknalandsliði 16 ára og yngri og er þetta furðulegt andvaraleysi hjá stjórn HSÍ þar sem þessi liö eiga að keppa á Beneluxmótinu í apríl. Eitth vert líf virðist vera aö færast í landslið pilta 18 ára og eldri þar sem búið er að boöa liösmpnn á fund og er það vonandi merki þess að æfingar muni hefjast fyrr en síö- ar hjá 18 ára liðinu, svo og 16 ára liðunum enda ekki vanþörf á. í gær hófst keppni í íslandsmóti yngri flokka eftir nokkurt hlé. Leikið er í 3. flokki karla og kvenna og er þetta 2. umferðin sem fer fram í þess- um flokkum en þessari umferð, sem fara átti fram í byrjun desember, var frestað vegna prófa. í 3. flokki karla hófst keppni í gær- kvöldi og verður síðan leikið áfram í dag og á morgun. Að Varmá fer fram keppni í 1. deild og hefur Stjam- an þar deildarmeistaratitil að verja en hún vann alla leiki sína í síðustu umferð. Búast má þó við að önnur liö veiti Stjörnunni harða keppni enda er það skoðun unglingasíðunn- ar að keppni í 1. deild 3. flokks karla sé ein sú jafnasta og mest spennandi í yngri flokkunum nú. í Seljaskóla fer fram keppni í 2. og 3. deild og verður leikið frá morgni til kvölds en í Njarðvík fer síðan fram keppni í 4. deild. Á Akureyri verður hart barist í 1. deild 3. flokks kvenna og fara leikirn- ir fram í íþróttahöllinni: í Vestmannaeyjum fer fram keppni í 2. deild, Húsvíkingar sjá um keppn- ina í 3. deild en í Ásgarði í Garðabæ fer fram keppni í 4. deild. UMSJÓN: Brynjar Stefánsson og Heimir Ríkharðsson Hörkukeppni í 3. flokki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.