Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 4
4 MÁNUÐAGUR 13. MARS 1989. Fréttir Kennarasambandið hikar við verkfallsboðun: Akureyri: „Það hefur engum leiðum verið lokað“ - segir SvanMdur Kaaber, formaður sambandsins „Ég vil ekki lýsa afstöðu minni til þessa máls. Ég vinn fyrir félagið og fylgi þeim ákvörðunum sem þar eru teknar. Persónulegt álit mitt skiptir þar ekki máli. Mínir félagar vita hvað mér þótti en það er búið að taka ákvörðun og samkvæmt henni er unniö,“ sagði Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands ís- lands, í samtaii við DV. Fulltrúaráð sambandsins féli nú um helgina frá þeirri hugmynd að félagsmenn greiddu atkvæði um boð- un verkfalls. Skoðanir voru mjög skiptar um málið, sérstaklega þar sem HÍK, hitt kennarafélagið, hefur látið fara ffam atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Niðurstaða úr þeirri kosningu er ekki enn fengin. „Samningaviðræður eru skammt á veg komnar og fulltrúaráöið taldi aö reyna ætti samningaleiðina til þraut- ar,“ sagði Svanhildur. „Það var líka ákveðið að endurmeta baráttuað- ferðir Kennarasambandsins eftir því hvernig samningaviðræðumar ganga. Það hefur engum leiðum verið lokað.“ „Ég er sátt við að fulltrúaráðið skuli hafa rætt málið ítarlega og komist að sameiginlegri niðurstöðu. Skoðanir voru skiptar á fundinum en ég get ekki kaliað hann deilufund. Það hefur alltaf verið ljóst eftir að félögin ákváðu að vinna saman að kjarasamningum að um tvö félög er að ræða. Auðvitað gat sú staða kom- ið upp að félögin veldu mismunandi leiöir. Það er síður en svo að þessi munur, sem nú er kominn upp, hafi áhrif á áframhaldandi samstarf eða sameiningu félaganna í framtíðinni. Þessi félög eru fulltrúar einnar stétt- ar og auövitað höldum við áfram að vinna mjög náið saman eins og við höfum hingað til gert. Ef til verkfalls kemur hjá HÍK þá munum við sýna fulla samstöðu. Fulltrúaráðið kemur saman aftur eftir um hálfan mánuð og þá munum við endurmeta baráttuaðferðir okkar í ljósi þess hvemig samningaviðræö- ur við ríkiö ganga. Næsti fundur þar er á morgun. Það er algerlega óþol- andi hvemig samningaviðræður hafa verið dregnar á langinn," sagði Svanhildur Kaaber. -GK Eigendur Ávöxtunarbréfa: Fá fyrst greitt eftir tvö ár Tímasetningin var ekkirétt - segir Arthur Morthens „Ég var þeirrar skoðunar að tímasetning á atkvæðagreiöslu um verkfallsboðun væri ekki rétt,“ sagði Arthur Morthens, einn stjómarmanna í Kennara- sambandi íslands. Hann var einn þeirra sera lagöist hvað harðast gegn því að kennarar i samband- inu greiddu nú atkvæöi um boð- un verkfalls. „Þaö er rétt aö fulltrúaráöið var ekki samstiga í afstöðu sinni og sumir vildu láta kjósa en rök þeirra sem vildu atkvæða- greiðslu vom ekki fullnægjandi. Sú varö því ekki niöurstaöan að sinni en það er möguleiki að staö- an verði skoðuð aftur eftir næsta fund með samninganefnd ríkis- ins. Arthur sagöi að þaö skapaði óneitanlega erfiðleika að kenn- arafélögin eru ekki samstiga í kjarabaráttunni. „Við veröum bara aö vona að þetta spilli ekki fyrir samstarfi í framtíðinni,“ sagði Arthur Morthens. -GK Málaferli verða mjög líklega á milli þrotabús Ávöxtunar sf. og skila- nefndar verðbréfasjóða fyrirtækis- ins sem kosta það að eigendur Ávöxt- unarbréfa og Rekstrarbréfa, sem og aðrir kröfuhafar, fá ekkert greitt úr þrotabúunum fyrr en eftir á að giska tvö ár. Einnig liggur fyrir aö bústjór- ar í þrotabúi Ávöxtunar sf. og Hjart- ar Nielsen hf., þeir Hákon Áraason og Sigurmar K. Albertsson, telja sig sjá ýmislegt athugavert í rekstri fyr- irtækjanna sem varði við refsilögin. Sérstök skýrsla þar um verður send til embættis Ríkissaksóknara á næst- unni. „Við teljum að upp hafi komið ýmis atvik í rekstrinum sem varði við refsiákvæði,“ segir Hákon Áma- son bústjóri. Skiptafundur var hald- inn í þrotabúi Ávöxtunar sf. síðast- liðinn fóstudag. Mikil samskipti vom á milli verð- bréfasjóðanna tveggja, Verðbréfa- sjóðs Avöxtunar hf. og Rekstrarsjóðs Avöxtunar hf., og Ávöxtunar sf., einkafyrirtækis þeirra Péturs Bjömssonar og Armanns Reynisson- ar. Ávöxtun er stærsti skuldari verð- bréfasjóðanna tveggja. Skömmu fyr- ir lokun fyrirtækisins greiddi Ávöxt- un sf. til verðbréfasjóðanna með fast- eignum. Deilt er nú um þessar greiðslur. Þrotabú Ávöxtunar sf. vill fá þessar greiðslur til baka en skila- nefnd verðbréfasjóðanna vill halda þeim. Vegna þessa verða líklega málaferli sem seinka greiöslum til eigenda Ávöxtunarbréfa og Rekstr- arbréfa um eitt til tvö ár. Skiptaráðandinn í Reykjavík, Ragnar Hall, er yfirmaður bústjóra í gjaldþrotamálum. Hákon Ámason og Sigurmar K. Albertsson, bústjór- amir í þrotabúum Ávöxtunar sf., Hjartar Nielsen hf. og persónulegum búum Armanns Reynissonar og Pét- urs Bjömssonar munu þvi senda Ragnari skýrslu um meint refsiverð brot í rekstri Ávöxtunar. Ragnar sendir síðan ríkissaksóknara skýrsl- una. -JGH Hús Ávöxtunar að Laugavegi 97. Bústjórar hafa séð refsiverð atvik i rekstri fyrirtækisins. Fjórhjólið fældi hestana Gyifi KriatjároBon, DV, Akureyri; Ökumaður fjórhjóls virtist gera sér þaö að leik á Akureyri á laug- ardaginn aö fæla tvo hesta sem ungtingar sátu á Hlíðarbraut og lá þar við slysi. Þegar fjórhjólið ók framhjá hestunum lét ökumaður þess hvína vel í vélinni meö þeim af- leiðingum að báðir hestamir fældust Unglingamir duttu báöir í götuna og annar hesturinn valt um koll en engin meiðsii urðu, hvorki á unglingunum né hestín- um. Eldur í gúmmí- vinnslunni Gyifi Knstjánsson, DV, Akureyri; Betur fór en á horföist er eldur kom upp í Gúmmívinnslunni viö Réttarhvamm á Akureyri um miðjan dag á laugardag. Tveir menn höfðu verið að vinna þar við rafsuðu er eldur komst í einangrun hússins. Mennirnir gátu haldiö eldinum í skefjum með handslökkvitækj- um þar til slökkviliðið kom á vett- vang og lauk verkinu á skömm- um tíma. Skemmdir urðu litlar. Ökumenn alls- gáðir við stýri Gyifi Kristjánason, DV, Akureyrl' „Þetta er ánægjuleg útkoma og bendir til þess að ökumenn láti ökutæki sín vera ef þeir hafa neytt áfengis eða bjórs,“ sagði Gunnar Randversson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, vegna könnunar sem lögreglan gerði um helgina. í þessari könnun vora stöðvað- ar á annað hundrað bifreiöir og kannað hvort ökumenn þeirra væra ölvaðir. Er skemmst fi-á þvi aö segja aö allt reyndist í lagi í öllum tilfellum, enginn „stútur" var við stýriö. I dag mælir Dagfarí__________________ Talið í öllum sveitum Á næstu vikum munu hreppstjórar og aðrir löggæslumenn verða á þönum út um allar jarðir við aö telja búfé. Þessir talningarmenn hins opinbera munu fara í hvert fjós og telja nautgripi, sitja í hverj- um hænsnakofa landsins og skrá fiölda fiöurfénaöar, auk þess sem teþa þarf aðra alifugla, svin, kind- ur, geitur og loðdýr sem og hross. Ekki hefur komið fram hvort hundar og kettir verða taldir í leið- inni. Þetta er ærið verkefni og get- ur eflaust reynst erfitt í fram- kvæmd því það er til dæmis ekki heiglum hent að kasta tölu á fleiri hundraö hænur sem valsa hver innan um aöra á hænsnabúi. Þá er hætt viö aö torvelt verði að telja hross sem era á útigangi út um allar sveitir. Fram til þessa hafa hrossabændur í Skagafirði ekki staðið undir nafni ef þeir hafa haft tölu á hrossum sínum. Talningar- menn hins opinbera mega því hafa sig alla við til að komast yfir þetta verkefni. Þá bætir það eklti úr skák aö bændur hafa brugðist illa viö þessu framtaki. Þeir taka þetta sem ásökun um aö þeir steli undan skatti og telji ekki fram allan sinn búfénað. Hafa einstakir bændur lýst því yfir að það sé nær aö byija að kanna eignir einhverra annarra en bænda sem séu heiðarlegustu menn landsins og er óþarfi að draga þær fullyrðingar í efa. Engu að síður era margir þeirrar skoð- unar að sitthvað fari milli mála þegar birtar era tölur um búfjár- eign landsmanna. Sagt er að þegar fé er skoriö niður í sveitum vegna riðuveiki komi í ljós fjöldi fjár sem - hvergi hafi komist á pappír fyrr en þaö var skorið og fyrir það greitt úr opinberum sjóðum. Á sama hátt gufa kýr upp á óskiljanlegan hátt í sláturhúsum en nautum fjölgar að sama skapi. Neytendur hafa oft undrast þessi snöggu kynskipti sem eiga sér stað frá sláturhúsum í verslanir því staðreyndin er sú að þrátt fyrir aö kúm sé lógað í miklum mæh er kýrkjöt ekki á boðstólum verslana almennt. Hvað sem líður mótmælum bænda er ekki nema eðlilegt aö landbúnaðarráöuneytið freisti þess aö skrá allan bústofn landsmanna. Þeir í ráðuneytinu vfija hafa ein- hvem ákveðinn grundvöll til að byggja sína útreikninga á þegar þeir era aö reikna út styrki, upp- bætur, niöurgreiðslur, lán og nið- urfellingu gjalda, svo fátt eitt sé nefnt um alla þá skriffinnsku sem fylgir því vandas^ma hlutverki að stýra landbúnaði hér á landi. Allan daginn sitja menn með sveittan skallann á ótal kontórum viö út- reikninga af þessu tagi og era þeir loksins búnir aö reikna þaö út að þaö hafi sennilega verið vitlaust gefiö. Bændur hafa þó litla samúð með reiknimeisturum kerfisins og glotta bara út í annað um leiö og þeir fullyrða aö þeir þekki ekki nokkur dæmi þess að öll skepnu- eign sé ekki gefin samviskusam- lega upp til skatts. Það sé ekki sök bænda þótt kontóristar í Reykjavik kunni ekki á reiknistokka sína. Löggæslumenn út um land era nú sem óðast að æfa sig á vasat ölvur og önnur reikningstæki og sagt er að sumir séu þegar famir að telja kindur þegar þeir era gengnir til náöa á kvöldin. Almennt prísa þeir sig sæla yfir því að ekki hafi enn verið skipað að telja seiði í eldisstöðvum, en hver veit nema það verði næst á dagskrá? Svo þeg- ar talningu er lokið út um allar hreppagrandir eru niðurstöður sendar í landbúnaðarráðuneytiö þar sem reiknimeistarar þess taka til við að yfirfara og leggja saman. Má reikna með að það taki nokk- um tíma að fá út heildarfjölda búfj- ár og hvernig sú tala kemur út í samanburði við þær tölur sem hingað til hafa verið notaðar. Úrsli- tanna er beðið með mikilli eftir- væntingu því landbúnaður er nú einu sinni okkar ær og kýr eins og allir vita. Það er svo allt önnur ella hvort þessi allsheijar skráning á skepnuhaldi breytir einu eða neinu frá núverandi kerfi sem hefur slíkt orð á sér að bæði Guömundur jaki og Haukur Stéttarsambandsform- aður era sammála um að almenn- ingur ætti að hætta að kaupa land- búnaðarvörur. Og ekki bætir það úr skák ef talningin mikla leiðti í ljós að búfé er mun færra en ætlað var. Þá hfjótum við að hafa verið fram að þessu að éta kjöt af skepn- um sem ekki vora til og þá fyrst fer máliö aö vandast fyrir alvöra. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.