Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. Iþróttir Tveir sigrar hjá Önnu M. Malmquist Anna María Malmquist frá Akureyri var mjög sigursæl á tveimur bikarmót- um á skíöum sem fram fóru á Dalvík um helgina. Á báöum mótunum var keppt í stórsvigi. A laugardag sigraði Anna María í stórsviginu og fékk tímann 158,84 sek. María Magnúsdóttir frá Akureyri varð önnur á 160,17 sek. og Margrét Rúnars- dóttir frá ísafirði varð þriðja á 161,49 sek. í stórsvigi karla sigraði Valdimar Valdimar8son frá Akureyri á 146,07 sek. Helgi Geirharðsson, Reykjavík, varð annar á 147,03 sek. og þriöji varð Daniel Hilmarsson frá Dalvík á 147,83 sek. í gær var síðan keppt aftur i stórsvigi í miklu blíðskaparveðri. Þá sigraði Anna María Malmquist frá Akureyri aftur f kvennaflokki. í gær kom hún í mark á 153,13 sek. Önnur varð María Magnús- dóttir frá Akureyri á 153,60 sek. og Margrét Rúnarsdóttir frá ísafirði varð aflur þriðja á 156,60 sek. f gær tókst siðan Helga Geirharössyni að bera sigur úr býtum í stórsviginu. Hann fékk þá tímann 141,69 sek. Valdi- mar Valdixnarsson frá Akureyri varð annar á 143,18 sek. og Daníel Hilmarsson frÁ Dalvík varð aftur þriðji á 144,97 sek. Mótin þóttu takast mjög vel og veður- guðirnir léku við hvem sinn fmgur. -SK Fimleikamót Islands: íslandsmeistararnir hafa tekið forystu • Þórdís Edwald og Broddi Kristjánsson, TBR, voru mjög sigursæl á meist- aramóti Reykjavikur í badminton sem fram fór í TBR-húsinu um helgina. Þau Þórdís og Broddi voru kampakát í mótslok i gær eins og þessi mynd ber með sér. Broddi varð þrefaldur meistari og Þórdís Edwald tvöfaldur meistari. DV-mynd S Reykjavíkunnótið í badnxinton: íslandsmeistaramir í flmleikum, Lánda S. Pétursdóttir, Björk, og Guðjón Guðmundsson, Árraanni, hafa tekiö for- ystuna í keppninni um íslandsmeistara- titlana í fimleikum. Mótið er tviskipt Um helgina var keppt í skylduæfingum en að viku lið- inni verður keppt f fijálsum æfingum og þær einkunnlr sem þá nást verða lagðar vlð einkunnimar fyrir skylduæf- ingamar. Linda S. Pétursdóttir, sem kepplr fyrir Björk í Hafharfirði, náöi bestum árangri f kvennakeppninni um helgina. Hún fékk 36,30 stig. í öðru sæti varð Bryndís Guömundsdóttir, Ármanni, en hún fékk 35,19 stig. Fjóla Ólafsdóttir, Ármanni, varð þriðja í skylduæfingunum og fékk í einkunn 34,45 stig. . í karlakeppninni hefúr Guðjón Guö- mundsson, Annannl, forystu en hann er núverandi íslandsmeistari l fimleik- um karla. Jóhannes Níels Sigurösson, Ármanni, er annar í karlakeppninni og Guömundur Þór Brynjólfsson, Gerplu, þriöji. Keppnin í fijálsu æfingunum fer frara umnæstuhelgi. -SK Fréttastúfar Sænski kylfingurinn Ove Sellberg vann í gær sigur á móti atvinnu- manna í golfi sem fram fór á Spáni (Evróputúrnum). Sellberg hefur því unnið tvo sigra á keppnistímabilinu og er fyrsti Svíinn sem það gerir. Með þessum sigri Svíans aukast lík- umar verulega á því aö hann komist í Evrópuúrvalið sem keppir við Bandaríkjamenn um Ryder Cup bik- arinn á þessu ári. Frost sænskur meistari Danski badmintonleikarinn Morten Frost varð í gær sænskur meistari í badminton er hann sigraði Indónés- íumanninn Allan Budi Kusuma, 15-4 og 15-4, í úrslitaleik í einliðaleik karla á opna sænska meistaramót- inu. Frost sagði eftír sigurinn: „Ég fer brátt að hætta í einliðaleiknum. Ég er orðinn 33 ára og fjölskyldan þarf sinn tíma.“ Sigrar hjá PSV og Benfica PSV1 Hollandi og Benfica í Portúgal þokast stöðugt nær meistaratitlum í knattspymunni í löndunum tveim- ur. Benfica gerði um helgina markalaust jafntefli gegn Porto ög PSV Eindhoven sigraði and- stæðing sinn. Bæði hafa liðin sex stíga forskot og ættu að vera ömgg um sigur í hollensku og portúgölsku knattspymunni. Þórdís og Broddi voru í banastuði - Broddi Kristjánsson þrefaldur meistari Þau Þórdís Edwald og Broddi Kristjánsson virðast vera í nokkr- um sérflokki í einliðaleik í badminton hér á landi. Um helgina sýndu þau enn og sönnuðu yfirburði sína er þau tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratítilinn í einliðaleik. Þau Þórdís og Broddi urðu íslandsmeistarar á dögunum og áttu ekki í teljandi erfiðleikum með að tryggja sér þá títla. Um helgina varð Broddi þrefaldur Reykjavíkurmeist- ari og Þórdís Édwald tvöfaldur meistari. Mikið verður um að vera á íþróttasviðmu hér á landi í kvöld. FH og Kraznodar leika síðari leik sinn í Hafnarfirði í kvöld. Þá leika Njarðvíkingar og KR-ingar síðari leik sinn í úrslitakeppninni í körfuknattleik og fer leikurinn fram í íþróttahúsi Hagaskóla. Loks má geta þess aö KR og Grótta Jeika í l. deild íslands- mótsins í handbolta i Höllinni í kvöld. • Broddi Kristjánsson, TBR, lék gegn Þorsteini Páli Hængssyni, TBR, í úrslitum í einiiðaleik karla í úrvals- flokki. Þeir mættust einnig í úrslitum á íslandsmótínu. Nú sigraði Broddi, 15-12 og 15-4. • Þórdís Edwaid, TBR, lék gegn Kristínu Magnúsdóttur, TBR, í úr- slitum í einliðaleik kvenna í úrvals- flokki. Þórdís hafði mikla yfirburði, sigraði 11-0 og 11-8. • í meistaraflokki karla sigraði Ámi Þór Hallgrímsson, TBR, Frí- mann Ferdinandsson, Víkingi, 15-1 Og 15-5. • í einliðaleik í öðlingaflokki léku KR-ingamir Friðleifur Stefánsson og Reynir Þorsteinsson til úrslita. Frið- leifur sigraði, 15-4 og 15-3. • í einliðaleik kvenna í a-flokki sigraði Anna Steinsen, TBR, Maríu Thors, KR, 11-5 og 11-7. • í einliðaleik karla í a-flokki varð Skúli Þórðarson, TBR, Reykjavíkur- meistari. Hann sigraði Gunnar Pet- ersen, TBR, 18-13 og 15-3. • í tvíliðaleik kvenna í a-flokki sigruðu þær Sigrún Erlendsdóttir og Anna Steinsen, TBR, Elínu Agnars- dóttur og Sigríði M. Jónsdóttur, TBR, 17-16 og 15-11. • Þeir Gunnar Bollason og Skúli Þórðarson, TBR, urðu meistarar í tvíliðaleik í a-flokki. Þeir sigruðu þá Gunnar Petersen og Sigurþór Þór- tiallsson, TBR, 15-8 og 15-9. • í tvíliðaleik í öðlingaflokki sigr- uðu KR-ingarnir Óskar Guðmunds- son og Friðleifur Stefánsson þá Reyni Þorsteinsson og Braga Jakobsson, sem einnig eru í KR, 15-9, 9-15 og 15-2. • Kristín Magnúsdóttir og Guðrún Júlíusdóttir, TBR, unnu Þórdísi Ed- wald og Birnu Petersen, TBR, í úr- slitum i tvíliðaleik í meistaraflokki, 15-7 og 15-10. • í tvíliðaleik karla í meistara- flokki unnu þeir Broddi Kristjánsson og Þorsteinn Páll Hængsson, TBR, þá Sigfús Ægi Ámason og Huang Wei Cheng, TBR, í miklum hörku- leik, 13-15, 18-16 og 15-11. • Broddi Kristjánsson tryggði sér þriðja Reykjavíkurmeistaratítilinn er hann ásamt Þórdísi Edwald vann sigur í tvenndarleik í meistaraflokki. Þau léku gegn Þorsteini Páli Hængs- syni og Kristínu Magnúsdóttur, TBR, og sigmðu 16-17,15-4 og 17-16 í mjög skemmtilegum og spennandi leik. • í tvenndarleik í a-flokki sigruðu Gunnar Bollason og Sigríður M. Jónsdóttir, TBR, þau Viðar Gíslason, Víkingi, og Elínu Agnarsdóttur, TBR, 18-16 og 15-5. • Reykjavíkurmótið þótti takast vel að þessu sinni og margir úrslita- leikimir vora bráðskemmtílegir. Meö þessu móti má segja að keppnis- tímabil badmintonmanna hafi lokið fyrir utan keppni erlendis og deilda- keppnina sem fram fer 8. og 9. apríl. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.