Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. 15 Burt með matarskattinn Land Lægra þrep Aðal- þrep Lúxus- þrep Belgía 6og17 ' 19 25og33 Bretland 0 15 Danmörk 22 V-Þýskaland 7 14 Spánn 6 12 33 Frakkland 5,5 og 7 18.6 33,3 Irland 0og10 23 Ítalía 2og9 18 38 Lúxemborg 3og6 12 Holland 5 19 Portúgal 8 16 30 (1) Grikkir hafa enn ekki tekið upp virðisaukaskatt. Virðisaukaskattþrep í % i löndum Evrópubandalagsins. Staða miðuð við 1. janúar 1986 (1). í þeim viðræðum, sem fóru fram miUi Borgaraflokksins og stjórnar- flokkanna í janúar sl. um hugsan- legt stjórnarsamstarf, setti Borg- araflokkurinn m.a. fram þá kröfu, að söluskattur á matvælum yrði feUdur niður eða lækkaður veru- lega. I fyrsta lagi var um að ræða að breyta núverandi söluskattskerfi þannig að söluskattur á helstu inn- lendu matvælum svo og innfluttu grænmeti yrði lækkaður úr 25% í a.m.k. 12%. í öðru lagi var svo um það að ræða að notuð yrðu tvö skattþrep í virðisaukaskatti, sem skv,. lögrnn verður tekinn upp frá 1. janúar 1990. Ríkisstjómin vUdi ekki faUast á þessa kröfu Borgara- flokksins og því sUtnaði upp úr við- ræðunum eins og öUum er kunn- ugt. Helsta röksemd fuUtrúa ríkis- stjómarinnar gegn þessum kröfum Borgaraflokksins var mnhyggja fyrir ríkissjóði, en afkoma hans er sett í fyrsta sæti. Ekki var taUð koma til greina að láta ríkissjóð verða af þeim tekjum, sem fást með álgningu söluskatts á matvæU. Rík- isstjómin hefur hins vegar minni áhyggjur af afkomu heinúlanna í landinu og engar áhyggjur af af- komu fyrirtækja annarra en frysti- húsa úti á landi. Við vUjum hins vegar setja af- komu heinnlanna í fyrsta sæti, af- komu fyrirtækjanna í landinu í annað sæti og afkomu ríkisins í þriðja sæti. Það er nefnUega trú okkar að sé afkoma heimUanna og fyritækjanna sæmUeg þá sé auð- veldara að tryggja afkomu ríkis- sjóðs, þ.e. haUalausan ríkisrekstur. TU þess að árétta kröfur flokksins um lækkun á verði matvæla og annarra helstu nauðsynja heimU- anna höfum við þingmenn Borg- araflokksins lagt fram tvö frum- vörp tíl laga þar að lútandi í efri deUd Alþingis. Hér skal lýst tUlögu um virðisaukaskatt meö tveim þrepum. Ailtofdýr matvæli Haustið 1987 var söluskattskerf- inu breytt þannig að lagður var 10% söluskattur á helstu innflutt matvæU. Um áramótin 1987/88 var söluskattslögunum síðan breytt þannig að söluskattsstofninn var KjaUariim Júlíus Sólnes, alþingismaöur og formaður Borgaraflokksins breikkaður og ýmsar imdanþágvu- sem höfðu verið í gUdi, m.a: að matvæU væru án söluskatts, feUd- ar niður. Með þessari breytingu var lagður 25% söluskattur á mat- væU sem hækkuðu verulega í verði. Með sérstökum niðurgreiðslum á nokkrum hefðbundnum innlend- um matvælum, þ.e. mjólk og mjólk- urvörum, dUkakjöti og neyslufiski, var söluskattsáhrifunum að mestu eytt. Þá voru teknar upp takmark- aðar niðurgreiðslur á nauta-, kálfa- og hrossakjöti, þannig að þessi matvæU hækkuðu um rúmlega 10% í verði. Með sérstökum endur- greiðslum í gegnum fóðurbætis- skattkerfið var komið í veg fyrir að kjúkUnga- og svínakjöt hækkaði meira en u.þ.b. 10% í verði. ÖU önnur matvara var hins vegar látin bera söluskattshækkunina að fullu, t.d. brauð- og komvörur og grænmeti, aUar unnar kjötvömr svo og öU innflutt matvæli. Fáar eða engar ráöstafanir ís- lenskra stjómvalda hafa mætt eins mikiUi andstöðu almennings og álagning söluskatts á matvæU. Þrátt fyrir niðurgreiðslur á sölu- skatti vegna ofangreindra hefð- bundinna matvæla hefur matar- kostnaður heimilanna hækkkað gífurlega. Verð matvæla á íslandi hefur aUa tíð verið mjög hátt. Þess vegna er hlutur matarinnkaupa í rekstri heimilanna mun hærri hér á landi en annars staðar. TaUð er að vísi- tölufjölskyldan noti um fimmtimg tekna sinna til matarinnkaupa. Einkum kemur hátt verð á matvæl- um Ula niður á lágtekjuhópunum sem nota mun hærri hlut tekna sinna til matarinnkaupa eða aUt að 35%, að því er taUð er. Einhver besta kjarabót, sem hægt er að veita launþegum, er án efa að lækka verð á matvælum með öUum tíltækum ráðum. Verð á iim- lendum landbúnaðarvörum á ís- landi hlýtur aUtaf að vera hátt og eiga þær erfltt með að standast samkeppni við erlendar landbún- aðarafurðir, þar sem skilyrði tíl landbúnaðar eru miklu hagstæðari og stærð markaðaima margfalt meiri. Þótt hægt sé að skattleggja land- búnaðarafurðir með 22% virðis- aukaskatti, t.d. í Danmörku, er ekki um sambærilegan hlut að ræða, þar sem verð búvöru þar er mun lægra en á íslandi. íslenskar land- búnaðarafurðir þola einfaldlega ekki mikla skattlagningu, enda er með óbeinum hætti veitt miklum fjármunum tíl landbúnaðar á ís- landi sem skattgreiðendur verða að taka á sig. Er vart á það bæt- andi. Þá má ekki gleyma áhrifum hins geipiháa matvælaverðs á íslandi á ferðamannaþjónustu og rekstur veitingahúsa. Sú þjónusta stendur nú mjög höUum fæti vegna hins háa matvælaverðs. Útlendingum, sem hingað koma, blöskrar verð- lagið og sá vaxtarbroddur, sem ferðamannaþjónustun hefur verið síðustu árin, fólnar skjótt. Skattlagning matvöru í lönd- um Evrópubandalagsins í flestum löndum Evrópu eru matvara og aðrar helstu nauðsynj- ar heimUanna skattlagðar minna heldur en aðrar vörur og þjónusta. Þannig er t.d. 0% virðisaukaskatt- ur á matvælum í Englandi og á ír- landi, sjá meðfylgjandi yfirht yfir virðisaukaskattþrep í löndum Evr- ópubandalagsins. Samkvæmt töfl- unni hafa öU ríkin nema Danmörk mun lægri skattlagningu á matvæl- um og helstu nauðsynjum eða mest 8% á matvælum í Portúgal. Mörg ríkjanna eru með þriðja og hæsta þrep virðisaukaskatts fyrir ýmiss konar lúxusvörur, t.d. 38% á ItaUu. Með þeirri samræmingu á skatt- lagningu, sem stefnt er að hjá Evr- ópubandalaginu, er gert ráð fyrir því að notuð verði tvö skattþrep í virðisaukaskatti. Lægra skattþrep- ið verði á biUnu 4-9% og látið gUda fyrir matvæU, orku til upphitunar og ljósa, vatn, lyf, bækur, blöð og tímarit svo og fargjöld vegna fólks- flutninga. Þetta nær yfir mikUvæg- ustu aðfóng heimUanna. Hærra skattþrepið verði á biUnu 14-20% og nái yfir allar aðrar viröisauka- skattskyldar vörur og þjónustu. Tvö skattþrep í virðisauka- skatti Að sjálfsögðu er engin þörf fyrir íslendinga að aðlaga sig nákvæm- lega að skattkerfi Evrópubanda- lagsríkjanna. Má m.a. benda á að Svisslendingar hafa þrisvar sinn- um hafnað því með þjóðaratkvæð- argreiðslu að taka upp virðisauka- skatt. Virðisaukaskattur hefur hins vegar verið lögleiddur á íslandi og er því ekki um annað að ræða en að gera hann þannig úr garði að matvælakostnaður heimUanna verði ekki sá baggi sem hann er nú. Eina leiðin tíl þess er að taka upp annað og mun lægra virðis- aukaskattþrep fyrir matvæU eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. í gUdandi lögum er virðisaukaskatt- ur ákveðinn 22% á aUar skattskyld- ar vörur og þjónustu. Með frum- varpinu er hins vegar gert ráð fyr- ir tveim skattþrepum, þ.e. skatt- lagning má vera allt að 12% fyrir matvæU og aðrar helstu lífsnauð- synjar samkvæmt reglugerð og allt að 24% fyrir aUt annað. Við gerð fjárlaga skal skatthlut- falUð ákveðið fyrir komandi flár- lagaár og þá hægt að hafa það lægra efaðstæður leyfa. Þanniggetur sitj- andi ríkisstjóm nýtt sér heinnld til að hækka eða lækka virðisauka- skatt í hagstjómarskyni innan þeirra marka sem frumvarpið gerir ráð fyrir, án þess að þurfa aö breyta lögum hveiju sinni. Með því að setja skatthlutfalUð í hærra þrep- inu 24% er reynt að bæta ríkissjóði upp þann tekjumissi sem hlýst af hinu lægra skattþrepi fyrir nauð- synjavörur. Júlíus Sólnes „Einhver besta kjarabót sem hægt er að veita launþegum er án efa að lækka verð á matvælum með öllum tiltækum ráðum.“ Stúdentaráð - Til hvers? „Undanfarin ár hafa verið mikil átök um hvers eölis stúdentaráð HÍ eigi að vera“, segir m.a. í greininni. Þann 15. mars em kosmngar til stúdentaráðs Háskóla íslands. í hugum margra stúdenta er stúd- entaráð einhver fjarlæg stofnun sem kemur þeim lítið eða ekkert við. Nú kynni einhver aö spyija hvemig stæði á því að stúdentar hefðu almennt svona Utinn áhuga á stúdentaráði, ráði sem á að vera sameingartákn stúdenta og andUt þeirra út á við. Ástæðan er einfold, ráðið hefur á sér neikvæðan póU- tískan stimpU sem hefur valdið því að fæstir hafa Utið á stúdentaráðs- Uða sem fuUtrúa sína heldur frem- ur sem unga póUtíkusa í sand- kassaleik er nota ráðið sem æfinga- búðir fyrir Alþingi og sveitar- stjómir. Svona var þetta Uka til skamms tíma enda dvínaði áhugi hins almenna stúdents og kjörsókn féU langt undir 50%. Þessari öfug- þróun hefur Vaka verið að breyta á síðustu árum. Vettvangur þjóðmálaum- ræðu eða aðeins hags- munabaráttu Undanfarin ár hafa verið mikU átök um hvers eðlis stúdentaráð HÍ eigi að vera. í stúdentaráði starfa nú tvær fylkingar; Vaka, fé- lag lýðræðissinnaðra stúdenta og Röskva, samtök félagshyggjufólks. Þessar fylkingar togast á um að stjóma stúdentaráði Háskóla ís- lands, en um þessar mundir er það Vaka sem heldur um stjómar- KjaUarinn Sigurjón Þ. Árnason frambjóðandi Vöku til háskólaráös taumana. FyUdngamar hafa nokk- uð keimlíkar skoðanir á flestum hagsmunamálum stúdenta, má segja að fremur sé um stigsmun en eðUsmun að ræða. Það sem skUur félögin að er afstaöa til sjálfs stúd- entaráð s, þ. e. livert sé hlutverk og eðU ráðsins. Mismunandi viðhorf Annars vegar er það stefna Röskvu að stúdentaráð skuU vera póUtísk stofnun sem eigi að taka afstöðu í póUtískum málum fyrir hönd stúdentaráðs. Hins vegar er það stefna Vöku að í stúdentaráði skuU einungis rædd þau mál sem varða hagsmuni stúdenta beint og öðrum málum haldiö utan ráðsins. Vaka vUl að stúdentaráð sé óháð, faglegt hagmunafélag, eins konar sameiginlegt stéttar- og nemenda- félag stúdenta en ekki póUtísk stofnun. Þessari stefnu hefur Vaka fylgt í vetur og haldið póUtískum þrætumálum eftir mætti fyrir utan stúdentaráð og m. a. hafnað öUum hugmyndum Röskvu um að SHÍ gerist aðiU að póUtískum samtök- um eða kosti ráðstefnur um Afr- íska þjóðarráðið. Ópólitískt stúdentaráð Hver er skyldi vera ástæðan þess að Vaka leggur slíka ofuráherslu á aö SHÍ sé ekki vettvangur stjórn- málaumræðu? Skýringarnar eru í raun margþættar. Reynsla undan- genginna ára hefur sýnt aö um leið og byijað er að ræða um póUtísk mál eru stúdentaráðsfundir fijótir að leysast upp í hörkurifrildi og Ul- defiur og þau mál sem verulega skipta máU, svo sem menntamál, lánamál, dagvistun og önnur hags- munamál stúdenta, faUa í skugg- ann fyrir póUtísku þrasi. Umræður og ályktanir um ástand mála í S- Afríku, E1 Salvador, vinnudefiur og verkfóU taka tíma frá brýnum hagsmunamálum og starf stúd- entaráðs fer út um þúfur. Annað mikfivægt atriði er að stúdentaráði er ætlaö að vera sameiningartákn aUra stúdenta. Til að svo megi verða verður að ríkja sem mest ein- ing um stúdentaráö meðal stúd- enta; félagsmanna. Félag án mór- alsks stuðnings síns félagsfólk stendur á brauðfótum. Því meira sem stúdentaráð vasast í almennri stjómmálaumnræðu, því meira sem vikið er frá hinum eiginlegu hagsmuna- og félagsmálum stúd- enta, þeim mun meira aukast líkur á óánægju stúdenta. Stefna Vöku er skýr, póUtískt dægurþras utan stúdentaráðs. Einungis þannig má vinna til baka trú stúdenta á ráð- inu. Að þessu hefur Vaka unnið í vetur og spumingin er hvort stúd- entar em tilbúnir til að styðja Vöku í áframhaldandi baráttu sinni fyrir ópóUtísku stúdentaráði, um þetta snúast kosningarnar. Sigurjón Þ. Árnason „Vaka vill aö stúdentaráö sé óháð, fag- legt hagsmunaféiag, eins konar sam- eiginlegt stéttar- og nemendafélag stúd- enta en ekki pólitísk stofnun.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.