Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989.
Viðskipti_______________________dv
Fólk er farið að spara
við sig í samdrættinum
- í hvað fara launin þín?
Pantanir i sólarlandaferðir hafa snarminnkaö. Að sama skapi hefur innflutn-
ingur á bilum og dýrum tækjum og húsgögnum minnkað. Eftir þensluár
undanfarið eru íslendingar greinilega farnir að spara við sig.
Þegar íslenskir fararstjórar suöur á
Spáni sögðu í fyrrasumar aö íslend-
ingar á sólarströndum eyddu ekki
eins miklu á vínbörunum og áður
urðu fleiri en suðrænir þjónar hissa.
Þetta þótti óvenjulegt því íslendingar
á sólarströndum hafa alltaf slegið um
sig. Síðan hafa hðið átta mánuðir og
menn í íslensku viðskiptalífi hafa nú
á orði að fólk sé greinilega farið að
spara við sig í eyðslu hér heima.
Landinn sparar þó engan veginn við
sig á öllum sviðum. Þannig sýnist
mesti samdrátturinn vera í innflutn-
ingi bíla, utaniandsferðum, kaupum
á dýrum tækjum og húsgögnum, svo
það helsta sé nefnt.
Markaðsstjórar
logandi hræddir
Margir markaðsstjórar hjá íslensk-
um fyrirtækjum eru þessa dagana
logandi hræddir. Frá því bráða-
birgðalög ríkisstjómarinnar vom
sett í fyrravor hefur almennt verðlag
hækkað um 10 til 12 prósent á meðan
laun hafa staðið í stað, fyrir utan 1,25
prósent launahækkunina sem kom
til í febrúar. Þetta segir fólki aftur
gróft talaö að tekjur þess hafa lækkað
að raunvirði um þetta 8 til 10 pró-
sent. Og það er jafnvel von á frekari
skerðingu. Fólk finnur þetta best á
buddunni. Hún dugar skemur en
áður í innkaupum.
Verðhækkanir 1. mars
Fyrir utan létta pyngju er fólk æva-
reitt vegna þeirra verðhækkana sem
hafa orðið eftir að verðstöðvuninni
lauk 1. mars. Þessar hækkanir hafa
meðal annars orðið:
Sérleyfíshafar..............14 %
Hópferðir................... 12%
Vöruflutningar.................7%
Mjólk..........................7%
Dagblöð.....................12,5%
Bensín.......................4,6%
Hitaveita......................8%
Rafmagn........................8%
Strætó........................25%
Ríkisútvarp...................28%
Bílatryggingar................20%
Þetta em aðeins nokkur dæmi um
veröhækkanir sem skullu á hinn 1.
mars. Fólk fmnur greinilega aö það
hefur minna af peningum á milh
handanna en áður.
Sú gusa verðhækkana, sem varð
1. mars, skhar sér í hærri fram-
færsluvísitölu en áður. Ný fram-
færsluvísitala verður einmitt birt í
dag og er gert ráð fyrir að hún hækki
um 2,5 prósent th 3 prósent frá því í
síðasta mánuði, mest vegna áður-
nefndra hækkana. Þessi mánaðar-
hækkun gerir um 30 prósent verð-
bólgu á einu ári.
Jafnmikið keypt af mat
Á matvælamarkaðnum virðist ekki
hafa orðið samdráttur í sölu frá því
í fyrra. Það er heldur ekki aukning.
Þó hafa kaupmenn orðið varir viö
að hendur fólks leita meira á ódýru
vörumar en áður. Þetta er þó ekki
alght.
En hvemig má það vera ef launin
em að rýma að ekki virðist sam-
dráttur hjá matvöruverslunum?
Kenningin er sú að fólk treysti sér
ekki th að draga þar saman, auk þess
sem það hafi rýmri peninga th að
kaupa matvæh eftir aö það hefur
hætt við að fara í sólarlandaferðina
í ár, hætt við að skipta um íbúð,
hætt við að kaupa nýjan bh, hætt við
að kaupa nýju húsgögnin og hætt við
að taka lán fyrir hlutunum þar sem
vextir af lánum era háir og kostnað-
arsamir þegar upp er staðið. Fólk
segir sem svo; þaö er dýrt að taka lán.
Verður sölulínan
niður næstu mánuði?
Það er vegna þessara ástæðna sem
margir markaðsstjórar fyrirtækja
klóra sér í kolhnum og spyrja hvern-
ig salan verði á næstu mánuðum við
þessar aðstæður. Spumingin er ein-
faldlega sú að þegar launin hafa stað-
ið í stað í marga mánuði en verðlag
hækkað um 10 prósent og th viðbótar
bættist gusa veröhækkana 1. mars
að markaðurinn þoh einfaldlega ekki
hækkanir annars staða.
Grimm samkeppni
og kjararýrnum
Oðravísi talað þá reiknast tekjur
fyrirtækja þannig að margfaldað er
saman magn og verð. Út fást verð:
mæti. Ef aðeins verðið hækkar en
fólk hefur sömu tekjur eða lægri en
áöur hlýtur það að leiða th þess að
minna magn selst. Það era þessi
sannindi sem fjármála- og markaðs-
stjórar era að tala um inni á lokuðum
fundum fyrirtækja um þessar mund-
ir. Þeir hringja bjöhum og gefa að-
vöranartón. Samkeppni í viðskipta-
lifmu tryggir líka að ef einn hækkar
verðið þá fer fólk einfaldlega th ann-
ars og kaupir vörana eða þjón-
ustuna.
Fasteignamarkaðurinn
í jafnvægi
Það vekur athygli aö á fasteigna-
markaönum segja menn að markað-
urinn sé í jafnvægi. Hvemig má þaö
vera ef launin hafa lækkað? Því
svara fasteignasalar þannig að sam-
dráttur hafi orðið í sölu fasteigna á
síðasta ári, ekki síst þegar kom fram
á haust. En frá því í haust hafi jafn-
vægi ríkt og verð fasteigna hækkað
um það sama og almennt verðlag í
landinu.
Þá bendir margt th þess að á stærri
fasteignasölum sé meira að gera en
á þeim smærri eftir að ný lög um
fasteignasölur vora sett á síöasta
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
ári. Fólk er meira með fasteignir sín-
ar í einkasölu en áður.
Sjálfvirkt húsnæðiskerfi
Skýringin á því að th era peningar
á fasteignamarkaðnum er auðvitað
sú að húsnæðiskerfiö spýtir sjálf-
virkt inn peningum á markaðinn.
Sótt er um lán og svar berst í lánslof-
orðum og er þá miðað við að lánið
sé borgað út á ákveðnum degi. Hafi
umsækjandi ekki keypt íbúð þegar
húsnæðislánið á að greiðast gefur
Húsnæðisstofnun 3ja mánaða við-
bótarfrest th kaupanna. Eftir þessa
þrjá mánuði fellur lánsloforðið úr
gildi og umsækjandi fer aftur í bið-
röðina. Þetta þýðir að það að bíða
með að kaupa íbúð vegna óvissu í
efnahagsmálum er hlutur sem eng-
inn gerir. Kerfið hvetur sjálfvirkt th
að keyptar séu íbúðir. Þess vegna er
ekki hrun á fasteignamarkaðnum
þrátt fyrir svartar spár ýmissa hag-
fræðinga. Húsaskjól er líka frumþörf
líkt og fæði og klæði.
Bílainnflutningur í basli
Hrun er í innflutningi á nýjum bíl-
um th landsins. í janúar vora fluttir
inn um 386 nýir og notaðir fólksbílar
th landsins. í janúar í fyrra vora
þeir á hinn bóginn 1.380 talsins. Þetta
heitir aðeins einu nafni; hran. Bha-
innflytjendur era svartsýnir og telja
að ekki verði flutt inn meira en um
7 th 8 þúsund bhar á þessu ári - ef
það næst þá.
Bhamarkaðurinn, innflutningur
nýrra bha th landsins, er tahnn vera
í kringum 11 th 12 þúsund bhar á ári
miðað við að bhar dugi að jafnaöi í
tiu ár eða svo. Þetta segir okkur aftur
að fjöldi innfluttra bha síðustu tvö
ár, sem hefur verið hátt í 40 þúsund
bhar, er auðvitað langt umfram það
sem eðlhegt er í venjulegu árferði.
Þessi ár hefur veriö chger sprenging
í innflutningi bha.
Sala notaðra bíla
Sala notaðra bíla er samkvæmt
upplýsingum Bifreiðaskoöunar ís-
lands mjög svipuð og á sama tíma í
fyrra. Fyrstu tvo mánuðina voru
skráð eigendaskipti notaðra bíla um
6.700 talsins. Aht árið í fyrra voru
skráð eigendaskipti á notuðum bh-
um um 42 þúsund. Markaðurinn með
notaða bha er því mjög svipaður og
í fyrra. Það er ekki selt meira en í
fyrra þrátt fyrir aht tal um stans-
lausa sölu á notuöum 2ja og 3ja ára
bílum.
Sólarlandaferðirnar
Ferðaskrifstofumenn segja að
pantanir í sólarlandaferðir séu 30
prósent minni en í fyrra. Verð sólar-
landaferða hefur hækkað en ætla
má þó að tekjuáhrifin í þjóðfélaginu,
kaupmáttarrýrnunin, vegi þyngra en
sjálf verðhækkunin.
Tökum dæmi af manni sem hafði
100 þúsund krónur á mánuði á síö-
asta ári og þar af leiðandi 1200 þús-
und krónur í árstekjur. Þegar kaup-
máttarrýrnunin er orðin 10 prósent
þýðir það einfaldlega að maðurinn
hefur 120 þúsund krónum minna í
buddunni en áður. Það er verð sólar-
landaferðar, ekki satt?
Dæmin sanna þó að þegar kemur
fram á sumar og rigningin er að
drekkja gleði allra freistast margir
th að kaupa ferð á sólarströnd hvað
sem það kostar. Menn segja þá ein-
faldlega: Ég verð að komast út. Þetta
gæti gerst í sumar.
Atvinnuleysi er
staðreynd á íslandi
Atvinnuleysi á íslandi hefur sjald-
an verið jafnmikið og núna. Um 2,5
prósent vinnufærra manna ganga
um atvinnulaus. Og í nýlegri könnun
Þjóðhagsstofnunar kemur fram að
atvinnurekendur þurfa ekki á fleira
fólki að halda í vinnu heldur hiö
gagnstæða, þeir telja sig þurfa að
fækka fólki um 0,5 prósent.
Launasamningar era því á tímum
samdráttar í stað þenslu. Það þýðir
aftur að launþegar verða nú að
spyrja sig í fyrsta skiptið í langan
tíma hvort þeir vilji frekar fá hærri
laun eða ganga atvinnulausir. Við
svona aðstæöur fara fáir launamenn
inn á teppi th yfirmanns síns og
segja: Ég vil fá hærri laun, annars
er ég hættur. Fyrir um ári hefði sá
sem svona talaði getað verið búinn
að ráða sig í vinnu eftir nokkrar
klukkustundir, shk var þenslan. Nú
hða kannski mánuðir þar th hann
getur ráðið sig í vinnu. Þetta heldur
greinhega aftur af mönnum í kröf-
um.
Minni landsframieiðsla
Til viðbótar þessu hefur skatt-
heimta sem hlutfall af landsfram-
leiöslu aukist. Það þýðir að ráðstöf-
unartekjur fólks lækka. Skuldir
heimhanna hafa aldrei verið eins
háar. Áriö 1980 voru þær 14 prósent
af landsframleiöslu, nú eru þær
komnar yfir 37 prósent. Úr þessu má
lesa að ungt fólk með lág laun, sem
stendur fjárfestingum, er verst
staddi hópurinn í þjóðfélaginu í dag
hvað greiðslubyrði snertir. Stærsti
hlutinn af launum þessa fólks fer í
afborganir og vexti. Þegar svo unga
fólkiö með lágu launin ber sig saman
í lífsgæðakapphlaupinu við eldra
fólk, sem er skuldlaust og keypti
íbúðir sínar þegar vextir voru nei-
kvæðir, vandast máhð. Sé farið út í
enn meiri lán verður greiðslubyrðin
enn meiri.
Allt er hvítt en samt svart
Þjóðhagsstofnun spáir um 11 pró-
sent minni þorskafla á þessu ári, um
2 prósent minni landsframleiðslu og
um 3,5 prósent minni þjóðarútgjöld-
um. Á sama tíma og þessar spár birt-
ast hefur snjóað óvenjumikið. En
þrátt fyrir snjóinn segir fólk þegar
það vigtar budduna: Nú er það svart.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 8-10 Bb.Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8-11 Vb.Sb
6mán. uppsögn 8-13 Vb.Sp
12 mán. uppsögn 8-9,5 Ab
18mán. uppsögn 20 lb
Tékkareikningar,alm. 2-4 Ib.Sp,- Vb.Lb
Sértékkareikningar 3-10 Bb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6 mán. uppsögn 2-3,5 Sp,Ab,- Vb.Bb
Innlán með sérkjörum 18 Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 8,25-8,5 Bb.Vb,- Sb.Ab
Sterlingspund 11,5-12,25 Ab
Vestur-þýskmörk 5-5,5 Bb.lb,- Vb.Sb,- Sp
Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 14-20 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 14,5-20,5 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 17,5-25 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,75-9,25 Lb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 14,5-20,5 Lb
SDR 10 Allir
Bandaríkjadalir 11,25 Allir
Sterlingspund 14,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 8-8,25 Úb
Húsnæðislán 3.T
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 24
MEÐALVEXTIR
Överðtr. mars89 16,1
Verðtr. mars89 8,1
VlSITÖLUR
Lánskjaravísitala mars 2346 stig
Byggingavísitalamars 424 stig
Byggingavísitalamars 132,5 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaríapri
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,601
Einingabréf 2 2,020
Einingabréf 3 2,355
Skammtímabréf 1,248
Lífeyrisbréf 1,811
Gengisbréf 1,641
Kjarabréf 3,586
Markbréf 1,897
Tekjubréf 1,621
Skyndibréf 1,092
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,732
Sjóðsbréf 2 1.419
Sjóðsbréf 3 1,229
Sjóðsbréf 4 1,017
Vaxtasjóðsbréf 1,2198
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 274 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiðir 292 kr.
Hampiöjan 157 kr.
Hlutabréfasjóður 151 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 205 kr.
Útvegsbankinn hf. 137 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 128 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast í DV á fimmtudögum.