Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 26
26
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir febrúarmánuð er 15. mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
LÁRÓS
AÐALFUNDUR LÁTRAVÍKUR HF.
verður haldinn sunnudaginn 19. mars nk. í fundarsal
SVFR, Háaleitisbraut 68, Reykjavík kl. 15.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
__________________________________Stjórnin
SILKIPRENTUN
Prentum á allan fatnad
íflSJÓKLÆÐAGERÐIN HF
MXy SKÚLAGÖTU 51,105 REYKJAVÍK. SÍM|: 11520
AÐALFUNDUR TOLLVÖRU-
GEYMSLUNNAR HF.
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar hf. verður haldinn
fimmtudaginn 16. mars 1989 að Hótel Holiday Inn,
Sigtúni 38, Reykjavík, og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 3.4.1-6 gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting
á 2.1.0 gr. samþykkta því til samræmis.
3. Breytingar á eftirtöldum greinum samþykkta fé-
lagsins:
2.1.0. Tillaga um breytingu á fjárhæð hluta.
2.7.3. Leiðrétting. Engin efnisbreyting.
3.3.0. Tillaga um breytingu þess efnis að eitt at-
kvæði sé fyrir hvern einnar krónu hlut.
3.6.2. Tillaga um að felia brott skyldu til fundar-
boðunar í Lögbirtingablaði og að stytta lág-
marksfrest til fundarboðunar í einnar viku
frest.
3.8.2. Tillaga um að breyta ákvæðum greinarinn-
ar um atkvæðamagn til breytinga á félags-
samþykktum til samræmis við 76. gr. hluta-
félagalaga.
4.1.0. Tillaga um breytingu þess efnis að ekki sé
nauðsynlegt að stjórnarmenn séu hluthafar
og í öðru lagi að fella á brott ákvæði sam-
þykktanna um aö viðhafa hlutfallskosningu.
4.3.0. Tillaga um breytingu á ákvæðum greinar-
innar um hverjir megi rita félagið.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7
dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verð afhent á fund-
arstað.
Stjórn Tollvörugeymslunnar hf.
TOLLVÖRU
GEYMSLAN
íþróttir___________________________________________dv
íslandsmótið í handknattleik:
Báðir þjálfararnir
fengu rautt spjald
- þegar KR og KA gerðu jafntefli, 24-24
KR-ingar voru mjög heppnir að ná
í annað stigið í viðureign sinni gegn
KA frá Akureyri í Laugardalshöll á
föstudagskvöld. Jafntefli varð, 24-24,
og jöfnuðu KR-ingar í lokin með ólög-
legu marki.
KA siglir lygnan sjó í 1. deild hand-
boltans og vafalaust hafa Valsmenn
fagnað þessum úrslitum manna mest
því að KR-ingar voru eina liðið sem
veitt gat Val einhveija keppni um
íslandsmeistaratitilinn úr því sem
komið var. Nú virðist það hins vegar
ljóst að KR-ingar verða ekki merkileg
hindrun fyrir Valsmenn. Páll Ólafs-
son meiddist illa í leiknum og varð
að fara á sjúkrahús. Þá fékk þjálfari
liðsins, Jóhann Ingi Gunnarsson,
rautt spjald í leiknum og gæti hugs-
anlega farið í leikbann. Sömu sögu
er að segja af þjálfara KA en hann
sleppti sér í lokin er Konráð skoraði
eftir að hafa stigið á línu.
Mörk KR: Konráð Olavsson 9, Stef-
án Kristjánsson 5, Alfreð Gíslason
4/2, Páll Ólafsson 3, Jóhannes Stef-
ánsson 1, Guðmundur Pálmason 1
og Þorsteinn Guðjónsson 1.
Mörk KA: Jakob Jónsson 5, Sigur-
páll Aðalsteinsson 5, Erlingur Kristj-
ánsson 5/1, Pétur Bjamason 4, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Friðjón
Jónsson 1, Ólafur Hilmarsson 1.
Dómarar voru Rögnvald Erlings-
son og Oli Olsen.
-SK
Islandsmótið 1 handknattleik:
Sanngjarnt jafntefli
Stjörnunnar og KA
- skildu jöfii, 23-23, í Digranesi í gær
Stjaman og KA skildu jöfn, 23-23,
í 1. deild íslandsmótsins í handknatt-
leik í gær. Leikurinn fór fram í
íþróttahúsinu í Digranesi. Þetta var
annar leikur KA um helgina en á
fóstudag gerði liðið einnig jafntefli
við KR. Leikmenn KA geta því verið
ánægðir með ferðina hingað suður,
enda góður árangur að ná jafntefli
við jafnsterk lið og KR og Stjaman
em.
Leikur Stjömunnar og KA í gær
var hníflafn ailan tímann. í fyrri
hálfleik höfðu þó norðanmenn ávallt
forystu, náðu þá oft að leika góðan
handknattleik og má segja að leikur
þeirra hafi komið Stjömunni í opna
skjöldu. í hálfleik var staðan 13-15
fyrir KA.
Jafnt var á öllum tölum í síðari
hálfleik og verða úrslit leiksins þegar
á heildina er litið að teljast sann-
gjöm. KA tryggði sér dýrmætt stig
og er liðiö komið af fallhættusvæð-
inu, að minnsta kosti í bili.
• Sigurður Bjarnason sést hér reyna markskot aö marki KA en tíi varnar er Erlingur Kristjánsson. Friðjón Jóns-
son og Gylii Birgisson fylgjast spenntir meö. DV-mynd GS
Sigurður Bjamason og Gylfi Birg-
isson vom bestir í liði Stjömunnar
en einnig var Skúli Gunnsteinsson
sprækur á línunni að venju. Stjaman
á að geta gert mun betur en liðið á
bjarta framtíð fyrir sér, enda ungt
að árum.
Erlingur Kristjánsson var bestur í
liði KA, bæði í vöm og sókn. Guð-
mundur Guðmundsson og Sigurpáll
Aðalsteinsson vom einnig sterkir.
KA-liðið er nú mun sterkara en í
fyrri hluta mótsins.
• Mörk Stjömunnar: Sigurður
Bjamason 7, Gylfi Birgisson 6, Skúli
Gunnsteinsson 5, Hafsteinn Braga-
son 3, Einar Einarsson 1, Axel
Bjömsson 1.
• Mörk KA: Erlingur Krisljánsson
6, Guðmundur Guðmundsson 5, Sig-
urpáll Aðalsteinsson 5, Pétur Bjama-
son 3, Jakob Jónsson 2, Friðjón Jóns-
son 2.
-RR/JKS
l.deild i
Æ ■ ... Æ
v ursut jr
Valur..........13 13 0 0 356-262 26
KR.............12 9 1 2 302-271 19
Stjaman........14 8 2 4 319-302 18
FH.............12 7 1 4 326-299 15
Víkingur.......13 6 1 6 337-351 13
KA.............14 5 2 7 333-339 12
Grótta.........12 4 2 6 257-263 10
Fram...........13 2 3 8 276-315 7
ÍBV...........12 1 3 8 247-291 5
UBK...........13 1 1 11 267-327 3
• Næsti leikur i 1. deild er í kvöld og
leika þá KR og Grótta í Laugardals-
höllinni kl. 19.00.
• Á miðvikudagskvöldiö verða fjór-
ir leikir á dagsskrá. Víkingur-KR,
Grótta-Valur, IBV-Fram, UBK-FH.
Hefjast allir leikimir kl. 20.00.