Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Qupperneq 19
FH-ingar þurfa ekki að fara til Sovétríkjanna með 10 mörk „á bakinu“:
Rússarnir tóku 250
þús. kr. tilboði FH-inga
Einn af forráöamönnum handknattleiksdeildar FH lét það veröa sitt
fyrsta verk í gær, eftir leik FH og Kraznodar í Evrópukeppninni í hand-
knattleik í gær, aö bjóða forráðamönnum sovéska liðsins aö leika síðari
leik liðanna einnig á íslandi. Tóku þeir vel í þessa hugmynd og enn betur
er þeim voru boönir 5 þúsund dollarar, staögreitt, aö auki en þaö eru um
250 þúsund krónur.
Þaö er ekki nema eðlilegt aö for-
ráöamenn FH skuli hafa gripið til
þessa ráðs í gærkvöldi. Óskemmti-
legt feröálag beið FH-ingatil Sovét-
ríkjanna í svo að segja vonlausri
stööu. Er ekki aö efa að FH-ingar
sleppa mjög vel frá þessum leikjum
fjárhagslega eftir aö samningar
tókust viö Sovétmennina í gær-
kvöldi. Síðari leikurinn átti aö fara
fram í Sovétríkjunum á laugardag
en hann fer þess í stað fram í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði í kvöld.
Lopapeysur og búningar
Sovétmennirnir í liði Kraznodar og
forráðamenn liðsins fóru í gær-
kvöldi fram á að fá íslenskar lopa-
peysur handa eiginkonum sínum
og íþróttabúninga að auki. „Þessi
atriðí veröa hluti af heilclargreiðsl-
unni. Viö förum strax af staö aö
bjarga þessum hluturn," sagöi einn
af forráðamöimum handknatt-
leiksdeildar FH í samtali viö DV i
gærkvöldi
Einnigsamið við
hoiiensku dómarana
Forráöamenn handknattleiks-
deiidar FH voru á löngum samn-
ingafundum í gærkvöldi meö hol-
lensku dómurunum sem dæmdu
ieik FH og Kraznodar í gærkvöldi.
Aö lokum tókst að semja við þá og
dæma þeir leikinn í Hafnarfirði
sem hefst klukkan 20.30 í kvöld.
Þurftu þeir að fá frí úr vinnu en
allt gekk þetta upp um miðnættið
í gær.
„Þetta er stórmál fyrir okkur.
Meö því að leika síðari leikinn hér
á landi spörum viö okkur hundruö
þúsunda," sagði einn af forráða-
möimum FH í gærkvöldi.
-RR/-SK
„Útlitið ekki bjart“
- sagöi Peter Pysall eftir leikinn gegn Val
„Ég er að vonum ekki ánægður
meö úrshtin í leiknum. Ég átti von á
Valsmönnum sem sterkum mótherj-
um, varnarleikur þeirra er mjög góð-
ur. Úthtið er ekki bjart og vlð verðum
að ná toppleik heima í Magdeburg á
laugardaginn kemur til aö vinna upp
forskot Valsmanna. Valsmenn hafa
mjög góðu liði á aö skipa, hðsheildin
er sterk. Við höfðum góðar upplýs-
ingar um Val og vissum vel að hveiju
við gengum fyrir leikinn. íslenskur
handknattleikur stendur hátt í dag,“
sagði Peter Pysall, sterkasti leikmað-
ur Magdeburg og fastamaður í aust-
ur-þýska landsliðinu í samtali við
DV eftír leikinn í gærkvöldi.
-JKS
Skjaldarglima Armanns:
Ólafur Haukur
skjaldarhafi í
sjötta skiptið
Ólafur Haukur Ólafsson, KR, virð-
ist vera í sérflokki á meðal ghmu-
• Ólafur Haukur Ólafsson.
manna. Um helgina geröi Ólafur sér
htið fyrir og vann skjöldinn sem um
var keppt í sjötta skiptið í Skjaldar-
glímu Armanns sem fram fór í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Og í
flestum glímum sínum sigraöi Ólafur
með glæsilegum úrslitabrögðum.
Ólafur Haukur Ólafsson hlaut 5
vinninga af 5 mögulegum. Helgi
Bjarnason, KR, varö annar með 4
vinninga, Ásgeir Víglundsson, KR,
þriðji með 2 vinninga, Jón B. Vals-
son, KR, hlaut 1,5 vinning í íjórða
sæti og sama vinningafjölda fékk
Orri Bjömsson, KR, sem varö
fimmti. Lestina rak Aifons Jónsson,
Ármanni, en hann hlaut 1 vinning.
í tilefni 100 ára afmæhs Ármanns
kom þaö í hlut Gríms Valdimarsson-
ar, formanns Ármanns, að setja mót-
ið að þessu sinni. Þá má geta þess
að Rögnvaldur Ólafsson, formaöur
Glimusambands íslands, færöi Ár-
manni heiðursskjöld Glímusam-
bandsins í tilefni aÍdarafmæUsins.
-SK
Jakob Sigurðsson átti ágætan leik með Val gegn Magdeburg í gærkvöldi. Jakob og félagar eiga góða
möguleika á að komast í 4 liða úrslitin í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik sem vissulega yrði glæsilegur
árangur. Hér sést Jakob skora eitt marka sinna gegn Magdeburg í gærkvöldi. Nánar um leikinn i opnu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Bobby Hutchinson til FH
Skoski leikraaðurinn Bobby
Hutchinson hefur ákveðiö að
ganga til liðs viö 1. deildar liö FH
og spila með liðinu á komandi
keppnistímabili. Mun Hutchin-
son skrifa undir samning við FH
í dag.
Hutchinson er 35 ára gamail
framherji og hefur komiö víða við
á löngum ferli sínum. Hann hefur
ra.a. leikið með Ðundee og Hi-
beriúait í Skotlandi og Mansfieid,
Bristol City og nú síðast 2. deildar
liði Walsall í Englandi. Hutc-
hinson hefur einnig góða reynslu
sem þjálfari því að hann var að-
stoöarþjálfari Toramy Coackley
hjá Waisall.
Hutohinson er þriðji leikmað-
urinn sem kemur til FH en áður
höfðu Þórsararnir Birgir Skúla-
son og Guömundur Valur Sig-
urðsson gengiö tii liös við félagiö.
-RR