Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989.
23
íþróttir
Köríuknattleikur:
Keflvíkingar
virðast sterkir
- unnu Val, 99-86, og stefna á úrslitin
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjnm;
„Þetta var mjög erfiður leikur og síöari leikurinn verð-
ur enn erfiöari. Við ætlum okkur að mæta ákveðnir til
leiks í síðari leiknum og klára þetta dæmi og komast í
úrslitaleikinn," sagði Jón Kr. Gíslason, leikmaður oig
þjáifari ÍBK, eftir að lið hans hafði unnið stóran sigur
á Val í Keflavík í gærkvöldi. Lokatölur 99-86 og Keflvik-
ingar virðast mjög sterkir um þessar mundir. Leikurinn
í gærkvöldi var fyrri leikur liðanna í úrslitakeppni úr-
valsdeildar.
Valsmenn byijuðu leikinn vel og komust í 15-25 um
miðjan fyrri háifleik. Það var síðan á síðustu mínútum
fyrri hálfleiks sem heimamönnum tókst að laga stöðuna
og staðan í leikhléi var 47-49, Val í vil. Keflvikingar
byijuðu síðari hálfleikinn vel og komust yfir, Valsmenn
gáfust þó ekki upp og um miðjan hálfleikinn var staðan
65-68, Val í vfl. Þá hrökk ÍBK-liðið heldur betur í gang
og eftir það áttu Valsmenn sér ekki viöreisnar von í
leiknum.
Stig ÍBK: Jón Kr. 27, Guðjón 23, Axel 17, Magnús 10,
Sigurður 9, Albert 6, Nökkvi 4 og Falur 3.
Stig Vals: Hreinn 22, Matthías 18, Tómas 15, Bjöm 11,
Ragnar 10, Bárður 7 og Ari 3.
• Jón Kr. Gíslason átti stórleik með liði sínu, ÍBK, í
gærkvöldi er Keflvikingar gersigruðu Valsmenn, 99-86,
í fyrri leík liðanna i úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í
Keflavik i gærkvöldi.
Birgir Mikaelsson var stiga-
hæstur KR-inga.
Hvað gerir KR í kvöld?
KR-ingar unnu mjög óvæntan sigur gegn Njarðvfldngum í úrslitakeppninni í
körfuknattleik á fóstudagskvöldið og i kvöld kemur í ljós hvort KR tekst að slá
UMFN út úr keppninni en þá leika liöin siðari leik sinn í Hagaskólanum.
KR-ingar sigruðu á fóstudagskvöid með eins stigs mun, 78-79. Voru þeir betri
aöilinn í leiknum og verðskulduðu sigurinn. Það iið sem fyrr vinnur tvo leiki
leikur gegn Val eða ÍBK í úrslitaleilt um íslandsmeistaratitilinn. í leiknum á
föstudagskvöldiö var Birgir Mikaelsson stigahæstur KR-inga meö 25 stig en
Teitur Orlygsson skoraði 19 stig fyrir Njarðvík.
Þetta var fyrsti tapleikur Njarðvíkinga á heimavelli sínum í vetur en í kvöld
hafa íslandsmeistaramir tækifæri til að laga stöðuna.
ÆMK/-SK
a
E
I
Komdu á
óvarl mcð
fermingargjöf
frá BÍRÖ
Stillanlegur stóll
og tölvuborð
á aðeins kr. 12.490.-
Med hlidarplötu
kr. 13.590.-
Stólar frá kr. 5.700.-
i
QRENNIST m AREYTiSLU
MÖQULEIKiriN ER
SKAMMT UriDAN
— NÝ ÆFIMQASTOFA —
Nuddbekkur
SLENDER YOU
Suðurlandsbraut 22, Reykjavík Líkamsræktarstofur
Reyndu SLEDDER YOU.
Að grennast með bros á uör! Án
þreytandí æflnga, án gifurlegrar
áreynslu. Þetta hljómar ótrúlega en
samt er það satt. Suona er nýja
megrunaraðferðin, SLEHDER YOU
Hvaö er SLEPiDER YOU
Tuisuar í uiku leggst þú sex sinnum
í 10 minútur á sex uéluædda bekki,
sem eru sérstaklega hannaðir til að
örua starfsemi mikiluægustu uööua
líkamans: Maga, fætur, bijóst, læri,
mjaðmir og handleggi. Andstætt
hefðbundnum aðferdum ueldur
SLEMDER YOU þui ekki ad uöðuarnir
bólgni upp heldur styrkjast þeir og
uerða liprari. Og þar sem SLEHDER
YOU lýálpar þér að
losna uið fitu og appelsínuhúð, lika
á „erfiðu" stöðunum, getur þú losn-.
að uið nokkra aukasentimetra!
Auk þess uerður þú algjörlega út-
huild(ur) eftirSLEUDER YOU meðferð
og fuli(ur) af orku, þar sem það eru
tækin sem uínna erfiðið fyrir þig!
Fyrsta meðferðin alltaf
ókeypis
Eftir ad þú hefur reynt einu sinni
ókeypis uiltu ekkí uera án SLEHDER
YOU.
Komdu og prófaðu SLEMDER YOU
ókeypis til þess að sannfærast og
fáðu jafnframt líkamsgreiningu á
töluu án nokkurra skuldbindlnga
fyrir þig, auðuitað.
Teygjubekkur
Fótabekkur
Setubekkur
Mjaðmabekkur
Sandpokabekkur
Opið mánud.-föstud. 9-23
Timapantanir í síma 689969
Ekkert þátttökugjald,
engin íyrirframgreiðsla
Hjá SLEHDER YOU greiðir þú fyrir
hveija meðferð út af fyrir sig. Þú
getur hætt meðferðinni þegar þú
vilt af þvi að SLEHDER YOY krefst
hvorki þátttökugjalds né fyrir-
framgreiðsiu.
Þú hefúr sem sagt engu^að
tapa... nema nokkrum senti-
metrum. Hikaðu ekki lengur, það
er SLEMDERYOU stofa í nágrenn-
inu.
SLENDER YOU:
Minni mál
Suðurlandsbraut 22
Sími 689969.