Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 43
4á MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. dv Fólk í fréttum Leifur Blumenstein Leifur Blumenstein byggingafræð- ingur hlaut menningaverðlaim DV fyrir endurbyggingu Viðeyjarstofu. Leifur er fæddur 12. ágúst 1930 í Rvík og lauk prófi í húsgagnasmíði í Iðnskólanum í Keflavík 1954. Hann tók próf í byggingariönfræði í Sta- atliiche Technikerschule Als- feld/Helssen í Þýskalandi 1957 og var í námi og starfi á Teiknistofu Hannesar Kr. Ámasonar arkitekts 1957-1%2. Leifur vann hjá Reykja- víkurborg 1962-1986, lengst af sem tæknideildarstjóri byggingardeildar Bprgarverkfræðings. Hann lét af störfum vegna afleiðinga vinnuslyss 1980 og hefur unnið hlutastarf hjá JBB teiknistofunni frá 1986. Leifur hefur verið kennari í Meistaraskó- lanum í Reykjavík frá 1965 og kenn- ir nú í Tækniskóla íslands og Iðn- skólanum í Reykjavík. Hann var í stjórn Steinsteypufélags íslands 1974-1976 og varaformaður bygg- ingafræðingafélags islands 1972- 1974, formaður 1974-1976. Leifur var í nefnd er samdi drög að bygginga- lögum er tóku gildi 1979 og fékk við- urkenningu umhverfismálaráðs 1981 fyrir listræna endurbyggingu Tjamargötu 33. Meðal íjölmargra merkra bygginga sem Leifur hefur endurbyggtem, Miðbæjarskólinn, hús Sigurðar Thoroddsen við Frí- kirkjuveginn, Thor Jensenshúsið við Fríkirkjuveg, Iðnskólinn við Vonarstræti og Sölutuminn á Lækj- artorgi. Leifur kvæntist 10. október 1959, Bergljótu Sigurðardóttur, f. 31. ágúst 1938, deildarstjóra teiknistofu Pósts og síma. Foreldrar Bergljótar vora Sigfús Jónsson, trésmíða- meistari í Fjölni í Fjalakettinum í Rvík, síðar b. á Laugum í Hraun- gerðishreppi, og kona hans, Henny Ekranger. Synir Leifs og Bergljótar eru Bragi Börkur, f. 15. maí 1960, nemi í byggingarlist, sambýliskona hans er Guðbjörg Hrafnsdóttir, Sigf- ús Tryggvi, f. 2. ágúst 1968, nemi í rafvirkjun, og Eiríkur Freyr, f. 5. desember 1969. Sonur Bergljótar er Hlynur Trausti Tómasson, f. 14. maí 1956, í framhaldsnámi í flugvirkjun, kvæntur Sæunni Ingimundardótt- ur. Systur Leifs em Kristín Doris, f. 9. desember 1928, gift Uno Nilsson, deildarstjóra hjá Stokkhólmssíma í Svíþjóð, og Carla Marie, f. 28. mars 1950, gift Ingimundi T. Magnússyni, viðskiptafræðingi í Rvík. Foreldrar Leifs eru Andrés Karls- son, húsgagnasmiður og bygginga- eftirhtsmaður hjá Reykjavíkurborg, og kona hans, Jónína Jósefsdóttir. Andres var sonur Karls Blumen- stein, skorsteinamúrara í Kassel í Þýskalandi, og konu hans, Anne Marie Mallsch, af þýskum aðalsætt- um. Jónina er dóttir Jósefs, b. í Lambadal í Dýrafirði, Jesperssonar, b. og formanns í Hólsbúð, Jónsson- ar, verslunarmanns á Vatneyri, Ól- afssonar, lögsagnara í Hjarðardal í Önundarfirði, Erlendssonar, sýslu- manns í Hjarðardal, Ólafssonar, bróöur Jóns frá Grunnavík, fom- ritafræðings í Kaupmannahöfn. Móðir Jóns var Ástríður, systir Sig- ríöar, langömmu Þóm, ömmu Sól- veigar Ólafsdóttur, móður Jóns Baidvins Hannibalssonar. Ástríður var dóttir Magnúsar prófasts í Vatnsfirði, Teitssonar, bróður Jóns biskups á Hólum, langafa Einars Benediktssonar skálds. Jón var einnig langafi Margrétar, móður Jóns Þorlákssonar forsætisráð- herra og Guðrúnar, ömmu Sigurðar Nordal. Móðir Magnúsar var Ragn- heiður Sigurðardóttir, prófasts í Vatnsfirði, Sigurðssonar, ogkonu hans, Helgu Pálsdóttur, prófasts í Selárdal, Bjömssonar. Móðir Páls var Helga Amgrímsdóttir, lærða, vígslubiskups á Melstaö, Jónssonar. Móðir Ástríðar var Ingibjörg Mark- úsdóttir, sýslumanns í Ögri, Bergs- sonar, og konu hans, Elinar Hjalta- dóttur, prófasts og málara í Vatns- firði, Þorsteinssonar. Móðir Jósefs var Kristín Önundardóttir, hrepp- stjóra á BrimilsvöJlum, Jónssonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Sölva- hamri, Svartssonar, b. á Hálsi, Páls- sonar, b. í Miðgörðum, Svartssonar, b. í Miðgörðum, Pálssonar, bróður Sigurðar, langafa Péturs, langafa Friðriks, fóöur Sturlu, erfðafræð- ings. Móðir Guðrúnar var Kristín Guð- mundsdóttir, b. á Svarthamri í Leifur Blumenstein. Álftafirði, bróöur Efemíu, langömmu Óskars Vigfússonar, for- manns Sjómannasambands íslands, og Gunnars Hanssonar, forstjóra IBM. Guðmundur var sonur Jó- hannesar, b. á Folafæti í SeyÖis- firði, Jónssonar. Móðir Jóhannesar var Guðrún Sigurðardóttir, systir Þorláks, langafa Guðmundar, afa Guðmundar Inga skálds, Halldórs rithöfundar, Jóhönnu Þóröardóttur og Ólafs Þ. skólastjóra, afa Ólafs Harðarsonar stjómmálafræðings. Guðmundur er einnig langafi Krist- ínarÁ. Ólafsdóttur borgarfulltrúa. Afmæli Stefán Jónsson Stefán Jónsson, fv. skrifstofustjóri og framkvæmdastjóri, Melhaga 1, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Stefán fæddist í Berufirði í Reyk- hólasveit og ólst upp í foreldrahús- um, á Kambi í Reykhólasveit. Hann lauk prófi frá Núpsskóla 1926, frá Samvinnuskólanum 1929 og dvaldi um skeið í Danmörku 1931 til að kynna sér spítalabókhald og ýmis- legt varðandi spítalarekstur. Hann var gjaldkeri og bókari þriggja rík- isspítala 1930-34, skrifstofusjóri og varaframkvæmdastjóri ríkisspítal- anna 1934-37, skrifstofustjóri gjald- eyris- og innílutningsnefndar 1937- 43, Viðskiptaráös 1943-47, gjaldeyris- og innflutningsdeildar 1947-53 og Innflutningsskrifstof- unnar 1953-60. Stefán var framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Eddu hf. 1960-80. Hann sat í úthlutunarnefnd bifreiöa 1938- 43, var varamaður í stjórn Við- skiptaráðs, Fjárhagsráðs og Inn- flutningsskrifstofunnar frá 1943-60. Þá sat hann í útflutningsnefnd 1957-60, var varamaður í nefnd til að rannsaka rekstrargrundvöll ís- lenskrar togaraútgerðar 1954 og sat í verðlagsnefnd 1960-79. Hann var formaður sóknarnefndar Nessókn- ar í Reykjavík 1952-68. Átti sæti í olíunefnd 1956-57,1973-74 og 1979. Þá var hann formaður stjómar Breiðfirðingaheimihsinshf. 1957-71, í sljóm Félags íslenskra prent- smiðjueigenda og Félags íslenska prentiðnaðarins 1963-78. Kona Stefáns er Salome Guðbjörg Pálmadóttir, f. 9.1.1902, hjúkmnar- kona, dóttir Pálma Bjamasonar, b. í Skálavík í Hólshreppi í Norður- ísafjarðarsýslu, og konu hans, Kristínar Friðbertsdóttur. Dóttir Stefáns og Salome Guö- bjargar er Erla, píanókennari, f. 6.9. 1935, gift Emi Agúst Guðmunds- syni, tannlækni í Reykjavík, en þau eigaþrjúbörn. Systkini Stefáns em Ólafur, for- stjóri Elektru, faðir Snjólaugar, starfsmanns Norðurlandaráðs, Jóns Hjaltalins læknis og Arnar sál- fræöings; Elín, kona Karls Magnús- sonar, læknis i Keflavík; Guðbjörg Hassin; Sigmundur, fjármálastjóri, faðir Gunnlaugs, forstjóra Þróunar- félagsins; Magnús yfirverkstjóri, faðir Jóns Hjaltalíns, formanns Handknattleikssambands íslands; Kristján starfsmaður Electric, faðir Sigurðar flugstjóra og vélstjóranna Bjama og Guðmundar. Foreldrar Stefáns vom Jón Hjal- talín Brandsson, b. á Kambi í Reyk- hólasveit, og kona hans, Sesselja Stefánsdóttir. Föðursystir Stefáns var Daníelína, amma Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals, og Hrannar Hafliðadóttur ópemsöng- konu. Jón var sonur Brands, b. á Kambi í Reykhólasveit, Sigmunds- sonar, og konu hans, Kristínar Daníelsdóttur, gullsmiðs í Hlíð í Þorskafirði, Hjaltasonar, prófasts á Stað í Steingrímsfirði, Jónssonar, Stefán Jónsson. bróður Jóns, langafa Þorvaldar, afa Kristínar Á. Ólafsdóttur borgarfull- trúa. Móðir Daníels var Sigríður, systir Gunnlaugs Briem, sýslu- manns á Gmnd, ættfóður Briemætt- arinnar. Sigríður var dóttir Guð- brands, prests á Bijánslæk, Sigurðs- sonar. móðir Guðbrands var Sigríð- ur Gunniaugsdóttir, systir Ólafs, fóður Eggerts skálds. Sesselja var dóttir Stefáns, b. í Berufirði í Reykhólasveit, bróður Snæbjarnar í Hergilsey, afa Snæ- bjamar Jónassonar vegamála- sfjóra. Stefán var sonur Kristjáns, b. og hreppstjóra í Hergilsey, Jóns- sonar, b. og hreppstjóra á Kleifum, Ormssonar, b. í Fagradal, Sigurðs- sonar, ættfóður Ormsættarinnar. Móöir Kristjáns var Kristín Egg- ertsdóttir, b. í Hergilsey, Ólafssonar, fóður Guðrúnar, langömmu skáld- anna Matthíasar Jochumssonar og Theódóru Thoroddsen. Óskar Pétursson Óskar Pétursson gullsmiður, Karla- götu 15, Reykjavík, er áttræður í dag. Oskar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum en var í sveit á sumrum, að Litla-Kambi í Breiðuvík og hjá frændfólki sínu í Njarðvík. Hann lærði gullsmíði hjá Guð- laugi Magnússyni gullsmiö sem lengst af verslaði með skartgripi á Laugavegi 11 í Reykjavík. Óskar lauk prófi í gullsmíði 1938 en starf- aði hjá Guðlaugi til 1945 er Óskar stofnsetti sitt eigið verkstæði sem hann rak þar til fyrir nokkrum árum er hann hætti fyrir aldurs sakir. Óskar var meðhmur í Félagi ís- lenskra guhsmiöa og sat um skeið í verðlagsnefnd félagsins. Kona Óskars er Asdís Magnús- dóttir frá Miðhúsum í Biskupstung- um, f. 10.9.1915, dóttir Magnúsar Gíslasonar frá Efsta-Dal í Laugardal og Guðrúnar Brynjólfsdóttur frá Miðhúsum í Biskupstungum. Óskar og Ásdís eiga tvær dætur. Þær eru Ásta Bjamey, húsmóðir í Reykjavík, gift Þórði Henrikssyni prentsmiðjustjóra, og Sigríður Ósk, húsmóðir í Reykjavík, gift Snorra Jóhannssyni, starfsmanni hjá Am- arflugi. Óskar Pétursson. Foreldrar Óskars voru Pétur Gunnarsson, starfsmaður hjá Kveldúlfi í Reykjavík, og Sigríður Bjamadóttir. 85 ára 60 ára Þórhildur Jónsdóttír, Skarðshlið 19, Akureyri. Björg Jónsdóttir, Hvítárbakka 1, AndakílshreppL 80 ára 50 ára Carl Jðrgensen, Ægisíöu 111, Reykjavik. Guðrún Gísiadóttir, Þórunnarstræti 134, Akureyn. Grímshaga 5, Reykjavík. 40 ára Kristján Karlsson, 75 ára Miðleiti 3, Reykjavík. Jóhanna Krístin Gunnarsdóttir, Stefán Jónsson, Hamrahlíö 11, Reykjavik. IJJCUlCtUlCIUVU 11 LHtUðVJA- Guðmundur Sigfusson, Höfðavegi 61, Vestmannaeyjum. Marta Pólsdóttir, 70 ára Háaleitisbraut 28, Reykjavik. Jón B. Bjarnason, Kristinn Björnsson, Borgarhrauni 15, Hverageröi. Þórarinn Björnsson, Jóruseli 13, Reykjavík. Sigurður Brynjólfsson Sigurður Brynjólfsson sendibíl- stjóri, Álakvísl 102, Reykjavík, er fertugurídag. Sigurður fæddist á Akranesi en flutti fimm ára að Hehnum á Vatns- leysuströnd þar sem hann ólst síðan upp í foreldrahúsum. Eftir gagn- fræðapróf hóf hann ýmis almenn störf en hann varð snemma stjóm- andi vinnuvéla og hefur starfað mikið viö þær síðan, lengst af hjá íslenskiun aðalverktökum. Hann var búsettur í Keflavík um skeið en flutti th Svíþjóðar 1974 og starfaði þar í tvö ár hjá fyrirtækinu Dixon .ok Söjstedt. Hann flutti th Reykja- vík'ur 1979 og hefur búið þar síðán. Kona Sigurðar er Edith Thorberg, f. 24.3.1953, dóttir Trausta Thorberg Óskarssonar, hárskera og kaúp- -manns í Reykjavík, og Dóru Sigfús- dóttur. Böm Sigurðar og Edith eru Dóra, f. 1974; Sesselja, f. 1978, ogTrausti, f. 1980. Sigurður á fimm systkini. Þau em Margrét, f. 1951, starfsmaður hjá Osta- og smjörsölunni í Reykjavík, gift Steindóri Guðmundssyni, sendi- bílstjóra í Reykjavík, og eiga þau þrjú börn; Sigurlaug, f. 1957, starfs- stúlka á barnaheimih, gift Halldóri Sigurðssyni sendibílstjóra og eiga þau tvö börn; Brynjólfur, f. 1961, starfsmaður hjá Aðalverktökum, búsettur í Njarðvík; Guðmundur, f. 1964, nemi í Fjölbrautaskólanum í Keflavík, og Gísh, f. 1975, nemi í for- eldrahúsum. Foreldrar Sigurðar em Brynjólfur Gunnar Brynjólfsson, yfirverkstjóri hjá Aðalverktökum, f. 6.2.1930, og Sigurður Brynjólfsson. kona hans, Sesselja Sigurðardóttir, f. 18.10.1929. Foreldrar Sesselju voru Sigurður' Guðmundsson, sjómaður og smiður í Dehdartungu á Akranesi, og kona hans, Guðlaug Ólafsdóttir. Sigurður var sonur Guðmundar, b. í Stóra- Lambhaga, hlugasonar, í Lamb- haga, Bárðarsonar. Móöir Siguröar var Sesselja, dóttir Sveins Sveins- sonar í Holti á Kjalamesi og konu hans, Guðríðar Jónsdóttur. Móðir Guðmundar var Hallgerður Sigurö- ardóttir. Foreldrar Guðlaugar voru Ólafur Ólafsson, vélsmiður í Dehd, og kona hans, Jóhanna Sigríður Jóhannes- dóttir. Foreldrar Ólafs vom Ólafur Ólafssonogkona hans, Ólöf Guð- laug Sigurðardóttir. Foreldrar Jó- hönnu Sigríðar voru Jóhannes Skeggjason og Sigríður Jóhanns- dóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.