Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
SPENNANDINÁMSKEIÐ
um einstæða náttúrulega tækni.
Dr. Anna Edström, lífefnafræðingur frá Bretlandi,
heldur á næstu mánuðum námskeið í Aromatherapy,
sem er sérstakt þrýstipunktanudd með náttúrulegum
olíum. Námskeið fyrir fyrsta hóp hófst í síðasta mán-
uði og vakti óskipta athygli og áhuga þeirra sem
þátt tóku. Athugið. Aðeins 4 sæti laus á síðara nám-
skeiðið sem haldið verður eina helgi í mánuði allt til
áramóta. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu
Ambrosíu í dag í síma (91 )680630.
V6RSU1N SeCD
Tökum í umboðssölutil dæmis.
Húsgögn,Ijósritunarvélar,tölvur
og annað þess háttar.
Sem sagt allt fyrir skrifstofuna
Sækjum á staðinn.
627763
KI.9.30-18.00
VÍSINDASTYRKIR
ATLANTSHAFSBANDALAGSINS 1989
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum
til að styrkja unga vísindamenn til rannsókna eða
framhaldsnáms erlendis. Fjárhæð sú, er á þessu ári
hefur komið í hlut íslendinga í framangreindu skyni,
nemur um 3 milljónum ísl. kr. og mun henni varið
til að styrkja menn til rannsókna eða námsdvalar við
erlendar vísindastofnanir í aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins á einhverjum eftirtalinna sviða: náttúru-
vísindum, líf- og læknisfræði, félagsvísindum og
verkfræði.
Umsóknum um^jstyrki at)fé þessu - „Nato Science
Fellowships" - skal komið til Vísindaráðs, Bárugötu
3, 101 Reykjavík, fyrir 15. júní nk. Fylgja skulu stað-
fest afrit prófskírteina og meðmæla, svo og upplýs-
ingar um starfsferil og ritverkaskrá. Þá skal tekið fram
hvers konar rannsóknir eða framhaldsnám umsækj-
andi ætli að stunda, við hvaða stofnun hann hyggst
dvelja, svo og skal greina ráðgerðan dvalartíma.-
Umsóknareyðublöð fást hjá Vísindaráði. Afgreiðslu-
tími þar er kl. 10-12 og kl. 14-16 daglega.
Nauðungaruppboð
á lausafjármunum
Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópiavogi, skiptaréttar Kópavogs, bæjar-
sjóðs Kópavogs, Gjaldheimtunnar i Reykjavík, ýmissa lögmanna og stofn-
ana fer fram opinbert uppboð á bifreiðum og ýmsum lausafjármunum að
Hamraborg 3, norðan við hús, kjallara, laugardaginn 20. maí og hefst það
kl. 13.30.
1) Samkvæmt beiðni skiptaréttar Kópavogs verður seld kranabifreiðin V-
17667, Ling Belt Speeder, árg. 1974.
2) Jafnframt verða seldar eftirgreindar bifreiöar:
X-5617, Mercedes Benz LPS 1632, vörubifreiö, árg. 1974
Y-16984, Fiat Uno, árg. 1987
Y-3596, Nissan Laurel, árg. 1985
Y-17132, Range Rover, árg. 1979
R-35298, Lada, árg. 1982
Y-13233, Fiat 127
V-366, Galant árg. 1983
R-51239, Suzuki, árg. 1983
3) Einnig hefur verið krafist sölu á eftirgreindum bifreiðum:
Y-913, Y-1817, Y-4041, Y-5676, Y-6226, Y-9578, Y-11117, Y-
16130, Y-16984, Y-17409, Y-18484, R-37154, R-48393, R-51239,
R-54902, R-55670, R-55803, R-66266, R-73715, G-18198, G-
22296, Þ-2559, R-38512, Y-14885
4) Eftirgreint lausafé verður væntanlega selt:
Hljómflutningstæki, Akai myndbandstæki, Kalman lyftari, Honda há-
þrýstivél og háþrýstiþvottavél, Ishida tölvuvog, Arc tölva, Quantet Syst-
em 23 tölva og segulbandsstöð ásamt 6 skjáum og Aakerman belta-
grafa o.fl.
Greiðsla við hamarshögg
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Opinbert uppboð
Að beiðni lögreglunnar I Kópavogi verða ýmsir óskilamunir, aðallega reiö-
hjól, seldir á opinberu uppboði sem haldiö verður aö Hamraborg 3, kjallar-
a, norðan við hús, laugardaginn 20. mai 1989 og hefst það kl. 13.50.
Greiösla við hamarshögg
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Fréttir
Eftir sex vikna verkfall og margra mánaða kjaradeilu innsigla Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og
Wincie Jóhannsdóttir, formaður Hins islenska kennarafélags, samning sem gildir til fimm ára. Páll Halidórsson,
formaður Bandalags háskólamanna hjá rfkinu, les samninginn betur á meðan. DV-mynd KAE
Laun kennara eftir samningana:
19,8 prósent hækk-
un á fyrsta árínu
- auk þess ýmsar sporslur og þær hækkanir sem aðrir kunna að semja um
Venjulegur menntaskólakennari í
Hinu íslenska kennarafélagi getur á
næstu tólf mánuðum fengið um 227
^þúsund^krónum meira útborgað fyr-
ir dagvinnu en hann hefði annars
fengið samkvæmt eldri samningum.
Það jafngildir um 29,4 prósent launa-
hækkun á mánuði.
Dagvinnulaun venjulegs kennara
munu verða um 19,8 prósent hærri á
sama tíma á næsta ári en þau voru
fyrir verkfall.
Vegna samninga um tvöfalt kaup í
sumar ef kennsla eða próf fara fram
verður kennarinn búinn aö fá tekju-
tap sitt vegna verkfallsins endur-
greitt í sumar. Hann fær hluta af því
greitt strax þar sem sumar hækkan-
imar eru afturvirkar og eins vegna
sérstakra verkfallsbóta sem ríkis-
sjóöur greiöir.
Þetta eru dæmi um þær hækkanir
sem samningur ríkisins viö háskóla-
menn hefur í för með sér.
•
Ríkið bætir upp
tekjutap vegna verkfalls
Við skulum taka dæmi af ákveðn-
um manni: 45 ára menntaskólakenn-
ara með BA-próf í sagnfræöi, próf í
kennslu- og uppeldisfræöum og við-
bótamám sem metiö er á 20 stig.
Fyrir verkfall hafði þessi maður
64.365 þúsund krónur á mánuði fyrir
Óagvinnu. Hann var í verkfalli í 42-
daga. Hann tapaöi því um 88.877
krónum á verkfallinu.
Þegar hann kom aftur til vinnu í
morgun á hann inni laun hjá ríkinu
af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi
haföi hann hækkaö um einn launa-
flokk vegna viðbótamámsins og tók
sú hækkun gildi þann 1. mars síðast-
liðinn samkvæmt samningunum.
Laun hans fyrir mars og fram að
verkfalli 6. apríl vom því ekki 64.365
heldur 66.296. Hann á því inni hjá
ríkinu um 2.265 krónur vegna vinnu
fyrir verkfall. Auk þess fær hann um
20 þúsund krónur í einhvers konar
verkfallsbætur sem samiö var um.
Þetta er bundiö því aö Hið íslenska
kennarafélag láti alla félagsmenn
sína njóta þessara bóta jafnt. Hreint
tap hans af verkfallinu varö því
66.613 krónur.
8,6 prósent hækkun
á fyrsta degi
Þegar kennarinn kom til vinnu í
morgun höföu laun hans einnig
hækkaö vegna hækkunar sem tók
gildi 1. maí. Þau em í dag 69.887.
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
Laun kennarans hafa þvi hækkaö
um 5.522 krónur frá því fyrir verk-
fall; annars vegar vegna hækkunar
upp um einn launaflokk og hins veg-
ar vegna almennrar hækkunar 1.
maí. Þetta jafngildir um 8,6 prósent
hækkun.
1. júní fær kennarinn síöan greidd-
ar 6.500 krónur í orlofsuppbót.
1. júlí hækkar kennarinn um eitt
þrep í launataxta Bandalags háskóla-
manna þar sem hann er eldri en 40
ára. Laun hans em þá orðin 72.682
krónur. Það er 4 prósent hækkun frá
mánuöinum á undan og 12,9 prósent
hærri laun en fyrir verkfall.
Tvöföld laun vegna
kennslu í sumar
Vegna verkfallsins er síöan ákveö-
iö að kennsla og próf fari fram í ágúst
í þeim skóla sem kennarinn vinnur
viö. Vegna samninganna fær kenn-
arinn sérstaklega borgaö fyrir vinnu
sem er utan viö venjubundna sumar-
vinnu. Hann fær því aukalega borg-
uð ein mánaðarlaun eða 72.682 krón-
ur. Þá hefur hann fengiö um 107 þús-
imd krónur eftir verkfall umfram
þaö sem fyrri samningar kváðu á um.
Honum hefur því tekist aö vinna upp
tapiö af verkfallinu og gott betur án
þess aö nokkurt tLUit hafi veriö tekið
til yflrvinnu.
Laun kennarans hækka síöan um
1,5 prósent 1. september og 1. nóv-
ember. Þá er kennarinn kominn með
um 74.879 krónur í mánaðarlaun. Það
em 9.990 krónum hærri laun en fyrir
verkfaU eða um 15,5 prósent.
í desember fær kennarinn 21.809
krónur í desembemppbót. Það er
4.515 krónum hærra en í fyrra.
19,8 prósent hækkun
á einu ári
Laun kennarans hækka síöan aftur
um 1,5 prósent 1. janúar og 1. maí.
Eftir það era launin komin í 77.142
krónur. Þaö er 12.777 krónum hærra
en fyrir verkfall. Laun kennarans
hafa því hækkað um 19,8 prósent á
þessum tólf mánuöum.
Þegar allar hækkanir kennarans;
bæöi áfangahækkanir, launaflokka-
og þrepahækkanir og kaupaukar,
em teknar saman á tólf mánaða
tímabili frá næstu mánaðamótum
fær þessi kennari rúnjjega 132gþúsi
und krónum meira á þessu tímabili
en samkvæmt eldri samningi. Það
jafngildir um 17,1 prósent hækkun
yfir tímabiliö. Ef tekið er tíllit til
verkfallsbótanna og afturvirkrar
hækkunar um launaflokka er hækk-
unin 20 prósent. Ef aukaborgunin
vegna vinnu í ágúst er einnig tekin
með fær kennarinn 29,4 prósent
hærri laun á þessu tólf mánaöa tíma-
bili en hann heföi fengið samkvæmt
eldri samningum.
Trygging gegn
hækkunum annarra
Samkvæmt samningi háskóla-
manna og ríkisins munu háskóla-
menn fá þær hækkanir sem verða á
launatöxtum þeirra verkalýðsfélaga
sem hafa samiö til styttri tíma en
háskólamennimir. Frá lokum nóv-
ember í haust geta háskólamenn
krafist hækkana ef samningar
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, Alþýðusambandsins, Far-
manna- og fiskimannasambandsins
eða Sambands íslenskra banka-
manna fela í sér meiri hækkun en
sem nemur janúar- og maíhækkun
háskólamanna.
Samræming viö laun
á almennum markaði
Næsta sumar er síöan gert ráð fyr-
ir aö fyrstí áfanginn af endurmatí á
launum háskólamanna í vinnu hjá
ríkinu komi til framkvæmda. Ef
samanburður á kjömm þeirra og
fólks meö sambærilega menntun á
almennum vinnumarkaði leiöir í ljós
aö opinberir starfsmenn liafi verri
kjör á að hækka laun þeirra í áfóng-
um.
Inn í þessa athugun er ætlunin aö
taka öll laun, yfirborganir, ómælda
yfirvinnu, vinnuframlag, lífeyris-
réttindi og önnur hlunnindi.
Af þessum atriðum er hætt við aö
lífeyrisréttindi hækki kjör opinberra
starfsmanna umtalsvert. Þeir greiöa
ekki iðgjöld nema af dagvinnulaun-
um og ekki nema í 30 ár. Eftir sem
áður njóta þeir betri lífeyrisgreiöslna
úr sjóði starfsmanna ríkisins en
starfsmenn á almennum markaöi
njóta. Talið hefur veriö aö lífeyris-
réttindi opinberra starfsmanna
hækki raunveruleg laun þeirra um
allt að 15 prósent.