Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Page 7
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
7
Fréttir
Skolplagnir gefa sig víöa í eldri borgarhverfum Reykjavikur:
Eins og rotþrær
undir kjöllurum
Vandkvæöi steðja nú að víða í eldri
borgarhverfum í Reykjavík vegna
skolpleiðslna sem eru að gefa sig.
Að sögn pípulagningamanns, sem
DV hefiir rætt við, er nú svo komið
í gamla vesturbænum og í Hlíðunum
að skolpleiðslur hafa víða lent í sund-
ur og skolp safnast saman undir
húsum, þannig að grunnurinn er
orðinn eins og rotþró. Segir heim-
ildamaður DV að oft hljótist af stór-
tjón og í sumum tilvikum koma
„gallar“ þessir á húsnæðinu í ljós
skömmu eftir að það hefur verið selt
og nýir eigendur verða að taka tjónið
á sig.
Ásmundur Reykdal meindýraeyðir
sagði í viðtali við DV að vissulega
kannaðist hann við vandamál af
þessu tagi.
„Ég vil ekki nefna nein hverfi,“
sagði Ásmundur, „enda væri slíkt
ekki rétt gagnvart eigendum hús-
næðis í þeim. Þama er þó 'um að
ræða eldri hverfi, yfirleitt hús sem
byggð voru um eða fyrir 1940. í flest-
um tilvikum, þar sem vart verður
við rottugang, hafa leiðslur reynst
bilaðar. Steinrörin, sem notuð voru
í skolplagnir hér áður, morkna með
árunum og verða léleg. Þau hafa
stundum gengið í sundur við jarðsig
eða í jarðskjálftum.
Jafnframt rottugangi tengist þetta
líka húsmaurnum. Vegna þessara
bilana í skolplögnum hafa skapast
skilyrði fyrir hann þar en ísland er
eina landið þar sem vitað er til að svo
hagi til. Það er athyglisvert mál út
af fyrir sig.“
-HV
Festist í flakinu en
slapp lítt meiddur
Vörabíl var ekið í veg fyrir fram-
byggðan sendibíl á mótum nýju
Reykjanesbrautar og gömlu Reykja-
nesbrautarinnar, sem nú heitir
Hafnaríj arðarvegur, í fyrradag. Öku-
maður sendibílsins festist í bílnum
og var óttast að hann væri mikið
slasaður.
Eftir að búið var að rífa bílinn sté
ökumaðurinn út og reyndist til muna
minna slasaður en haldið var í
fyrstu. Hann var fingurbrotinn.
Sendibíllinn er gjörónýtur. -sme
TIL SÖLU EÐA LEIGU STRAX
Á besta stað í miðbæ Akureyrar verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði, 1. og 2. hæð, 143 m2 grunnflötur
hvor, nýlega standsett, upphituð gangstétt, næg bif-
reiðastæði. Einstakt tækifæri sem stendur stutt.
Uppl. í síma 96-27877 um helgina og eftir kl. 17 virka
daga.
PALLETTUTJAKKAR
_ 2.5 tonn
Tvöföld hjól • 1120 mm gafflar
Verð kr. 37.500,-
Pallar bf.
VINNUPALLAR - STIGAR - VÉLAR - VERKFÆRI
DALVEGI 16, FlFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SlMAR 641020 OG 42322
ökumaður var fastur i bilnum og óttast var að hann væri alvarlega slasað-
ur. Svo reyndist sem betur ter ekki vera. DV-mynd S
Tekist á um lottópeningana
Hart er nú deilt innan íþrótta-
hreyfingarinnar vegna lottópeninga.
Um síðustu helgi lá við byltingu inn-
an ÍSÍ og búist er við hörðum átökum
á þingi Handknattleikssambandsins
í Vestmannaeyjum en það hefst í dag.
Deilumar innan íþróttahreyfingar-
innar eru tvíþættar.
Annars vegar ríkir mikil óánægja
með þann kostnað sem er af rekstri
lottósins, einkum með greiðslur sem
fara úr landi til aðilanna sem lottó-
vélamar eru keyptar frá.
Hins vegar eru mörg íþróttafélag-
anna óánægð með skiptingu lottó-
peninganna og þykir lítið af þeim
koma í sinn hlut.
Talsmenn þess að félögin fái meira
í sinn hlut benda á aö á síöasta þingi
HSÍ hafi verið ákveðið að falla frá
kröfu um skiptingu lottópeninganna
vegna hótana stjórnar sambandsins
um að segja af sér. Þá hafi þótt rétt
að halda friðinn vegna ólympíuleik-
anna en nú sé sjálfsagt að láta sverfa
til stáls.
-HV
Jón Hjaltalin Magnússon:
Minnihlutaskoðun sem
á sér ekki
„Ég held að þama sé um minni-
hlutaskoðun að ræða og að hún eigi
sér ekki almennan hljómgmnn,"
sagði Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður HSÍ, í viðtali við DV.
„Ég veit að íþróttafélögin em mörg
illa stæð fiárhagslega en peningarnir
úr lottóinu verða ekki að miklu gagni
ef þeim er skipt. Við verðum aö muna
að það em um fiömtíu félög í HSÍ. Á
síðasta starfsári fékk sambandið um
hljómgrunn
hálfa fimmtu milljón í sinn hlut úr
lottóinu þannig að hvert félag hefði
fengið um níu þúsund krónur á mán-
uði ef öllu hefði verið skipt milli
þeirra.
Ég veit það eru tveir eða þrír aðilar
sem hafa sérstakar hugmyndir um
uppbyggingu hreyfingarinnar. Ég
hef hins vegar ekki trú á að þar sé
um langtímasjónarmið aö ræða.“
-HV
ekki lengur
NÝ FLÍKFRÁ
LUHTA
ER SVARIÐ!
Sendum i póstkröfu
»hufflmél
SPORTBÚÐIN
Eiðistorgi 11,2. hæð Seltj., sími 611055
Ármúla 40, Rvík, sími 83555/83655