Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Page 9
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989. 9 Utlönd Námsmennirnir gefasf ekki upp Ráðamenn í Kína hvöttu snemma í morgun kínverska námsmenn til að hætta hungurverkfalli. Þúsundir námsmanna í Peking hafa hvorki neytt matar né vatns í sex daga og eru margir þeirra orðnir örmagna. Tvö þúsund hafa þegar verið flutt á sjúkrahús í Peking, höfuðborginni, vegna máttleysis. Zhao Ziyang, formaður kínverska kommúnistaflokksins, og aðrir hátt- settir embættismenn ræddu við nokkra námsmenn á Tiananmen- torgi í Peking í dögun í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðamenn og námsmenn ræðast við á torginu en þar hafa mestu mótmælin farið fram. Að sögn heimildarmanna í Kína stóð fundurinn stutt. Zhao sagði að um leið og hungur- verkfalh um þrjú þúsund náms- manna lyki myndu yfirvöld vera til- búin til viðræðna við fulltrúa náms- manna. Mótmælendur hunsuðu hvatningu yfirvalda og flykktust út á götur Pek- ing og annarra borga. Tugir þúsunda mótmælenda hafa að mestu lamað Peking og mótmælin hafa breiðst út um allt landið. í Shanghai mótmæltu um 100 þúsund námsmenn í gær, á síðasta degi heimsóknar Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í Kína. Fjögur hundruö námsmenn í Shanghai hafa verið í hungurverkfalli í fióra daga. Sam- kvæmt fréttum frá Kína hafa mót- mæli brotist út í 25 borgum. Sjónarvottar í Peking sögðu í morg- un að fiöldi mótmælenda hefði verið töluvert minni en síðustu tvö dægrin þegar meira en milljón Kínverjar komu saman á götum borgarinnar. Talið er að um 500 þúsund mótmæl- endur hafi safnast saman í morgun. Námsmennirnir, sem hófu þessa mestu mótmælaöldu síðan á tímum byltingarinnar árið 1949, krefiast aukins lýðræðis og umbóta. Þeir hafa áunnið sér samúð landa sinna úr öll- um stéttum þjóðfélagsins og vakið athygh um ahan heim. Kínversk yfir- völd hafa ekkert ráðið við þessi mót- mæh. Ráðamenn hafa notað bæði hótanir og blíðmæh en allt kemur fyrir ekki. Li forsætisráðherra kvaðst í gær líta svo á að stjómleysi hefði ríkt í Peking síðustu daga og að það væri hlutverk stjórnvalda að vernda íbúa landsins. Námsmenn- irnir létu slíkt sem vind um eyru þjóta og héldu mótmælum sínum ótrauðir áfram. Tahð er að valdabar- átta eigi sér nú stað mihi ráða- manna, að Deng og Li hafi tekið höndum saman til að einangra Zhao. Námsmennirnir beina spjótum sín- um að Deng Xiaoping. Deng, sem hefur enga opinbera titla fyrir utan formannsstöðu herráðs kommún- istaflokksins, er hinn rau-.verulegi leiðtogi landsins. Þeir fara fram á afsögn Dengs og Li Pengs forsætis- ráðherra. Reuter Leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, Zhao Ziyang, ræðir við fulltrúa námsmanna á Tiananmentorgi í Peking snemma í morgun. Símamynd Reuter Tugþúsundir kinverskra námsmanna hafa staðið fyrir mótmælum á Tianan- mentorgi síðustu vikur. Mótmælin hófust i april en síðustu viku hafa æ fleiri tekið þátt í þeim. Simamynd Reuter ianga veru á Tiananmentorgi. Þessir námsmenn lásu um viðbrögð stjórn- valda við hinum gifurlegu mótmælum i Peking i gær. Fjölmiðlar i Kína hafa flutt daglegar fréttir af mótmælum námsmanna. Símamynd Reuter Olíuiðnaður undir grun Birgir Þórisson, DV, New York Ehefu prósenta hækkun á olíu og bensíni á einum mánuði, sem er ör- asta hækkun sem sögur fara af í Bandaríkjunum, hefur vakið upp raddir um að ohufélög noti mengun- arslysið í Alaska sem skálkaskjól til að hækka olíuverð. Fylkisþingið í Massachusetts hefur ákveðið að hefia rannsókn á hækkuninni og D’Amato öldungadehdarþingmaður hefur opinberlega sakað ohufélögin __ pm samsæri. Sérfræðingar segja hækkunina ekki stafa nema að mjög litlu leyti af strandi risaolíuskipsins Exxon Valdes við Alaska. Meginástæðuna segja þeir vera truflanir á dreifingu ohu vegna ýmissa atvika. Eldsvoði dró úr blíuframleiðslu á Norðursjó, mikið álag á olíuhreinsunarstöðvar á vesturströnd Bandaríkjanna ásamt vaxandi eftirspurn olh staðbundnum skorti á bensíni sem aftur olli hækk- un verðs á upþboðsmörkuðum. Sérfræðingarnir spá því að olía eigi enn eftir að hækka um 4 til 5 prósent til viðbótar 19 prósenta hækkun frá áramótum en aukin framleiðsla við Persaflóa, einkum í írak, ætti að hindra frekari hækkun. Stjórnendur Exxon olíufélagsins voru gagnrýndir harðlega á aðal- fundi félagsins sem nú stendur yfir en frambjóðandi umhverfisvemdar- manna, leikarinn Robert Redford, féh í stjórnarkjöri. Fékk hann aðeins fimmtung atkvæða. Verðbólga eykst í Bandaríkjunum Birgir Þórisson, DV, New York; Hagfræðingar og spákaupmenn í Bandaríkjunum láta sér fátt um finnast þótt verðbólga í aprh hafi verið meiri þar í landi en um árabh, jafnghdi 6,6 prósenta á ársgrund- velli, aðahega vegna mikhlar hækk- unar olíuverðs undanfarið. Búist er við minnkandi verðbólgu er á árið líður þar sem Seðlabankinn hefur haldið vöxtum háum th að slá á þenslu og ýmis merki eru um að hagvöxtur fari minnkandi. Verð hlutabréfa er nú hærra í kauphöll- inni í New York en verið hefur síðan hrunið varð haustið 1987. Viðskiptahalhnn varð minni en búist var við í aprílmánuði sem varð til að doharinn hækkaði í verði á gjaldeyrismörkuðum. Hahinn er samt enn mikill, jafnvirði 440 mhlj- arða króna sem er 70 milljörðum minna en spáð var. Ástæðan var að útflutningur jókst helmingi hraðar en innflutningur í aprílmánuði. Tölvur, flugvélar og matvæh vógu þyngst í þessari aukningu en gengis- hækkun dollars gæti hamlað gegn frekari bata. Bandaríkjaþing samþykkti í gær fiárlög fyrir næsta fiárhagsár og litla 55 þúsund mihjarða króna. Þótt tek- ist hafi aö halda fiárlagahallanum innan lögbundinna marka byggist þaö á vægast sagt bjartsýnni tekju- áætlun og margvíslegum bókhalds- brellum. Laugaveg 95 S. 624590 PÓSTSENDUM Opið 10-16 laugand.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.