Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Side 11
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
11
Útlönd
Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, er vongóð um samstarf
EFTA og EB.
Noregur ekki í EB
„EFTA er komið til að vera,“ sagði
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, á fundi með frétta-
mönnum í Brussel í gær, að loknum
viðræðum við Jacques Delors, fram-
kvæmdastjóra Evrópubandalagsins,
EB. Noregur er nú í forystu fyrir
EFTA og var Brundtland í Brussel
til að ræða við fulltrúa Evrópu-
bandalagsins um samstarf þess og
EFTA. Kvaðst hún vera ánægð með
þróunina þótt enn væri of snemmt
að tala um árangur.
Brundtland sagði að Norðmenn
________it_________________
~tr
Uppreisnin
Uppreisnin í Eþíópíu virðist nú
hafa verið brotin á bak aftur af her-
mönnum hhðhollum Mengistu for-
seta. Varnarmálaráðherra landsins,
sem neitaði að taka þátt í byltingar-
tilrauninni, var skotinn til bana af
uppreisnarhermönnum áður en
stjórnarhermenn náðu aftur yfirráð-
um í höfuðborginni, Addis Ababa.
í ávarpi til þjóðarinnar í gær hrós-
aði Mengistu stjómarhermönnum
sem skutu til bana foringja uppreisn-
armanna í Asmara, höfuðborg hér-
aðsins Erítreu.
Uppreisnartilraunin er sú fyrsta
myndu ekki sækja um aðild að Evr-
ópubandalaginu á næsta kjörtímabih
hvernig svo sem úrshtin yrðu í þing-
kosningum í Noregi í haust.
Varðandi væntanlega umsókn
Austurríkis í sumar um aðild að
bandalaginu sagði forsætisráðherr-
ann að Austurríkismenn gerðu sér
fyllhega grein fyrir að það hðu mörg
ár áður en búið yrði að afgreiða
umsóknina að fullu og þangað th
yrði Austurríki áfram aðhi að EFTA.
Ritzau
bæld niður
sem vitað er um að hafi verið gerð
gegn Mengistu. Hann tók við völdum
í Eþíópíu 1977, þremur árum eftir að
herinn steypti HaUe Selassie keisara
af stóli.
Stjórnarerindrekar í Nairobi í
Kenýa segja að örsök byltingartU-
raunarinnar sé líklega óánægja
sumra herdeilda með borgarastyrj-
öldina í Erítreu og Tigray. Skæruhð-
ar, sem berjast fyrir sjálfstæði þess-
ara héraða, hafa undanfarna sautján
mánuði verið sigursælir í átökunum
við stjórnarhermenn.
Reuter
Mitterrand
tekur afstöðu
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti tók í gær afstöðu með stefnu
Bandaríkjamanna og Breta í deil-
unni um framtíð skammdrægra
kjarnorkuflauga í Evrópu. Forsetinn
sagði á blaðamannafundi í gær að
viðræður Atlantshafsbandalagsins
og Sovétríkjanna um fækkun eða
útrýmingu skammdrægra kjarn-
orkufiauga í Evrópu, svoköhuð
þriðja núll-lausn, væru ótímabærar.
Vestur-þýsk stjórnvöld hafa farið
fram á að viðræðurnar hefjist hið
fyrsta en Bretar og Bandaríkjamenn
eru því mótfallnir þar tU niðurstöður
viðræðna, sem fram fara í Vínar-
borg, um hefðbundin vopn, lægju
fyrir.
En forsetinn veitti einnig ná-
grannaríki sínu,. Vestur-Þýskalandi,
stuðning og kvaðst telja endurnýjun
Lance-flauga Bandaríkjamanna, sem
staðsettar eru í V-Þýskalandi, óþarfa
enn sem komið er.
Mitterrand mun fara í opinbera
heimsókn tU Bandaríkjanna á laug-
ardag og vonast margir tU að hann
muni leita sátta milh Bush Banda-
ríkjaforseta og Kohls, kanslara V-
Þýskalands, í þessari deilu innan
NATO. Reuter
Mitterrand Frakklandsforseti kvaðst í gaer styðja afstöðu Breta og Banda-
ríkjamanna í deilunni um framtíðskammdrægra kjarnorkuflauga í Evrópu
Simamynd Reuter
Handtökur vegna
sprengjutilræða
Sænska lögreglan handtók í gær
fimmtán manns af arabískum upp-
runa sem grunaðir eru um aðUd að
sprengjuárásunum á bænahús gyð-
inga og skrifstofu bandarísks flugfé-
lags í Kaupmannahöfn 1985. Voru
mennimir, sem handteknir voru
víðs vegar um Svíþjóð, fluttir tU yfir-
heyrslu í Stokkhólmi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni hafa margir hinna hand-
teknu verið í tengslum við palest-
ínsku samtökin PFLP sem banda-
ríska leyniþjónustan telur að geti
hafa verið á bak við sprengjutilræðið
yfir Skotlandi í desember síðasthðn-
um. Tvö hundruð og sjötíu manns
fórust er farþegaþota frá Pan Amer-
ican flugfélaginu sprakk qg hrapaði
til jarðar.
í sprengjutUræðunum í Kaup-
mannahöfn 1985 beið einn maður
bana og tuttugu. og sjö særðust.
Sprengjurnar tvær sprungu nær
samstundis. Þriðja sprengjan fannst
í ferðatösku sem maður sást kasta í
skurð. Maðurinn sást seinna fara um
borð í ferju til Svíþjóðar.
í fyrrasumar fann sænska lögregl-
an mikið magn vopna og sprengiefna
nálægt Arlanda flugvelhnum við
Stokkhólm og eru samtök hryðju-
verkamannsins Abu Nidals sett í
samband við vopnabúrið. Einn af
æöstu foringjum Nidals, Khadar
Samir Mohammed, er sagður hafa
búið í Svíþjóð í nokkur ár undir
fölsku nafni ásamt finnskri eigin-
konu sinni. Mohammed er grunaður
um aó hafa leitt árásina á gríska far-
þegaferju í fyrrasumar með þeim af-
leiðingum að niu manns biðu bana.
Síðustu fréttir herma að fjórtán af
hinum fimmtán handteknu hafi ver-
ið sleppt í morgun.
Reuter og TT
Nakasone ber vitni
í Recruit-málinu
Yasuhiro Nakasone, fyrrum for-
sætisráðiierra Japans, mun bera
vitni við þingyfirheyrslur varðandi
Recrait-hneykslið en það hefur leitt
til afsagnar Takeshita núverandi for-
sætisráðherra. Þingyfirheyrslurnar
yfir Nakasone hefjast 25. maí nk.
Nakasone mun svara spurningum
þingmanna neðri deildar en hefur
harðneitað kröfum stjórnarandstöð-
unnar um að svara spurningum
þingmanna efri deildar.
Hann hafði áður neitað að bera
vitni í þessu máli sem er eitt versta
hneyksli í sögu Japans síðan eftir
seinni heimsstyrjöld. Þrettán hafa
verið handteknir vegna þessa máls.
Reuter
★ STÆRRI OG RÚMBETRI ★ STÆRRI HJÓL
★ HÆRRA UNDIR LÆGSTA PUNKT ★ FALLEGRI INNRÉTTING
★ NÝTT ÚTUT ★ NÝJAR LÍNUR
Síðasta sendíng uppseld, tryggið ykkur bíl
úr næstu sendingu
Opið laugardag og sunnudag kl. 14-17
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 674000
ósa/5slA