Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
25
fþróttir
„■> ,xi
%
íkkurra 1. deildar liða slegið skjaldborg
DV-mynd Brynjar
.
Við förum í
hvern leik
til að sigra
- segir Ásgeir Elíasson, þjálfari íslandsmeistara Fram
„Við fórum í hvern leik til að sigra og stefnum að sigri í
öllum þeim mótum sem við tökum þátt í,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari íslandsmeistara Fram, í gær. Liði hans
var spáð sigri á íslandsmótinu í ár af forráðamönnum 1.
deildar liðanna og kvaðst Asgeir vonast til að sú spá gengi eftir.
„Annars verður líklega meiri
spenna á íslandsmótinu í sumar en
á síðasta ári. Ég á ekki von á sömu
velgengni hjá okkur og í fyrra.
Framganga okkar þá var einstök
enda fengum við ekki nema tvö
mörk á okkur í heilum 13 umferð-
um,“ sagði Ásgeir.
Lið Fram hefur nú marga unga
og efnilega leikmenn á sínum
snærum. Var Ásgeir spurður hvort
hann myndi tefla þessum framtíð-
armönnum Uðsins fram nú í sum-
ar:
„Við erum með stærri hóp en oft
áður af ungum og efnilegum strák-
um. Þeir lofa mjög góðu um fram-
tíðina hjá félaginu. Það er hins veg-
ar ekki víst að þeir taki mikinn
þátt í baráttunni nú i surnar."
Ásgeir kvað lið Fram ráða yfir
mörgum sterkum leikmönnum um
þessar mundir. Fram teflir fram
ellefu landsliðsmönnum í sumar
og sagði Ásgeir að einhveijir þeirra
kynnu að byrja á bekknum. Fram
hefur til að mynda þrjá landsliðs-
framherja í sínum röðum, þá Am-
ljót Davíðsson, Guðmund Steins-
son og Ragnar Margeirsson.
„Það er ljóst að einn af fram-
herjunum þremur byrjar á bekkn-
um verði allir heilir,“ sagði Ásgeir
í samtalinu við blaðið.
„Svipaða sögu er að segja af
miðjuleikmönnum en þar mega
einhveijir hefja leikinn á bekknum
hveiju sinni, gangi allir heilir til
skógar. Þetta er ávallt spuming um
að finna besta liðið hverju sinni.“
Ásgeir Elíasson, sem á 32 lands-
leiki að baki, skortir nú aðeins einn
meistaraflokksleik í 300 leikja
markið. Hann spilaði síðast á
þriðjudagskvöld með Fram gegn
Val í úrslitum meistarakeppninn-
ar. Aðspurður kvaðst Ásgeir ekki
eiga von á því að leika meira í sum-
ar. „í öllu falli ekki í alvöruleik.
Þetta var bara tilfallandi þarna
gegn Valsmönnum. Ætli maður nái
þó ekki þrjú hundruð leikja mark-
inu í minningarleik í Garðinum í
sumar,“ sagði Ásgeir sem hefur
leitt Fram til sigurs í tvígang í
hvorri keppni, íslandsmóti og bik-
arkeppni KSÍ. -JÖG
Fram verður meistari
1. deildinni. Guðjón Þórðarson heldur
en Milan Duricic ræður ríkjum hjá Þór
DV-mynd Gylfi
Framarar verða íslandsmeistar-
ar og Þórsarar og Keflvíkingar falia
í 2. deild ef marka má hina árlegu
skoðanakönnun fyrirliöa, þjálfara
og forráðamanna 1. deiidar liðanna
sem gerð var í gær. Valsmenn
verða í 2. sæti ef marka má könn-
unina. Úrslitin voru kynnt á blaða-
mannafundi 1.. deildar félaganna
sem haldinn var í félagsheimili
Fram við Safamýri í gær. Niöur-
staðan í skoðanakönnuninni varð
þessi:
1. Fram......................................................287
2. Valur.....................................................261
3. KR........................................................288
4. Akranes...................................................199
5. KA........................................................198
6. Víkingur................................................ 124
8. Fylkir.................................................... 92
9. Þór....................................................... 82
lO.Keflavík....................................................65
Það merkilega er að aldrei hefur brugðist að það hð sem spáö hefur
verið efsta sætinu hefur orðið íslandsmeistari. Hins vegcir hafa mönnum
verið mislagðar hendur varðandi tvö neðstu sætin þannig að Þórsarar
ogKeflvíkingarþurfaekkiaðörvænta! -VS
ísland - England:
Þrír heltast
úr lestinni
-16 manna hópur
Sigfried Held, landsliðsþjálfari ís-
lendinga í knattspyrnu, hefur nú
valið 16 manna hóp fyrir æfingaleik-
inn gegn Englendingum sem fram fer
á Laugardalsvelh í kvöld kl. 20.
Held hafði vahð 19 manna hóp í
síðustu viku en nú heltast þeir Frið-
rik Friðriksson, B 1909, Þorsteinn
Þorsteinsson, Fram, og Pétur Péturs- •
son, KR, úr lestinni.
Hópurinn er nú þessi:
Bjarni Sigurðsson, Val......26
Guðm. Hreiðarsson, Víkingi...1
AtU Eðvaldsson, Val.........56
Ágúst Már Jónsson, Hácken...19
Guðm.Torfason,RapidVín......17
Guðni Bergsson, Spurs.......24
Gunnar Gíslason, Hácken.....39
HaUdór Áskelsson, Val.......22
Ólafur Þórðarson, Brann.....28
Ómar Torfason, Fram.........35
Pétur Amþórsson, Fram.......21
Ragnar Margeirsson, Fram....36
Sigurður Jónsson, Shef. Wed.16
Sævar Jónsson, Val..........48
Viðar Þorkelsson, Fram......22
ÞorvaldurÖrlygsson,KA........7
-JÖG
ísland - England:
Iðjagrænar
spildur í
Laugardalnum
Plastdúkurinn, sem skýlt hefur
LaugardalsvelU síðustu dægrin, hef-
ur nú verið íjarlægður. Blasa viö
iðjagrænar spildur víða en þó eru
nokkrir kalblettir í vellinum. Hann
er engu að síður tilbúinn fyrir lands-
leikinn gegn Englendingum í kvöld
en hann hefst klukkan 20.
„Völlurinn er ágætur, eins góður
og við var að búast. Nokkrir kalblett-
ir eru hér og þar en þetta grær,“ sagði
Jón Magnússon, starfsmaður Laug-
ardalsvaUar, við DV.
„Maður segir ekkert til um hvort
vöUurinn spUUst vegna landsleiks-
ins. Þaö verður að skoðast að honum
loknum. Mér sýnist vöUurinn núna
vel boðlegur fyrir þennan leik, hann
er sléttur og þurr og á ráunar mjög '
skammt í að ná sínu besta. Ég tel að
sú aðgerð að leggja plastdúkinn hafi
skflað veUinum mun betri en annars
hefði verið. Dúkurinn hefði hins veg-
ar mátt vera hálfum mánuði lengur
á velUnum,“ sagði Jón Magnússon.
-JÖG
• UEFA-leiMnn:
slskarfót-
ir ofbeldi“
sðallagi fyrir frammistöðuna
Þýsku blöðin fara ekki mörgum orð-
um um frammistöðu einstaka leik-
manna í leiknum en Maradona er þó
svo að segja á hverri síðu og er honum
óspart hælt fyrir frammistöðuna.
Maradona hæUr líka leikmönnum
Stuttgart fyrir prúðmannlega fram-
komu í leiknum. Um Ásgeir Sigur-
vinsson segja blöðin að hann hafi átt
meðalgóðan leik. Arie Haan, þjálfari
Stuttgart, er mikið hrósað og segja
blöðin að hann eigi hrós skflið fyrir
það að hafa byggt lið Stuttgart upp í
það að vera stórUð eftir að fyrirrenn-
ari hans í þjálfarastöðunni hafi lagt
Uðið í rúst. Þá er mikið skrifað um
stemninguna á vellinum og segja
blöðin að slík stemning hafi ekki ver-
ið áður á Neckar-leikvanginum. Öll-
um blöðunum þýsku ber saman um
að knattspyman hafi sigrað að þessu
sinni.
Steini Bjama í
markið hjá ÍBK?
- Pétur gefur kost á sér. Sigurlás úr leik?
„Ég er á leiö til Bandarikjanna í ingu. landsUöinu leiki hann af eðUlegri
sumarfrí með fjölskylduna og kem Keflvíkingar eiga eflaust erfitt getuísumar.ÞessmágetaaðPétur
aftur til íslands 20. júní. Þá mun sumar framundan og ekki mun sleit Uðbönd og braut Utlafmgur á
égtakaaðmérþjálfunmarkvarða þeim veita af þeim mikla Uðsstyrk dögunum en það mun ekki há hon-
hjá ÍBK og sjálfur mun ég hefja sem er í hinum snjalla markverði um að ráði.
æfingar. Það verður síðan að koma Þorsteini Bjamasyni.
í ljós hvort ég leik með ÍBK í sum- Sigurlás úr lelk?
ar í 1. deildinni," sagði Þorsteinn Pétur gefur kost á sér ÚtUtiö er ekki gott hjá Sigurlási
Bjamason, hinn snjalU markvörö- Fleiri gleðifregnir úr knattspyrn- Þorieifssyni, þjálfara 2. deildar Uös
ur Keflvíkinga, í samtáU viö DV. unni. Pétur Ormsslev, fyrirUöi ÍBV. Hann er enn slæmur af
Steini var búinn að ákveða aö Fram, hefur ákveðið að gefa kost á meiðslum í lærvööva og i samtaU
leggja skóna á hilluna en sam- sér i landsUðiö á ný en hann hefur við DV sagði Lási að útUtið væri
kvæmt heimildum DV mun hann ekki leikið landsleik í nokkuö lang- mjög slæmt. Er það mikið áfall fyr-
leika með Keflvíkingum í sumar an tíma. Ekki er að efa að Pétur ir Eyjamenn ef Sigurlás getur ekki
þegar hann verður kominn i æf- verður fljótur aö vinna sér sæti í leikið í sumar meö ÍBV.
West Ham
eygir von
Tvö mörk frá framherjanum fljóta,
Leroy Rosenior, gáfu vonum leik-
manna West Ham byr undir báða
vængi í gærkvöldi. Liðið vann þá
Notthingham Forest, 1-2, á útivelU
og var fyrra mark West Ham gert
eftir aðeins 19 sekúndur. Ekkertfélag
hefur brugðist jafnskjótt við í 1.
deildinni í vetur.
Barátta West Ham kom Forest í
opna skjöldu og veitti Uðinu stigin
þrjú sem kunna að forða því frá falU
þegar upp verður staðið.
Mörk Rosenior í gær komu bæði
eftir glæsilegan undirbúning Liam
Brady sem lék vel að vanda.
Mark Forest skoraði hins vegar Lee
Chapman með skaUa eftir sendingu
frá Tommy Gaynor.
Þrátt fyrir þennan sigur stendur
Lundúnadiðið iUa að vígi. West Ham
er í öðru sæti næst botni en á leik
inni gegn Liverpool. Sú viðureign,
sem er mikUvæg báðum aðUum, fer
fram nk. þriðjudagskvöld.
JÖG
Eilllí