Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
Andlát
Halldór Oddur Árnason frá Sóleyjar-
tungu andaðist á Sjúkrahúsi Akra-
ness funmtudaginn 18. maí.
Petrína Friðbjörnsdóttir frá Siglu-
firði, Skipasundi 35, andaðist á
Hrafnistu 18. maí.
Gunnar Nielsen, Tjarnargötu lOc,
andaðist í Borgarspítalanum 18. mai
Jarðarfarir
Jónína Ólafsdóttir verður jarðsungin
frá Hvammstangakirkju laugardag-
inn 20. maí kl. 14.
Geirmundur Valtýsson, áður bóndi
að Seli í Austur-Landeyjum, til heim-
ihs að Ljósheimum 11, Reykjavík,
verður jarðsettur frá Voðmúiastaða-
kapellu laugardaginn 20. maí kl. 14.
Helgi Bergvinsson, Miðstræti 25,
Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju laugardaginn 20.
maí kl. 11.
Erla Hjördís Ólafsdóttir, Baðsvöllum
19, Grindavík, sem lést í Landspítal-
anum þann 12. maí, verður jarðsung-
in frá Grindavíkurkirkju laugardag-
inn 20. maí kl. 13.30.
Theodór A. Jónsson lést 7. maí sl.
Hann fæddist á Stað í Staðardal,
Steingrímsfirði, 28. júní 1939. For-
^eldrar hans voru hjónin Helga Tóm-
”asdóttir og Jón Sæmundsson. Theod-
ór lauk prófi frá Samvinnuskólanum
á Bifröst áriö 1961. Að prófi loknu
hóf hann störf hjá Tryggingastofnun
ríkisins og vann þar í lífeyrisdeild
allt til þess að hann tók við starfi sem
forstöðumaður Vinnu- og dvalar-
heimilis Sjáifsbjargar áriö 1973. Því
starfi gegndi hann til dauðadags. Eft-
irlifandi eiginkona hans er Elísabet
Jónsdóttir. Elísabet á tvö böm sem
Theodór gekk í fóðurstað. Útfór hans
verður gerð frá Haligrímskirkju í dag
kl. 13.30.
Oddný V. Guðjónsdóttir lést 13. maí
sl. Hún var fædd 19. ágúst 1902. For-
eldrar hennar vom hjónin Guðjón
Jónsson og Kristín Jónsdóttir.
Oddný giftist Stefáni Hilmarssyni en
hann lést árið 1941. Þau hjónin eign-
uðust fjögur böm. Útfór Oddnýjar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Tilkyimingar
Grandi hf. hlaut
verðlaunaskjöld
Coldwater fyrir
gæðaframleiðslu
Nú nýverið hlaut Grandi hf. verðlauna-
skjöld Coldwater Seafood Corporation,
dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Bandaríkjunum, fyrir
hágæðaframleiðslu fiskafurða. Cold-
water veitir árlega þessi eftirsóttu gæða-
verðlaun, en auk þess eru veittar nokkr-
ar viðurkenningar til fleiri SH-húsa fyrir
gæðaframleiðslu.. Þetta er í fyrsta sinn
sem Grandi hf. fær verðlaunaskjöldinn,
en hefur áður hlotiö viðurkenningar
Coldwaters. Skjöldurinn var formlega
afhentur af Magnúsi Gústafssyni for-
stjóra og Páli Péturssyni, gæðastjóra
Coldwaters, að viðstöddum starfsmönn-
um Granda hf.
Hljómsveitin Stjórnin
á Benidorm í sumar
Hljómsveitin Stjómin ásamt Siggu Bein-
teins fer með Ferðaskrifstofu Reykjavík-
ur í sumar til Benidorm og mun skemmta
farþegum ferðaskrifstofunnar þar. Grét-
ar og Sigga munu ásamt hljómsveitinni
halda uppi sólarstuði eins og það gerist
best og mun landslagið 1989 „Við eigum
samleið" hljóma á þeim diskótekum og
skemmtistöðum sem farþegar Ferða-
skrifstofu Reykjavikur skemmta sér á.
miAG
Eumi
BORGARA
FRÁ FÉLAGI ELDRI BORGARA
Félag eldri borgara í Reykjavík heldur bingó í Tónabæ
fyrir félagsmenn og gesti þeirra laugardaginn 20.
maí kl. 15.
Meðal margra vinninga er 3ja daga dvöl fyrir tvo á
Edduhóteli í sumar
Allir velkomnir
Fjáröflunarnefnd F.E.B.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Meiming
The King’s Singers.
Konungleg sönglist
The King’s Singers, tónleikar i íslensku
óperunni á vegum Tónlistarfélagsins
fimmtudaginn 18. maí 1989.
Það var sannarlega bæði konung-
leg sönglist og óborganleg skemmt-
an sem meðlimir söngsveitarinnar
The King’s Singers buðu íslenskum
áheyrendum upp á í gærkvöldi.
Fjölhæfni þessa tuttugu ára sext-
etts virðast fá takmörk sett.
Rætur hinna sex söngvara,
tveggja kontratenóra, tenórs,
tveggja barítónsöngvara og bassa,
hggja í hinum hefðbundna enska
kirkjusöng sem er sennilega besti
skóli sem nokkur söngvari getur
gengið í gegnum en á ferh sínum
hafa þeir einnig tileinkað sér öll
tæknibrögð nútíma kórsöngs, al-
þjóðlega þjóðlagahefð, dægurlög,
rakarasöngva og jasssöng.
Þeir kóngssöngvarar (sem heita í
höfuðið á King’s Cohege, Cam-
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
bridge) eru einnig skemmtikraftar
í besta skhningi þess orðs, reiðu-
búnir að bregða á leik, draga fram
inntak söngva bæði með látbragðs-
leik og tilheyrandi hljóðeffektum
án þess nokkurn tímann að slá af
listrænum kröfum.
Sjávarsöngvar
I gærkvöldi var söngskrá þeirra
að mestu helguð hafinu og sjó-
mennsku.
Fyrst sungu þeir fimm bandarísk
þjóðlög, útsett af tenómum Bob
Chhcott, færöu sig svo yfir í
spænsk sjómannalög frá sextándu
öld, gullöld flúrsöngsins, og end-
uðu fyrri helming tónleikanna á
fremur langdregnu en yndislega
sungnu nútímaverki eftir breska
tónskáldið Gordon Crosse, sem
fjallar um hrakfarir spænska flot-
ans árið 1588 er hann hugðist ráð-
ast á England.
Síðari hluti tónleikanna var einn-
ig mikið eymayndi. Söngsveitin
byrjaði á sönglaginu um „Sjó-
mennina frá Kermor” eftir Saint-
Saens og endaði á syrpu með lögum
eftir Bítlana, Paul Simon, Duke
Elhngton og fleiri, að ógleymdum
forleiknum að Rakaranum í Sevhla
eftir Rossini.
Sönghstin hrein og tær kemur
tæplega með að rísa hærra hér á
íslandi það sem eftir lifir árs.
Rétt og skylt er að þakka greinar-
góðar upplýsingar og textaþýðing-
ar í söngskrá. -ai
17. júní verður þjóðhátíðardansleikur og
skrúðgöngur með Stjóminni sem leika
mun fyrir dansi og skemmta gestum.
Jórunn Tómasdóttir, sem búið hefur á
Benidorm í 11 ár, skipuleggur ferðimar
í sumar þangað ásamt Islaugu Aðal-
steinsdóttm- framkvæmdastjóra. Næstu
feröir til Benidorm verða 31. maí og síðan
á þriggja vikna fresti í allt sumar.
Ný verslun í Fellabæ
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs opnaði ný-
lega byggingavömverslun í húsi sínu í
Fellabæ. Erfiðleikar vom í rekstri fyrir-
tækisins sl. vetur og var þá starfsemin
endurskipulögð, m.a. var verslunarað-
staða flutt og endurbætt. Aðalframleiðsla
trésmiðjunnar er timburhús, bæði íbúð-
arhús og sumarhús, sem raunar geta
verið heilsárshús. Afgreiðslutími á 120
ferm húsi er tvær til þijár vikur og er
þá miðað viö fokhelt hús. Sigurjón
Bjamason var ráðinn framkvæmdastjóri
í vetur. Hann sagði að nú væm allgóðar
horfur hjá fyrirtækinu og margar fyrir-
spumir um hús fyrirliggjandi. Fram-
kvæmdastjóri frá upphafi og þar til í vet-
ur var Orri Hrafnkelsson.
Sigurjón Bjarnason og Orri
Hrafnkelsson við opnun verslunar-
innar. DV-mynd Sigrún
Kynningardagar hjá
Félagsstarfi
aldraðra í Kópavogi
Nú er senn lokið vetrarstarfi eidri bæj-
arbúa í Kópavogi. Mikið hefur verið
starfað í klúbbum og á námskeiðum í
ýmsum greinum. Má þar nefna t.d. bók-
band, keramik, taumálningu, trévinnu,
leðurgerð, bibliuleshóp, sönghóp, dans-
hóp og leikflmi, sem stunduð er reglulega
allan veturinn. Nú stendur fyrir dyrum
sérstök kynning á vinnu og vinnubrögð-
um frá námskeiðum vetrarins, basar og
kafflsala, einnig myndasýning frá starf-
inu undanfarin ár. Auk þess verður sér-
stök dagskrá á hveijum degi. Fimmtu-
dagur 18. maí kl. 14 verður sýningin opn-
uð með ávarpi og kórsöng. Kl. 16.30 dans-
sýning. Föstudagur 19. maí, kl. 14.30 leik-
fimisýning. Laugardagur20. maí, kl. 14.30
kórsöngur aldraðra, kl. 16.30 almennur
dans. Aldraðir eru þátttakendur í öllum
þessum greinum. Opið verður þessa þijá
daga frá kl. 14-17. Sunnudaginn 21. maí
lýkur kynningunni með kirkjuferð til
Ákraness. Lagt verður af stað kl. 11 ár-
degis frá Fannborg 1.