Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Qupperneq 32
F R ÉTT AS KOTIÐ 1
■ A k ▼ jA
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagbiað
'
Rif&tjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Stmi 27022 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
Skólaslit:
Vandinn mcstur
í bekkjakerfinu
Kennarar og skólameistarar
framhaldsskólanna héldu fund f
menntamálaráðuneytinu til að
bera saman bækur sínar um skóla-
slit í morgun.
Nokkrir skólar haía þegarákveð-
ið með hvaða hætti þau verða. Próf
hefjast í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja strax eftir helgi og veröur
lokiö um mánaðamót. Próf hefiast
einnig fljótlega í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti og er búist við að
þeim geti verið lokið ura 8. eða 9.
júní.
Mestu vandkvæðin varðandi
skólaslit munu vera í þeim skólum
sem byggja á bekkjakerfinu. Þar
er prófaö í mun fleiri fögum og eins
eru stúdentsefnin prófuð úr náms-
efni síðastliðinna fjögurra ára.
Á morgun verður Félag fram-
haldsskólanemenda með fund i
Verslunarskólanum þar sera ætl-
unin er að nemendur stilli saman
strengi sína. Mjög skiptar skoðanir
eru meðal nemenda um með hvaöa
hætti best er aö haga skólaslitum
Sumir viija hespa þeim af til að
komast til vinnu. Aðrir \dlja halda
áíram í þeirri vinnu sem þeir hafa
þegar fengið en hætta snemma í
haust til þess að taka prófin. Enn
aðrir eru hræddir við fall og vilja
því fórna sumaratvinnunni til þess
að fá einhveija kennslu.
„Þaö hlýtur að vera eðlOegt að
við gerð prófa veröi tekið tillit til
þess aö nemendur hafa veriö frá
námi í sex vikur,“ sagði Magnús
Ámi Magnússon, formaður Félags
frarahaldsskólanemenda, í morg-
un.
Magnús sagði nemendur Pjöl-
brautaskólans í Breiðholti vera til-
tölulega ánægöa með hvernig
skólaslitum væri háttað. Vandinn
væri hins vegar raeiri í skólura með
bekkjakerfi. -gse
Aftur f skólann. Þessir nemar í Menntaskólanum í Hamrahlíð voru mættir i skólann strax klukkan átta í morgun.
DV-mynd Hanna
Flugmannadeilan:
Samið um Aldísi í nótt
Aðalheiður Bjamfreðsdóttir:
Ekkert hvikað
frá fyrri yfir-
’ lýsingu um
laun í verkfalli
„Ég gleðst yfir að þessu langa og
erfiða verkfalli sé lokið og ég vona
að sættir haldi vel. Annað hef ég
ekki um þessa kjarasamninga að
segja,“ sagði Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, alþingismaður og fyrrum for-
maður Sóknar, í morgun um kjara-
samninga háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna.
- Nú fær hver verkfallsmaður um
20 þúsund krónur í stríðsskaöabætur
fyrir að hafa verið í verkfalli. Hvert
er álit þitt á því?
„Eins og þetta hefur verið lagt fram
^'er verið að greiða laun fyrir vinnu í
verkfallinu og bakvaktir og um það
hef ég ekkert frekar að segja.“
- Þú hefur áður lýst því yfir að þú
sért á móti þvi að fólk fái greidd laun
í verkfalli. Er sú afstaða þín breytt?
„Ég sagði í upphafi verkfalls að ég
væri á móti því að greiða fólki laun
í verkfalli. Frá þeirri yfirlýsingu
minni hef ég ekkert hvikað," sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir í morg-
un. -JGH
Akureyri:
Verkfallsmönn-
um gert að
greiða flug-
farþega bætur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er mjög óánægð með þennan
dóm og geri fastlega ráð fyrir að hon-
um verði áfrýjaö til Hæstaréttar þótt
ekki hafi veriö tekin ákvörðun um
það,“ segir Jóna Steinbergsdóttir,
mJormaður Félags verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri, um dóm sem
kveöinn hefur verið upp á Akureyri.
í dómnum er félaginu gert aö
greiða ungri konu, Sigrúnu Geirs-
dóttur, 7.900 krónur auk vaxta og
málskostnað að upphæð 70 þúsund
krónur vegna þess aö félagsmenn
hindruðu Sigrúnu í að komast með
flugvél Flugleiða frá Akureyri er
verkfall stóð yfir í maí á síðasta ári.
Sigrún var með fullgildan miða og
engan farangur og taldi sig því ekki
þurfa á að halda þjónustu sem félag-
ar í Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks veita að öllu jöfnu á vellinum.
Sigrún geröi ítrekaðar tilraunir til
að komast um borö í flugvélina en
^var hindruö í því og kom til nokk-
urra stimpinga af því tilefni. Freyr
Ófeigsson hjá embætti bæjarfógeta á
Akureyri kvað upp dóminn.
Samkomulag náðist í nótt í deilu
ílugmanna og Flugleiða hf. um þau
atriði sem varða flug á nýjum þotum
Flugleiða.
Fundur í deilu flugmannanna stóð
til klukkan fimm í morgun en þá var
gert hlé og verður fundi síðan haldið
áfram eftir að samninganefndir aðila
hafa hvflst.
Enn hefur ekki náðst samkomulag
um kjarasamning flugmanna og svo
var að heyra í morgun að samninga-
mál öll væru á fremur viökvæmu
stigi.
Fufltrúar defluaðila vildu ekkert
tjá sig um málið og á tíunda tímanum
í morgun stóð Aldís, hin nýja Boeing
737-400 þota Flugleiða, enn óhreyfð í
Keflavík.
Hugsanlega verður henni ekki flog-
ið fyrr en gerð kjarasamnings lýkur,
þar sem mögulegt er að samkomu-
lagið um flug á nýjum þotum verði
gert að hluta heildarsamnings. H V
Ekki í anda
launajöfnunar
- segir Ögmundur Jónasson
„Við höfum ekki farið ofan í saum-
ana á þessum samningum með tflflti
til samanburðar við okkar samn-
inga,“ sagði Ögmundur Jónasson,
formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja. Eins og fram kemur í
DV í dag hækka laun venjulegs
menntaskólakennara um allt að 16
prósent á þessu ári. Almenn hækkun
samkvæmt samningum opinberra
starfsmanna var hins vegar um 10
til 11 prósent þó hinir allra lægst
launuðu heföu hækkað meira í pró-
sentum.
„Þaö er ljóst að ekki er hægt aö
alhæfa um kjarabætur hjá Bandalagi
háskólamanna frekar en hægt var
hjá okkur þar sem kjarabætumar
skiptast nokkuð misjafnlega niöur.
En ég vona náttúrlega að háskóla-
menn hafi haft árangur af baráttu
sinni. Þaö þarf engan að undra að
samningar sem gerðir eru eftir sex
vikna verkfall séu í einhveiju frá-
brugðnir samningum Sem nást við
samningaborðið eitt. Það sem mér
finnst skipta máli er að almennu
launafólki takist að bæta kjör sín og
færa launakerfi landsins í átt til jafn-
aðar. Hér er mikið verk að vinna á
næstunni. Ég verð að játa að sú
áhersla sem lögð er á ábyrgð; mennt-
unarlega, faglega og íjármálalega, í
þessum samningum háskólamanna
finnst mér ekki vera í þessum anda.
Þvert á móti ætti ábyrgð okkar allra
að felast í að skipta verðmætunum
sem jafnast, burt séð frá því hvort
menn hafi mannaforráð eða
menntagráðu," sagði Ögmundur.
-gse
Láglaunastefna
útíveðurogvind
- segir Ari Skúlason
„Okkar samningur var láglauna-
samningur þar sem ætlast var til að
þeir lægst launuðu hækkuðu mest.
Þessi samningur er hins vegar þver-
öfugur. Þeir sem eru með hátt kaup
fá miklu fleiri krónur en hinir lág-
launuðu. Ef þaö hefur verið stefna
hjá okkur og Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja að gera láglaunasamn-
inga þá er það farið út í veður og
vind,“ sagði Ari Skúlason, hagfræð-
ingur Alþýðusambandsins.
- Hvaðaáhrifmunuþessirsamning-
ar hafa á kjarasamningana um ára-
mótin?
„Það er alveg ljóst að þeir munu
hafa mikil áhrif. Þegar það fólk, sem
er með lægra kaup, sér aö þeir sem
hafa hærra kaup fá miklu meira þá
er þaö réttlætismál að það verði leið-
rétt. Samningur eins og þessi getur
ekki verið einangrað fyrirbrigði,“
sagði Ari.
-gse
LOKI
Eru flugmenn þá
ekki al-sælir?
Veðrið á morgun:
Hlýnar með
skúrum og
rigningu
Á morgun verður suðlæg átt á
landinu, sums staðar nokkuð
hvöss. Skúrir verða vestast á
landinu en rigning víðast annars
staðar, einkum sunnanlands og
austan. Fremur hlýtt verður, hit-
inn 7-11 stig.
BÍIALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00