Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Side 21
MIÐVIKUDAGUR .14, JÚNÍ.1989. «39 Akureyri Hreinn við futlbúið línuspil i vinnusal fyrirtækisins. DV-mynd gk „Verst að sjá á eftir - segir Hreinn Elliðason hjá Hafspili hf. Gylfi Kristjánson, DV, Akuieyii „Mér þykir það verst af öllu í þess- um þrengingum að þurfa að sjá á eftir mönnum á atvinnuleysisskrá, mönnum sem eru orðnir þaulvanir í þessari framleiðslu og hafa unnið við hana lengi. Það er allt annað en skemmtilegt að þurfa að segja slíkum mönnum upp störfum vegna þess hvemig ástandið er og menn sem stjóma í þessu þjóðfélagi ættu að fara að gera sér grein fyrir þvi að við leys- um ekki vandamálin með því að setja menn endalaust á atvinnuleysis- skrá,“ segir Hreinn Elliðason, einn af eigendum og framkvæmdastjóri Hafspils hf. á Akureyri. Hafspil hóf starfsemi undir því nafni árið 1985 og fyrirtækið fram- leiðir vökvadrifm tæki fyrir báta og fiskiskip. í því sambandi má nefna netaspil, línuspil, netadragara, bakstroffuspil, löndunarspil, gilsa- spil, dælustöðvar og borðstokksrúll- ur svo fátt eitt sé nefnt af framleiðslu fyrirtækisins. Eins og gefur að skiija eru það útgerðarmenn sem em við- skiptavinir fyrirtækisins, og erfið- leikar Hafspils í dag endurspegla ein- imgis þá erfiðleika sem útgerðin býr við. Þegar DV leit við hjá Hafspili í Fjölnisgötunni á Akureyri var frem- ur rólegt í fyrirtækinu, fáir menn að störfum, enda framleiðslá ei í fullum gangi. Þetta er ólíkt því sem lengst af hefur verið, þegar flest var unnu Hreinn ' Elliðason við veggspjald með sýnishornum af framleiðslu Hafspils. DV-mynd gk 10-12 manns hjá Hafspili og höfðu nóg að gera en í dag eru starfsmenn fiórir talsins. „Þaö má segja að það sé um eitt ár síðan vart fór að verða við samdrátt í þessu. Haustvertíðin gaf hins vegar fyrirheit um að sá samdráttur yrði ekki meiri en 20-25% og við það mið- uðum við okkar framleiðslu í vetur. Svo kom í ljós að þessi samdráttur reyndist mun meiri og afleiðingin fyrir okkur er sú að við sitjum uppi með mikið af framleiðslu sem við getum ekki losnað við, eigum allar tegundir af okkar framleiðsluvörum á lager og í þessu liggja mikil verð- mæti. Þá hefur það ekki verið til að bæta ástandið að margir viöskiptaað- ila okkar hafa átt í miklum greiðslu- erfiðleikum og það hefur einnig kom- ið illa við okkur. Það er ekki það að þessir menn vilji ekki borga, það er bara þannig búið að þeim að þeir geta það ekki. Ég hafði trú á því aö það myndi eitthvað verða gert fyrir þennan undirstöðuatvinnuveg okkar, að málin yrðu ekki látin þróast þannig að allt færi til andskotans. Mér finnst því furðulegt að útgerðinni skuh ekki hafa verið komið til hjálpar því við vinnum okkur ekki út úr vandanum með því að senda menn heim á at- vinnuleysisbætur," segir Hreinn og er greinilega ekki ánægður með ástandiö sem vonlegt er. Áður en við kveðjum göngum við um fyrirtækið með Hreini. Víða í húsakynnum Hafspils eru fullbúnar framleiðsluvörur fyrirtækisins, línu- spil, netadragarar og fleira og fleira, tUbúin tæki fyrir sjávarútveginn sem seljast ekki vegna þess hvemig búið að að útgerðinni. Það vantar ekki þörfina fyrir þessi tæki en útgerðin hefur ekki peninga til að kaupa þau- Heldur þú að það fari að rofa eitt- hvað til í þessum málum, Hreinn? „Ég verð að hafa trú á því að það gerist. Þótt þessi samdráttur sé fyrir hendi þá er flotinn á veiðum og þessi spil og það sem við framleiðum fyrir bátana gengur úr sér. Um leið og ástandið lagast munum við selja þessa vöru. Það breytir hins vegar ekki þvi að mörg útgerðarfyrirtæki eru komin það neðarlega í dag að þó að það komi góð vertíð dugar það skammt, en þetta hlýtur að lagast áður en langt um líður,“ sagði Hreinn. skómir með riflás og reimum Stærðir 24-34 Verð kr. 1.990,- ÚTILÍFj GLÆSIBÆ Simi 82922. Betri, einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár er vand- fundin Háir grunnvextir og verötryggingarákvæöi tryggjá góöa ávöxtun. Aö auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 16 og 24 mánuöi. Samt er innstæöa Kjörbókar alltaf laus. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna ...kjörin leið til sparnaðar er Kj örbók Landsbankans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.