Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Qupperneq 24
HJOLABRETTI 4.170,- KR Bolir m/myndum Buxur frá „Vision Street“. Jakkar frá ,,ETNICS“. GLÆSIBÆ Simi 82922 MIÐVIKUDAGUR 14. vc ; 1989. Akureyri Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Glerárprestakalli: „Vissulega erfitt að skilja viö svo gott fólk" - en hann flytur sig senn til Bústaðasóknar í Reykjavík Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Viltu ekki koma viö hjá mér eftir hádegið, ég verö sennilega úti við að slá blettinn," sagði sr. Pálmi Matthíasson, sóknarpestur í Glerárprestakalli á Akureyri, er DV fór þess á leit við Pálma að fá að hitta hann smástund. Tilefnið var ekki síst það að á næstunni munu Pálmi og fjöl- skylda hans halda til Reykjavík- ur, en þar tekur hann við stöðu sóknarprests í Bústaðasókn af Ólafi Skúlasyni sem verður næsti biskup íslands. Pálmi var á fleygiferð með hríf- una er okkur bar að en við tyllt- um okkur samt niður smástund. Pálmi var fyrst spurður að því hvenær hann héldi suður. „Ég reikna með að taka við í Bústaðakirkju 16. júlí í sumar. Þá mun ég kveðja söfnuöinn í Grímsey 2. júlí og söfnuðinn hér á Akureyri 9. júlí,“ segir Pálmi, en hann tók við starfinu í Glerár- prestakalli 1. janúar 1982. „Það má segja að þegar ég tók viö héma hafi lítið verið um að- stöðu hér nema í Glerárskóla. Flestir sunnudagar byijuðu á því að bera stóla þar svo hægt væri að halda messu. Þannig var þetta þar til nemendur í skólanum tóku sig til og fóru að aðstoða við þetta, nemendur í 9. bekk gerðu þetta og fengu í staðinn litla greiðslu sem rann í ferðasjóð þeirra. Það var mikill léttir að fá þessa að- stoð, en mér fannst fyrst eftir að kirkjan var tekin í notkun að lítiö væri aö gera á sunnudagsmorgn- um, engir stólar aö bera.“ Mjöggott fólkhér - Hefur ekki átt sér stað mikil breyting hér í sókninni á þessum árum sem þú hefur verið hér, mikil fjölgun fólks t.d.? „Fjöldinn hér í sókninni hefur ekki alveg tvöfaldast en nærri þvi. Það er mjög gott fólk sem býr hér, mikið ungt fólk og hresst, Pálmi Matthíasson „í heyskap" á lóðinni heima hjá sér. í baksýn má m.a. sjá Glerárkirkju. DV-mynd gk vandræðalítið og mér finnst það hafa tekiö mér sem presti afskap- lega vel. Það er vissulega erfitt aö skilja við svo gott fólk, en ég hef alltaf haft þá skoðun að í þessu starfi sem öðrum eigi menn að skipta um, ekki vera of lengi á sama stað. Það hendir okkur vissulega öll að staðna á einn eða annan hátt og nýir vendir sópa best. Ég treysti því og vona aö sá sem tekur hér við haldi áfram því uppbyggingarstarfi sem hér er hafið, en það er vissulega margt eftir.“ „Brá óneitanlega fyrst' - Hvemig varð þér við þegar sóknamefnd Bústaðasóknar kall- aðiþigtilstarfa? „Eg verð að játa það að mér brá óneitanlega fyrst. Ég hafði verið spurður að því hvort ég myndi hugsanlega sækja um og ég hafði innst inni gert það upp viö mig að gera það ekki. Síðan gerðist það að ég var kallaður til starfa og ég stóð frammi fyrir því að þurfa að taka ákvörðun með skömmum fyrirvara." - Hvemig leggst svo í þig að fara og taka við þessu nýja starfi? „Ég missi margt af því sem er mér afskaplega kært hér á Akur- eyri, en mér er það fullljóst að það hlýtur eitthvað að koma í staðinn þótt ég viti ekki nákvæm- lega í dag hvað það verður. Það er gott fólk í Bústaðasókn sem ég þekki eftir að hafa starfað þar um skeið, ég var kirkjuvörður þama um hríð og vann einnig við bama- og unghngastarf. Ég þekki því þónokkuð af fólki þarna og á þama góða og trausta vini. Það sem ég þekki til Bústaðakirkju og starfsins þar veitir mér þá vissu að það verður ærið starf þó ekki sé nema að halda sjó í því mikla starfi sem Ólafur Skúlason hefur unnið þar í gegnum tíðina. Að sjálfsögðu geta orðið ein- hverjar áherslubreytingar þegar nýr maður kemur til starfa en í stómm atriðum held ég að þama sé allt í farsælum farvegi hjá Ól- afi. Allt þetta starf hlýtur að vera mótað í samvinnu við ágæta sóknamefnd sem þarna er og það verða engar byltingar þótt ég komi til starfa.“ Grímsey er útvörðurinn Pálmi ræðir um ýmislegt sem er á döfinni í Glerársókn, frágang Glerárkirkju að utan og áfram- hald vinnu þar innandyra. Hann ræðir einnig um geysilegt sjálf- boðastarf sem fólk hefur unnið við kirkjubygginguna. Síðan ræðir hann um Grímsey sem fylgir Glerárprestakalli. „Grímsey er útvörðurinn í þessu prestakalli og mér hefur oft fundist eins og rós í hnappa- gatið að hafa fengið að þjóna þar, fá að koma þar út og fá að kynn- ast því lífi sem þar er. Margir halda að lífið þar sé allt öðruvísi en lífið hér á fastalandinu en svo er í rauninni ekki. Þama er dug- legt og drífandi fólk sem vinnur íjarska mikið, en það er sterktrú- að og hugsar vel um sína kirkju. Það er notalegt að fá að koma og þjóna þar.“ Formaður ÍBA ‘ - Nú varst þú nýkjörinn formað- ur íþróttabandalags Akureyrar þegar þú varst kallaður til starfa og þú ákvaðst að halda suður? „Já, þaö var nú eitt sem angr- aði mig mjög, því ég horfði mjög bjartsýnn á það starf. Mér fannst mjög notalegt að fá að njóta þess trausts og ábyrgðar að takast þetta starf á hendur, enda var þá ekkert inni í myndinni að fara héðan. Ég hafði hugsað mér að takast á við þetta starf og finnst það einmitt gott að kirkjan kom- ist í nánari tengsl við þá fjölda- hreyfingu og unglingahreyfingu sem íþróttahreyfingin er. Það hefur stundum verið talað um að á milli þessara aðila sé hnútu- kast, m.a. vegna þess að íþrótta- viðburðir em oft á messutíma, en ég held að þaö sé fyrst og fremst vegna þess að menn hafa ekki talað saman. Þessir aðilar eiga svo fjarska margt sameigin- legt og ég sá mér leik á borði að geta látið gott af mér leiða bæði fyrir kirkju og íþróttahreyfing- una með því að tengjast þar á milii,“sagðiPálmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.