Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989. Fréttir Hagvirki fékk frest til 14. júlí: Líklegt er að leita verði eftir úrskurði Hæstaréttar Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra er hér umkringdur starfsmönnum Hagvirkis en skömmu síðar sagði hann starfsmönnunum að hann ætlaði að leggja hugmyndir sínar um lausn fyrir fjármáiaráðherra. Stærsta verktakafyrirtæki lands- ins, Hagvirki hf., Jiefur fengið frest til 14. júlí í söluskattsdeilu þeirri sem fyrirtækið hefur átt í viö fjármála- ráðherra. Þá á að liggja fyrir niður- staða frá Ríkisskattanefnd varðandi söluskattsmál fyrirtækisins. Óvíst er hins vegar að málinu ljúki þá því hver sem niðurstaðan verður hjá Ríkisskattanefnd geta báðir aðil- ar skotið málinu til dómstóla eftir hana. Má fastlega gera ráð fyrir því að málið hafni hjá Hæstarétti. í bili hefur verið samþykkt vopna- hlé vegna þess að ekki reyndist vera pólitísk samstaða til að láta kné fylgja kviði. Fjármálaráðherra ein- angraðist í málinu eftir að ljóst var að stöðvun Hagvirkis myndi skaða opinberar framkvæmdir. Deiluefnið snýst um söluskatt af virkjanaframkvæmdum á vegum Hagvirkis á Þjórsársvæðinu. Það er því sýslumaðurinn í Rangárvalla- sýslu sem sér um að innheimta þessa skuld sem var staðfest eftir úrskurð og kröfu skattstjóra Suðurlandsum- dæmis 1987. Krafan er vegna véla- vinnu við virkjanaframkvæmdir frá 1981 til 1985. í upphafi var krafan upp á 36 millj- ónir króna en er orðin 153 milljónir vegna dráttavaxta og kostnaðar. Málið hefur að sjálfsögðu verið aö velkjast um í kerfinu og hefur verið lengi til meðferðar hjá Ríkisskatta- nefnd. Það er reyndar í annað skipti sem deilan kemur þangaö. Formaður Ríkisskattanefndar, Gunnar Jóhannsson lögfræðingur, hefur hins vegar neitað því aö málið hafl verið óelilega lengi þar til með- ferðar og hefur bent á að ríkisskatt- sfjóri þurfi langan tíma til að afla gagna í deilum sem þessari. Ríkis- skattanefnd fái því ekki gögn í flókn- ari deilumálum fyrr en seint og um síðir. Sýslumaöur þeirra Rangæinga, Friðjón Guðröðarson, er ekki sam- mála þessu og hefur lýst þvi yfir að Ríkisskattanefnd hreyfist með hætti fomaldardýra. Krafa sú sem sett hef- ur verið fram um ákveðna dagsetn- ingu á niðurstöðu Ríkisskattanefnd- ar er einnig hægt að líta á sem áminningu til nefndarinnar. Skatturinn átti að vera inni í tilboðinu Helstu rök þeirra Hagvirkismanna eru þau að þeir geti ekki greitt sölu- skatt sem aldrei hafi verið innheimt- ur. Þessir peningar sem um ræðir hafi aldrei verið í þeirra höndum. Með öðrum orðum, þeir hafi ekki tekið frá ríkinu (ef hægt er að líta á Landsvirkjun sem hluta þess) til að greiða því aftur í formi söluskatts. Forráðamenn Landsvirkjunar eru ekki sammála þessari skilgreiningu og telja fyrirtæki þau sem fyrir þá vinna ábyrg fyrir öllum sköttum: „í öllum okkar útboðum förum viö fram á það aö verktakinn setji inn í sín tilboð alla þá skatta sem tilskildir eru. Ef þeir hafa aðra túlkun á því Fréttaljós: Sigurður M. Jónsson hvað eigi að greiða í söluskatt þá er það ekki okkar mál,“ sagði Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Það er því ljóst að Landsvirkjun mun ekki samþykkja nokkra kröfu frá Hagvirki fyrir þessum söluskatti ef fyrirtækinu verður gert að greiða hann. Þeir menn sem DV hefur haft samband við telja ólíklegt að fyrir- tækið geti krafið Landsvirkjun um nokkuð af upphæðinni ef svo skyldi fara að það þyrfti að greiða hana. Rök þeirra Hagvirkismanna í deil- unni eru þau að samkvæmt 7. grein söluskattslaganna frá 1960 sé: „Vinna við húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð...“ undanþegin söluskatti. Embætti ríkisskattstjóra telur hins vegar að þessi undanþága nái ekki til vélavinnu og hafi skattur af slíkri þjónustu verið innheimtur síðan lögin voru sett. Því til árétting- ar hafi verið sett reglugerð árið 1982 sem taki af öll tvímæli um þetta mál. Hagvirkismenn vilja ekki sam- þykkja að reglugerðin eigi aö ráða í þessu máli og þar við situr. Voru tilboð Hagvirkis óeðlilega lág? En þá hlýtur að vakna sú spuming hvort tilboð Hagvirkis hafi ekki verið svo lág sem raun ber vitni einfaldlega af því að þeir hafi sleppt því að reikna söluskatt inn í sín verk? Því hafa aðrir verktakar haldið fram. Þessu neitar Jóhann G. Bergþórs- son, forstjóri Hagvirkis. Hann segir að útilokaö sé að mismunur á tilboð- um Hagvirkis og annarra tilboðs- gjafa skýrist með söluskattinum. Hann játaði hins vegar að allt of mik- ið hefði verið borið á ruglingi í þess- um málum. „Menn hafa verið sammála um að allt of mikil hringavitleysa hafi verið í þessum málum og það þyrfti að fá úr því skorið hvemig á að reikna söluskatt inn í þannig að allir sætu við sama borð. Við útboð við Blöndu lögðum við til í bréfi til Landsvirkj- unar að söluskattur væri undanskil- inn.“ Gamlar syndir frá Hraunvirki Málefni Hraunvirkis hf. komu upp á yfirboðið í þessum málum enda í eigu sömu aðila og Hagvirkis. Fyrir- tækið er enn til en hefur veriö leyst undir fyrirtæki sem heitir Hagtala. Á Hraunvirki er skráð söluskattsskuld upp á 16.724.195 krónur. Það er upp- hæðin í dag með áföllnum dráttar- vöxtum. Þetta er hin raunverulega skuld í dag. Þegar skuldin varð til 1983 var hún upp á 3.264.225 krónur. Þó að mál Hraunvirkja hafi farið til Hæstaréttar þá hefur aldrei komið nein niöurstaða í því vegna þess aö Hæstiréttur vísaði málinu frá vegna ófullkomins málatilbúnings. Málið er því komið aftur til Ríkis- skattanefndar og er reyndar búið að vera þar lengi. Ef og þegar greiða verður skuld Hraunvirkis þá má gera ráð fyrir því að það hafi áhrif á afkomu Hagvirkis, svo nátengd em þessi fyrirtæki. -SMJ I dag mælir Dagfari Góður fjármálaráðherra Ólafur Ragnar hefur miskunnaö sig yfir Hagvirki. Hann hefur ákveðið að leyfa fyrirtækinu að opna aftur skrifstofumar hjá sér og ætiar að halda að sér höndum í tvær vikur. Þá lokar hann afhu-. Nema auövitað að Hagvirki komi með tékk upp á eitt hundrað og fimmtíu milljónir. Þá mun hann hugsa málið upp á nýtt og ekki loka fyrr en hann hefur fundið ein- hveija aðra skuld sem hægt er að rukka. Ólafi er nefnilega illa við það að fyrirtæki greiði ekki skuldir sínar. Hann vill að menn standi við sitt og hafi skikk á sínu heimili - líka þeir hjá ríkisstofnunum. Það fá allir á baukinn sem skila ekki tekjuafgangi. Það má ekki sjást í mínus í ríkisbókhaldinu. Einhver illkvittinn lesandi í DV fór að skrifa og spyijast fyrir um það hvort ekki ætti að taka fjár- málaráðherra sömu tökum og aðra þá sem væm í mínus í rekstrinum. Lesandinn átti þá við stöðu ríkis- sjóðs sem stöðugt er í halla eftir að Ólafúr Ragnar hafði lofað að skila tekjuafgangi. Þetta er kvik- indisleg athugasemd hjá lesandan- um því Ólafur á auðvitað enga sök á því þótt ríkisbúskapurinn sé í tapi. Það er fólkinu í landinu að kenna, öllum þeim sem heimta hærri laun hjá ríkinu og forstjór- unum öllum sem fara ekki eftir fyrirmælum og svo vitaskuld hin- um ráðherrunum sem eyða og eyða án þess aö fjármálaráðherrann fái rönd við reist. Ólafur er þeirrar skoðunar að eitt eigi yfir aUa að ganga og samkvæmt því ætti hann aö láta reka aðra ráðherra úr ríkis- stjórninni fyrir bruöl. Af hveiju lokar Ólafur ekki hjá landbúnaðarráðuneytinu þegar niöurgreiðslur og útflutningsbæt- ur era komnar langt fram úr því sem ríkissjóður hefur efni á? Hvers vegna lætur Ólafur ekki loka menntamálaráðuneytinu hjá Sva- vari sem fer endalaust fram úr íjár- lögum? Þaö veröur eitt yfir alla aö ganga og þessir ráðherrar og marg- ir fleiri verða að reiða fram tékka ef þeir ætia að halda sjoppunni gangandi. Nei, það er ekki Ólafi að kenna hvemig komið er fyrir ríkissjóði. Það sitja óvinir í öllum homum og hafa af honum fé og Ólafur sér enga aðra lausn á þessum fjár- hagsvanda ríkissjóðs en aö leggja nýja skatta á þjóðina til aö hún geti staðið undir útgjöldunum. Sök Hagvirkis og um leiö glópska fyrir- tækisins var einfaldlega sú að leggja ekki söluskatt á ríkið þegar Hagvirki bauð í verk hjá því. Þenn- an söluskatt vill Ólafur fá og það jafnvel þótt hann hafi hvprki verið lagður á né innheimtur. Ólafur vill að skattar séu lagðir á ríkið svo ríkið geti borgað skatta til að inn- heimta þá aftur hjá þeim sem leggja þá á. Ólafur hefur sýnt fram á að auknir skattar em eina forsenda fyrir því að rekstur geti gengið, jafnvel þótt sami aðili borgi skatt- inn til að innheimta hann aftur. Ef debit og kredit standast á er allt í fínu lagi. í því er fjármálapólitík Ólafs Ragnars fólgin. Þvi meira sem þjóðin eyðir því hærri skatta þarf að leggja á þjóöina. Þetta er einfóld og augljós regla. Hagvirki þarf aö muna þettu næst. Ef Hagyirki leggur ekki skatt á ríkið lokar Ólafur aftur, því hann vill að ríkið borgi skatt til að geta innheimt hann aftur. Fyrirtæki, sem em svo vitlaus að reikna ekki með þvi að ríkið þurfi að færa skattpeningana úr hægri vasanum í vinstri vasann, eiga ekki skilið að lifa. Fjármálaráðherra er á móti svoleiðis fyrirtækjum. Haun kem- ur þeim fyrir kattamef. Til þess er hann í pólitík og til þess er Ólafur Ragnar orðinn fjármálaráðherra að útrýma óæskilegum fyrirtækj- um. Nógu margir fjármálaráðherr- ar og heilar ríkisstjómir hafa setið hér að völdum án þess að amast við atvinnustarfsemi, þótt Ólafur fari ekki að feta í fótspor þeirra. Ef fyrirtækin græða og eiga pen- inga eiga þau að borga tekjuskatt. Ef þau tapa eða rétt slefa eiga þau að borga söluskatt - líka þegar þau hafa ekki innheimt söluskattinn. Aðalatriðið er að menn borgi skatt- ana. Öðmvísi getur ríkissjóður ekki lifaö. Það er miklu meira um vert aö ríkissjóður lifi heldur en atvinnufyrirtækin. Ríkissjóður verður að skila tekjuafgangi og það gerir hann ekki nema með því að leggja niður fyrirtæki sem ekki rukka ríkissjóð um skatta sem rík- issjóður getur rukkað til baka. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.