Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Síða 15
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989. 15 Batnandi mönnum er best að lifa Ég lét að því liggja hér í einum pistli fyrir stuttu að enginn grein- armunur væri á athöfnum núver- andi fjármálaráðherra og fyrir- rennara hans. Það skal viðurkennt hér og nú að þetta hefur ekki reynst rétt. Síðustu daga hefur Ólafur Ragnar sýnt það í verki að hann vinnur öðruvísi og það er af hinu góða. Hann hefur m.a. tekið tillit til óska launþegahreyfingarinnar um að lækka,verðlag á brýnustu nauðsynjavörum sem almenning- ur kemst ekki af án þess að kaupa og hefur gefið fyrirheit um að fram- hald verði þar á. Allirskulu vera jafnir Framganga fjármálaráðherra varðandi innheimtu söluskatts- skulda er líka þess eðhs að allir sem lögum vilja lúta í þjóöfélaginu hljóta að viðurkenna að hér er þannig að verki staðið að til fyrir- myndar er. Einhvers staðar stend- ur að allir skuh vera jafnir gagn- vart lögum og þau einkunnarorð hefur íjármálaráðherra gert að sín- um og það kann almenningur vel að meta. Það fer ekki framhjá neinum í þessu þjóðfélagi að fólk ætlast til þess að núverandi stjóm - félags- hyggju og jafnréttis - sé öðmvísi en aðrar, ríkisstjórnir sem áður Kjallarmn Karvel Pálmason, alþingismaður hafa setið að völdum. Það þýðir að miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem nú sitja í ráðherrastólunum. Þessar kröfur beinast allar að ein- um endapunkti, þ.e. að þeir stjórni í anda þeirra afla sem hafa að leið- arljósi jafnrétti og réttlæti. Þ.e. að launþegar finni fyrir því að fuhtrú- ar þeirra sitji í ríkisstjóm íslands í dag. Ráðherrarnir alhr með tölu eru sprottnir úr þeim jarðvegi að þeim á að vera það ofurauðvelt að móta hér samfélag þar sem velferð ahra þegnanna sé tryggð. Hættan hggur einungis í því að hinir sömu ráð- herrar einangrist í pappírsvinnu ráðuneytanna og missi þar af leiö- andi öll tengsl við hinn almenna launþega í landinu. Að hlusta á fólkið og setja sig inn í þankagang þess verður ávaht að vera aðalvið- fangsefni þeirra sem vahst hafa til þjónustu og forystu í ráðuneytun- um, síðan að vinna af réttsýni og drengskap þannig að fólk finni að í stólum ráðherra sitji þeir menn sem hafi þrótt og þor tíl þess að gera rétt. Sagan af hárskerameistara Sú saga er sögð af hárskerameist- ara á Isafirði að þegar unghngar komu til snyrtingar á stofu hans á tímum kreppunnar vissi þessi ágæti maður aUtaf hvemig ástand- ið var á heimUum unghnganna. Margir áttu nánast enga peninga tU að greiða fyrir þann lúxus að ganga sæmUega tU fara, þ.e. snyrtir til höfuðsins. En meistarinn þekkti sitt fólk og oft á tíðum lét hann unghnga frá efnaminni heimilum ekkert greiða fyrir khppinguna. Hann fór leynt með þennan gjörn- ing sinn því þetta vissu ekki aðrir en þeir sem nutu. Að starfsdegi loknum fór þessi sami maður út á meðal verkamanna og efldi þá á aUa lund við að byggja upp verka- lýðsfélagið og þjappa þeim saman til þess að bæta hag sinn. í dag em að vísu aðrir tímar en þökk sé þeim sem brautina ruddu. Þeir sem nú halda um stómvölinn á íslandi era arftakar þeirra manna sem lyftu Grettistaki hvað viðkemur bættum lífskjörum í landinu. Þetta veit hinn almenni launamaður. Því era kröfumar miklar sem gerðar eru: Fjármálaráðherra er á réttu róh hvað varðar aUa athöfn sem á sér stað frá hendi fjármálaráðuneytis- ins. Nú er einungis nauðsynlegt að framhaldið sé í samræmi við það sem á undan er gengið. Réttlætið og siðgæðisvitundin sé leiðarljósið. Banki á silfurfati Með framanskráð í huga eru það þó mikU vonbrigði ef satt reynist að bankamálaráðherra hafi nú hina síðustu daga afhent einn banka í eigu landsmanna tíl nokk- urra einstaklinga fyrir verð sem er í engu samræmi við raunveru- leikann. Því verður vart trúað að eignum þjóðfélagsins sé þannig varið að þær séu seldar á einhverju útsöluverði. Hér hlýtur að vera eitthvað málum blandið. Óhugnan- legt var að lesa það í Morgunblað- inu nýveriö að einn bankastjórinn var að hæla viðskiptaráðherra fyr- ir að færa nokkram mönnum á silf- urfati heilan banka - banka sem við eigum öll sameiginlega. Þetta getur varla veið ruanveruleikinn og krefst nánari skýringa. Jafnaö- armenn vinna ekki þann veg sem bankastjórinn greindi frá. Það boð- ar aldrei gott þegar stjórnarand- stæðingar fara að lofsyngja stjórn- völd. Því er farið fram á þaö að viöskiptaráðherra geri hreint fyrir sínum dyram. Karvel Pálmason „Ráðherrarnir allir með tölu eru sprottnir úr þeim jarðvegi að þeim á að vera það ofurauðvelt að móta hér samfélag þar sem velferð þegnanna sé tryggð.“ Eru aldraðir annars flokks sjúklingar í þessu landi? Nýlega las ég athyghsverða grein undir fyrirsögninni „Hjúkranar- vandi aldraðra". Undir greinina skrifa 11 hjúkranar- og félagsráð- gjafar sem vinna að málefnum aldraðra. í stuttri en áhrifaríkri grein lýsa þeir því neyðarástandi sem skapast þegar senda á heim sjúklinga af öldranardeildum vegna lokunar þeirra. Fólk, sem á engan hátt er fært um að vera annars staðar en þar sem það fær sólarhringshjúkr- un og umönnun, er sent heim. í greininni segir m.a. frá manni á níræðisaldri sem sendur er heim til veikrar eiginkonu sem er 88 ára gömul, niræð kona í hjólastól þarf að fara heim til sjötugrar dóttur sinnar. Þetta eru aðeins tvö dæmi af ótal mörgum sem unnt er að til- greina og sýna hve alvarlegt ástandið er. Þórir Guðbergsson, félagsráð- gjafi hjá elhmáladeild Reykjavík- urborgar, sagði nýlega í útvarps- þætti að um 150 manns, sem teljast til bráðaforgangshóps, biðu eftir að komast á hjúkrunarheimih. Um 80 manns bætast í sumar við þennan hóp, þ.e. þeir sem sendir eru heim vegnælokunar öldrunar- deilda Borgarspítala, Hátúns og fleiri sjúkrahúsa. í fréttum sjón- varps vár ennfremur sagt frá því að lokað yrði fyrir flestar hvíldar- innlagnir og endurhæfingu yfir sumarið. Það er alvarlegt mál að loka fyrir endurhæfingu og hvíldarinnlagnir og síst af öhu spamaður. Slík þjón- usta gerir mörgum öldruðum kleift að búa miklu lengur heima en ann- ars væri. Þannig sparast mikhr ijármunir auk þess sem sá háttur er mun mannúðlegri en sá háttur sem haíður hefur verið á í þessu efni. Ennfremur hjálpar þessi þjón- Kjallarinn 1 k. Margrét Sæmundsdóttir, fulltrúi Kvennalistans i Reykjavík í byggingarnefnd fyrir aldraða usta ættingjum sem búa með öldr- uðum. Hrædd er ég um að þarna sé verið að spara eyrinn en kasta krónunni. Vantar hjúkrunarheimili? Það er augljóst að margt af því gamla fólki, sem verið er að út- skrifa í sumar og þeir sem bíða ennþá heima eftir að komast á sjúkrahús, gætu verið á öldrunar- deildum og á hjúkrunarheimilum ef rétt væri að málum staðið. Heil hæð bíður tilbúin að taka á móti 25-30 öldraðum á hjúkrunarheim- ilinu Skjóh en fæst ekki opnuð vegna „sparnaðar" í heilbrigðis- kerfinu. Svipaða sögu er að segja um B-álmu Borgarspítalans. Þar er heil hæð sem aðeins vantar herslu- mun á að klára og 27 rúm af 54 á öldrunarlækningadeild verða ekki nýtt í samfeht 13 vikur. Hvemig stendur á þessum ósköp- um spyrja aðstandendur, fæst ekk- ert starfsfólk? Nei, það er ekki ástæöan. Það er ekki mannekla sem veldur því að verið er aö senda fólk heim og dehdir standa hálf- tómar í langan tíma, jafnvel til ára- •móta. Það er skilningsleysi þeirra sem fólkið í landinu treystir fyrir fjör- eggi sinu. Ríkisstjórnin ákveður að spara og það er þarna sem hún heldur að best sé að gera það. Af hverju kemur sparnaðurinn einmitt niður á þessum hópi? Er það vegna þess að sú kynslóð, sem nú er öldruð, hefur ahst upp við nægjusemi og hlédrægni, kann ekki við að kvarta? Eða er það vegna þess að þetta fólk hefur ekki þrek tíl þess að láta th sín heyra? Hvað er til ráða? Fyrst við sitjum uppi með ríkis- stjóm sem í era shkar hðleskjur að þær finna engin önnur úrræði í efnahagsmálum en að loka sjúkradehdum og senda veikt og aldrað fólk út á guð og gaddinn, á borgarstjóm Reykjavíkur að sýna þann manndóm að veita fé th rekst- urs B-álmu Borgarspítalans og Skjóls þannig að hægt sé aö nota þessar stofnanir eins og rað er fyr- ir gert. Það er dýrt aö reka sjúkra- stofnanir með hálfum afköstum. Kaþólsku systurnar í nýlokinni páfaheimsókn vora landsmenn minntir á það mikla starf sem St: Jósepssystur og St. Fransiskussystur hafa unnið fyrir íslendinga. Ekki hlupu systumar, sem á sín- um tíma byggðu og ráku þrjú sjúkrahús, th ríkisvaldsins í hvert sinn sem taka þurfti til hendinni. Þær leystu sín mál sjálfar. Systurn- ar eiga það skhið að þeir sem halda áfram því starfi, sem þær byggðu upp í þessu landi, standi sig. Systurnar hefðu ekki látið það viðgangast, þegar þær vora upp á sitt besta, aö láta stórhýsi eins og B-álmuna standa hálíkláraða áram saman vegna þess að ekki fást fjár- munir frá ríkinu th þess að ljúka því sem þarf. Þær hefðu aldrei fjár- fest svo hla. Það gengur ekki að byggja hús sem ekki er hægt aö reka. Reykjavíkurborg hefur þegar lagt fram sinn skerf th þessara bygginga en þar sem ríkisvaldið stendur ekki við að leggja fram þá fjármuni sem því ber svo ljúka megi byggingarframkvæmdum verður Reykjavíkurborg að taka th sinna ráða. Reykjavíkurborg er rík borg sem getur leyst hjúkrunarvanda aldr- aðra með sóma ef hún bara vhl. (Ég get nefnt mörg dæmi um óþarfari fjárfestingu en þessar, sem borgin stendur að, þótt því sé sleppt hér.) Það er ekki hægt að sætta sig við að B-álma Borgarspítalans og hjúkrunarheimhið Skjól standi hálfnotuð öhu lengur. Þegar neyð gamals fólks er slík aö á annað hundrað aldraðir bíða eftir að kom- ast á hjúkranarheimili í Reykjavík einni. Vandinn ekki leystur Þrátt fyrir mikla uppbyggingu í öldrunarmálum hefur vandi þeirra sem veikastir eru ekki verið leyst- ur. Það aldraða fólk, sem þarf hjúkrun og eftirlit á heimilum sín- um, fær ekki næga aðstoð. Góð heimaþjónusta, hjúkrun og heimil- ishjálp getur hjálpað öldruðum til þess að búa heima hjá sér í stað þess að fara á stofnanir. Margt gott hefur verið gert í þjónustu við aldr- aöa, því ipá ekki gleyma. En betur má ef duga skal. Við verðum að gera því gamla fólki, sem vhl og getur búið heima hjá sér, kleift að vera þar eins lengi og hægt er. Th þess að svo megi verða þarf aö stórauka heimhisþjónustuna. Fyrst og fremst þarf að leggja aukna áherslu á að færa þjón- ustuna heim th hinna öldraðu en ekki öfugt eins og nú er. Óskir og þarfir einstaklingsins eiga að vera í fyrirrúmi. Eg tek svo að lokum undir með Guðrúnu Agnarsdóttur sem segir í nýlegri grein um lokanir á sjúkra- deildum: Þær skyndilokanir, sem nú er verið að framkvæina á sjúkrahúsum th að ná 4% sparnaði á launakostnaði, hafa þegar valdið og munu valda bæöi sjúkhngum og öldruðu fólki sáram vanda. Þær munu einnig auka veralega álag á starfsfólk. Akvarðanir um shkar lokanir verður að endurskoða með mannúðarsjónarmið að leiðarljósi. Margrét Sæmundsdóttir. „Það er ekki hægt að sætta sig við að B-álmu Borgarspítalans og hjúkrunar- heimilið Skjól standi hálfnotuð öllu lengur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.