Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Hagsmunagæsludeildin
vill ekki veita leyfi
- segir Guðni 1 Sunnu sem fær ekki að hefja áætlunarflug
„Hagsmunagæsludeildin telur
sér ekki fært aö veita mér leyfið
eins og sakir standa, enda sé í at-
hugun framtíðarskipulag flugmála
íslands," sagði Guðni Þórðarson
hjá Sólarflugi.
Guðni sótti um áætlunarflugs-
leyfi, þar sem hann haíði hug á því
að hefja áætlunarflug frá Akureyri
til Lundúna og Kaupmannahafnar,
og milli íslands og Spánar. Beiðni
hans var synjaö af Flugráði og sam-
gönguráðuneytinu, en Guðni sagð-
ist ekki hafa kynnt sér ástæðumar
fyrir synjunni þegar DV talaði við
hann.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði að margar
samverkandi ástæður lægju að
baki ákvörðunni. í fyrsta lagi
treystu menn sér ekki til að fjölga
íslenskum áætlunarflugfélögum. í
samræmi við samning við Bret-
land, Danmörku og Spán getur ís-
land tilnefnt eitt flugfélag og stend-
ur ekki til að tilnefna tvö því að til
að svo geti verið þarf árlegur fjöldi
farþega að vera um 180.000. Og þær
forsendur em ekki í sjónmáli.
„í öðra lagi þurfti að liggja fyrir
ítarlegar upplýsingar um mark-
aðsspá, en við sáum ekki að slík
vinna hefði farið fram. Ennfremur
má nefna að við horfum upp á erf-
iöleika í núverandi flugrekstri,
sagði Steingrímur.
Steingrímur sagði að Flugráð
hefði verið hikandi í afstöðu sinni,
tveir vom með, tveir vildu að
ákveðnum skilyrðum væri full-
nægt, og einn tók ekki afstöðu.
Hann sagði að beiðnin heföi verið
mjög áhugaverð og menn væm
opnir fyrir því að endurskoða af-
stöðu sína ef forsendur breyttust.
-GHK
Innbrot á Vatnsenda:
Þjófarnir
skrúfuðu frá
vatninu
í nótt var brotist inn í sumarbú-
staö við Vatnsenda og miklar
skemmdir unnar á bústaðnum og
innbúi hans. Einnig mun ein-
hverju hafa verið stolið.
Meðal annars létu innbrots-
mennimir sig hafa það að skrúfa
frá vatninu í bústaðnum þannig
að flæddi út um allt. Mun þaö
hafa fullkomnað skemmdimar.
Ekki er vitaö hverjir vom
þama á ferð en lögreglan vinnur
að rannsókn málsins.
-SMJ
Vélarbilun hjá
Stekkjahamri
Vart varð vélarbilunar í vél-
bátnum Stekkjahamri þar sem
hann var staddur norður af Garð-
skaga um klukkan eitt í nótt
Skip Hafrannsóknastofiiunar,
Mímir, var beðiö að fara Stekkja-
hamri til aðstoðar og kom á vett-
vang um tvöleytið. Var báturinn
dreginn til Reykjavíkurhafnar og
komu skipin þangaö kl. 4.40 í
morgun.
-SMJ
Keflavík:
Tekinn á 146
km hraða
Lögreglan i Keflavík tók í gær-
kvöldi ökumann á mótorhjóli þar
sem hann var á 146 km hraða á
Garðsvegi við golfskálann í
Leiru. Ökumaöurinn var fluttur
upp á stöð þar sem hann var
sviptur ökuleyfi til bráöabirgða.
-SMJ
Hollur heima-
tekinn baggi
Regína Hioraransen, DV, Gjögit
Gunnsteinn, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Strandamanna á
Norðurfirði, kaupir grásleppu-
hrogn og lætur verka þau á
Gjögri og Norðurfirði. Hann
borgar 120 krónur fyrir kílóið,
svo kemur uppbót seinna, þegar
Sambandiö er búið að selja
hrognin en það kaupir hrognin
af kaupfélögunum víðs vegar um
landið.
Ég segi nú bara, alltaf er hollur
heimatekinn baggi.
Listaverkið, sem Jaqueline Picasso gaf forseta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, árið 1986, er nú til sýnis í Listasafni íslands. DV-myndir JAK
Jaqueline til sýnis
Nýlega kom listaverk Picassos,
sem er portrett af konu hans, Jaquel-
ine, frá árinu 1962, í Listasafn ís-
lands. Verkið gaf Jaqueline sjálf Vig-
dísi Finnbogadóttur, forseta íslands,
fyrir þremur árum.
Að sögn Komelíusar Sigmunds-
sonar forsetaritara var „verkið lánað
Listasafninu þannig að almenningur
geti notið þess. Þar mun það verða
til sýnis um óákveðinn tíma“, sagði
hann.
Hjá myndinni í Listasafninu er
spjald þar sem segir að forsetinn
hafl afhent hana íslensku þjóðinni til
eignar. -Ó'TT
PABLO PICASSO
1881-1973
Jacqueline
Mougins, 1962 . ,
Málmplata, klfppt, beygð, máluð
49 cm
sem afhendi hana fslensku þjéðinni til eignar.
Þessi texti fylgir myndinni í Listasafninu. Þar segir að forsetinn hafi afhent
myndina íslensku þjóöinni til eignar.
Miklar tafir við af-
greiðslu Nörrænu
„Þaö varð klukkutíma bið því hífa
varð 20 bíla frá borði og það verður
líka að gera næst. Bifreiðirnar fyrir
aftan urðu að bíöa þvi ekki er nema
eitt hlið fyrir þær,“ sagði Siguijón
Andri Guðmundsson, lögreglumað-
ur á Seyðisfirði, en taflr urðu á af-
greiðslu Norrænu á fimmtudaginn.
Sigurjón sagði aö afgreiðslan tæki
venjulega 1 /% til 2 tíma, ekki minna.
Það færi þó dálítiö eftir því hversu
duglegir þeir væm að leita. Síðasta
fimmtudag fannst t.d. talsvert mikið
af mat.
Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdasfjóri Austfars, sem er um-
boðsaðili Smyril Line, kannaöist við
það að einhveijar tafir hefðu orðið í
síöustu viku. Skipið kom hálftíma á
eftir áætlun og þegar átti að hleypa
farartækjum út var vagn fastur í
ganginum og tók hálftíma að losa
hann.
Jónas sagði að veður hefði verið
ljómandi gott og fólk tekið töfinni
vel. Hvað varðaði töf við tollskoðun
vildi hann leggja þunga áherslu á að
sem allra best væri tollskoðað, þó
væri þiöin auðvitað erfið fyrir börn.
Það tæki sinn tíma að skoða 280 far-
artæki.
„Það tekur um 2 til 2'A tíma að
koma fólki frá boröi og kemur fyrir
að einhverjum bílum er haldið eftir
til að leita í betur. Það er samt allt
reynt að gera svo fólki líði sem best,“
sagði Jónas.
-GHK
Hundur útataður
í olíumálningu
- spumlng um lif eöa dauöa hundsins
„Um áttaleytið í gærmorgun varð
dóttur okkar það á að missa labra-
dorhundinn út, en hann er 5 ára gam-
all. Um hádegisbilið var síðan hringt
frá Dýraspítalanum og tilkynnt að
hann væri staddur hjá þeim útataður
í blárri olíumálningu - ég myndi telja
að málningin hefði þakið 60% dýrs-
ins,“ sagði Gunnsteinn Gíslason, eig-
andi hundsins, í samtali við DV.
„Hundaeftirhtsmaður hafði fundið
hamí við Brúnaland og hefur hund-
urinn verið undir læknishöndum hjá
Helgu Finnsdóttur dýralækni. Hann
er fárveikur núna, með 40 stiga hita,
enda hefur þurft aö þvo hann marg-
oft upp úr terpentínu og sápu. Ef
svona gerist er spuming um líf og
dauöa hjá dýrunum," sagði Gunn-
steinn. „Hundurinn gengur í gegnum
ólýsanlegar kvalir“.
Dýralæknirinn taldi víst að þetta
væri gert af manna völdum. Þaö sem
styður þá skoöun er að málning var
bæði í augum og eyrum hundsins -
engu var hlíft. Því teljum við ólíklegt
að hann hafi gert þetta sjálfur með
einhverjum hætti. Ef svona verk er
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir meö
hundinn sinn skömmu eftir aö byrjað
var á að þvo hann með terpentínu.
Dýrið hefur þolað miklar kvalir og
er með 40 stiga hita.
DV-mynd Hanna
framið af manna völdum er viðkom-
andi vorkunn. Auðvitað átti hundur-
inn ekki að ganga laus, þaö em okk-
ar mistök - en þetta er einum of mik-
ilmannvonska." -ÓTT
Glæsilegt sumarhús
Regína Thorarensen, DV, Gjögri;
Kristmundur Sörlason er fæddur
og uppalinn á Gjögri en fór fljótlega
eftir fermingu, eins og fleiri úr Ár-
neshreppi, á brott. Hann læröi jám-
smíöi og hefur gengið vel í sínu starfi.
Hann keypti lóð á Gjögri og er nýbú-
inn að byggja þar sumarbústað á
tveimur hæðum, 58 m2 hvor hæð.
Efri hæðin er fúllkláruð og er ytra
byrði úr rekavið sem sagaður var af
Guðmundi bónda á Finnbogastöðum
og dáðust húsasmiðirnir að hve allt
passaði. Þar féll allt saman.
Það á að vígja þennan flotta sumar-
bústað 19. ágúst. Þann dag verður
Kristmundur sextugur og þá verður
eflaust fiölmenni í félagsheimilinu í
Trékyllisvík. Margir em famir að
hlakka til þeirrar matarveislu sem
þá verður hjá Kristmundi og konu
hans, Addý Guðjónsdóttur.