Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
9
Deiluaðilar í Kambódíu áður en iriðarviðræður sigldu i strand í París í gær.
Simamynd Reuter
Búa sig undir
landvinninga
Andspymuhreyfingar í Kambódíu
búa sig nú undir landvinninga til aö
styrkja stöðu sína þegar víetnamskar
hersveitir hverfa frá landinu í sept-
ember næstkomandi aö því er stjórn-
arerindrekar sögðu í morgun.
Tveggja daga friðarviðræður milh
stjómarinnar í Phnom Penh, sem
Víetnamar styðja, og andspyrnu-
hreyfingarinnar, þar sem Rauðu
kmerarnir eru sterkastir, fóm út um
þúfur í París í gær. Ekki er ljóst hvort
hinar stríðandi fylkingar muni senda
fulltrúa sína á alþjóðlega friðarráð-
stefnu um Kambódíu sem hefst í
París um næstu helgi.
Sihanouk prins, einn leiðtogi and-
spymumanna, sagði eftir að friðar-
viðræðurnar fóru út um þúfur að
andspyrnuhreyfingamar gætu ekki
sætt sig við skilyrði stjórnvalda um
að Rauðu kmeramir fengju ekki að
taka þátt í stjórn landsins og því
væru frekari viðræður ekki til neins.
„Andspyrnuhreyfingin sá hvert
stefndi í París. Hún er að búa sig
undir brottflutning víetnamskra her-
sveita og ætlar sér að ná undir sig
landsvæðum sem hún getur notað í
samningaviðræðum við stjórnvöld í
Phnom Penh,“ sagði stjórnarerind-
reki sem hefur aðsetur í Bangkok.
Stjórnarerindrekar segja að Rauðu
kmerarnir, sem njóta stuðnings Kín-
verja og andspyrnuhreyfingar undir
forsæti Norodoms Sihanouks prins
og Son Sann, hafi fyrir fundinn í
París byrjað að efla herstyrk sinn og
auka hernaðaraðgerðir sínar. For-
sætisráðherra Kambódíu sagði í gær
að síðustu víetnömsku hermennirnir
yrðu á brott úr landinu þann 27. sept-
ember.
Embættismenn í Tælandi sögðu að
Víetnam og Sovétríkin hefðu aukið
hergagnaflutninga sína til stjórn-
valda í Phnom Penh, m.a. hefðu þeir
sent deild af Mig-21 orrustuvélum. Á
sama tíma hafa Kínverjar aukið
hernaðaraðstoð sína við Rauðu
kmerana. Bandaríkjamenn hafa
einnig lagt aukið kapp á að byggja
upp herdeildir þeirra andspyrnu-
hópa sem ekki lúta stjóm kommún-
ista.
Frá því að Víetnamar réðust inn í
Kambódíu 1978 hafa skæruliðar sótt
inn í landið en ekki tekist að ná stjóm
yfir stómm spildum. Flestir þeirra
eru í Tælandi að sögn stjórnarerind-
reka.
Reuter
Rúmlega sjö hundruð hafa látið Veröbréíamarkaöir vom opnaöir
lífið og þúsunda er saknaö eftir eitt eftir hádegi í gær.
versta óveður sem gengið hefur Þrjátíu létust í aurskriðu í þorp-
yfir Indland síðustu ár samkvæmt inu Vaju, nærri Bombay. Veður-
fréttum indverskra fréttastoíá. Þar fræðingar hafa gefið út veöurað-
af haíá meira en fimm hundruö varanir og segja að búast megi við
látist í Maharashtra fylki í vestur- áframhaldandi óveðri i dag.
hluta landsins. Um tvö þúsund er Hermenn hafa gengiö til hðs við
enn saknað, þar af þúsund sjó- björgunarliö í björgunaraðgerðun-
manna sem lentu í miklum rigning- um. Matarpakkar hafa verið látnir
um og óveðri á Arabíuflóa. falla úr flugvélum til fólks í þorp-
í höfúðborginni, Bombay, var at- um sem er eínangrað í kjölfar flóða
vinnulifið aö mestu lamað í gær, og aurskriöa. Tahð er að tjónið af
þriðja daginn í röð. Samgöngur völdum veðurofsans nemi nokkr-
lágu að mestu rnðri, götur voru um milljónum dollara.
auðarogmargarverslanirlokaðar. Reuter
Útiönd
Dokk framtíð Afríku
Afríksir þjóðarleiðtogar hafa verið
varaðir við því á árlegum fundi sín-
lum að æ fleiri þegnar þeirra séu
dæmdir til að fylla flokk ölmusu-
manna heimsins. Viðvörun þessi
kom fram í gær á þriggja daga fundi
Einingarsamtaka Afríku sem fram
fer í Addis Ahaha í Eþiópíu, áður en
fulltrúar ríkjanna fóru inn á lokaða
'fundi til að ræða stjómmálaástand
álfunnar.
Framkvæmdastjóri efnahagsnefn-
ar Afríku innan Sameinuðu þjóð-
anna dró upp dökka mynd af því sem
hann kallaði týndan áratug Afríku á
9. áratugnum. Fjöldi þeirra Afríku-
ríkja sem fylla hóp vanþróuðustu
þjóða heims var kominn upp í 28 á
síðasta ári, en 1978 voru þau 17.
Framkvæmdastjórinn, Adebayo
Adedeji, bætti því við að fleiri ríki
ættu eftir að komast í hópinn.
Adedji sagði að Afríkubúar væra
verr á vegi staddir nú en áður í flestu
tilliti. Lífsgæði hefðu hrapað á síð-
asta áratug á sama tíma og erlendar
skuldir hefðu nær fimmfaldast og
væra nú 230 milljarðar dala. Þá
hefðu afborganir af erlendum lánum
nær þrefaldast sem hluti af útflutn-
ingstekjum. Iðnaðarframleiðsla og
námuvinnsla hafa minnkað til muna
og verðbólga var 21.3 prósent en 15.1
prósent 1980.
Adedji sem er harður andstæðing-
ur skilyrða sem Alþjóða gjaldeyr-
issjóðurinn og Alþjóðabankinn setja
fyrir þróunaraðstoð og sagði að þau
hefðu rænt Afríkubúa þeirra eigin
efnahagsmarkmiðum. Hann gagn-
rýndi stefnu þeirra að krefjast jafn-
aðar í fjármálum með niðurskurði
fjárlaga, heilsugæslu og annarrar
félagslegrar þjónustu.
Reuter
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, ræðir við starfsbróður sinn frá Malí, Moussa Traore, á fundi Einingarsam-
taka Afríku í Addis Ababa. Simamynd Reuter
Sovéskir eskimóar á Grænlandi
Eskimóar á Vesturlöndum hafa nefnd frá þeim átti að heimsækja menningu og efnahagsmál.
í tólf ár reynt að fá sovésk yfirvöld heimaland hans. Hún þakkaöi það Samhhða ráðstefnu ICC hefur
til aö heimila frændum þeirra í Sí- glasnost stefnu stjómvalda að fuh- eldri kynslóö eskimóa frá Alaska,
beríu að taka þátt í staríi samtak- trúar frá Sovétríkjunum væra nú Kanada og Grænlandi haldiö eigin
anna inuit Circumpolar Conferen- mættir til ráðstefnunnar. fundi um vandamál sem að þeim
ce en það var ekki fyrr en 1988 að Tíu fuhtrúar eskimóa eru í so- snúa. Öldungamir koma saman aö
sovéskir eskimóar komust að þvi. vésku sendinefndinni auk túika og undirlagi menningarmálaráðherra
Á fundi, sem samtökin halda í annarra starfsmanna. Á öörum ; grænlensku heimastjórnai-innar
Sisimiut á Grænlandi, sagðist so- degiráðstefmmnarskiptufuUtrúar sem segir aö yngri kynslóðin geti
véskur eskimói fyrst hafa fengið sér í sjö hópa þar sem þeir ræddu margt lært af þeim eldri í ghmu
vitneskju um tilvist samtakanna í sameiginleg hagsmunamál sín, svo sinni við vandamál líöandi stund-
júU á síðasta ári, skömmu áður en sem umhverfismál, frið og öryggi, ar. Ritzau
MEST SELDU HJOLHYSII EVROPU
M 90
J*
Sprite hjólhýsi
Dráttarbeisli - Kerrur
Eigum á lager hesta-, vélsleöa-, jeppa- og
bátakerrur.
Kerruhásingar fyrir tjaldvagna, hestakerrur
o.fl. Burðarþol 500 kg - 6 tonn.
Allar gerðir af kerrum og vögnum.
VÍKURVAGNAR
Dalbrekku - sími 45270 og 43911
'89 Sprlte hjólhýsl eru komln, 2 herbergi og eldhús, 5 manna,
sérhönnuð fyrlr íslenskar aðstæður. Gæði - Ending - Oryggi.
1. Sérstaklega sterkur undirvagn, galvaniseraður.
2.6 tet milll hjóla, radíaldekk, sjálfstæð sneriHjöðrun, mjög þýð.
3. Sérstaklega hönnuð tll að taka tltlnn vlnd é sig. Mjög stöðug.
4. Stórt hólt fyrir gas, varadekk, vatn o.fl.
5. Gólf og vegglr elnangraðir með 26 mm Steryne-einangrun.
6. Þak einnig vel einangrað.
7. Tvötalt litaö gler I gluggum.
8. Vel búið eldhús með Electrolux Isskép.
9. Góður Carver-hltaoln.
10. Smekklega innréHað úr Ijósum viðl, falleg áklæðl.
11. Ótrúlega hagstæH verð.
12. Frábær grelðslukjör.
Nuddpottar - Nuddker
Nuddpottar, nuddbaðker og hestanuddbað i
miklu úrvali (til sýnis i gangi). Glæsiiegir úti-
og innipottar og ker með eða án nudds. Upp-
litast ekki og þola hitaveituvatn. Mikíö úrval.
Gæði - Ending - Þægindí.
Veljum íslenskt
Verið velkomin - Sjón er sögu ríkari
Opið alla laugardaga