Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989. Utlönd Enrique Baron, til vinstri, var í gær kjörinn torseti Evrópuþingsins. Simamynd Reuter Spænski sósíalistinn, Enrique Baron, var í gær kiörinn forseti Evrópu- þingsins í fyrstu uraferö kosninga þingmanna. Baron, sem hlaut ails 301 atkvæöi, var talinn sigurstranglegur fyrir kosningarnar og komu úrslitin ekki á óvart. Rudiger von Wechmar kom næstur með 93 atkvæði. Kristilegir demókratar samþykktu að styðja Baron, sem mun sitja í embætti í tvö og hálft ár, með því skilyrði að þeir fengju stuöning við frambjóðanda úr sínum röðum áriö 1992. Sósíalistar og kristilegir demó- kratar, tveir stærstu hópamir á þinginu, hafa samanlagt 301 sæti. Áður en gengið var til kosninga gekk stór hluti þingmanna af þingi í mótmælaskyni við ræðu aldursforseta þingsins, hinn hægrisinnaða Claude Autant-Lara. Sósíalistar gengu ut fyiktu liði en skildu eftir rauöa rós í sætum sínum. Nær allir þingmenn yfirgáfu þingsalixm að lokum. Fyrir ráðamönnum í Sovétríkjunum liggur nú að ákveða hvernig skuli greiða þær kjarabætur sem námamönnum Feliir niður ákærur voru lofaðar. Simamynd Reuter Bandarískur dómari samþykkti í gær beiöni saksóknara í íran-kontra vopnasölumálinu aö fella niður nokkrar af alvarlegustu ákærunum gegn John Poindexter, einum sakborninga í málinu og fyrrum þjóðaröryggis- ráðgjafa Bandaríkjastjórnar. Saksóknarinn fór fram á í síöustu viku að falliö yrði frá nokkrum af ákærunum til að koma í veg fyrir hugsanlegar tafir á réttarhöldunum vegna upplýsinga er taldar eru varöa þjóöarör- yggi Bandaríkjanna. Sams konar ósk var einnig veitt í réttarhöldunum yfir Oliver North en hann var nýlega fundinn sekur um þrjú af tólf ákæruatriöum. Búast má við aö réttarhöldin yfir Poindexter hefjist í haust. Ákveða mótmæli Kínverskir námsmenn á Vesturlöndum hafa ákveðið aö efna til mikilla mótmæla í september næstkomandi til aö minnast þess aö þá eru eitt hundrað dagar liðnir írá því að hermenn myrtu tugi námsmanna á Torgi hins himneska friðar i Peking. Stofnuð hafa verið samtök námsmanna erlendis og segja heimildarmenn aö þau muni stefna að því að sameina þau öfl sem vilji koraa stjórninni í Kína frá völdum. Mannfall í flóðum í Suður-Kóreu Talið er að áttatíu og einn hafi ýmist látið lifið eöa sé saknað í kjöl- far mikilla flóöa í Suður-Kóreu síð- ustu daga. Hermenn hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum og björguöu í gær fimm hundruð manns sem voru strönduö í suðuvesturhluta landsins. Eftir tveggja daga rign- ingar flæddu ár í héraöinu yfir bakka sína og varö aö bjarga mörg- um íbúa þess af þökum húsa sinna. Embættismenn segja að tuttugu og þijú þúsund hafi þurft aö yfir- gefa heimili sín í suðurhluta lands- ins. Samgöngur voru slæmar vegna flóðanna og urðu margir ferðamenn strandaglópar. Hermenn bjarga Suður-Kóreubú- um sem strandaðir voru vegna flóða í Cholla í suðvesturhluta landsins. Sfmamynd Reuter Fílabað í London t»að er kannski að bera í bakkafullan lækinn aö segja frá sól og sumaryl f Evrópu þegar haft er f huga hvernig veðrið hefur verið á höfuöborgar- svæðinu. íbúar I öðrum landshlutum kannast e.Lv. betur viö slíkar frétt- Ir. En i London hefur verið mjög gott veður og í gær gripu þessir fjóru ungu fífar tækifærið og skelltu sér í bað. Filarnir eru allir í dýragarðinum ÍLondon. Reuter Þjóðernisátök halda áfram i Sovétríkjunum Þrátt fyrir aö nú virðist sem verk- fóllum námumanna í Sovétríkjunum sé að mestu lokið geta ráðamenn í Moskvu ekki varpað öndinni léttar strax þar sem þjóðernisátök halda áfram í suðurhluta landsins. í lýð- veldinu Georgíu komu tugir þúsunda mótmælenda saman til fundar í gær- kvöldi annan daginn í röö til að krefj- ast sjálfstæöis Georgíu. Og í Eistlandi kom til átaka milli minnihluta- og meirihlutahópa vegna meintrar mis- mununar. Nokkrir starfsmenn við skipa- smíðastöðvar og fleira í Eistlandi, flestir í minnihlutahóp Rússa, lögöu niður vinnu í gær til aö mótmæla því er þeir segja vera mismunun af hendi meirihlutans. Ekki ber öllum frétt- um saman um hversu víðtæk þessi verkfóll eru en samkvæmt einum heimildarmanni í lýðveldinu lögöu sextíu þúsund verkamenn viö tólf verksmiðjur niður vinnu. Segir hann þá vera að mótmæla lagasetningu sem þeir segja halla undir meirihlu- tann. Hugmyndafræðingur komm- únistaflokksins í Eistlandi sagði aft- ur á móti aö verkfóllunum væri lok- ið. Tass-fréttastofan sagði að verkfóll hefðu haflst í skipasmíðastöðinni í Tallin, höfuðborginni, á mánudag og að fleiri hefðu lagt niður vinnu í gær. Ekki kom fram hversu margir tóku þátt í verkfóllunum. Nú virðist sem verkfóllum námu- manna sé að mestu lokið en verka- menn sneru til vinnu á ný eftir að ákveðið var að láta að mestu eftir kröfum þeirra. En nú á eftir að ákveða hvernig skuli greiða fyrir kostnaðinn við það. Æðsta ráðið hvatti fólk í gær til að sýna samstöðu í að vinna að umbótum og lýðræði. Reuter Tíu stærstu bankamir japanskir Tíu stærstu bankar heimsins eru nú í fyrsta skipti allir japanskir en bandarískur banki og franskur hafa fallið út af listanum yflr tíu stærstu bankana. Stærsti banki Japans, og þar með heimsins, er Dai-Ichi Kangyo banki og námu eignir hans 387 miiljörðum tdollara í lok marsmánaðar. Citicorp, sem er stærsti banki Bandaríkjanna, hefur hrapað úr 10. sæti niður í það 12 en eignir hans í lok síðasta árs voru 203,8 milljarðar dala. Stærsti bankinn utan Japans er franski bankinn Crédit Agricole Mutuel. Hann er nú í 11. sæti en var í því 8. á síðasta ári með eignir upp á 208 milljarða dala í árslok 1988. Listi yfir stærstu banka heims er tekinn saman á hverju ári af Americ- an Banker, dagblaði í New York. Listinn segir ekkert til um hagnað bankanna en þar hafa þeir banda- rísku vmninginn. Japanskir bankar hafa aldrei verið í hópi þeirra banka sem mest græöa en nýjustu tölur sýna að hagnaður þeirra hefur farið vaxandi. Ástæður fyrir stærð japanskra banka um þessar mundir má m.a. rekja til hækkandi gengis yensins að undanförnu og meiri sparnaðar í Japan. Þá segja bankasérfræðingar að stærö banka hafi sitt að segja þar sem þeir stærstu fái sjálikrafa hag- stæðustu samningana. Reuter Viðurkenna fund með Shamir Leiðtogi Palestínumanna á Vestur- bakkanum skýrði frá því í gær að hann hefði hitt Yitzhak Shamir, for- sætisráðherra ísraels, til að ræða áform ísraelsmanna um kosningar á hernumdu svæðunum. Lögfræöing- urinn Jamfl Tarifi frá Ramallah, sem lýsir sér sem stuðningsmanni Frels- issamtaka Palestínu, kvaddi blaða- menn á sinn fund og sagöist hafa rætt við Shamir í 45 mínútur á skrif- stofu ráðherrans fyrr í þessum mán- uði. Hann sagðist skýra frá fundinum tfl aö svara fullyrðingum ísraels- manna um að Palestínumenn, sem tóku þátt í viðræðunum, hefðu farið fram á að þeim yrði haldið leyndum vegna ótta við hefndaraðgerðir her- skárra Palestínumanna. Blaðafulltrúi Shamirs hafði áður neitaö að greina frá nöfnum fjögurra Palestínumanna sem hafa rætt viö forsætisráðherrann á undangengn- um tveimur vikum. Hann sagöi að þaö hefði veriö gert vegna öryggis Palestínumannanna og þeirri stefnu yröi fylgt. Blaðafulltrúinn ítrekaöi það í gær aö þótt Shamir heföi hitt yfirlýstan stuðningsmann Fatah hreyfingarinnar, sem Yasser Arafat veitir forsæti, þýddi það ekki aö ísra- elsmenn ættu í óbeinum viöræöum viö PLO. Fjórmenningarnir fengu allir sam- þykki PLO fyrir fundinn með Shamir en þrír þeirra neita þó enn að fundur- innhafiáttsérstað. Reuter Jamil Tarifi, lögfræðingur á Vestur- bakkanum, viðurkenndi í gær að hann hefði hitt Shamir, forsætisráö- herra ísraels, ásamt þremur öðrum Palestinumönnum. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.