Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 32
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ict eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. ist krónur. Fulirar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritsstjórn - Auglýsinsar - Askrift - Dreifing: Simi 27022 Frjálst,óhá5 dagblað MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989. Dómur kominn í máli sparisjóðsstjóra Rauðasandshrepps: Dómur hefur verið kveðinn upp í máli fyrrverandi sparisjóðsstióra Sparisjóðs Rauðasandshrepps, Valdimars Össurarsonar. Er ákærði dæmdur í fimm mánaða fangelsi en þar af eru fjórir mánuð- ir skilorðsbundnir. Ef skilorðið er haidið fellur það niður á þrem árum. Einnig er ákærða gert að greiða allan kostnað sakarinnar. Ákærði hefur 14 daga frest til að áfrýja. Það var Adólf Adólfsson, bæjar- fógeti á Bolungarvík, sem kvað upp dóminn en sýslumaður Barða- strandarsýslu, Stefán Skarphéð- insson, var vanhæfur vegna kynna af ákærða. Þar með er komin niðurstaða í þessu máli eins minnsta sparisjóðs landsins en íbúar í Rauðasands- hreppi eru 80 talsins. Það var í upphafi árs 1988 sem Bankaeftirlit Seðlabankans gerði athugasemdir við fjárreiður sjóðsins enda ekki gert grein fyrir reikningum sjóðs- ins í iangan tíma. Vöknuðu þá grunsemdir um að sparisjóðsstjóri heföi tekið sér hærri laun en hon- um bar. Ákvað hann að endur- greiða sem svarar einni milljón króna þá þegar. Kom í jjós eftir rannsókn Rann- sóknariögi’eglu ríkisins að um helming sjóða spaiásjóðsins vant- aði eða um 2,7 milljón króna. Lætur nærri að það sé hátt í sex milijónir króna á núgildandi verðlagi. í dómnum nú var ekki tekin af- staða tii krafna innstæðueigenda hjá sparisjóðnum en stór hluti af þeim fjármunum mun vera glatað- ir. Sparisjóðurinn hefur verið sam- einaðm- Eyrasparisjóði á Patreks- firði. -SMJ Bensínlækkunin Verð í lok apríl og nú 294$ 182$ 1 1 270$ 172$ 98 okt. 92 okt. Verðfall í Rotterdam Verðfall varð á bensíni og olíuvör- um á Rotterdammarkaöi í gær. Þá fór verðið á súperbensíni niður í 182,5 dollara tonniö og hafði þá lækkað um 1,35% frá deginum áður. Skráð verð á blýlausu bensíni var 172,5 dollarar og hafði þá lækkað um 1,43% frá mánudeginum. Verð á gasclíu var 148 dollarar tonnið og lækkaði um 1,33% frá deg- inum áður. Tonnið á svartohu var í gær skráð 97,5 dollarar og hafði lækkað um 2,50%. Skráð verð á hrá- olíuvar 16,90 dollarar tunnan. -JSS il| , ; ■ ‘ ,. , ; ;■ , ■ , ., .„ . Barinn til óbóta við heimili sitt liggur með verulega áverka á Landspítalanum Ráðist var á 25 ára gamlan mann í gærkvöldi á Álfhólsvegi í Kópa- vogi. Liggur hann nú með verulega áverka á slysadeild Landspítaians. Árásarmennirnir voru tveir og veittust þeir að manninum fyrir utan heimiii hans á Alfhólsveginum um klukkan 21. Börðu þeir hann niður og spörkuðu í hann hvað eftir annað. Ekki er vitað hvort þeir beittu barefl- um. Maðurinn komst þó inn til sín þar sem hann býr hjá fóður sínum. Þegar líða tók á kvöldið fór hann að finna til vaxandi óþæginda og um miðnætti hringdi hann á sjúkrabíl. Nákvæm frásögn af atburðinum liggur ekki fyrir því lögreglan hefur ekki enn náð að taka skýrslu af manninum. Ekki er vitað hverjir ár- ásarmennirnir eru eða hvort þeir þekktu fórnarlambið. Þá er ekki vit- að hvert tilefni árásarinnar var. Eng- in vitni hafa fundist að atburðinum. Lögreglan leitar nú mannanna en Rannsóknarlögregla ríkisins fékk málið til meðferðar í morgun. -SMJ Meira út en áætlað var „Já, er ekki best að mála stöngina i leiðinni?" Um þessar mundir er verið að Ijúka við málningarvinnu á húsnæði Menntakólans í Reykjavík. Þurfti að fá kranabíl til að mála svokölluð brot á þakinu og var fiaggstöngin svip- mikla máluð í leiðinni. Að sögn Guðna Guðmundssonar rektors er nú ver- ið að hefjast handa við að skipta um og setja tvöfalt gler í gluggana. „Fyrsta snjóbræðslukerfið á íslandi í gegnum hitaveitu var lagt hér fyrir framan. En nú virkar það ekki eftir næstum 40 ára þjónustu - kerfið er í athugun núna,“ sagði Guðni. ÓTT/DV-mynd JAK Ríkissjóður mun senda yfir eitt hundrað þúsund einstaklingum ávís- anir sem samtals eru að upphæð hátt í 3,6 milljarðar. Þarna er um að ræða oftekinn tekjuskatt á fyrra ári, vaxtaafslátt, húsnæðisbætur, barna- bætur og barnabótaauka. Auk þess mun ríkissjóður senda fjölda manns kvittanir fyrir greiðsl- um á skattskuldum að upphæð um 360 milljónir. Heildarendurgreiðslur úr skattkerfmu eru því nálægt 4 milljörðum um þessi mánaðamót. Oftekinn tekjuskattur er um 1,2 milljarðar og kemur hann nú til end- urgreiðslu. Bæði er um að ræða van- nýttan persónuafslátt og að viður- kenndur hefur verið ýmis kostnaður á móti hlunnindagreiðslum. Á móti þessu kemur vantekinn tekjuskattur sem lagður verður á einstaklinga um mánaðamótin. Hann er hærri en sem nemur endur- greiðslum úr kerfinu. Hins vegar er vantekinn og oftekinn tekjuskattur hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir þannig að mun meira fer úr ríkis- sjóðinúenáætlaðvar. -gse Veðrið á morgun: Áfram skúrir Á morgun er gert ráð fyrir frem- ur hægri norðan- og norðvestanátt. Á landinu vestan- og norðvestan- verðu er gert ráð fyrir skúrum en annars staðar verður úrkomu- laust. OPID Öll KVOLP SKteASKAcinn GÆÐI - GLÆSILEIKI 4 4 4 4 5 4 4 4 4 „Gott hljóð í Margeiri“ Margeir Pétursson er nú í fyrsta ** sæti á Norðurlandamótinu í skák. í gær vann hsmn Svíann Tom Wed- berg. Efstir og jafnir á mótinu eru nú Margeir og Finninn Jouni Yrjölá. Að sögn Sigríðar Indriðadóttur, eiginkonu Margeirs Péturssonar, var gott hljóð í pilti þegar hún spjallaði við hann að lokinni sigurskákinni í gær. „Honum fmnst að vísu dálítið heitt í skáksalnum. Margeir sagði að þetta væri erfitt mót með jöfnum andstæðingum þcir sem allir gætu unnið alla. Til marks um það tapaði Simen Agdestein óvænt i gær fyrir andstæðingi sínum,“ sagði Sigríður. „Margeir sagði að skákin í gær hefði verið erfið og á mótinu væru engir léttir andstæðingar. Mótið er . sérstaklega erfitt fyrir þær sakir að tefldar eru 13 umferðir á jafnmörg- um dögum - enginn dagur tekinn í hvíld.“ Á Norðurlandamótinu er keppt um tvö sæti á millisvæðamóti sem verð- ur haldið á næsta ári. Þar hefur Jó- hann Hjartarson þegar tryggt sér þátttökurétt. Norðurlöndin fá að senda þrjá fulltrúa á það mót. Það gæti því farið svo, ef Margeir og Helgi Ólafsson yrðu í fyrstu tveimur sæt- unum, að íslendingar ættu þrjá fúll- trúa á milhsvæðamóti - það yrði ' stórkostlegurárangur. -ÓTT íslandsbanki hf: Ekkert hræddir við fortíðina „Nafnið íslandsbanki er sprottið úr íslensku umhverfi. Við erum að endurvekja gott nafn sem tengt er atvinnusögu þjóðarinnar. Það hentar vel á banka sem mun verða aflvaki framfara og sem mun leitast við að veita fyrirtækjum og einstaklingum góða þjónustu,“ segir Brynjólfur Bjamason, formaður bankaráðs Iðn- aðarbankans. m* Þegar sameining bankanna þriggja, Verslunar-, Iðnaðar- og Al- þýðubanka, var tilkynnt var jafn- framt ákveðið að efna til samkeppni meðal starfsfólks bankanna um nafn á hinn nýja einkabanka. Alls bárust 256 tillögur og úr þeim var unnið og íslandsbankanafnið varð ofan á. - Þið eruð ekkert hræddir um að það verði örlög þessa banka að verða gjaldþrota eins og gamla íslands- bankans? „Við eram ekkert hræddir um að nafnið boði eitthvað slæmt. Eins og ég sagði áðan er þetta gott íslenskt nafn sem sjálfsagt er að endurvekja." Hluthafafundur var í Verslunar- bankanum í gær og samþykkti hann ..samruna bankanna þriggja með þorra atkvæða. Hluthafafundir verða í Iðnaðarbanka og Alþýðu- bankaídag. -J.Mar LOKI Islandsbankamenn segja sem sagt ekki: allt er þá þrennt er?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.