Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Qupperneq 5
5
MIÐVIKUDAGUR 26.' JÚLÍ 1989.
DV
Félag sendibílstjóra vill fækka sendibilum:
Verio er að biðja
um einokunar-
rétt með þessu
- segir Hjörleifur Kvaran hjá Reykjavíkurborg
Trausti, félag sendibílstjóra á höf-
uðborgarsvæðinu, hefur sótt um
meðmæh til borgarráðs og bæjar-
stjóma félagssvæðisins um takmörk-
un á fjölda sendibíla á svæöinu. Nær
svæðið yfir Reykjavík, Kópavog,
Mosfellsbæ, Seltjarnarnes og
Garðabæ. í ráði er að sækja formlega
um takmörkun til samgönguráðu-
neytisins.
Ráðuneytinu er heimilt að tak-
marka íjölda leyfa. Hins vegar.verða
að koma til meðmæli bæjarstjóma
og héraðsnefnda á félagssvæðinu er
svæðið fellur undir. Verði þær ekki
sammála um hvort mæla skuli með
takmörkun eða ekki skal ráðuneytið
skera úr um vafaatriði.
Meðmælabeiðni Trausta hefur ver-
ið tekin fyrir hjá borgarráði Reykja-
víkur og í bæjarstjórnum félags-
svæðisins. Hjörleifur Kvaran, fram-
kvæmdastjóri. lögfræði'- og stjóm-
sýsludeildar Reykjavíkurborgar,
sagði í samtah við DV að borgarráð
hefði hafnað beiðninni með sam-
hljóða atkvæðum.
Beiðni um einokunarrétt
„Við litum svo á að með takmörk-
unum leyfa sé verið að biðja um ein-
okunarrétt. Borgarráð vill hafa þetta
opið og láta markaðinn ráða. Miðað
við íbúafjölda Reykjavíkur er hér um
67% svæðisins að ræða. Samgöngu-
ráðuneytiö hlýtur að taka tillit til
þess við umfjöllun sína,“ sagði Hjör-
leifur.
Meðmælabeiðni Trausta um tak-
mörkun á fjölda sendibifreiða til
leiguaksturs var hins vegar sam-
þykkt með 11 samhljóða atkvæðum
í bæjarstjórn Kópavogs. Lagði bæjar-
ráð þar til að bæjarstjórn tæki máhö
fyrir og voru meðmæhn samþykkt
þar. í Trausta eru nú um 500 félags-
menn en utan félagsins eru um 100
aðhar, þ.á m. starfsmenn Sendibha
hf.
Lárus Pálsson, starfsmaður hjá
Trausta, sagði við DV að á aðalfundi
félagsins hefði verið samþykkt að
sækja um þessa takmörkun th sam-
gönguráðuneytisins þar sem meiri-
hluti sendibifreiðastjóra væri því
hlynntur. Sagði Lárus að umsagnir
bæjarstjórnanna gætu orkað tvímæl-
is. „Við ætlum að sækja um og mun-
um láta ráðuneytið skera úr um
máhð,“ sagði hann. -ÓTT
Fréttir
Um 20 mínútur tók fyrir slökkviliðið að slökkva eldinn í bilnum, en hér fylgist Guðmundur Pétursson með þvi
þegar bílinn hans nánast fuðrar upp. DV-mynd MS
Leigubíll brann á Þrengslavegi:
Þurfti tvö tonn af vatni
til að slökkva eldinn
Eins og greint var frá í DV á mánu-
daginn kviknaði í leigubh á
Þrengslavegi og varð ekkert við eld-
inn ráðið þannig að bhinn er gjöró-
nýtur. Bhinn er um ársgamall af
gerðinni Mercedes Benz. Nýir kosta
slíkir bhar um þrjár mhljónir króna.
Bhstjórinn, Guðmundur Péturs-
son, var að koma úr túr til Þorláks-
hafnar og var á leiðinni til Reykja-
víkur þegar hann varð var við mik-
inn reyk undan framsætinu. Stöðv-
aði hann bhinn og lyfti upp sætinu.
Gaus þá upp mikhl eldur og þó að
Guðmundur næði í duftslökkvitæki
í bílnum dugði það ekki th. Hann
hringdi því á leigubílastöðina sem
hringdi th lögreglunnar í Hvera-
gerði. Kom slökkviliðið fljótlega á
staðinn en þá var bílinn alelda. Þurfti
slökkvihðið að dæla um tveim tonn-
um af vatni á eldinn th að slökkva
hann.
Ekki er ljóst út frá hverju kviknaði
en Guðmundur vill jafnvel rekja það
til verksmiðjugaha og að kviknað
hafi í út frá dælu sem hafi ofhitnað.
-SMJ
Gert út frá
Djúpuvík
JEPPAEIGENDUR!
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Lýður Hallbertsson, útgerðarmað-
ur á Skagaströnd, gerir út frá Djúpu-
vík yfir sumarmánuðina, byriar
reyndar oftast snemma vors á grá-
sleppunni en dregur bolfisk á sumrin
og saltar sjálfur aht saman í Djúpu-
vík. Þar hefur hann gott athafna-
svæði og íbúðarhús.
Hann er á 120 tonna bát, Dagrúnu,
og fékk í vor 120 tunnur af grásleppu-
hrognum en hefur enn ekkert fengið
útborgað frá Guðmundi á Húsavík
sem kaupir hrognin af honum í um-
boðssölu. Lýður verkar allt sjálfur
og hefur gert í mörg ár en alls ekki
selt kaupfélaginu nema allra fyrst á
vorin.
Leiðrétting
vegna viðtals
Nokkur misskhningur virðist
hafa komið upp í samtali mínu við
blaðamann DV sem birtist síðast-
liðinn laugardag. Meðal annars er
haft eftir mér að ég sé bæði fylgj-
andi og andvígur veru vamarliðs-
ins á Islandi. Þótt engu sé líkara
en sumir stjórnmálaflokkar á ís-
landi séu bæði með og móti hernum
gildir það ekki um mig. Ég svaraði
blaðamanni DV að mér þættu vam-
armál íslands flóknari en svo að
ég vildi svara með jái eða neii án
rökstuðnings. Einnig er þaö ekki
rétt eftir mér haft að mér hafi þótt
hvalveiðar íslendinga skynsamleg-
ar. Þvert á móti sagði ég að mér
hefði þótt skynsamlegt að hætta
þeim. Fyrst ég er á annað borð með
rauða leiðréttingarpennann á lofti
er sjálfsagt að leiðrétta stafsetning-
arvihur í viðtalinu. Þannig ber að
skrifa nafn uppáhaldssöngvarans
míns Lou Reed (en ekki Lue), uppá-
haldsleikkonan mín heitir Beatrice
Dahe en ekki Bahd.
Með þökk fyrir birtingu.
Árni Snævarr
fréttamaður
* 20% AFSLÁTTUR TIL 7. ÁGÚST
* Gildir ekki á pallbílahúsum A ■
★ ★★★★★★★★★★★★★★★★ ★★★'¥■'*"
trSlmaSS
UPPHÆKKUNARSETT í FLESTAR GERÐIR JEPPA:
STÝRISDEMPARAR - FÓÐRINGAR -STÝRISARMAR - FJAÐRA-'
HENGSLI - DEMPARAR - STUDPÚDAR OG DRIFSKÖFT
GROUNDHAWG
36" RADIAL
Einnig: 16/38.5 17/40-15 18.5/44-15
BFGoodrích
Hjólbarðar,
sem sameina
ENDINGU,
RÁSFESTU
OG MÝKT
#/ALLT## I TOYOTA
FRÁ DOWNEY:
FJAÐRIR - DEMPARAR - FLÆKJUR - BLÖNDUNGAR -
STÝRISDEMPARAR - BODDY UPPHÆKKUNARSETT - „HEAVY
DUTY" KÚPLINGAR - AUKABENZÍNTANKAR - TVOFALDIR
STUÐARAR - SÍLSRÖR - BRETTAKANTAR - OG MARGT FLEIRA
BIDDU UM MYNDALISTA
• E 1 N N 1 G :
• SPICER HJ0RULIÐS- • FELGUR • RANCHOFJAÐRIR -
KR0SSAR • BLÆJUR DEMPARAR
• VIÐGEROARSETT FYRIR • BRETTAKANTAR • KC-LJÓSKASTARAR
RADIALHJÓLBARÐA • HALLAMÆLAR • BENSiNBRÚSAROG
• DRIFHLUTFOLL - • LOFTMÆLAR (1-20 LBS) FESTINGAR
• SPIL-STUÐARAR • RAFMAGNSVIFTUR • VARADEKKSFESTINGAR
• FJÓRHJÓLASPIL • TEPPI1 BLAZERS100.FL. Á BLAZER S10 0.FL.
• DRIFL0KUR • DRÁTTARKRÓKAR
W A R N
BRAHMA
PALLBÍLAHÚS
RAFMAGNSSPIL
0.7 - 2.5 - 4 - 5 - 6 TONNA
A Útborgun samkomulag B Eftirstöðvar 6-12 mánuðir C Staðgreiðsluafsláttur
Ath!
Einnig driflæsingar í Suzuki 4.10 og 4.13.
Drifhlutföll í 4.13.
/VI4RT
Vatnagörðum 14 Simi 83188
★ ★