Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Exrul Thozaxeatsen. DV, EákxQiði:
Iþróttir
Ungir knattspyrnu-
menn í Fylki í Árbæ
eru ekki einungis
efniiegir knatt-
spymumenn heldur prúöari en
aðrir félagar þeirra. Á Tomma-
mótinu í Eyjum á dögunum var
hópurinn frá Fylki kosinn
prúöasti hópurinn á mótinu og
verður þaö aö teþast nokkur
heiöur.
Haukur sigraöi
Haukur Gunnarsson
spretthlaupari tekur
þessa dagana þátt í
mjög sterku alþjóð-
legu móti spastiskra íþrótta-
manna, svokölluðum Robin
Hood-leikum. í undanrásum
100 m hlaupsins hljóp Haukur
á 12,9 sekúndum og sigraöi síö-
an í úrslitahlaupinu á 13,0 sek-
úndum, sjónarmun á undan
Kúbumanni sem hijóp á sama
tíma.
víkurmaraþon
Eftir tæpan mánuð
fer fram 6. Reykja-
vikurmaraþonið eða
þann 20. ágúst nk. Nú
ættu allir aö vera komnir í góða
æfingu fyrir þá vegalengd sem
þeir ætla að taka þátt í en hægt
er að veþa milli þriggja vega-
lengda, 7 km skemmtiskokk,
hálfinaraþon (21,1 km) og
maraþon (42,2 km).
í fyiTa hlupu 1200 hlauparar
og í ár verða glæsilegir verð-
launapeningar veittír öUum
þeim sem ljúka hlaupinu til
minningar um unnið afrek.
Skorað er á hlaupara að skrá
sig sem fyrst til aö auðvelda
undirbúning mótshaldara.
Skráning ásamt þátttökugjaldi
á að berast til Ferðaskriístof-
unnar Úrvals, Pósthússtrarti
13, 101 Reykjavík, eöa skrif-
stofu Frjálsíþróttasambands
íslands í Laugardal, 104
Reykjavik. Upplýsingar verða
veittar I símum 28522 og 685525.
Þátttökugjald er kr. 1000 fyrir
maraþon, kr. 850 fyrir hálf-
maraþon og kr. 650 fyrir
skemmtiskokkið. 12 ára og
yngri greiða kr. 450.
Hörkukeppni í <
íblíðuál
Re
Grindvíkingar komnir með Kana:
JeffNull
tilUMFG
- Suðurnesjaliðið ætlar sér stóra
hluti í úrvalsdeildinni í vetur
Ægir Már Kárasan, DV, Sudumesjum:
Úrvalsdeildarlið Grindvíkinga í
körfuknattleik hefur fengið til sín
bandarískan leikmann fyrir kom-
andi keppnistímabil. Grindvíkingar
eru þar með fyrsta liðið til að næla
í erlendan leikmann en eins og áður
hefur komið fram í DV var liðið búið
að ráða til sín bandarískan þjálfara,
Dennis Matika, en hann sá um ráðn-
inguna á leikmanninum.
Leikmaðurinn heitir Jeff Null frá
Pensilvaníu og er 24 ára gamall.
Null þessi er hvítur, 1,98 m á hæð,
og spilar sem bakvörður en hann
spilaði í Lúxemborg í fyrra við góðan
orðstír.
„Valið stóð á milli tveggja leik-
manna en það var þjálfarinn sem tók
ákvörðunina. Hann þekkir leik-
manninn mjög vel og að sögn er
Null mikil þriggja stiga skytta og
góður alhliða leikmaður. Við bindum
miklar vonir við bæði þjálfarann og
leikmanninn þar sem við ætlum okk-
ur stóra hluti í vetur,“ sagði Eyjólfur
Guðlaugsson en hann sá um ráðn-
ingu á þjálfara og leikmönnum fyrir
körfuknattleiksdeild Grindavíkur.
Grindavík verður sennilega eina
liðið sem verður bæði með erlendan
leikmann og þjálfara. Það er mikill
hugur í Grindvíkingum fyrir kom-
andi tímabil og undanfarin ár hefur
aðeins vantað herslumuninn á að lið-
iö tryggði sér sæti í úrslitakeppninni.
• Um síðustu helgi fór fram i Buenos Aires í Argentínu ágóðaleikur i kanttspyrnu og
tóku valinkunnir leikmenn þátt í leiknum. Annað liðið var skipað meðal annars hinum
heimsþekkta knattspyrnumanni Diego Maradona og forseta Argentínu Carlos Nemen,
sem lék hluta leiksins. Myndin var tekin rétt áður leikurinn hófst. Símamynd/Reut
Amór Guðjohnsen skrifaði undir hjá Anderlecht:
Amórú’leik
- leikur ekki gegn Austurríki í Salzburg 23. ágúst
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
„Það er ljóst að ég verð ekki orðinn góður eftir uppskurðinn
og get því ekki leikið með íslenska landsliðinu gegn því austur-
ríska í Austurríki þann 23. ágúst. Þetta er auðvitað mjög leiðin-
legt en maður verður bara að sætta sig við þetta,“ sagði Arn-
ór Guðjohnsen í samtali við DV í gær. Amór var skorinn upp í maí sl.
við eymslum í magavöðvum og hefur ekki enn náð sér eftir uppskurðinn.
„Ég hef getað skokkað lítillega und-
anfama daga en á enn langt í land.
Það verður mjög slæmt að missa af
undirbúningstímabilinu með And-
erlecht og erfitt að geta ekki verið
með frá byrjun. En mér líkar mjög
vel við nýja þjálfarann og hann er
greinilega toppmaður í sínu fagi. Ég
hef fundið að hann skilur vel mína
aðstööu og er hlynntur því að ég
komi inn í liðið sem allra fyrst. Ég
er því bjartsýnn á að komast í byrj-
unarlið Anderlecht um leið og ég hef
náð mér að fullu eftir uppskurðinn,"
sagði Amór við DV í gær.
Skrifaði undir nýjan
samning til eins árs
Amór skrifaði undir nýjan eins árs
samning við Anderlecht á dögunum
og mun því verða eitt árið enn hjá
félaginu. Ekkert varð af því að Arnór
færi frá Anderlecht enda gat hann
lítið sýnt á síðasta keppnistímabili
vegna meiösla. Hann var þvi til-
neyddur til að skrifa undir nýjan
samning við Anderlecht.
Þróttur vann
Þróttur sigraði Reyni frá Sandgerði með
einu marki gegn engu í A-riðli 3. deildar í
gærkvöldi. Oskar Öskarsson skoraði fyrst
fyrir Þrótt en Sigurþór Þórarinsson jafnaði
fyrir Reyni. Á síöustu mínútu leiksins gerðu
Sandgerðingar sjálfsmark sem tryggði Þrótt-
urum sigur. Siglfirðingar unnu 3-0 sigur á
Reyni frá Árskógsströnd í B-riðli. Hlynur Ei-
riksson gerði tvö mörk og Hugi Sævarsson
eitt. Þá vann Dalvík Austra, 6-1. Sigfús Karls-
son gerði 5 mörk og Ragnar Rögnvaldsson
eitt. Fyrir Austra skoraði Oskar Garðarsson.
í 4. deild sigraði Augnablik lið Stokkseyrar,
2-0. Hrannar Erlingsson og Jón Ólafsson
skoraðu fyrir Augnablik. Njarðvík vann Ægi,
2-1, með mörkum Einars Einarssonar og
Rúnars Jónssonar en Jón Heiöarsson gerði
mark Ægis. Víkingur frá Ólafsvík vann Ár-
vak, 3-2. Magnús Gylfason gerði tvö mörk
fyrir Víking og Víglundur Pétursson eitt. Páll
Björnsson gerði bæði mörk Árvakurs.
-RR/MJ/KH/ÆMK
Fram og KA í kvöld
Fram og KA mætast í kvöld í sannkölluðum
toppslag í Hörpu-deUdinni. Leikurinn fer
fram á aðaUeikvanginum í Laugardal og hefst
klukkan 20.
Einherjar fundu aðeins
eitt stig í þokunni
- 2-2 jafntefli hjá Einherja og ÍR á Vopnaíirði
Jóhann Ámason, DV, Vopnafirði:
• Sigurður Hallvarðsson I baráttu um boltann í leik Þróttar og Reynis í
gærkvöldi. DV-mynd GS
IR og Einherji gerðu 2-2 jafntefli á
Vopnafirði í 2. deildinni í gærkvöldi. Stigin
lágu í loftinu fyrir heimamenn en aðeins
eitt fannst í þokuslæðunni sem lá yfir
Vopnafirði.
ÍR-ingar hófu leikinn en Einherjar tóku
hann brátt í sínar hendur og börðust eins
og ljón. Á 7. mínútu átti Njáll Eiðsson góða
sendingu á HaUgrím Guömundsson sem
skoraði af öryggi. Liðin skiptust nokkuð á
um að sækja en heimamenn voru þó öUu
grimmari og á 27. mínútu skoraði Kristján
Davíðsson annað mark Einheija og staðan
þá orðin 2-0. Tveimur mínútum síðar fengu
IR-ingar víti og Hlynur Elísson skoraði af
öryggi. Þegar komið var fram yfir venjuleg-
an leiktíma í fyrri hálfleik komst Jón G.
Bjamason einn í gegnum vörn heima-
manna en Magni Björnsson varði mjög vel.
ÍR-ingar komu ákveðnari tU leiks í síðari
hálfleik og jöfnuðu strax á 47. mínútu. Þar
var að verki Tryggvi Gunnarsson eftir mis-
tök í vörn Einherja. Nú gengu ÍR-ingar á
lagiö en Magni Bjömsson stóð eins og klett-
ur í marki Einherja og varði aUt sem á
markiö kom. Þegar stutt var til leiksloka
gátu Einherjar gert út um leikinn. GísU
Davíðsson fékk þá þijú færi í nánast sömu
sókninni en aUt kom fyrir ekki.
Leikurinn var mjög harður og áUs vom
sjö spjöld á lofti í leiknum.
Hjá Einherja stóðu þeir HaUgrímur Guð-
mundsson og Kristján Davíðsson sig mjög
vel ásamt Magna sem varði frábærlega.
Helgi Þórðarson átti einnig góða spretti.
í liði ÍR bar mest á Jóni G. Bjarnasyni
og Hlyni Elíssyni.
Austurlandsmótið í
golfi var haldið á
Eskifirði á dögunum
í bliöskaparveðri
eins og venjulega. Þó sætö það
tíðindum að seinni daginn kom
rigningarskúr. I karlailokki
sigraði Jóhann Kjærbo, GN, á
154 höggum, Pétur Jónsson,
GE, varð annar á 155 og Guðni
Þór Magnússon, GE, þriðji á
159. Sveinbjðm Egjlsson, GF,
sigraði með forgjöf á 121 höggi,
Pétur Jónsson, GE, varð annar
á 125 höggum og Kjartan Guð-
jónsson, Stöðvarfirði, þriðji á
129. í kvennaflokki sigraði Ag-
nes Sigurþórsdóttir, GE, án for-
gjafar á 190 höggum og með
forgjöf á 148 höggum. I öðru
sæti varð Bryndís Hólm, GHH,
á 201 og 151 höggi. Þriðja án
forgjafar varö Rósa Þorsteins-
dóttir, GHH, á 212 höggum og
þriðja með forgjöf varð Laufey
Oddsdóttir á 151 höggi. Bjartur
Finnsson, GHH, vann í ungl-
ingaflokki á 156 höggum, annar
varð Jón Bjömsson, GHH, á
164, og þriðji Ivar Reynisson,
GHH, á 187. í keppni meö for-
gjöf sigraði Kristinn Sörensen,
GE, á 128 höggum, annar varð
Bjartur Finnsson, GHH, á 132,
og þriöji Jón Björasson, GHH,
á 136 höggum.
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Iþróttir
Jónsson til Arsenal:
AUdnson vil
fá 700 þús
- Arsenal reiðubúið að greiða 300 þús. pund fyrir Sigga.
Atkinson, stjóri Sheff. Wed., heimtar 700 þús. pund. Málið fyrir dómstóla
Sigurður Jónsson ákvaö í gær að taka tilboði ensku meistaranna Arsen-
al og ganga til liðs við félagið eftir langan umhugsunartíma. Sigurður
Jónsson mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið á morgun á
Highbury leikvanginum, höfuðstöðvum Arsenal í London. Sigurður hefur
leikið með Sheffield Wednesday undanfarin ár en tekur nú stórt skref upp á við
og fer til eins allra þekktasta og voldugasta félags í Englandi.
Arsenal, eöa Barónamir frá Lon-
don, eins og félagið er oft kallað,
varð enskur meistari á síðasta ári
eftir eftirminnilegan úrslitaleik viö
LiverpooL Það er mikill heiöur sem
Sigurði er sýndur meðþessu tilboöi
og greinilegt aö George Graham,
framkvæmdastjóri Arsenal, bindur
vonir viö þennan unga leikmann
frá Akranesi.
Clough hafnaði Sigurðl
Það kom eflaust mörgum á óvart
þegar þær fréttir bámst að Sigurð-
ur væri kominn til Arsenal. I síö-
ustu viku stefndi flest í aö hann
mundi ganga til liðs viö Notting-
ham Forest. Vitað var að Brian
Clough, framkvæmdastjóri Forest,
hafði mikinn áhuga á Sigurði en
hann hafði ekki samband viö leik-
manninn á mánudag eins og talað
haíði verið um.
Samkvæmt umsögn enska stór-
blaðsins Daily Mirror, sem birtist
í morgun, segir að Brian Clough
hafi hafnað Sigurði en ekki er til-
greint á hvaða forsendum. Glasgow
Celtic og Lundúnafélagið Chelsea
höfðu einnig sýnt Sigurði mikimi
áhuga og bæði liðin áttu viöræður
við hann ekki alls fyrír löngu.
Atkinson helmtar
700 þúsund pund
„George Graham, stjóri Arsenal, á
þó einn þröskuld í veginum og þaö
er kaupveriö á Sigurði. Arsenal
bauð 300 þúsund pund i Sigurð en
framkvæmdastjóri Sheffield Wed-
nesday, Ron Atkinson, heimtar 700
þúsund pund," sagði íþróttafrétta-
maður á Daily Mirror í samtali við
blaöamann DV seint í gærkvöldi.
„Eins og staðan er núna er aug-
Jjóst að málið fer fyrir rétt og þá
verður ákveðið hvert kaupverðið
verður. Þaö er líklegast að það
verði í kringum hálf milljón punda
og það má teljast vel sloppið fyrir
Arsenal eins og verðið er almennt
orðið á enska markaðnum," sagöi
blaðamaður Daily Mirror ennfrem-
ur.
Annar íslendingurinn
sem leikur með Arsenal
Sigurður Jónsson verður því annar
íslendingurinn sem leikur með
Arsenal. Albert Guðmundsson,
sendiherra íslands í Frakklandi,
lék með liðinu á 5. áratugnum við
glæsilegan orðstír.
Sigurður mun hefja æfingar með
Arsenal strax í vikunni en enska
deildarkeppnin hefst 19. ágúst
-RR
Tiú hefur verið
dregið úr réttum
svörum í Ferða-
getraun II.
Rétt svar var Dyr-
hólaey og hér
koma nöfn hinna
heppnu. Þeir fá
allir heimsenda
Wizensa mynda-
vél ffá framköllun sf.
Ásdis Ársælsdóttir
Stóra-Háisi, Selfossi
Guðný Pálsdóttir
Sigtúni 27, Patreksfirði
ÞorvaldurSkúli Hrafnkelsson
Mariubakka 20, Reykjavík
BæringJóhann Björgvinsson
Álfhólsvegi 118, Kópavogi
Sara Ögmundsdóttir
Valhúsabraut 17, Seltjamamesi
Sigfinnur Róbert Svavatsson
Qónhól 5, Mjarðvik
Erla Björk Atladóttir
Þórðargötu 6, Borgamesi
Ólöf F. Alfreösdóttir
Strandgötu 17b, Hafnarfirði
Þorsteinsína 0. Gestsdóttir
Hafharbraut 21, Hóimavik
Óskar Páll Þorgilsson
Kambaseli 44, Reykjavik
Paul V. Michelsen
Rrummahólum 6, Reykjavik
Btynja Hrönn Jónsdóttir
Hliðabyggð 4c, Oaröabæ
Stefán Þór Theodórsson
Blónduósi
Eggert Jóhannesson
Þorkelshóli, Hvammstanga
Elma Jónatansdótdr
Hörgstúni 9, Garðabæ
<
c-
Ferðagetraun
Þekkirðu staðinn?
t>etta er mynd af:
a) Herðubreið □
b) Lómagnúpi □
c) Keili □
Skilafrestur er til laugardagsins 12. ágúst.
Svar sendist til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík,
merkt Ferðagetraun DV III.
Nafn......................................
Heimilisfang..............................
Símanúmer.................................
Það borgar sig að
þekkja landið sitt!
Ef þú berð kennsl á staðinn á myndinni skaltu
senda okkur svarið ásamt nafni, heimilisfangi
og símanúmeri og þú getur átt von á glæstum
vinningi.
Þetta er þriðja og síðasta ferðagetraunin í sumar.
Dregið er úr réttum svörum og eru 15 verðlaun veitt.
Vinsamlegast athugið að senda úrklippuna af ferða-
getrauninni með. Ljósrit eru ekki tekin gild.
Og verðlaunin eru
ekki af verri endanum.
í tilefni af 5 ára afmæli sínu ætlar FRAMKÖLL-
UN SF., LÆKJARGÖTU 2 OG ÁRMÚLA 30,
að gefa heppnum lesendum DV ferðafélaganh í ár:
WIZENSA, alsjálfvirka 35 mm myndavél að verð-
gildi 3.500 kr.
WIZENSA myndavélin er með
★ 35 mm glerlinsu
★ föstum fókus
★ sjálfvirkri filmufærslu
★ innbyggðu flassi (leifturljósi)