Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989.
5
e
Fréttir
London-New York á gúmbáti:
Ævintýramenn í metaleit
Júlía Imaland, DV, Höfru
Þrír breskir ævintýramenn á leið
frá London til New York á gúmbáti
komu siglandi til Hafnar á fostudags-
morguninn var. Tilgangin- ferðar
þeirra er aö setja hraöamet á leiðinni
yfir hafið. Farkosturinn er slöngu-
bátur með Ixefiaplastbotni, svipaðrar
gerðar qg þeir björgunarbátar sem
Islendingar hafa verið að kaupa und-
anfarið, búinn tveimur 140 hestafla
utanborösmótorum. Tii Hafnar
komu kappamir frá Færeyjum en
þeir heitá Vaughan Purvis, Rupert
Hadow og Kevin Doran. Áætlaður
siglingatími þá leið var 6 klukku-
sfimdir en veður var ekki sem best
og þeir voru 17 klukkustundir á leið-
inni.
Upp úr hádegi á laugardag voru
Bretamir ferðbúnir í fyrirhugaða
siglingu til Vestmannaeyja og lögðu
af staö þrátt fyrir viðvaranir sjó-
manna hér því slæmt var í sjóinn.
Fjöldi fólks fylgdist með þegar bátur-
inn geystist af stað stystu leið í átt
að Homafiarðarósi. Þegar út í ósinn
kom varð Bretunum ljóst að sjólag
og veður var ekki árennilegt. Þeir
snéru við og sigldu á mikiili ferð til
baka, framhjá innsiglingunni inn á
höfnina og austur í Skarðsfiörð.
Ekki sást til ferða þeirra þar vegna
eyja sem ber í miili en í þann mxmd
sem fara átti að huga að þeim komu
þeir til baka á bátnum. Þeir höfðu
strandað í grunnum firðinum og
skemmt lítíllega annan mótorinn. Þó
það lítið að það tefur ekki ferð þeirra.
Akranes:
Steypa í allar götur
Garöar Guðjónasan, DV, Akranesú
Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa val-
ið að nota aðeins steypu til gatna-
gerðar í ár. Tilboð um lagningu
steypu og þurrsteypu bámst frá
nokkrum aðilum í vor en ákveðið var
að hafna þeim öllum og fela áhalda-
húsi og tæknideild bæjarins mnsjón
með framkvæmdum.
Að sögn Guðbjarts Hannessonar,
forseta bæjarsfiórnar, var ákveðiö
að nota steypu þar sem hún væri
endingarbetri og þarfnaðist minna
viðhalds en önnur efni. 27 milljónir
króna fara til gatnagerðar á Ákra-
nesi í ár.
Eitt stærsta verkefnið er lagning
steypu á Dalbraut en auk þess verður
gengið frá aðkeyrslu að fiölbýlis-
húsum við Garðabraut og ráðgert er
að hefia framkvæmdir við lagningu
á Esjuvelli.
Unnið við steypuna á Akranesi.
DV-mynd Garðar
Þurrsteypa var lögð á ailar götur á
Akranesi í fyrra en þar sem verð á
þurrsteypu og veifiulegri steypu er
svipað var sú blauta valin.
Frá innsetningu séra Ágústar Sigurðssonar að Prestbakka i Hrútafirði.
Hann er lengst til hægri. Guðni Þór Ólafsson prófastur er í miðið og þá
Kristján Björnsson. DV-mynd Guðrún Helga Bjarnadóttir
Vel mannaö í prestembættum Húnvetninga:
Þrír nýir prestar
settir inn í embætti
Þrír nýir prestar hafa verið settir
inn í embætti í Húnavatnsprófasts-
dæmi. Þar með er prestur í hveiju
prestakalli frá Árnesi í vestri að Ból-
stað í austri, alls átta prestaköllum.
Hefur ekki verið jafnvel mannað í
embætti sóknarpresta í Húnavatns-
prófastsdæmi í allmörg ár.
23. júlí var séra Krisfián Bjömsson
settur í embætti sóknarprests í
Breiðabólstaðarprestakaili. Hann
þjónar kirkjusóknum í Víðidal, Vest-
urhópi og á Vatnsnesi. Prestssetur
verður til bráðabirgða að Brún í
Víðidal.
6. ágúst var séra Ágúst Sigurðsson
settur inn í embætti sóknarprests í
Prestbakkaprestakalli. Hann þjónar
kirkjusóknum beggja vegna Hrúta-
fiarðar og í Bitru. Séra Agúst hefur
verið sendiráðsprestur í Kaup-
mannahöfn síðastliðin sex ár og þar
áður prestur á Mælifelli í Skagafirði
og víðar.
27. ágúst næstkomandi mun pró-
fasturinn, séra Guðni Þór Ólafsson á
Melstað, sefia þriðja prestinn inn í
embætti. Þá verður séra Stína Gísla-
dóttir sett inn í embætti sóknarprests
í Bólstaðarhlíðarprestakalli. Hún
mun þjóna kirkjusóknum í Langa-
dal, Svartadal, Blöndudal og við
Svínavatn. Séra Stína var áður far-
prestur og þjónaði á Blönduósi og á
Siglufirði.
-hlh