Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Page 14
Frjálst.óháð dagblað Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (1 >27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Fjárlög eru grín Menn hljóta aö komast aö þeirri niðurstöðu, aö íjár- lög séu grín, eftir framferði síðustu fjármálaráðherra. Ár eftir ár stritar alþingi við að koma saman og sam- þykkja fjárlög. Fj ármálaráðherrar bera fram fjárlaga- frumvörp með lúðrablæstri. Þetta virðist í fyrstu hafa verið tekið alvarlega. En síðan kemur til meðferð máls- ins. Ár eftir ár er greiðsluafgangi fjárlaga snúið í mikinn halla. Þetta virðist vera orðið eins konar lögmál. Menn taka ekkert mark á fjárlögum. Mönnum er í fersku minni, hvernig fór í tíð Jóns Baldvins Hannibalssonar sem Qármálaráðherra. Lengi fram eftir ári sagði fj ármálaráðuneytið, að halhnn á fjár- lögum yrði lítill. Allt fram undir haustið. Þá var ríkis- hallinn orðinn margir mihjarðar. Svona var lengi hægt að plata fólk. Aðrir íjármálaráðherrar síðustu ára hafa ekki verið betri. Nú fréttum við af ríkishallanum undir stjórn Ólafs Ragnars Grímssonar. í fjárlögum var gert ráð fyrir 636 miUjóna króna rekstrarafgangi. En nú stefnir í fimm miUjarða króna haUa. Ólafur Ragnar er því í sama pytti og þeir, sem fóru næstir á undan honum. Og menn hljóta að sjá, að síðustu ár taka ráðherrar ekki mark á fjárlögum. Þau eru bara grín. Nú er talað um fimm milljarða haUa. En ef að Ukum lætur verður haUinn miklu meiri. Enn er töluvert eftir af árinu, tölu- verður tími til að gera fjárlög enn marklausari en nú er. Við getum því búizt við miklu meiri halla. HalU á fjárlögum er Ulur. Hann veldur aukinni skuldasöfnun. Hann ýtir mikið undir verðbólgu. Afsak- anir ráðherra nú eru jafnmarklausar og afsakanir fjár- málaráðherra hafa verið árum saman. Ráðherrar bera vitni um ríkishallann. Forsætisráð- herra vitnar. Forsætisráðherra segir, að við lifum um efni fram. Við getum ekki haldið uppi því veherðar- kerfi, sem við höfum komið á. Forsætisráðherra segir ennfremur, að undanfarið ár hafi verðlagsforsendur hárlaga brugðizt. Teknar hafi verið ákvarðanir um út- gjöld án samþykkis alþingis á fjárhagsárinu, sem hafi leitt tU þess, að meginmarkmið fjárlaga hafi ekki náð fram að ganga. Vissulega höfum við Ufað um efni fram. En sökin þar er fyrst og fremst ríkisstjórnar. Ef ríkis- stjórnir beittu raunverulegu aðhaldi og hættu að sinna gæluverkefnum og gæðingum stjórnmálamanna sinna, væri auðvelt að ná jöfnuði á fjárlögum og ríkisreikn- ingi. En til þess að svo megi verða þyrfti hér að verða meiri breyting á valdahlutfóUum í kerfmu en menn geta séð fyrir. Forsætisráðherra nefnir ýmislegt, sem valdi haUan- um nú. Nýjar útgjaldaákvarðanir hafi verið teknar, sem á árinu muni nema 2,5 miUjörðum króna. Gjöld, sem ekki hafi verið fyrirséð, og sparnaður, sem ekki nái fram að ganga, nemi 1,8 miUjörðum. Aukin útgjöld vegna ákvarðana alþingis nemi 500 miUjónum. En hverjir stóðu fýrir þessum útgjöldum öUum? Auðvitað stjórn- málamennimir sjáUir, sem ekki taka mark á fjárlögum. Forsætisráðherra nefnir, að verðbólga verði mun meiri en reiknað hafi verið með. Gengislækkun krón- unnar verði og meiri en við hafi verið búizt. En verð- bólgan mikla hér á landi verður fyrst og fremst að skrif- ast á reikning ríkisstjómarinnar. Launahækkanir hafa einnig orðið meiri en fiárlög reiknuðu með. En sú breyting er óveruleg. Við henni mátti og búast. Menn Uta bara á fjárlög sem spaug. Haukur Helgason ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. „Verðum að ná athygli útlendinga á þvi að óvíða er náttúran og allt umhverfið eins óspillt og hér á landi,“ segir greinarhöf. m.a. vSeljum lsland“! Það sem ísland hefur upp á að bjóða hvað varðar landkosti er ein- stakt, því fer hins vegar flarri að viö höfum hagnýtt okkur þá mögu- leika sem í því felast. Útlendingar vita Htið um landið, gæði þess og hvað það hefur upp á að bjóða; hreina og ósnortna nátt- úru, fallegt og jafnframt á köflum hrikalegt landslag, einstaka menn- ingu og sögu, ómengað loft, ómeng- aða fæðu, jarðhita, hveri, eldjöll, jökla, fallvötn og svo framvegis. Þetta eru þær auðlindir sem okk- ur ber að nýta. Hvers vegna ekki fleiri ferðamenn? Það er enginn vafi á því að í ferða- mannaþjónustu hggur vaxtar- broddur sem við eigum að nýta okkur. Við eigum að „selja ísland" og meðal þess fjölmarga, sem af er að taka, er það sem ég taldi upp hér að ofan. Við eigum að „selja landið“ sem tilvahnn stað fyrir ráðstefnuhald, fyrir heilsurækt, útivistarfólk og náttúruunnendur, svo að dæmi séu tekin. En hvar eigum viö aö markaðs- setja ísland? Ég ætla ekki að reyna að svara þeirri spurningu en bendi á að hundruð milljóna manna ferð- ast um heiminn á hverju ári en aðeins brot, eða um 135 þúsund manns, kom til íslands áriö 1988. Hvers vegna? Vegna þess að við höfum ekki markaðssett ísland. Aö ná forustunni En það er hins vegar hægt. Viö eigum að hagnast á gæðum lands- ins án þess að það komi niður á menningararfleifð okkar eða stefni framtið okkar í hættu. Við verðum að ná athygli útlend- inga á því að óvíða er náttúran og allt umhverfið eins óspillt og hér á landi. Því eigum við aö taka forystu í náttúruvernd og umhverfismálum, enda á þaö vel við að land sem ís- land taki þá forystu. Umhverfismál eru nú orðið mjög ofarlega á baugi hjá stjómvöldum víða um heim. Við eigum mögu- leika á að láta verulega að okkur kveða á þessum vettvangi en þá veröum við líka að fara að vakna, marka stefnu og gera áætlanir. Kjallaririn Ingi Björn Albertsson alþingismaður tækifæri sem við megum ekki láta ganga okkur úr greipum. Djarfari stefna Það er hins vegar ljóst að við get- um ekki sigrað allan heiminn í einu. Við verðum því að fá til hðs viö okkur viðurkennda aðha á þeim mörkuðum sem við ætlum okkur að sigra í fyrstu atrennu. Þeir verða að vera viöurkenndir á sviði sölu, markaðssetningar og auglýsinga þannig að tryggt sé að beitt verði faglegum aðferðum við gerö langtímaáætlunar, bæði hvað varðar undirbúning og fram- kvæmdir. Þetta kostar að sjálfsögðu tals- vert fé en því er vel varið. Hitt verða menn að gera sér ljóst strax í upphafi að slíku markmiði, „Viö verðum því aö fá til liðs við okkur viðurkennda aðila á þeim mörkuðum sem við ætlum okkur að sigra í fyrstu atrennu.“ Með því að ná forystunni í þess- um málaflokki, sem allt mannkyn- ið hefur nú áhyggjur af, kynnum við land og þjóð betur en nokkur auglýsingaherferð gæti gert. Þaö myndi síðan leiða af sér meiri áhuga á landinu, aukinn fjölda ferðamanna, aukna ásókn í að halda hér ráðstefnur, aukinn áhuga á íslenskum vörum, auknar gjaldeyristekjur og síðast en ekki síst; enn frekari virðingu fyrir landi og þjóö. Að ná forystu í þessum mála- flokki er einhver besta vörukynn- ing sem völ er á, gerir vörur okkar eftirsóknarverðari og hægara um vik að fá sem best verð fyrir þær. Fólk hvarvetna á heimskringlunni er betur og betur að átta sig á því hversu dýrmæt góð heilsa er og leggur í ríkari mæh áherslu á heil- brigt lífemi. Hvað fellur þá þessu fólki betur en einmitt vörur frá hinu ómeng- aða íslandi, fisk úr ómenguðum sjó og ómengaðar landbúnaðarvörur? Ekkert. Enda erum við hér með sem ég er hér að reyna að koma á framfæri, verður ekki náð án gríð- arlegra rannsókna, enda eru þær forsenda söluáætlana. Ég er ekki í nokkrum vafa um þaö að með því aö fara að huga af alvöru að djarfari stefnu með skýr- um áherslum, þar sem hið „ómeng- aða ísland“ er sett á'markað, munu ekki aðeins aðilar í ferðaþjónustu njóta góðs af heldur einnig bæði út- og innflutningsgreinarnar og þjóðarbúið í heild. Og þá gefst stjórnvöldum vonandi tækifæri til að lækka álögur á okk- ur því að það má öllum vera ljóst að að minnsta kosti núverandi ráðamenn kunna ekki að spara. Enginn vill skera niður hjá sjálfum sér og ekki mega þeir heyra minnst á að lækka skatta, heldur þvert á móti. Þess vegna viröist eina leiðin í dag til þess að lækka skatta án spamaðar og/eða niðurskurðar vera sú að auka tekjurnar. Hér er bent á eina leið. Ingi Björn Albertsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.