Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. Andlát Gyða Pálsdóttir, Sandabraut 8, Akra- nesi er láön. Sæmundur Óskarsson frá Eyri, Hlaö- brekku 3, Kópavogi, andaöist á Borgar- spítalanum fóstudaginn 11. ágúst. Jóhann Stefánsson, Jaöarsbraut 21, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 12. ágúst. Jarðarfarir Hólmfriður Daníelsdóttir, Meðalholti 13, andaðist á Landspítalanum 1. ágúst sl. Útförin hefur fariö fram. Jóhann Arnljótur Viglundsson, varð bráðkvaddur fimmtudaginn 10. ágúst. Jaröarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 13.30. Ólafur Marius Ölafsson, lést í Borg- arspítalanum 12. þessa mánaðar. Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni fóstudaginn 18. ágúst kl. 10.30. Elias Guðmundsson skipstjóri, Heiðar- gerði 9, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 17. ágúst nk. kl. 14. Níels Jörgen Nielssen, andaðist 10. ágúst. Bálför hans verður gerð þriðjudag- inn 15. ágúst. Þórir Runólfsson, Ásbraut 15, Kópa- vogi, lést í Borgarspítalanum 4. ágúst. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jóhanna Bjarney Guðjónsdóttir, Sel- braut 30, Seltjamamesi, verður jarðsett frá Seltjamameskirkju miðvikudaginn 16. þ.m. kl. 15. Fanney Oddsdóttir andaðist á Borgar- spítalanum 2. ágúst sL' Hún fæddist 7. desember 1917 í Reykjavik. Foreldrar hennar vom hjónin Oddur Jónsson, hafnsögumaður í Reykjavík, og Kristín Ámadóttir. Fanney giftist 28. maí 1938 Gunnari Danielssyni verkamanni sem lengst af starfaði hjá Eimskipafélagi ís- lands og Reykjavíkurborg. Hann lést á síðasta ári. Þau eignuðust 7 böm. Útför hennar veröur gerð frá Bústaöakirkju í dag, 15. ágúst, kl. 13.30. Tímarit Hár og fegurð „Vemdum ósonlagið" er slagorð alþjóð- legu frístæl- og tískulinukeppninnar sem haldin verður öðm sinni þann 4. mars 1990. í nýútkomnu tölublaði Hárs og feg- urðar er kynning á þessari keppni, sem hefur haft talsverð áhrif út á við og verið getið viða í erlendum blöðum. Einnig er grein um alþjóðlega ráðstefnu timarita. Þessa stundina stendur einnig yfir for- síðukeppni timaritsins sem er ein af vin- sælustu keppnum timaritsins. Tilkyimingar Sauðaneskirkja 100 ára Þess verður mirrnst við messu í Sauða- neskirkju sunnudaginn 20. ágúst nk. kl. 14 að um þessar mundir em Uðin 100 ár frá þvi að kirkjan var vigð. Við messuna munu aðkomuprestar þjóna fyrir altari og annast altarisgöngu ásamt sóknar- prestinum, sr. Ingimar Ingimarssyni. Séra Sigurður Guðmundsson vígslubisk- up prédikar og Margrét Bóasdóttir söng- kona syngur einsöng. Kirkjukór Sauða- neskirkju syngur. Organisti er Vigdís Sigurðardóttir. Sóknamefnd væntir þess að safnaðarfólk, heima og burtflutt, fjöl- menni til gömlu kirkjunnar þennan dag. Eftir messu er öUum viðstöddum boðið til kaffidrykkju í Þórsveri, félagsheimiU Þórshafnar. Trúbadorar á Fógetanum Bergur Þórðar og Ingólfur Steinsson munu spUa á Fógetanum í kvöld, 15. ágúst. Þeir munu m.a. kynna efni af væntanlegri hljómplötu Bergs sem kem- ur út í haust. Þakkarávarp Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna, sveitarstjórnar Vatnsleysustrandarhrepps, björgunarsveitarinnar Skyggnis, Vog- um, og annarra nær og fjær er sendu mér heillaóskir og gerðu mér 100 ára afmælisdaginn ógleymanlegan þann 8. ágúst sl. Bið ég ykkur öllum guðs blessunar. Erlendsína Helgadóttir Úti á vegum verða flest slys ^ í lausamöl í beygjum ^viðræsi ^ og brýr við blindhæðir YFIRLEITT VEGNA 0F MIKILS HRAÐA! Stillum hraða í hóf og HUGSUM FRAM mAumferdar ÁVEGINN! Wrað Kvöldganga um Hafnarfjarð- arland Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands fer náttúruskoðunar- og söguferð um Hafn- arfjaröarland í kvöld, 15. ágúst. Gangan hefst kl. 20 við hesthúsin við Kaldársels- veg, austan Hafnarfjarðar. Gengið verður um Lækjarbotna og síðan eftir gömlu þjóðleiðinni „Selvogsgötu" að KersveUi. Komið er til baka um kl. 22. Námskeið Hiö íslenska náttúrufræði- félag Á morgun, miðvikudaginn 16. ágúst, kl. 20, verður haldið stutt námskeið um ís- lenska matsveppi. Leiðbeinandi verður Eirikur Jensson. Hægt er að skrá sig á námskeiöið í dag og á morgun á skrif- stofú Hins íslenska náttúrufræðifélags í síma 624757 miUi kl. 14 og 17. í framhaldi af námskeiðinu verður farið í sveppa- tínsluferð sunnudaginn 20. ágúst. Farar- stjóri verður Eiríkur Jensson. Tapað fundið Köttur týndist Hann Snúður okkar er týndur. Hann hvarf fýrir u.þ.b. mánuði en þá var hann í pössun í Fossvoginum. Hann á heima í Laugameshverfinu. Snúður er svartur og hvítur, rangeygður og kviðslitinn. Þegar hann týndist var hann með ómerkta rauöa hálsól. Ef einhver hefur orðiö var við Snúö er hann vinsamlegst beöinn að hafa samband við Lisu í síma 84709 eða 33941. Köttur í óskilum Mjög gæfur, bröndóttur fressköttur er villtur í sumarbústaðalandi í Gnúpverja- hreppi, Ámessýslu. Ef einhver saknar hans er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 27557. Köttur týndur Gulbröndóttur ungur fressköttur tapað- ist frá Vesturbæ í Kópavogi fyrir fimm dögum. Hann er hvítur á bringunni, hvít- sokkaður og spengilega vaxinn. Hann heitir Gulli og gegnir nafninu sinu. Hann er merktur með gulri ól. Sá sem getur gefið upplýsingar vinsamlegast hafi sam- band í síma 42615. Þessir krakkar eru að vinna fyrir ÍA sem er einn þeirra aðila sem fengu aukafjárveitingu, í þeim tilgangi að efla atvinnu fyrir unglinga. DV-mynd Garðar Rfldð bjargar unglingavinnunni Garðar Guöjón^son, DV, Akranesi; „Þessar aukaíjárveitingar ríkisins bjarga alveg sumrinu hjá okkur. Þ^ð eru um 30 krakkar, á aldrinum 16 ára og eldri, í vinnu hjá þeim sem fengu aukafj árveitingar frá félags- málaráðuneytinu,“ sagði Elís Þór Sigurðsson, æskulýðsfulltrúi á Akra- nesi, í samtali viö DV. Lítið hefur verið um atvinnu fyrir unglinga í sumar og hefur talsverður hópur nema verið á atvinnuleysisskrá. En auk þess sem Vinnuskólinn hefur ráðið íleiri til starfa nú en í fyrra hafa fjórir aðilar fengið fjár- veitingar frá ríkinu til sérstakra verkefna og hafa unglingar 16 ára og eldri verið ráðnir til þessara starfa. Fjölbrautaskólinn, Skógræktarfé- lag Akraness og íþróttabandalag Akraness hafa öll fengið slíka fjár- veitingu en auk þess fengu 8 krakkar frá Akranesi vinnu uppi á Hvanneyri vegna fjárveitingar frá ríki. Það lýsir ástandinu vel að ásókn 16 ára unglinga í Vinnuskólann var margföld í sumar miðað við í fyrra en starfsemi skólans lauk að mestu í síðustu viku. Aö sögn EUss Þórs voru aðeins 20 krakkar á þessum aldri í Vinnuskólanum í fyrra en nú í sumar fór talan í 100. Þegar á heUd- ina er Utið jókst fjöldi starfsmanna skólans einnig verulega. í fyrra inn- rituðust 140 en í sumar komu 174 til starfa. ■ Fjölmiðlar Hvað eru fimm millj- arðar á milli vina? í bók sinni Lögmál Parkinsons lýsir C. Northcote Parkinson þvi hvernig stjómarfundur í stofnun afgreiðir smíði mikUvægs orkuvers á örskammri stund enda heiur eng- inn viöstaddur sérþekkingu á mál- inu en talar síöan um kaffistofu starfsfólksins tímunum saman af þvíaðáþví hafaallirvit. Mér datt þetta í hug þegar ég heyrði í kvöldfréttum í Ríkissjón- varpinu 24. júlí að ráöstafanir ríkis- stjómarinnar í vaxtamálum heföu flutt um fimm miUjarða króna frá lánardrottnum til skuldunauta. Var dr. GísU Blöndal borinn fyrir þessu. Nú eru lánardröttnamir flestir venjulegir launþegar en skuldu- nautamir opinberar stofnanir og einkafyrirtæki. Þetta er því vald- boöin miUifærsia frá fólkinu til for- stjóranna - tU Steingríms Her- mannssonar og þeirra manna, sem bjóöahonum í laxveiðiferðir. Þetta virðist ekki hafa vakið mikia at- hygh. AUt ætlaði hins vegar um koU að keyra í lok síöasta árs, þegar Magn- úsThoroddsen, forsetiHæstaréttar, keypti áfengi á sérkjörum fyrir tekj- ur sínar af því að vera einn af hand- höfum forsetavalds, rúmlega 300 þúsund krónur. Magnús missti æm og starf þótt hann heföi engum gert mein með hinum fáránlegu áfengis- kaupum sínum. En þeir, sem hafa haft fimm mifljaröa af gömlu fólki og öðmm sparifjáreigendum, veifa tíl okkar brosandi á sjónvarpsskján- um, um leiö og þeir stíga inn í bflana og þeysa í næstu laxveiöiferð. Hannes Hóimsteinn Gissurarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.