Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1989, Blaðsíða 4
4
Þ^IÐJUDAGUR 22. .ÁGÚST ^989.
Fréttir
Píanóbarinn í Keflavík sviptur vinveitingaleyfi:
Itrekað ónæði og
grunur um að opið
sé lengur en má
- segir Jón Eysteinsson bæjarfógeti
„Vmveitingaleyfíö var tekiö af
okkur fyrirvaralaust á föstudag. Það
eru engar forsendur fyrir þessari
sviptingu. Þetta var gert vegna
óljósra sögusagna og ummæla. Viö
leituðum skýringa á föstudag en
fengum nánast engar. Viö höfum
orðiö fyrir gríöarlegu tekjutapi
vegna þessa. Lögfræðingar munu
fara í þetta mál fyrir okkur,“ sagöi
Kristján Ingi Helgason, einn eigenda
og framkvæmdastjóri Píanóbarsins í
Keflavík.
Á föstudag var veitingastaðurinn
sviptur vínveitingaleyfi. Allt'frá því
að staðurinn var opnaöur hafa verið
deilur um hann. Fyrst var heimilt
að selja áfengi til klukkan hálfþijú.
Vegna óánægju íbúa í nágrenninu
var leyfmu breytt og einungis leyft
að selja áfengi til klukkan hálfeitt.
Það var einnig gert fyrirvaralaust að
sögn Kristjáns Inga.
Píanóbarinn er í íbúðahverfi. Ná-
grannar hafa kvartað vegna óláta frá
drukknu fólki við staðinn. Kristján
Ingi sagði að ekki hefði verið kvartað
yfir staðnum sjálfum - heldur vegna
fólks á götunum. Hann sagði ómögu-
legt að segja til um hvort þar væri
um að ræða gesti staðarins eða ekki.
„Þetta var gert vegna ítrekaöra
kvartana nábúa staðarins. Eins er
grunur um að reglur um afgreiðslu-
tíma hafi verið brotnar. Það hefur
heyrst tónlist talsvert eftir þann tíma
sem á að vera búið að loka. Staðurinn
hafði svokallað léttvínsleyfi, þaö er
sem matsölustaður. Til að mega hafa
opið lengur þarf sérstakt skemmt-
analeyfi. Auk þess er vínveitinga-
leyfi gefið út á nafn og sá sem hafði
leyfið er hættur öllum afskiptum af
rekstrinum," sagði Jón Eysteinsson,
bæjarfógeti í Keflavík.
Jón Eysteinsson segist hafa bent
eigendum staðarins á að þeir gætu
kært sviptinguna til dómsmálaráðu-
neytisins.
„Það eru allir skemmtistaðir í
Keflavík í íbúðahverfum. Það virðist
sem allir aðrir fái að vera í friöi. Það
stóð til að við flyttum í haust. Hús-
næði er fyrir hendi. Ég veit ekki
hveiju sviptingin kemur til með að
breyta. Þetta er stórmál fyrir okkur
og kann að hafa ýmsar afleiðingar í
för með sér,“ sagði Kristján Ingi
Helgason.
-sme
Áhöfnin á Hafrúnu II að landa tæpum fimm tonnum eftir nóttina.
DV-mynd Reynir
Mokveiði í snurvoð
Reyxúr Tiaustason, DV, Flateyii:
Mokveiði hefur verið hjá snurvoð-
arbátum frá Flateyri að undanfómu.
Bátamir hafa verið á veiðum inni á
Dýraflrði, Amarfirði og grunnt út
af Barða.
Hafrún n, 9,9 tonna bátur, er búin
að fá 70 tonn af fiski á sex vikum.
Guðmundur Helgi Kristjánsson skip-
stjóri sagði í viðtali við DV að þeir
hefðu ekki sótt stíft heldur skammt-
að sér afla. Hann sagði að nóg væri
af fiski um allt og fiskurinn væri
stærri en undanfarin ár.
„Það hefur verið vaxandi fiskirí í
snurvoðina ár frá ári þau fimm sum-
ur sem ég hef stundað þessar veið-
ar,“ sagði Guðmundur.
Samkvæmt heimildum DV hafa
snurvoðarbátar fengið allt að 20 tonn
í einu og veiðin almennt verið mjög
góð.
Menntaskóiinn á ísafiröi.
DV-mynd BB, ísafirði
Isaflöröur:
Menntaskólinn og Iðn-
skólinn sameinaðir
Vilborg Davíðsdóttir, DV, fsafirði:
í haust verður sameining Iðnskól-
ans á ísafirði og Mennaskólans á
ísafirði að veruleika. Unniö hefur
verið að samkomulagi um skipulag
sameinaðs framhaldsskóla í vor og
sumar á vegum menntamálaráðu-
neytisins, skólanna og bæjaryfir-
valda á ísafirði. Væntanlega verður
gengið frá því endanlega fyrir lok
ágústmánaðar.
Ýmis atriði velkjast enn fyrir
mönnum og má þar helst nefna hvort
mörg sveitarfélög á Vestfjörðum
verða aðilar að rekstri skólans og
leggi þá fram fé til framkvæmda.
Nafn skólans hefur ekki verið end-
anlega ákveðið og veriö hálfgert
þrætuepli en í bili mun hann heita
Menntaskólinn á ísafirði. Skóla-
meistari hefur lagt til nöfnin „Skóli
Jóns forseta" eða „Skóli Jóns Sig-
urðssonar" en ráðuneytið var and-
vígt þeim tillögum. Stungið hefur
verið upp á heitunum Bjölbrauta-
skóli eða Framhaldsskóli Vestfjarða
en skoðanir eru skiptar um þau einn-
ig-
Samkomulag hefur náðst um að
stofna embætti aðstoðarskólameist-
ara og sjö manna skólanefnd. Ýmsar
fleiri breytingar verða gerðar og
sagði skólameistari í samtali við DV
að skólanum yrði líklega falið að
annast farskóla fyrir atvinnugreinar
á Vestfjöröum með námskeiðahaldi
á þéttbýlisstöðum.
í dag mælir Dagfaii
Fella gengið um 10-12 prósent, seg-
ir bjargvætturinn frá Flateyri í DV
í gær. Fiskvinnslan enn eina ferð-
ina á hausnum og útgerðin líka.
Raungengi krónunnar er rangt
skráð. í sömu frétt upplýsir Stein-
grímur aö gengið hafi í raun fallið
um 16% á árinu og því sé krafa fisk-
vinnslunnar orðin of gömul. Öðru-
vísi mér áður brá þegar Tómas
Árnason, þáverandi íjármálaráð-
herra, gekkst fyrir „gengjsaðlög-
un“ á sínum tíma og lét þá gengiö
falla í stórum stökkum. Það var á
þeim tíma sem útgerðin krafðist
gengisfellingar en ekki fiskvinnsl-
an og gengisfellingar voru taldar
allra meina bót í efnahagslífmu.
Síðan var það uppgötvað af hag-
spekingum síðari tíma að gengis-
felling ein sér gæti ekki leyst allan
vanda og þá aðallega vegna þess
hversu mikið skuldir þjóðarinnar
í erlendum gjaldeyri hækkuðu í
takt við hveija gengisfellingu.
Ef rétt er munað var Steingrímur
Hermannsson talsmaður gengisað-
lögunar þar til að Guöjón B. Ólafs-
son SÍS-stjóri komst það langt ofan
í Sambandsbókhaldið að hann
gerðist fráhverfur gengisfellingum.
Genqið fellur
Var þó búinn að boða þörf á réttri
skráningu krónunnar mánuðum
saman. En hver er sjálfum sér
næstur eins og þar stendur og því
eðlilegt að Guðjón hætti við gengis-
fellingarkröfuna eftir því sem fleiri
kaupfélög fóru á hausinn. Enda
nokkum veginn sýnt aö kaupfélög
lenda undir hamrinum hvað sem
allri gengisskráningu líður.
Efnahagsstefna núverandi ríkis-
stjómar hefur verið flestum hulin
ráðgáta. Stafar það einkum af þvi
að ekki fara saman orð og efndir í
ríkari mæli en gerst hefur með
fyrri stjómir.
Gott dæmi um það em þau um-
mæli Steingríms í DV í gær að búið
sé að fella gengið um 16% en samt
haldi fiskvinnslan áfram að heimta
10% gengislækkun. Forsætisráð-
herra skilur hvorki upp né niður í
þessum ósköpum og það væri
kannski til of mikils mælst að hann
væri gerður ábyrgur orða sinna.
Langvarandi minnisbrestur ríður
ekki við einteyming ef út í þaö er
farið. Fastgengisstefna ríkisstjóm-
ar Þorsteins Pálssonar sætti gagn-
rýni á sínum tíma en einn harðasti
stuðningsmaður þeirrar stefnu var
einmitt Steingrímur Hermanns-
son, þá sjaldan hann kom úr fíla-
beinstuminum í Hverfisgötu sem
nú hýsir Jón Baldvin.
Nú bregður svo við að Steingrím-
hans mati. Sem fyrri daginn er
Steingrímur á móti gengisfellingu
með vinstri hendinni um leið og
hann fyrirskipar hana með þeirri
hægri. Ef í dag er krafist gengis-
fellingar sýnir forsætisráðherra
fram á að gengið hafi þegar verið
fellt um 16%. Ef aðrir koma fram
á síðum blaða og heimta að genginu
sé haldið stöðugu kemur sami mað-
ur fram og segir að það. sé víðs
fjarri að gengi erlendra gjaldmiðla
hafi verið breytt. Reki hann upp á
sker í sjónvarpsviðtölum hvað
þetta varðar er alltaf til sú lausn
að skjóta sér bak við Nordal eða
Bjama Braga. Niðurstaðan verður
sú að gengið hafi hvorki verið fellt
né haldið stöðugu, svona allt eftir
því hvemig vindurinn blæs hveiju
sinni. Þegar Einar Oddur heimtar
tiu prósent er hægt að benda á að
gengið hafi þegar verið lækkað um
sextán prósent en þegar aðrir segja
að ekki megi lækka gengið kemur
í ljós að það hefur verið nokkurn
veginn óbreytt síðasta ár. Þarna er
gert út á það aö minnisleysi sé
smitandi sjúkdómur sem birtist
síðan í vinsældakönnunum Há-
skólans eða doktors Braga.
Dagfari
og rís
ur fellir gengið ótt og títt án þess
að nokkum tímann sé um raun-
verulega gengisfellingu að ræða að