Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1989, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989.
Smáauglýsingar
Fréttir
■ Til sölu
Original dráttarbeisli. Gigum á lager
mikið úrval af beislum. Verð frá 5.960.
Kerrur og allir hlutir í kerrur. Víkur-
vagnar. Kerrusalurinn, Dalbrekku,
V símar 91-43911, 45270, 72087.
■ Verslun
EP-stigar ht. Framl. allar teg. tréstiga
og handriða, teiknum og gerum föst
verðtilboð. EP-stigar hf., Smiðjuvegi
20D, Kóp., s. 71640. Veljum íslenskt.
■ Bátar
Skipasala Hraunhamars: Þessi bátur,
sem er 8 tn., byggður úr viði 1973, með
Perkins véí árg. ’86, 73 hö., og vel
búinn siglinga- og fiskleitartækjum
er til sölu. Skipasala Hraunhamars,
- - Reykjavíkurvegi72, Hafnarf.,s. 54511.
Nýr 9,9 tonna bátur til sölu. Uppl. í síma
92-12827.
■ BQar tíl sölu
Chevrolet P/U ’88 til sölu, ekinn 21
þús. km, ýmis skipti á ódýrari eða
góðir greiðsluskilmálar. Verð 870 þús.
Uppl. í síma 72596 e.kl. 18.
Ford Ciub Wagon XLT, árg. '85, til sölu,
6,9 dísil, ekinn 68 þús. míl., tvílitur
dökkblár og grár, 12 manna, skjálfsk.,
■m vökvast., toppbíll. Uppl. í s. 29904 eða
46599.
Annar hvor þessara?
Eða einhvem annan - varahluti? Er
á förum til USA til kaupa á antik-
vögnum. Uppl. í s. 686630 og 30704.
Kveðja, Stjáni Meik.
Chevrolet Blazer S 10 ’87 (’88) til sölu,
ekinn 18.000 mílur, verð 1.680 þús.,
skipti möguleg á ódýrari. Uppl. í síma
50985 og 50250.
Nú er hann falur, gullmolinn minn!
M.Benz 200 ’79, skoðaður ’89, með
höfuðpúðum og öðrum aukabúnaði.
Uppl. í síma 91-46863 e.kl. 20. Óskar.
Benz 190 E ’85 til sölu ekinn 63 þús.,
góður bíll, ath skipti ódýrari. Uppl. í
síma 39294 og 95-35624 eftir kl. 19.
■ Ýmislegt
íþróttasalir til leigu v/Gullinbrú. Nýtt
leigutímab. 1. sept. nk. Við bjóðum
tíma fyrir knattspyrnu, handknatt-
leik, blak, badminton, körfub., skalla-
tennis o.fl. Gufubað og tækjasalur
íylgja. Einnig hægt að fara í borð-
tennis og billjard (12 feta nýtt borð)
fyrir og e. æfingat. eða tefla og spila.
Úpplagður klúbbur fyrir starfsfélaga
eða kunningjahóp að hittast 1-2 skipti
í viku. Uppl. e. hád. í s. 672270.
Sæsleðaleiga. Sæsleðaleiga Sæmund-
ar á selnum. Ný kraftmikil tæki, sem
allir ráða við, til útleigu á Amames-
vogi við Siglingaklúbbinn Vog í
Garðabæ. Tímapantanir í síma
91-52779.
■ Þjónusta
Gröfuþjónusta, simi 985-21901 og
91-689112, Stefán. Tökum að okkur
alla gröfuvinnu, JCB grafa með opn-
anlegri framskóflu, skotbómu og
framdrifi.
Egilsstaðir:
Enn ein stórgjöf in
til sjukrahussins
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Sjúkrahúsið á Egilsstöðum fékk
nýlega stórgjöf, fæðingarrúm af full-
komnustu gerð. Það voru kvenfélög
á Héraði og Borgarfirði eystra sem
söfnuðu fyrir rúminu síðastliðinn
vetur og nam söfnunarféð um 600
þús. kr. Sjálft rúmið kostaði tæpar
500.000 krónur með því að greiða það
við pöntun auk þess sem ýmis gjöld
fengust felld niður. Fyrir afganginn
voru síðan keyptir ýmsir hlutir, svo
sem hita- og ljósalampi fyrir ung-
barnaskoðun, tvær vogir fyrir
mæðraskoðun og fer önnur á Borgar-
flörð, bijóstagjafapúðar og sessur til
að nota við foreldrafræðslu.
Gunnþóra Snæþórsdóttir aíhenti
gjöfina en hún bar fyrst fram tillögu
á félagsfundi um þessa söfnun.
Sjúkrahúsráðsmaöur, Einar Rafn
Haraldsson, þakkaði fyrir hönd
sjúkrahússins. Fulltrúar flestra
kvenfélaganna voru við afhending-
una og var þeim sýnt sjúkrahúsið
sem á þessu ári flutti í nýtt og glæsi-
legt húsnæði. Að síðustu þáðu gestir
veitingar.
Kvenfélög, sem stóðu að þessári
söfnun, eru 11 og sum mjög fámenn
með félagatölu allt niður í 10. Það er
því mikið átak að safna svo stórri
upphæð en undirtektir voru frábær-
ar. Það kom fram við þetta tækifæri
Ljósmæðurnar Gunnþóra Snæþórsdóttir og Guðríður Ingvarsdóttir við nýja
fæðingarrúmið. DV-mynd Sigrún
að kvenfélagið Bláklukka á Egils- til kaupa á glaðloftstæki fyrir fæð-
stöðum hefur lagt í sjóð 100.000 kr. ingardeildina.
fjörðum
Finnbogi Hermannsson.
DV-mynd Reynir
Reynir Traustason, DV, Flateyii-
Svæðisútvarp á Vestfjörðum
mun hefja útsendingar í byrjun
októher og að sögn Finnboga Her-
mannssonar, forstöðumanns svæð-
isútvarpsins, mun verða sent út á
dreifikeríi rásar tvö. Fyrst raun það
heyrast á svæðinu frá Dýrafirði að
ísafjarðardjúpi en seinna er svo
fyrirhugað að tengja Suðurfirðina
svæðisútvarpinu.
Finnbogi sagði tilkomu svæðisút-
varps verða mjög gagnlega fyrir
vestfirsk byggðarlög sem eiga við
erfiðar samgöngur að stríöa. Mein-
ingin væri að fréttaritarar á stöð-
unura legðu mikið af mörkum til
þessa útvarps með pistlum og frétt-
um. Tvö og hálft stöðugildi verða
við svæðisútvarpiö og hefur þegar
verið auglýst eftir fólki.
Smábátabryggj-
an komin á flot
Sigurður Ægissan, DV, Djúpavogi:
Sumarið 1987 tóku 25 smábátaeig-
endur sig til og skrifuðu bréf til
hreppsnefndar Búlandshrepps þar
sem þeir skoruðu á hana að hefiast
þegar handa við gerð smábáta-
bryggju á Djúpavogi en sú aðstaða
sem trillukarlar hafa mátt una viö
hingað til er löngu orðin ófullnægj-
andi.
Buðust þeir jafnframt til aö koma
inn í þetta dæmi með því að greiöa
fyrirfram aðstöðugjöld til Qögurra
ára. Hlaut þetta góðar viðtökur í
hreppsnefnd og var boðið út.
Um daginn var þessi bryggja loks
sett á flot í höfninni og ættu trillu-
karlar á Djúpavogi nú að geta brosað
a.m.k. út í annað.
DV-mynd SÆ
Flotbryggjan á Djúpavogi