Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1989, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989.
I>V .
25
LífsstHl
Dýrasti matur á íslandi:
Kíló af harðfiski tvöfalt
dýrara en nautalundir
„Þaö er verið aö útrýma þessari
atvinnugrein meö ofsköttun," sagði
Óskar Friðbjamarson, harðfiskverk-
andi í Hnífsdal, í samtali við DV.
„Síðan söluskattur var lagður á mat
hefur dregið úr harðfisksölu um að
minnsta kosti fjórðung."
Harðfiskur er einn af þjóöarréttum
íslendinga og hefur svo verið um ald-
ir. Þessi kostafæða er viðurkennd
sem mjög heilsusamleg auk þess að
vera sérstaklega góð fyrir tennurnar.
Kíló af hertum steinbít, sem er
ódýrasti harðfiskur sem fæst, kostar
í 100 g pakkningum út úr búð 2200-
2500 krónur. Ýsa er á svipuðu verði
en lúða er allajafna dýrust. Harð-
fiskur í heilu er nokkru ódýrari.
Þannig kostar kílóið af steinbít í
versluninni Svalbarða á Framnes-
vegi 1990 krónur hvort sem hann er
barinn eða óbarinn. Kíló af lúðu kost-
ar 2400 krónur í Svalbarða.
Dýrasti harðfiskurinn er þó svo-
kallaður bitafiskur en kílóverð á
bitafiski er á bilinu frá 2200-3300 eft-
ir tegundum.
Neytendur
Harðfiskur er þannig ótvírætt dýr-
asti matur sem fáanlegur er á íslandi
eða um tvöfalt dýrari en nautalundir
og 30% dýrari en fínustu hreindýras-
teikur á veitingahúsum.
"" > 1 !
Hvað veldur svo háu verði?
Til þess að framleiða eitt kíló af
hertum steinbít þarf um 14 kíló af
steinbít upp úr sjó. Fyrir hvert kíló
þarf harðfiskverkandi að borga 32-36
krónur. Hvert harðfiskkíló leggur sig
því á um 500 krónur fyrir utan vinnu.
Herslan tekur um 8 vikur miðað við
að fiskurinn sé aðeins þurrkaður
úti. Hægt er að flýta vinnslunni með
þurrkklefum en við slíka vinnslu
rýmar fiskurinn meira og molnar.
Harðfiskverkandi selur síðan
heildsala hvert kíló á 800-900 krónur.
Heildsalinn pakkar fiskinum, roðríf-
ur hann ef til vill og annast sölu,
dreifingu og innheimtu. Hann selur
-síðan kílóið til kaupmanna á 1400-
Óbarinn er harðfiskurinn aðeins ódýrari. Flestum finnst þó þægilegast að fá fiskinn barinn eða valsaðan.
1600 krónur. Harðfiskurinn er síðan
seldur út úr versluninni á 2200 til
2500 krónur kílóið.
Hlutur ríkisins í verði hvers stein-
bítskílós er 25% eða rúmar 600 krón-
ur. Það lætur því nærri að ríkið fái
jafnmikið í sinn hlut og harðfisk-
verkandinn.
Gengið í hús
Margir kannast við sölumenn sem
ganga í hús og selja óbarinn harðfisk
í stórum pakkningum. Oft er boðið
upp á hagstætt verð eða á bilinu
1000-1400 krónur kílóiö eftir tegund-
Köpavogur:
Opið á sunnudögum
til reynslu
Matvöruverslanir í Kópavogi
mega vera opnar á sunnudögum
frá 1. september. Bæjarráð Kópa-
vogs gerði þessa samþykkt um af-
greiöslutíma fyrir nokkrum dög-
um. Heimildin er veitt til reynslu
í fjóra mánuði eða til áramóta.
Verslunareigendur verða að sækja
sérstaklega um heimild til aö hafa
opið á sunnudögum.
Þaö hefur lengi staöiö styr um
afgreiöslutíma verslana á höfuð-
borgarsvæðinu. í Mosfellsbæ,
Hafnarfiröi og Seltjamarnesi hafa
nokkrar verslanir veriö opnar á
sunnudögum. Hingað til hafa
nokkrar verslanir í Kópavogi verið
opnar til kl. 20 virka daga og til 16
á laugardögum.
Jens Ólafsson rekur tvær versl-
anir undir nafninu Grundarkjör.
Önnur er í Kópavogi en hin 1
Reykjavík. í samtali við DV sagðist
Jens ætla að nota sér þessa rýmkmi
á afgreiðslutíma í Kópavogi.
„Það er visst frjálsræði í þessum
máium Kópavogi," sagði Jens, „og
ég trúi ekki öðru en Reykjavík fylgi
á eftir. Það skýtur skökku við að
hafa heimild fyrir sunnudags-
afgreiöslu á einum stað en ekki
öðrum."
Jens hefur haft verslunina í
Kópavogi opna til kl. 18 á laugar-
dögum í sumar.
„Mér sýnist á þeim undirtektum
sem það hefur fengiö að hafa opið
á laugardögum að grundvöllur sé
fyrir að hafa opiö á sunnudögum.
Síðasti laugardagur kom ágætlega
út hjá mér."
Jens bætti þvf við að ef rýmkun
yrði á afgreiðslutíma í Reykjavík
myndi hann einnig hafa búðina við
Stakkahlíð opna á sunnudögum.
-JJ
um.
Hallur kaupmaður í Svalbarða
sagði í samtah við DV að þar á bæ
hefði ekki orðið vart við neinn sam-
drátt í sölu á harðfiski þrátt fyrir
matarskatt. Þvert á móti sagði hann
að salan þar hefði aukist um um það
bil 20% á undanfomum ármn.
Þeim fer fækkandi sem kunna að
verka góðan harðfisk og sífellt þarf
að borga hærra verð fyrir gott hrá-
efni til harðfiskvinnslu því sjómenn
vilja frekar selja fiskinn í gáma. Það
er því ljóst að harðfiskur heldur
áfram að vera rándýr munaðarvara
því ekkert bendir til þess að verðið
muni lækka frá því sem nú er.
-Pá
Harðfiskur í bitum er dýrastur at þeim tegundum sem tramleiddar eru. Kilóverðið getur farið upp i 3300 krónur.
Að öllum líkindum er þetta dýrasta sælgætið á markaðnum.