Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Side 10
MÁNUDAGUR 28, ÁGÚST;1989. iö Utlönd Framlengja vopnahlé í Súdan Ríkisstjórn Súdans framlengdi á sunnudag um einn mánuð einhliða vopnalúé sitt í baráttunni við uppreisnarmenn í suöurhluta landsins að því er opinber útvarpsstöð landsins skýrði frá. Það var Omar Hassan ai-Bashir, herstjóri Súdans, sem tók þessa ákvörðun og gengur hún í gildi 4. september. Þetta er í þriðja sinn sem al-Bashir lýsir yfir einhhða vopnahléi flrá því hann hrifsaði til sín völdin í júni síðastliönum. Útvarpið hafði það eftir honum að nýja vopnahléð aetti að auðvelda samningaviðræður við upp- reisnarmenn. Ekki hefur verið tilgreind nein dagsetning fyrir slíkan fund. \ Sprengjuárásir á ríkisbanka Perez, forseti Venezueia, skipti um stjóm um helgina. Simamynd Rsuter Ný sljórn í Venezuela Bloch gengur enn laus Bandaríkjamaðurinn Felix Bloch, sem hefur verið hundeltur af starfsraönnum alríkislögregl- unnar, FBI, og blaðamönnura frá því að grunur vaknaði um að hann væri njósnari fyrir tveimur mán- uðum, segir að hann hafi ekki ver- ið ákærður enn sökum þess að ekki sé grundvöllur fyrir málshöfðun gegn honum. I viðtali við fréttaritið Time, sem birtist í gær, neitaði Bloch hins vegar að tjá sig um sögusagnir um að hann hefði afhent Sovétmönn- um leyndarmál. Utanrikisráðuneytið staðfesti í júlí að verið væri að rannsaka mál Blochs þegar sjónvarpsstöð birti frétt þess efnis. Þegar Bloch var spurður hvort hann væri sekur hikaði hann í hálfa mínútu en sagði síðan: „Ég get ekki tjáö mig um einstök atriði því þá verð ég að tjá mig um allt málið.“ Felix Bloch segir ekki grundvöl! til málshöfðunar gegn sér. Símamynd Reuter Irving Stone er látinn Bandaríski rithöfundurinn Irving Stone lést úr hjartaslagj á sjúkrahúsi í New York á laugardagskvöld, 86 ára gamall Stone skrifaði 27 bækur og þekktastur er hann fyrir eins konar ævisögur manna á borð við Van Gough og Michelangelo. Bækumar um þessa menn voru báðar kvikmynd- aöar. Stone sagði aö hann reyndi alltaf að setja sig í fótspor persónunnar sem hann skrifaöi um. Hann var orðinn svo þreyttur þegar hann hafði eytt fimm árum í að skrifa um Sigmund Freud að hann var nær dauða en lifi, að eigin sögn, þegar hann skriiaði síöasta kaflann. Þegar hann vann að bók um Charles Darwin 1980 bjó Stone í húsi Dar- wins og fór í gönguferðir þar sem Darwin hafði verið að velta fyrir sér þróunarkenningunni. Dómsmálaráðherra Kólumbiu, Monica de Greiff. Hún var sögð hafa sagt af sér í gær en forseti landsins vísaði þeirri frétt á bug. Simamynd Reuter Sprengjur sprungu í níu ríkis- bönkum í Medellin .í Kólumbíu í gær. Einn maður fórst í sprengjuár- ásunum sem eru þær mestu sem gerðar hafa verið í þessari borg eitur- lyíjanna í nokkur ár. Forseti Kólumbíu, Vergilio Barco, neitaði í gær fregnum um að dóms- málaráðherra landsins, Monica de Greiff, hefði sagt af sér vegna dauða- hótana sem henni hefðu borist frá eiturlyfjahringum. Stærsta frétta- stofa lahdsins, útbreitt dagblað og útvarpsstöð höfðu greint frá afsögn dómsmálaráðherrans sem nú er í Bandaríkjunum. Þar vinnur hún að áætlun um hvernig vernda megi dómara í Kólumbíu sem hótað hefur verið af eituriyfjabarónum. Nær ellefu þúsund manns hafa ver- ið handteknir og eignir að andvirði milljóna dollara hafa verið gerðar upptækar í baráttu kólumbískra stjómvalda gegn eiturlyfjasölum. Hópur þeirra lýsti á fimmtudaginn stríði á hendur stjórnvöldum. Eiturlyfjasalar hafa hótað að myrða tíu dómara fyrir hvern meint- an eiturlyfjasala sem framseldur verður til Bandaríkjanna en eitt helsta vopniö í baráttunni gegn eit- urlyfjasölum var tilkynningin um samkomulag við Bandaríkin um framsal. Dómsmálaráðherra Kólumbíu fór til Bandaríkjanna á fóstudaginn til að kynna yfirvöldum þar hvernig kólumbísk yfirvöld hyggjast með fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna vernda hina rúmlega fjögur þúsund dómara Kólumbíu. Ráðherrann mun fara fram á fleiri brynvarða bíla dómurunum til handa og mótorhjól handa fylgdarmönnum þeirra. Einn af fyrirrennurum Monicu de Greiff var myrtur árið 1984 af eitur- lyfiamafíunni. Á þriggja ára valda- tímabili Barcos forseta hafa átta dómsmálaráðherrar tekið þátt í stjórnarstarfi. Reuter Loftárás þrátt fyrir hótanir Níu manns létust og tuttugu og þijá ísraelska hermenn og sautján ' Obeid. Um sextíu klerkar múha- fimm særðust, þar á meðal fimmt- vestræna gísla sem taldir eru vera meðstrúarmanna, sem hhðhollir án börn, er ísraelskar orrustuþotur í haldi hjá Hizbollahsamtökunum. eru írönskum yfirvöldum, vöruöu gerðu árás á. bækistöðvar Hiz- Alls hafa ísraelsmenn gert tíu í gær ísraelsk yfirvöld við ef þau bollahmanna í suöurhluta Líban- loftárásiráþessuáriábækistöðvar slepptu ekki Obeid. onsígær. palestínskra skæruliða í Líbanon Bandarískyfirvöid,semáhyggjur Heimildarmenn Hizbollahsam- og skæruliöa sem sagöir eru hlið- hafa af bandarísku gíslunum í Li- takanna segja að sprengja hafi lent hollir íran. Talsmaður ísraelska banon, hafa undanfarið beðið ísra- á skóla þar sem Qölskyldur á ílótta hersins neitaði í morgun að segja elsk yfirvöld um að gera ekki árás- hafi hafst við. hvort árásin í gær heíði verið gerð ir á bækistöðvar skæruhða. Einn Árás ísraelsmanna í gær er sögð 1 hefndarskyni fyrir sjálfsmorðsár- bandarískur gisl, Whham Higgins, vera sú fyrsta síðan klerkurinn ásina sem gerð var 9. ágúst. Þá er sagöur hafa verið hengdur í Obeid var gripinn og fiuttur frá særðust fimm ísraelskir hermenn hefndarskyni fyrir ránið á Obeid. suðurhlutaLíbanonsílokjúlímán- er sprengja sprakk á öryggissvæö- Reuter aöar. Hafa fsraelsmenn boöist til inu i suöurhluta Líbanons. Sú árás aö láta hann lausan í skiptum fyrir var gerð til aö hefna íyrir ránið á Eldvirkni á Tríton Carlos Andres Perez fiorseti Venezuela, stokkaði upp stjórn sína um helgina og nýir ráöherrar sóru embættiseið aö þ'ví er heimildir Reuters fréttastofunnar herma. Allir ráöherrar stjómarinnar sögöu af sér á fóstu- dag, aðeins sex mánuðum eftir að hún komst til valda. Samkvæmt heimildunum er ekki litið á afsögn ráðherranna sem vott um vantraust forsetans á þeim. Meðal nýrra manna í stjórninni em Rein- aldo Figueredo sem tekur við embætti utanríkisráðherra. Hann er talinn hafa nánara samband við forsetann er fyrirrennari hans. Perez hefúr lýst þvi yfir að hann langi th að vera í forustusveit leiðtoga þriöja heimsins og hann hefur unnið að því að fá alþjóðlegar ráðstefnur til lands síns. Unnu kosningamar í Kyoto Frambjóðandi, sem naut stuðnings Fijálslynda lýðræöisflokksins, sem fer með völd í Japan, sigraði í borgarsfjórakosningum sem fram fóru í borginni Kyoto i gær. Tomoyuki Tanabe, sem er 64 ára gamall læknir, sigraði keppinaut sinn, Manpei Kimura, sem naut stuðnings kommúnista, meö aðeins 321 atkvæð- is mun. Sjö aðrir frambjóðendur vom til borgarsfióraembættisins, meðal annars úr Sósíalistaflokknum, helsta stjómarandstööuflokki Japans. „Ég er ánægöur yfir sigri herra Tanabe,“ sagði Toshiki Kaifu forsætis- ráðherra eftir að úrslit lágu fyrir. „Ég vil votta þvi fólki sem skildi okkur virðingu mina.“ Kosningamar á sunnudag voru fyrsti prófsteinninn á sfiómarflokkinn frá þvi að næstæðsti maður rikisstjómarinnar sagði af sér í síðustu viku þegar upp komst um kvennafar hans. Vísindamenn á jörðu telja sig hafa séð eldgiga á Tríton, tungli reikistjörnunn- ar Neptúnusar. Simamynd Reuter Talið er hugsanlegt að eldvirkni sé á Tríton, tungli Neptúnusar, sem bandaríska geimfarið Voyager 2 hef- ur verið að mynda að undanfornu. Vitað er að á tunghnu eru fenja- svæði, mikiö frost og tunglskjálftar. Vísindamenn segja að nýjustu upp- lýsingar frá geimfarinu bendi til þess að eldgígar séu á Tríton og þeir spúi köfnunarefnissískristöllum 30 kíló- metra upp í gufuhvolf tunglsins. Kristallarnir virðast síðan ná til norðurpóls Trítons þar sem eilíft myrkur ríkir og breytast þar í snjó. Vísindamenn voru að segja frá nýj- ustu upplýsingum og Ijósmyndum sem komu til jarðar frá Voyager 2 sem nú er á leið út í ómælisvíddir geimsins. Köfnunarefnið flæöir eins og vökvi um gljúpt efni undir yfirborði Trít- ons og þegar og snjór og annað hleðst ofan á eykst þrýstingurinn undir yfirborðinu. „Köfnunarefnið verður að finna útgönguleið," segir einn vís- indamaðurinn. Ekkert bendir til að eldgígar á Trí- ton hafi verið að gjósa þegar Voyager 2 fór þar framhjá á fimmtudag. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.