Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Qupperneq 10
LAUQAI^Wf ,16,5EPTEMBER -1389. 1(íí Grínið er annars flokks - segir Júlíus Brjánsson leikari sem telur ýmislegt athugavert viö leiklistina í landinu „Leikhúsiö okkar gengur mjög vel vegna þess að viö erum ekki meö neina yfirbyggingu. Mestu skiptir þó sterk markaðssetning sem er bráö- nauösynleg," segir Júbus Brjánsson leikari og einn aöstandenda Gríniöj- unnar en hún hefur sviðsett gaman- leiki í Gamla bíói við góöar undir- tektir. Mikil gagnrýni hefur komið fram um verk Þjóðleikhússins og þá htlu aðsókn sem veriö hefur í leik- húsinu á undanfómum árum. Á meðan getur litill leikhópur fyllt Gamla bíó og látið enda ná saman. „Við höfum haft áhuga á að setja upp gamanþætti og fundið að þörf er fyrir slíkar sýningar hér á landi. Gríniðjan hefur fengið ákveðna þjálf- un í gamanleikjum og við reynum aö gera það vel sem við vinnum að hverju sinni. í staðinn höfum við fengið þakklæti áhorfenda," segir Júlíus. „Þessar sýningar sem hafa verið algjörlega á okkar reikning hafa borið sig talsvert miklu betur en sýningar stofnanaleikhúsanna. Viö teljum ástæðuna vera þá að við erum með nijög sterka markaðssetn- ingu og auglýsingar. Þessi leikhópur gerir sér grein fyrir að samkeppnin er hörð viö alls kyns aíþreyingu sem í boði er. Leikhúsið er bisness Fólk hefur áhuga á að sjá margar af þeim sýningum sem settar eru upp en oft verður ekkert úr leikhúsferð- inni. Þegar hins vegar er hringt í fólkið og því boðinn miöi kemur það því áhuginn er fyrir hendi. Við náum í fólk á vinnustöðum og hina ýmsu hópa og það hefur skilað sér mjög vel. A þessu sviði tel ég að víða sé pott- ur brotinn í stofnanaleikhúsunum, t.d. Þjóðleikhúsinu sem hefur aldrei sinnt þessum hluta starfseminnar. Leikhúsið er kaldur bisness,“ segir Júlíus. „Á því gengur starfsemin. Samkeppnin er á miklu fleiri stöðum en áður - hér hefur orðið bylting í aíþreyingarmálum. Þaö nægir að nefna meira sjónvarpsefni en áður, myndabandaleigur og skemmtanir á danshúsunum. Svo virðist sem leik- húsin hafi ekki tekið eftir þessari breytingu í þjóðfélaginu. Hvatann vantar, t.d. hjá Þjóðleikhúsinu sem „Það var mikil áhætta fyrir okkur að setja upp Brávallagötuna, dæmi upp á tugmilljónlr," segir Júlíus Brjánsson. Július Brjánsson segir að stofnanaleikhúsin hafi ekki áttað sig á þeirri þjóðfélagsbreytingu sem orðið hafi og hversu mikil aukning hafi orðið á alls kyns afþreyingaefni. DV-mynd Hanna er á föstum fjárlögum, örvænting er ekki eins mikil þar og hjá frjálsu hópunum, t.d. okkur sem fáum enga styrki. Fátækt uppeldi Ef Þjóðleikhúsið hefði kynnt betur þær sýningar sem í boði eru væri aðsóknin tvímælalaust miklu betri. Leikhúsuppeldi íslendinga er alveg óskaplega fátæklegt. Það er ekki til neitt tímarit sem fjallar um leikhst né heldur sjónvarpsþáttur. Eina sem áhugafólk um leikhús les er gagnrýni sem birtist í dagblöðum þar sem 90% er bull og skrifað af misjafnlega hroðalegri vanþekkingu. Það er eng- in upplýsingastarfsemi um leikhús fyrir almenning í gangi. Umfjöllun um leikhús er á svo lágu plani að hún gerir meira ógagn en gagn. Það vant- ar alla faglega umfjöllun," segir Júl- íus. „Grín í leikhúsum er tahð annars flokks og það er okkar stóra baráttu- mál. Það viðurkenna alhr leikarar að gamanleikur er kannski erfiöasta formið á leikhst en engu að síður áhta margir skrílslegt að hlæja. Ef menn eru ekki organdi í gólfinu og fara með Shakespeare fram og til baka þá er það annars flokks.“ Brávallagatan áhætta Júhus segir að Brávahagatan á Amamesi, sem Gríniðjan er að fara af stað með aftur nú í Gamla bíói, hafi náö til fólksins með gagngerri markaðssetningu. „Við tókum áhættu þvi þetta er tugmilljóna upp- setning. Dæmið var reiknaö þannig að ef við yrðum dugleg í markaðs- setningu ætti þetta að ganga upp og það er um það bil aö gera það. Við höfum ekki náð endum saman en emm bjartsýn á áframhaldandi að- sókn. Það var út af fyrir sig mikil áhætta að setja á svið útvarpsþætti. Hver einstakhngur var búinn að búa sér til sínar eigin hugmyndir um Brávahagötufólkið og við vitum að sýningm hefur ekki komið heim og saman viö þær ahar. Þaö hefur þó engin áhrif haft,“ segir Júhus. Brávallagatan verður sýnd í Gamla bíói áfram í vetur með tilheyrandi breytingum samfara þeim breyting- um sem orðið hafa á stjómmálum í landinu. Útvarpsþættimir hafa veriö í sumar en munu leggjast af nú þegar sýningamar fara í gang. „Bibba og Hahdór eru að koma úr heims- reisu,“ segir Júhus. Auk þessara sýninga er Gríniðjan í vinnu hjá út- varps- og sjónvarpsstöðvunum hvert fyrir sig. Þar sem Gríniðjan er á leigusamningi við íslensku ópemna verður hún að aðlaga sig að þörf hennar. „Viö verðum að sæta öllum þeim kostum sem óperan setur okk- ur og fáum því ekki aha þá daga sem við hefðum kosið.“ Draumurinn er gamanleikhús Gríniöjan greiðir háa leigu th óper- unnar fyrir hvert kvöld og þarf um fjögur hundmð áhorfendur á kvöldi til að sýningin borgi sig. Júhus segir að það sé draumur Gríniðjunnar að setja upp gamanleikhús en hann er fjarlægur vegna skorts á fjármagni. „Það þyrfti ekki að vera leikhús byggt á opinbemm sjóðum því einka- aðhar ættu aö geta séð hag í því að vera hluthafar. Alvöru gamanleik- hús sem byggt yrði upp með vel gerö- um gamanleikjum.“ Júlíus Brjánsson er landsmönnum að góðu kunnur úr hinum ýmsu út- varps- og sjónvarpshlutverkum en þeir sjá minna af honum á sviði stóru leikhúsanna. Júlíus segir að leik- stjórar hafi ekki séð ástæðu til að bjóða honum hlutverk og hann verði að hta svp á að hann sé ekki gjald- gengur. „Ég vh að minnsta kosti trúa því að það sé skoðun stofnanaleik- húsanna, sem hafa ekki legið í mér, að ég sé ekki frambærhegur. Ef það væri ekki þá væru einhver önnur sjónarmið í gangi sem ég vh ekki gera mönnum upp. Ég loka ekki dyr- unum á neitt að minnsta kosti." Of margar fastar stöður Júhus segir að Þjóðleikhúsið sé að veröa nokkurs konar nátttröll í þessu markaðsþjóðfélagi okkar. „Þetta er að hluta til vemdaður vinnustaður. Þama em leikarar á fóstum samningi, sumir fá hlutverk ár eftir ár, aðrir hafa ekkert að gera. Mín skoðun er sú að fækka eigi föst- um stöðum, bæta við lausastöðum og velja síðan leikara í hlutverkin eftir því sem við á hverju sinni. Það þarf að nýta leikara betur. Leikari á ekki að eiga heimtingu á öryggi - öryggið felst í honum sjálfum og hvaö hann hefur fram að færa.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.