Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989n Ég ætla að leysa vanda - segir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins „Vandamál Sambandsins ' voru miklum mun meiri heldur en ég átti von á og vissi þó aö þau væru umtalsverö er ég hóf störf hér. Það var kannski búin að vera of mikil tilhneiging hér til að líta fram hjá þessum vanda. Ég hef talið mér skylt aö horfa á vandann eins og hann er og leysa hann eins og ég get. Ég ætla ekki að hlaupa frá því verkefni svo lengi sem menn vilja hafa mig hér. í Sambandinu er eng- in uppgjöf," sagði Guðjón B. Ólafs- son, forstjóri Sambandsins, er hann var spuröur hvort staða hans innan fyrirtækisins væri ekki völt nú þeg- ar tap fyrirtækisins ykist ár frá ári og þá sérstaklega eftir að hann tók við starfi sínu fyrir réttum þremur árum. Lúðvík Jósepsson hefur sagt í íjölmiðlum að skuldastaða Sam- bandsins við Landsbankann sé 2,6 milljarðar króna. Guðjón er ekki sammála því. „Þróunin á fyrstu sex mánuðum þessa árs er sú að skuldir Sam- bandsins hafa aukist um fjögur pró- sent en veltan hefur aukist um 37%. Dollarinn hefur hækkað um 21% en talsvert af skuldum SÍS er í erlendri mynt og verðbólgan á tímabilinu jókst um 11-12%. Þannig að staöan, er mun betri í júnílok þessa árs en hún var í desemberlok. Skuldastaða fyrirtækisins í heild var betri sem nemur um þrjátíu milijónum doll- ara í lok júní en í árslok 87.“ - Staða SiS hefur engu að síður verið mjög síeem undanfarin þrjú ár: „Ég hef aldrei dregiö dul á það að skuldsetning Sambandsins er mikii. En að segja aö reksturinn hafí verið slæmur síðan ég tók við starfi mínu er algjörlega rangt með farið. Menn vilja sífellt búa til grýlur f kringum Sambandið. Allar staðreyndir um stöðu Sambandsins eru opnari en hjá nokkru öðru íslensku fyrirtæki. Menn þurfa því ekki að vera með neinar ágiskanir eða getgátur. Sam- bandið á við rekstrarvanda að etja en ég held því fram að þjóðfélagið í heild sinni eigi í miklum vanda. Stór hluti af þeim vanda er heimatilbú- inn. Flest atvinnufyrirtæki á íslandi eru þannig sett að þau hafa ekki haft aðstöðu á allmörgum undan- fornum árum til að skila nægilegum hagnaði af rekstri sínum eða til að mynda sterka sjóöi. Þaö er stór hluti af vanda ekki bara Sambandsins heldur flestra fyrirtækja á landinu í dag. Það er alþekkt að sú stjómar- stefna hefur verið ríkjandi hjá öllum flokkum undanfarna þrjá áratugi að stilla sjávarútvegi við núllmarkið um áramót. Stundum hefur tekist að komast yfir núilmarkið, þá aðal- lega þegar markaöir hafa verið hag- stæöir, en oftar en ekki hefur niður- staðan verið undir núlhnu og hefur verið það samfellt sl. þrjú til flmm ár. Á sama tíma hefur fjármagns- kostnaður farið upp úr öllu valdi hér á landi. Eigið fé fiskvinnslunnar hefur því verið þurrkað upp á þess- um tíma.“ - En verða menn þá ekki að sntða sér stakk eftir vexti? „Aliir eru að reyna að bregðast við því sem þeir ráða ekki við. Svona hefur þetta verið gert og það eru staðreyndirnar í kringum okkur í dag. Það er einmitt þess vegna sem Sambandið hefur verið aö selja eign- ir og minnka skuldir sínar.“ - Það er ekki langt síðan Sambandið víldi kaupa Útvegsbankann en nú getur það ekki haidið Samvinnubankanum: „Ef okkur hefði tekist að kaupa Utvegsbankann hefði það verið mjög gott mál. Við gengum inn í boð sem ríkið hafði gert, þeir buðu bréf á ákveðnu verði og að vel athuguðu máh vorum við búnir aö gera áætl- anir um aö sameina Útvegs- og Sam- vinnubankann. Útkoman úr því dæmi hefði verið mjög hagstæð. Við hefðum vitaskuld, ef út í það hefði farið, getað selt hinn sameinaða banka í dag. Hins vegar var það ekki ætlunin þá. Fyrir tveimur árum var hugsunin ekki sú aö selja Samvinnubankann. Við vorum ekki á þeim tíma búnir að lifa við 24ra mánaða tímabil þar sem vaxta- kostnaður var á milli 30 og 90%. - Nú eruð þið að selja þær einingar sem myndu helst skíla hagnaði: „Við erum að selja Samvinnuban- kann vegna þess að hann er seljan- legri en margt annað. Salan gerir okkur kleift að bæta stöðu okkar og minnka skuldir. Það er ákveðinn kjarnarekstur sem Sambandiö stendur í, bankarekstur er ekki hluti af þeim rekstri. Það er auðvit- að gott að eiga banka svo lengi sem menn hafa efni á því en bankaeignin sem slík skilar ekki arði innan Sam- bandsins frekar en aðrar eignir." - Hvað um Regin? „Það er mat um það annars vegar hvaöa arð eignin gefur og hins vegar hvaða hagsbót fengist með því að selja hana. Við erum tilbúnir að selja þær eignir sem við getum selt fyrir viðunandi verð og ekki skaða rekstur fyrirtækisins. Þar er m.a. um aö ræða nokkrar húseignir og eignarhlut Sambandsins í Osta- og smjörsölunni." - En Olfufélagið? „Það hefur aldrei verið rætt um að selja Oliufélagið og ég tel ekki að það komi til greina. Fyrir því eru margar ástæður.“ - Hvenær kom sú hugmynd upp að selja Samvinnubankann? „Ég fékk þessa hugmynd sl. haust og fékk þá heimild stjómar Sam- bandsins til að kanna þennan mögu- leika. Mín skoðun er sú að báðir aðilar hafi gert góða samninga fyrir hönd fyrirtækjanna. í þessari stöðu gerði Sambandið rétt í því að selja bankann og það var nauðsynlegur kostur.“ - Þvierhaldiðframað Lúðvík Jósepsson hafi farið með rangt mál þegar hann gaf upp skuldastöðu Sambandsins í Landsbankanum: „Bankar eru bundnir þagnar- skyldu. Lúðvík Jósepsson hefur haldið fram tölum og veifað plaggi því til sönnunar. Við höfum sagt að þar sé rangt með farið og ég gæti sýnt ykkur plagg því til staðfesting- ar. Hér er um að ræða misskilning og ég hef allan vilja á því að upplýsa það nánar. Ég get það þó hvorki né vil án samráðs við Landsbankann og hef ekki haft aðstöðu f dag til að afla mér heimilda til að gera það. Sambandið hefur ekkert að fela í þessum efnum og það er með full- nægjandi tryggingar fyrir öllu sínu.“ - Af einhverri ástæðu sér Citibank ástasðu til að segja upp láni Sambandsins: „Sambandið hefur átt viðskipti við Citibank frá 1917, nokkuð samfellt fyrir vestan en einungis fimmtán ár hjá útibúi hans í London. Iceland Seafood Corp. er ennþá með megin- hluta af sínum lánum í Citibank í Bandaríkjunum. Citibank í London hefur gengið í gegnum talsverðar breytingar á sinni starfsemi meö til- komu nýs bankastjóra. Stefnan hef- ur rambað hjá þeim samfara þess- um breytingum og þeir hafa liðið fyrir það. Citibank var meðal stærstu banka í heimi en kemst ekki á blað núna yfir tíu stærstu. Sam- bandið hefur haft lánsheimild hjá Citibank í London, hæst 3 milljónir dollara. Þetta hafa veriö skamm- tímalán sem hafa verið uppsegjan- leg nánast hvenær sem er. I bankan- um hafa undanfarið verið meiri háttar mannabreytingar, meðal annars í þeirri deild sem sér um okkar mál. Ég tel að uppsögnin á þessu tiltekna láni sé tilkomin vegna stefnubreytinga bankans og vegna þessara mannabreytinga fremur en ótta við stöðu Sambands- ins. Þetta lán veröur uppgreitt á fyrri hluta næsta árs. Stærstu bank- ar, sem við eigum viðskipti við, fá að fylgjast mjög náið meö þeim að- gerðum sem eru í gangi og þær hafa notið bæði skilnings og stuðnings þeirra." Er Landsbankinn þar meðtalinn? „Við höfum að sjálfsögðu haft hann upplýstan um efnahags- og rekstrarstöðu okkar. í tengslum við samningana núna hefur Lands- bankinn óskað eftir að fá áætlanir okkar. Við munum láta hann fá all- ar þær upplýsingar þegar endanlega verður gengið frá samningnum." - Er Sambandið ekki að breytast hægt og sígandi frá upphaflegri mynd sinni? „Ég held það. Sambandið er að breytast núna í það að vera magrara og virkara fyrirtæki en það hefur verið. Þegar þær breytingar, sem við höfum verið að gera, fara að skila sér verður Sambandið mun nýtískulegra og virkara fyrirtæki." - Nú fækkar eignum Sambandsins - er það ekki um leið að missa umsvifin? „Það getur vel verið að Sambandið minnki því þaö er ekkert annað en samnefnari fyrir kaupfélögin og þá aðra sem vilja skipta viö það. í dag eru það fyrst og fremst kaupfélögin og fiskvinnslustöðvar. Kjarninn í rekstri Sambandsins er afurðasal- an, innflutningur og skiparekstur. Ég vil halda því fram að þessi kjarnarekstur sé í betra horfi í dag en nokkum tíma áður. Það er búið að framkvæma hér meiri háttar aðgerðir á undanförnum tveimur árum til að bæta reksturinn. Skipa- deildin hefur aldrei verið sterkari og sjávarafurðadeildin er með mjög góða afkomu þannig að rekstur deildanna er með allra besta móti.“ - Á það einnig við um versiunardeildina? „Nei, hún er vandamál en ekki mitt vandamál. Það er vandamál sem hefur verið viðloðandi í mörg ár. Þar hafa þó orðið umtalsverðar umbætur og sérstaklega á þessu ári.“ - Hvað er tap verslunar- deildarinnar mikið á fyrstu sex mánuðum ársins? „Það var rúmlega hundrað millj- ónir króna. Það er búið að fækka mikiö fólki þar og leggja niður ta- peiningar, loka eða selja.“ - Nú hefur Sambandið tapað miklu fé á fiskvinnslunni: „Sambandið hefur orðiö í gegnum árin meirihlutaeigandi að nokkrum fiskvinnslufyrirtækjum í kringum landið: á Patreksfirði, í Þorlákshöfn og víðar. Þaö hefur oröið í öllum tilfellum vegna þess að Sambandið hefur smám saman lagt fé í þessi fyrirtæki til að halda rekstri þeirra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.