Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989.
,.c37
Skákogbridge
Hálf öld frá ævintýraför
skákmanna til Argentínu
Skáksamband íslands hélt ný-
lega hóf til heiðurs nokkrum skák-
meisturum og til að minnast hð-
inna afreka. Þar bar hæst ólympíu-
skákmótið í Buenos Aires fyrir
réttri háifri öld er íslenska skák-
sveitin vann frækilegan sigur og
hreppti efsta sæti í B-flokki þar sem
keppt var um glæsilegan verð-
launabikar, „Copa Argentina" eða
forsetabikarinn. í hófi SÍ veittu
Baldur Möller og Guðmundur Arn-
laugsson, einir eftirlifandi sveitar-
manna, viðtöku siifurskjöldum,
greyptum í argentínskan marm-
ara, til minja um keppnina og þessa
ævintýrafor.
í þá daga hefði ekki þótt mikið til
ferðalaga nútímans koma er menn
þeysast um loftin á breiðþotum.
Siglingin til Suður-Ameríku tók
íslendingana marga mánuði og var
þeim að vonum afar eftirminnileg
og heimkoman þá ekki síður en
meðan á mótinu stóð braust seinni
heimsstyrjöldin út í öllu sínu veldi.
Mótið í Buenos Aires var áttunda
mótið í röðinni og í fyrsta skipti
sem ólympíumót var haldið utan
Evrópu. Margar þjóðir Rómönsku
Ameríku sendu skáksveit til
keppni í fyrsta sinn og höfðu þátt-
tökuþjóðir aldrei verið fleiri - 27
talsins. Kúba var meðal þeirra
þjóða sem nú tóku í fyrsta skipti
þátt í ólympíumóti. Capablanca
tefldi með sveitinni á fyrsta borði
og heimsmeistarinn Aljekín leiddi
frönsku sveitina. Margt annarra
meistara var í Buenos Aires þessa
daga og má geta nærri að gaman
hefur verið að beija þá augum.
Eftir undanrásir, sem voru ný-
breytni á ólympíumótunum, var
skipt í tvo flokka og tefldu 15 efstu
þjóðimar í A-flokki um svonefndan
Hamilton-Russel-bikar. Engu
minna var þó látiö með Copa Arg-
entina-keppnina í B-flokki því að
þar var keppt um bikar sem forseti
Argentínu gaf.
Það er kannski kaldhæðni örlag-
anna ,að Þjóðveijar og Pólveijar
skyldu kljást um sigurinn í A-flokki
því að riðlakeppnin hófst 1. sept-
ember, sama dag og Þjóðveijar réð-
ust inn í Pólland. I skákinni höfðu
Þjóðverjarnir einnig betur og sigr-
uðu með 36 vinningum en Pólverj-
ar fengu hálfum vinningi minna.
Vegna stríðsástandsins tefldu þess-
ar þjóðir ekki innbyrðis og fimm
önnur töfl í A-flokld vom einnig
dæmd jafntefli, stimdum þó eftir
mikið japl, jaml og fuður.
Með þýsku sveitinni tefldi Elisk-
ases á fyrsta borði en Tartakover
og Najdorf fóm fyrir pólsku sveit-
inni. Eistlendingar, með Keres á
fyrsta borði, urðu í 3. sæti með 33,5
v. og Svíar, þar sem Staalberg og
Ludin voru' fremstir, komu næstir
með 32,5 v. Síðan komu gestgja-
fanir, Argentínumenn, þá Tékkar,
Lettar, Hollendingar, Palestínu-
menn, Frakkar, Kúbumenn,
Chilebúar, skáksveit Litháen,
Brasilíumenn og lestina ráku Dan-
ir.
Keppnin í B-flokki var geysilega
hörð og jöfn. Á endanum urðu Is-
lendingar og Kanadamerin jafnir
með 28 vinninga en íslendingum
var dæmdur sigurinn á stigum.
Norðmenn fengu 27 v., skáksveit
Umguay 26 v. og Búlgarar 25,5 v.
Síðan komu Ecuador, Guatemala,
írland, Perú, Bolivía og Paraguay.
Frammistaða Jóns Guðmunds-
sonar, sem tefldi á 3. borði, vakti
mikla athygli en hann gerði sér lít-
ið fyrir og vann allar skákir sínar
í úrslitakeppninni, tíu að tölu. Er
heim var komið var hann stundum
í kunningjahópi nefndur „Jón
hundrað prósent" til aðgreiningar
frá öðrum Jónum. Jón fékk að sjálf-
sögðu verðlaun fyrir bestan árang-
ur á sínu borði og Guðmundur
Amlaugsson hreppti einnig verð-
laun fyrir bestan árangur vara-
manna. Guðmundur vann 6 skákir,
geröi 3 jafntefli en tapaði einni sem
gerir 75% vinningshlutfall. Baldur
Möller tefldi á 1. borði og vann 6
skákir, gerði 4 jafntefli en tapaði 5
(53,3%), Ásmundur Ásgeirsson
vann 8 skákir, gerði 3 jafntefli en
tapaði 4 á 2. borði (63,3%), Jón
Guðmundsson vann samtals 11
skákir og gerði 3 jafntefli (78,6%)
og Einar Þorvaldsson vann 3 skák-
ir, gerði 4 jafntefli en tapaði 3 á 4.
borði (50%).
Lítum á eina skák frá mótinu. Það
er Ásmundur Ásgeirsson sem stýr-
ir hvítu mönnunum í keppninni við
heimamenn í 2. umferð undanrása.
í hófi SÍ veittu Baldur Möller og Guðmundur Arnlaugsson, einir eftirlif-
andi sveitarmanna, viðtöku silfurskjöldum, greyptum í argentínskan
marmara, til minja um keppnina og þessa ævintýraför.
Mótheiji hans er þarna 19 ára gam-
all en átti eftir að verða einn kunn-
asti skákmeistari Argentínu.
Hvítt: Ásmundur Ásgeirsson
Svart: Julio Bolbochan
Nimzoindversk vörn
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Db3
c5 5. dxc5 Rc6 6. Rf3 Re4 7. Bd2 Rxc5
Afbrigðið sem hefst með 4. Db3
átti miklum vinsældum að fagna
um þetta leyti en er fátítt nú á dög-
um. Síðasti leikur svarts viröist
engu síðri en 7. - Rxd2 8. Rxd2 0-0,
eða 8. - f5 sem einnig er leikið.
8. Dc2 f5 9. a3 Bxc3 10. Bxc3 0-0 11.
b4 Re4 12. Bb2 d6 13. e3 a5!
Til að tryggja sér c5-reitinn fyrir
riddarann.
14. b5 Re7 15. Bd3 Rc5 16. Hdl Dc7
Samkvæmt júgóslavnesku al-
fræðibyrjanabókinni hefur svartur
nú jafnað taflið og lætur það nærri
lagi. „Holan“ á c5 er sannarlega
falleg en til mótvægis hefur hvitur
sterkan biskup á b2 og möguleika
á miðborðinu.
17. 0-0 e5 18. Rd2 Be6 19. f4 Hae8 20.
Hf2b6?!
Hann vill treysta stöðuna en nú
er tilfærslan Re7-c8-b6 úr sögunni
og c6-reiturinn er óvarinn.
21. Be2 Rg6 22. Bf3? Rd7?
Nýtir sér ekki ónákvæmni hvíts:
22. - exf4 23. exf4 Rxf4 og ef 24. Bc6
þá 24. - Rd3. Hvítur setur fyrir lek-
ann.
23. g3 He7 24. Bc6 Rb8 25. Bg2 Rd7
26. Bc6 Rb8 27. Bg2 e4?
Eftir þennan slaka leik snúast
vopnin í höndum svarts. Hann opn-
ar sjálfviljugur homalínuna fyrir
svartreita-biskupinn og gefur hvít-
um um leið reit á d4 sem gefur c5-
reitnum lítið eftir að fegurð. Og nú
er riddari svarts langa vegu frá
fyrirheitna reitnum.
28. Hcl Hc8 29. Bfl Rd7 30. Rb3 Rc5
31. Rd4 Bd7 32. Ddl! Hf7 33. Hd2 Hd8
34. Dh5 Re7 35. Hcdl Be8 36. Hcl
Hf6 37. Ddl Bf7?
38. Rc6! Rxc6 39. Bxfl6 gxfl6 40. bxc6
Dxc6
Skiptamunsfórn svarts lítur við
fyrstu sýn ekki illa út því að hann
hefur peð fyrir og menn hans
standa vel. En næsti leikur hvíts
setur strik í reikninginn. Skákin
fór í bið í þessari stöðu og verður
ekki betur séð af næstu leikjum en
að íslenska sveitin hafi unnið
heimavinnuna vel.
41. g4!
Opnar línur fyrir hrókana að
svarta kónginum. Leikurinn virð-
ist hafa komið svörtum á óvart;
hann bregst a.m.k. ekki sannfær-
andi við honum.
41. - a4 42. Hg2 Rb3? 43. Hc3 Dc5 44.
Hg3 fxg4 45. Dxg4 + Kf8 46. Dh4 Ke7
47. Dxh7 d5 48. Be2 Htö 49. Bh5 Ke8
50. Bxf7+ Hxf7 51. Df5 d4 52. Hg8+
Ke7 53. Dxe4+ Kd6 54. exd4 Dxd4+
55. Dxd4+ Rxd4 56. Hd8+ Kc5 57.
Hd5 +
Og svartur gafst upp.
TR til Búdapest
Nú hefur verið dregið í þriðju
umferð Evrópubikarkeppni taflfé-
laga og mætir sveit Taflfélags
Reykjavíkur MTK Búdapest á úti-
veÚi. Þetta er sveit Portisch og
Skák
Jón L. Árnason
Polgar-systra. Lajos teflir á fyrsta
borði, Zsuzsa á 2. borði og Judit á
3. borði. Á 4. borði er argentínski
stórmeistarinn Barbero sem býr
með fyrrverandi frú Ribli í Búda-
pest. Stórmeistarinn kunni, Forint-
os, sem teflt hefur hér á Reykjavík-
urskákmótum, er á 5. borði og stór-
meistarinn Rajna á 6. borði.
í fyrstu umferð keppninnar sló
sveit TR skákmenn Anderlecht út
í Brussel og annað frægt knatt-
spyrnulið, Bayern Munchen, varð
fyrir barðinu á Taflfélagsmönnum
í 2. umferð. Þriðju umferð skal vera
lokið fyrir miðjan desember. Nú
eru átta lið eftir í keppninni.
-JLÁ
Úrsht ráðast um næstu helgi á
Hótel Loftleiðum. Úrslitaleikurinn í
bikarkeppni Bridgesambands ís-
lands fer fram um næstu helgi á
Hótel Loftleiðum og það eru sveitir
Modern Iceland og Braga Hauksson-
ar sem eigast við. Sveit Braga er með
höfuðleður tveggja bestu sveita
landsins undir beltinu, sveitir Flug-
leiða og Pólaris, en hún vann þær
báðar með litlum mun. Modern Ice-
land hefir hins vegar þurft að hafa
minna fyrir hlutunum. Þá sveit skipa
bræðurnir Hermann og Ólafur Lár-
ussynir, Magnús Ólafsson, Páll
Valdimarsson og Jákob Kristinsson,
en sveit Braga skipa auk hans Sig-
tryggur Sigurðsson, Ásmundur Páls-
son, Guðmundur Pétursson, Ásgeir
Ásbjömsson og Hrólfur Hjaltason.
Allt stefnir í spennandi úrslitaleik
og fyrirhugað er að sýna hluta leiks-
ins í beinni útsendingu á Stöð 2. Sveit
Modem Iceland vann Skrapsveitina
nokkuð örugglega í undanúrshtum,
meðan sveit Braga marði sveit Flug-
leiða með 3 impa mun. Sömu spil
vom spiluö í báðum leikjum. Við
skulum skoöa eitt þeirra. N/0
♦ 9876432
V 3
♦ K 8
+ 754
* Á 10
V 5
♦ G982
+ ÁK6
♦ Á G 6 5 2
V D 10 9 4
♦ 10 2
+ ÁKG63
* K D G
V D 10 7 5 4
♦ 73
+ D 9 8
í leik Flugleiða og Braga voru spil-
uð þijú grönd á báðum borðum, sem
unnust þegar spaðamir skiptust 73.
Reyndar unnust fjögur grönd á báð-
um borðum því suður lendir í óveij-
andi kastþröng í hjarta og laufi. í
hinum leiknum milli Modern Iceland
og Skrapsveitarinnar var allt annað
upp á teningnum. Þar sátu í opna
salnum ns Páll Valdimarsson og
Magnús Ólafsson, en va Jacci
McCreal og Hjördís Eyþórsdóttir.
Þar gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1+ pass IV
2V 4 V pass pass
pass
Ekki verri samningur en þijú
grönd, þótt legan sé engan veginn
eins hagstæð. Páh taldi spilið nokkuð
sterkt og því þyrfti að grípa til ör-
þrifaráða. Hann spilaði þvi út tígul-
kóng. Varla gat sagnhafi vænst betra
útspils og þess vegna var sorglegt að
hún skyldi tapa spihnu. Hún drap
Bridge
Stefán Guðjohnsen
útspihð með ás, tók tvo hæstu í
trompi og fékk vondu fréttirnar. Síð-
an spilaði hún spaðaás og trompaði
spaða. Einfalt er nú að vinna spilið
með því að taka tvo hæstu í laufi,
trompa lauf, spha tígh á drottningu
og meira laufi. Tíundi slagurinn
kemur þá með framhjáhlaupi á
trompgosann. Með spaðalegunni
gengur sú leið líka að spila tígli og
gefa þar með aðeins þijá slagi á
tromp. Jacci fór hins vegar aðra leið
og fór einn niður. Á hinu borðinu
sátu ns Kristján Már og Rúnar, en
av Hermann og Ólafur: Bræðurnir
komust fljótt og örugglega 1 slemm-
una:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1 + 1 ♦ 2
3^ 4grönd pass 5 V
pass 5 grönd pass 6 +
pass 6 pass pass
pass
Norður spilaði út hjartaþristi og
Ólafur drap með kóng og svínaði
trompinu. Norður drapá kónginn og
spilaði meira trompi. Ólafur tók nú
tvo hæstu í laufi og trompaði lauf.
Þegar drottningin kom var slemman
upplögð og reyndar vinnst slemman
líka þótt drottningin komi önnur.
Ágæt slemma og aukabónus af hinu
-borðinu, þegar geimið tapaðist.
Stefán Guðjohnsen
Fréttabréf
Kjördæmismót n-vestra í tvímenn-
ingi var haldið á Siglufirði 9. sept.
sl. Spilaður var barometer með þátt-
töku 19 para. Kjördæmismeistarar
1989 urðu Ásgrímur og Jón Sigur-
bjömssynir frá Siglufirði. Röð efstu
para varð þessi:
1. Ásgrímur Sigurbjörnsson -
Jón Sigurbjörnsson, Sigluf....120
2. Jóhannes Hjálmarsson -
Jónas Stefánsson, Sigluf........46
3. Bjarni Brynjólfsson -
Unnar A. Guðmunds-
son, Hvammst....................44
4. Reynir Pálsson -
Stefán Benediktsson, Fljótum....36
5. Baldvin Valtýsson -
Valtýr Jónasson, Sigluf.........32
6. Sigfús Steingrímsson -
Sigurður Hafhðason, Sigluf......30
7. Sigríður Gestsdóttir -
Súsanna Þórhahsd., Skagstr......15
8. Bergþór Gunnarsson -
Eðvarð Hahgrímsson, Skagastr....l2
9. Anton Sigurbjörnsson -
Bogi Sigurbjörnsson, Sigluf......6
10. Einar Jónsson -
Rúnar Einarsson, Hvammst.........4
Norðurlandsmót í tvímenningi verð-
ur haldið á Hvammstanga 14. okt. nk.