Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Side 38
50
/ ')
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER
ÍÓ89.
Afmæli
Erlingur Guðmundsson
Erlingur Guömundsson vörubO-
stjóri, Heiðvangi 4, Hellu, Rangár-
völlum, verður fimmtugur á morg-
un.
Erlingur fæddist að Uxahrygg I í
Rangárvallahreppi og ólst þar upp.
Hann hóf störf hjá Vegagerð ríkisins
árið 1954 og tók þar fljótlega til við
stjórnun vinnuvéla. Erlingur keypti
vörubíl 1958 og starfaði á honum og
öðrum vinnuvélum til 1963. Þá starf-
aði hann á jarðýtum við ræktunar-
vinnu hjá ræktunarsamböndum í
Rangárþingi frá 1961-73, lengst af
hjá Ræktunarsambandi Ása-, Holta-
og Landhreppa. Hann vann auk þess
við vegagerð í umdæminu og víðar
um land. Erlingur keypti svo aftur
vörubíl 1973 og hefur gert út vöru-
bO og aðrar vinnuvélar síðan.
Hann er hagur járnsmiður og hef-
ur byggt yfir bOa sína og vélar sjálf-
ur. Erlingur er áhugamaður um
hestamennsku og skógrækt og hef-
ur tekið virkan þátt í félagsmálum
áþeimvettvangi.
Erlingur kynntist eiginkonu sinni,
Sigurvinu Samúelsdóttur, árið 1958.
Þau stofnuðu heimOi að Hellu 1960
og hafa búið þar síðan. Sigurvina
er kaupmaður í Vörufelli á Hellu,
f. 1.8.1937, dóttir Samúels Samúels-
sonar frá Skjaldbjarnarvík í Árnes-
hreppi í Strandasýslu og Önnu Guð-
jónsdóttur frá sama bæ. Fóstri Sig-
urvinu er Kristinn Jónsson frá
Seljanesi í Árneshreppi, b. þar og
að Dröngum í Árneshreppi.
Erlingur og Sigurvina eiga fimm
böm. Þau eru Anna Kristín Kjart-
ansdóttir, f. 2.11.1956, bókari á S’el-
fossi, gift Hafsteini Hjaltasyni og
eiga þau þrjú börn, írisi Erlu, f. 18.6.
1975, Magnýju Rós, f. 18.10.1979, og
Kjartan Sigurvin, f. 17.10.1987;
Samúel Örn, f. 12.11.1959, íþrótta-
fréttamaður í Reykjavík, kvæntur
Ástu Breiðfjörð Gunnlaugsdóttur og
eiga þau tvö börn, Hólmfríði Ósk,
f. 23.4.1984, og Grétu MjöU, f. 5.9.
1987; Hólmfríður, f. 3.2.1961, sjúkra-
þjálfari í Reykjavík, gift Ásbirni G.
Guðmundssyni og eiga þau einn
son, Aron Stein, f. 3.5.1988; Margrét
Katrín, f. 4.3.1962, bókari á Selfossi,
gift Jónasi Lilliendahl og eiga þau
tvö börn, Erling Örn, f. 18.7.1982,
og Gústaf, f. 25.6.1987; Ingibjörg, f.
18.1.1967, bankamaður á Selfossi,
en hún á tvær dætur, Guðrúnu
Freyju, f. 27.4.1986, og Erlu Vinsý,
f.31.7.1987.
Systkini Erlings eru Ingibjörg, f.
28.6.1932, d. 13.4.1965; Gíslína
Margrét, f. 1934, lést ársgömul;
Magnús, f. 30.6.1936, b. á Uxahrygg;
Dýrfmna, f. 1939, húsmóðir á Hellu;
Árný Margrét, f. 15.1.1943, búsett í
Stykkishólmi; Ingibjörg, f. 23.1.1946,
búsett á Eyrarbakka; Gísli, f. 22.6.
1948, lögreglumaður í Grundarfirði.
Uppeldisbróðir og systursonur Erl-
ings er Guömundur Hólm Bjarna-
son, f. 15.12.1950, sjómaður á Þórs-
höfn.
Foreldrar Erlings vora Guðmund-
iir Hreinn Gíslason, f. 30.8.1903, d.
1987, b. á Uxahrygg, og kona hans
Hólmfríður Magnúsdóttir, f. 31.1.
1910, d. 1983.
Systir Guðmundar var Guðný,
amma Grétars Þorsteinssonar, for-
manns Trésmíðafélags Reykjavík-
ur, fóður Jóns Gunnars, útvarps- og
sjónvarpsmanns.
Guðmundur var sonur Gísla, b. í
Húnakoti í Þykkvabæ, bróður VO-
hjálms, b. í Dísukoti, íöður Ingvars,
útgerðarmanns og forstjóra ísbjarn-
arins, fóður Jóns, stjórnarformanns
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Gísli var sonur Hildibrands, b. í
Vetleifsholti, Gíslasonar, b. í Odds-
parti í Þykkvabæ, Gíslasonar. Móðir
Gísla var Sigríður Einarsdóttir, b. á
Búðarhóli í Þykkvabæ, Ólafssonar,
b. á Seli í Holtum, Jónssonar. Móðir
Ólafs var Guðrún Brandsdóttir, b. á
Felli í Mýrdal, Bjarnasonar, b. á
Víkingslæk, Halldórssonar, ætt-
föður Víkingslækjarættarinnar.
Móðir Guðmundar var Margrét
Hreinsdóttir, b. á Sperðli í Landeyj-
um, Guðlaugssonar, b. í Hemlu í
Landeyjum, Bergþórssonar.
Bróðir Hólmfríðar var Andrés, b.
í Vatnsdal í Fljótshlíö, afi Guðmund-
ar Vals Sigurðssonar, knattspymu-
manns í FH sem hefur verið í sviðs-
ljósinu að undanförnu. Hólmfríður
er dóttir Magnúsar, b. í Hvítanesi í
Vestur-Landeyjum, bróður Andrés-
ar, klæðskera og kaupmanns í
Reykjavík, ogÁgústs, b. í Hemlu,
afa Ágústs Inga Ólafssonar, kaup-
félagsstjóra á Hvolsvelli, en systir
Magnúsar var Guðrún, amma
Halldóru FOippusdóttur, konu Árna
Johnsens. Magnús var sonur Andr-
ésar, b. og formanns í Hemlu í Land-
eyjum, Andréssonar, b. í Hemlu,
Andréssonar. Móðir Andrésar for-
manns var Guðrún Guðlaugsdóttir,
systir Hreins. Móðir Magnúsar
Andréssonar var Hólmfríður Magn-
úsdóttir, b. á Ásólfsskála, Ólafsson-
ar, b. á Götum í Mýrdal, Ólafssonar.
Móðir Hólmfríðar á Uxahrygg var
Erlingur Guðmundsson.
Dýrfinna Gísladóttir, b. á Seljavöll-
um undir Eyjatjöllum, Guðmunds-
sonar, b. á Seljavöllum Gíslasonar,
frumbúa á SeljavöUum.
Móðir Dýrfmnu var Margrét Sig-
urðardóttir, b. í Hvammi undir
Eyjaijöllum, Sigurðssonar, b. í
Efstakoti undir Eyjafjöllum, Sig-
hvatssonar í Nýjabæ. Móðir Margr-
étar var Dýrfinna Kolbeinsdóttir frá
Suðurkoti í Krýsuvík. Dýrfinna
Gísladóttir og hinn þjóðhagi Sigur-
jón Magnússon í Hvammi undir
EyjafjöUum voru systkinabörn.
Erhngur tekur á móti gestum á
heimOi sínu, Heiðvangi 4 á HeUu, í
dag, laugardaginn 16.9.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir hús-
móðir, Álfheimum 28, Reykjavík, er
áttræðídag.
Ingibjörg fæddist í Langholti í Flóa
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hún flutti til Reykjavíkur ung kona
og giftist þar 13.10.1932 Hróbjarti
Árnasyni, f. á ÁshóU á Rangárvöll-
um 12.6.1897, d. 11.2.1953, syni Árna
Runólfssonar, b. að ÁshóU, og konu
hans, Margrétar Hróbjartsdóttur.
Hróbjartur var þá verslunarmaður
hjá Guðjóni Jónssyni, kaupmanni á
Hverfisgötu 50. Hróbjartur lærði
burstagerð og stofnaði Burstagerð-
ina í Reykjavík 1930 sem hann rak
tO dauðadags.
Ingibjörg og Hróbjartur eignuðust
sex böm. Þau eru: Margrét, f. 18.2.
1934, kristniboði og hjúkrunarkona
í Reykjavík, gift Benedikt Jasonar-
syni kristniboða; Helga Steinunn, f.
30.9.1936, kennari í Reykjavík, gift
KarU Sævari Benediktssyni kenn-
ara; Helgi, f. 26.8.1937, kristniboði
og fyrrv. prestur í Hrísey; Ámi, f.
1.12.1938, markaðsfræðingur og for-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Krist-
rúnu Ólafsdóttur; Friðrik, f. 5.6.
1940, forstjóri Burstagerðarinnar,
kvæntur Bám Böðvarsdóttur, og
Jón Dalbú, f. 29.5.1947, prestur í
LaugamesprestakalU í Reykjavík,
kvæntur Ingu Þóm Geirlaugsdóttur
kennara.
Ingibjörg átti tíu alsystkini og em
þrjú þeirra látin. Alsystkini Ingi-
bjargar: Margrét, f. 20.8.1896, hús-
móðir í Hallanda í Flóa, en hún er
látin; Ingólfur, f. 14.2.1899, Flóa-
áveitustjóri, en hann er einnig lát-
inn; Sigurður, f. 28.8.1901, skipstjóri
í Englandi; Hermann, f. 16.6.1903,
b. að Langholti í Flóa; Guðmundur,
f. 25.6.1904, bifvélavirkjameistari í
Reykjavík; Emar, f. 27.12.1907,
framkvæmdastjóri í Reykjavik, fað-
ir Markúsar veðurfræðings, en Ein-
ar er látinn; Jóna, f. 21.6.1911, hús-
móðir í Reykjavík; Rósa, f. 15.9.1912,
húsmóðir í Reykjavík; Ólöf, f. 11.3.
1916, húsmóðir í Reykjavík, og
Helga, f. 3.11.1918, húsmóðir í Þor-
lákshöfn.
Hálíbróðir Ingbjargar, samfeðra,
er Ólafur, framkvæmdastjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar vom Þor-
steinn Sigurðsson, b. aö Langholti í
Flóa, og kona hans, Helga Einars-
dóttir, b. á Litlu-Reykjum, Eiríks-
sonar.
Bróöir Þorsteins var Sigurður, afi
Eggerts Haukdals alþingismanns.
Systir Þorsteins var Ingibjörg, móð-
ir Stefaníu, konu Sigurðar Pálsson-
ar vígslubiskups og móður Sigurð-
ar, prests á Selfossi. Þorsteinn var
sonur Sigurðar, b. í Langholti, Sig-
urðssonar. Móöir Sigurðar var Ing-
veldur Þorsteinsdóttir, systir Guð-
rúnar, ömmu Ingólfs Jónssonar ráð-
herra og langömmu Jóns Ragnars-
sonar, prests í Bolungarvík. Bróðir
Ingveldar var Ámundi, langafi Guð-
rúnar Helgadóttur alþingisforseta.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
Móðir Þorsteins var Margrét Þor-
steinsdóttir, b. í Langholtsparti,
bróður Páls, langafa Markúsar Arn-
ar útvarpsstjóra og Þórðar, föður
prestanna Döllu og Yrsu. Þorsteinn
í Langholtsparti var sonur Stefáns,
b. í Neðra-Dal, Þorsteinssonar. Móð-
ir Stefáns var Guðríður Guðmunds-
dóttir, b. á Kópsvatni, Þorsteinsson-
ar, ættföður Kópsvatnsættarinnar,
langafaMagnúsar, langafa Sigríðar,
móður Ólafs Skúlasonar vígslubisk-
ups. Móðir Þorsteins í Langholts-
parti var Vigdís, dóttir Diðriks Jóns-
sonar og Guðrúnar Högnadóttur
„prestaföður", prests á Breiðaból-
stað í Fljótshlíð, Sigurðssonar.
Til hamingju með
afmælið 17. september
85 ára 60 ára
Magdalena Zakaríasdóttir, Heiðargeröi 18, Akranesi. Hilmar Helgason, Állhóli 10, Húsavík. Anna Sveinsdóttir, Huldulandi 2, Reykjavik. Ragnar Gunnarsson, Einisgrund 7, Akranesi. Anita S. Björnsson, Goöabyggö 4, Akureyri.
40 ára
75 ára
Sigríður Gisladóttir, Grenilundi 11, AkureyrL Kolbrún Leifsdóttir, Bjarmalandi 15, Sandgerði. Björn R. Ragnarsson, Heiöarási 22, Reykjavík. Soffia Guðmundsdóttir, Neðstabergi 18, Reykjavík. Gunnar Gunnarsson, Þemunesi 4, Garðabæ. Þorsteinn M. Ámason,
Gyða H. Helgadóttir, Melshúsum, Hafnarfiröi. Hún tekur á móti gestum í sal Kænunnar við smábátahöfnina i Hafnarflrði frá kl. 15 til 18. Guðbjartur Guðjónsson, Strandgötu 4, Skagaströnd.
70 ára Hraunflöt, Garðabæ. Hallur Björnsson, Þórðargötu 20, Borgamesi. Ómar Garðarsson, Hilmisgötu 1, Vestmannaeyjum. Sigurður Jóhannsson, Dalatanga 18, Mosfellsbæ.
Benedikt Jónsson, Tjamargötu 29, Keflavík. Jóhann Þ. Eiríksson, Aöalbraut 63, Raufarhöfn.
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
|| UMFERÐAR
RÁÐ
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælis börn og
aðstandendur þeirra til að senda
því myndir og upplýsingar um
frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi þremur dög-
um fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir