Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 2
2
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989.
Fréttir
Álverið:
Þrír dagar í verkfall
- lítill árangur af sarrmingaviðræðum
Fundur hófst í kjaradeilu starfs-
manna álversins 1 Straumsvík og
ísal klukkan 10 í morgun í húsi
sáttasemjara. Á fundi með deiluað-
ilum á laugardag varð mönnum lít-
ið ágengt. Einn fundarmanna orð-
aði það svo að „mjúku málin“
hefðu verið reifuð svo að þau
myndu ekki þvælast fyrir ef ein-
hver skriður kæmist á viðræður
um launahækkanir.
Ef samningar takast ekki mun
koma til verkfalls á miðnætti á
fimmtudag. Samkvæmt samning-
mn mun starfsemi álversins þá
verða stöðvuð í áfongum á tveimur
vikum. 5. október næstkomandi
yrði verinu þá lokað.
Starfsmenn álversins byggja
kröfur sínar á svokallaðri „Isal-
vog“ en í kjarasamningum árið
1986 var hún búin til til að meta
launahækkanir hjá viðmiðunar-
hópum á almennum vinnumark-
aöi. Starfsmenn álversins telja sig
hafa orðið útundan þegar launa-
skrið varð á vinnumarkaði á árinu
1987 og fram á árið 1988. Til þess
að ná „ísal-voginni“ á núllpunkt-
inn þurfi þeir um 12 til 14 prósent
hækkun.
Vinnuveitendasambandið semur
fyrir hönd ísal. Það leggur áherslu
á að samningar við starfsmenn ál-
versins séu í samræmi við aðra
samninga sem gerðir hafa verið við
launafólk á undanfomum mánuð-
um. 12 til 14 prósent launahækkun
fellur ekki inn í þann ramma.
-gse
Schaferhundurinn á dýraspitalanum í gær. Af látbragði hundsins mátti sjá að hann var hræddur og óöruggur
enda hafði hann verið lokaður inni í bíl í Breiðholti í að minnsta kosti tvo sólarhringa. DV-mynd S
Vítavert kæruleysi af hálfu hundaeiganda:
Scháferhundur lokaður inni
í bíl í tvo sólarhringa
Lögreglan í Reykjavík frelsaði
scháferhund úr lokuðum bíl í Fella-
hverfi á laugardagskvöld. Við nánari
eftirgrennslan um ferðir eigandans
telur lögregla nokkuð víst að hund-
urinn hafi verið lokaður inni í bíln-
um í að minnsta kosti tvo sólar-
hringa. Mun eigandinn vera iðnaðar-
maður sem vann að viðgerðum í
húsi í hverfinu og hefur hann skilið
bæði bíl og hund eftir þegar hann
lauk vinnu fyrir helgina.
Farið var með hundinn rakleiðis á
dýraspítalann. Hann var mjög
hræddur og æstur við komuna þang-
að. Ljósmyndari DV heimsótti dýra-
spítalann í gærdag. Þá var hundur-
inn í búri en var síðan sleppt í girt
útihólf. Þá var hundurinn óöruggur,
mjög hræddur og urraði mikið að
nærstöddum. í samtali við dýraspít-
alann í morgun var DV þó tjáð að
hundurinn væri að róast.
Að sögn lögreglu er um vítavert
kæruleysi af hálfu eiganda hundsins
að ræða. Hefur málið verið kært og
fær venjulega afgreiðslu. Má búast
við ákæru á hendur eigandanum þó
það sé ekki víst. Afrit af skýrslu lög-
reglu verður sent dýravemdunarfé-
lögum.
Eigandinn hafði ekki viljað hunds-
ins í morgun en fær hann afhentan
ef hann æskir þess þar sem um eign
hans er að ræða.
-hlh
Sauðárkrókur:
Gangstéttir
steyptar
Þórhallur Ásmundsson, DV, Saudárkxóki:
Nýhafnar eru á Króknum fram-
kvæmdir við gerð gangstétta í Hlíða-
hverfi. Reiknað er með að verkið,
sem er í höndum Knúts Aadnegard
byggingameistara, komi til með að
kosta um 2 milljónir króna.
Gangstéttimar, sem steyptar verða
nú, em við tvær stofnbrautir í Hlíða-
hverfi, annars vegar norðan stofn-
brautar sem liggur upp með Rafta-
hlíðinni og hins vegar upp með Sauð-
árhlíðinni að sunnanverðu en Sauð-
árhlíð liggúr frá Birkihlíð, upp með
og að Háuhlíð.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra tók á móti Frank B. Kelso,
yfirmanni Atlantshafsflota Atlantshafsbandalagsins, í morgun en Kelso er
hér i boöi Jóns. Kelso skoðaði Höfða í morgun og í hádeginu mun hann
snæða málsverð í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. DV-mynd BG
Mj ólkurfræöingar:
Ekki áslæða til bjartsýni
„Það er töluverð stífni í mönnum.
Viðræðumar stranda á sérkröfum
okkar sem em kröfur um stjómun-
arálag og aldursflokka. Kröfumar
hafa ekki verið ræddar þar sem
vinnuveitendur hafa ekki ljáð máls
á að ræða þær. Það er því ekki ástæða
til bjartsýni," sagði Kristján Larsen,
formaður Mjólkurfræðingafélagsins,
við DV.
Viðræður mjólkurfræðinga og
vinnuveitenda strönduðu á fundi
aðfaranótt fimmtudags. VerkfaU
mjólkurfræðinga í Mjólkurbúi Flóa-
manna hefst því á miðnætti í kvöld
verði ekki samið fyrir þann tíma og
mun standa í tvo daga. Á fimmtudag
og fostudag verður síðan verkfall hjá
Mjólkursamlaginu í Reykjavík og á
Akureyri. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um verkfall í öðram
mjólkursamlögum.
Boðað hefm- verið til fundar með
deiluaðilum klukkan fjögur í dag.
-hlh
Bankaeftirlitið sendir bankaráði Landsbankans bréf:
Menn brosa góðlát-
lega að bréfinu
- segir Lúðvík Jósefsson
„Ég hef fengið bréf en ég hef ekki
séð neina áminningu," sagði Lúðvik
Jósefsson, bankaráðsmaður í Lands-
bankanum.
Bankaeftirlit Seðlabankans hefur
sent öllum bankastjórum og banka-
ráðsmönnum bréf í tilefni af umræð-
um um brot Lúðvíks á bankaleynd í
yfirlýsingum hans í kjölfar kaupa
Landsbankans á hlut Sambandsins í
Samvinnubankanum. Lúðvík
greindi þar frá aö heildarfyrir-
greiðsla Sambandsins hjá Lands-
bankanum næmi um 2,6 milljörðum
króna.
„Þeir benda á hvað stendur í lögum
og það vissi ég fyrir. Hér er ekki um
neina áminningu að ræða og hvergi
bent á neitt sem saknæmt hefur ver-
ið. Svo menn brosa góðlátlega að
bréfinu.
Ég hef einnig fengið þá frétt í út-
varpinu að bankaeftirht Seðlabank-
ans hafi áminnt menn í sambandi við
Olísmálið. Þær áminningar hljóta að
hafa verið til einhverra bankastjóra
eða einhverra bankaráðsmanna ann-
arra en mín því að ég hef aldrei feng-
ið neitt um það að vita,“ sagði Lúð-
víkJósefsson. -gse
Viðskiptaráðherra:
„Ég lít á þetta sem alvarlega að-
mrun,“ segir Jón Sigurðsson við-
ikiptaráðherra um bréf Seölabank-
ms til aUra bankaráðsmanna og
(ankasfióra Landsbankans þar
;em þeir em minntir á þagnar-
kyldu í starfi. Segir f bréfinu að
íripið verði til „viðeigandl ráðsfaf-
ana“ verði þessi regla brotin hér
eftir.
,JÞað er afarslæmt ef menn sem
starfa í bönkum tjá sig á opinberum
vettvangi um viðskipti einstakra
viöskiptavina við bankana," segir
viöskiptaráðherra ennfremur.
-JGH
Samið um sölu á saltsfld
Samningar hafa nú tekist við
helstu saltsíldarinnflytjendur í Sví-
þjóð og Finniandi inn söluverð á salt-
sfld og aðra söluskiimála. Sam-
kvæmt þeim hækkar söluveröið á
hefðbundnum tegundum mn 6-7%
frá fyrra ári. Það er eins og áður í
sænskum krónum og finnskum
mörkum.
Eins og á undanfómum árum hafa
kaupendur í ofangreindum löndum
nokkum frest til að staðfesta endan-
legt samningsmagn en búist er við
að það verði svipað og selt var með
fyrirframsamningum á síðasta ári
eða samtals um 60-70 þúsund tunnur
miðað við hausskoma og slógdregna
síld.
Þá era þegar hafnar samningaum-
leitanir um fyrirframsölu á saltaðri
síld til Sovétríkjanna. Formlegar
samningaviðræður hafa enn ekki
hafist og ekki liggur ijóst fyrir hve-
nær Sovétmenn verða tilbúnir til
viðræðma.
-JSS
Skákþing íslands:
Karl efstur
Karl Þorsteinsson hefur nú öragga í 2.-3. sæti era þeir Björgvin Jónsson
forystu á Skákþingi íslands en hann og Þröstur Þórhallsson með 3,5 vixm-
er með 4,5 vinninga eftir 5 umferðir. inga. -SMJ